Morgunblaðið - 26.01.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
Skúli Hansen
Lýst var yfir hættuástandi vegna
snjóflóðahættu á iðnaðarsvæðinu
Grænagarði á Ísafirði og við sorp-
brennsluna Funa í Engidal í gær. Þá
var hættuástandi lýst yfir á bænum
Hrauni í Hnífsdal. Voru nokkrir bæ-
ir til viðbótar á skoðunarlista. Engar
tilkynningar bárust um eignatjón á
Vestfjörðum vegna óveðursins, að
sögn lögreglunnar á Ísafirði þegar
um það var spurt seint í gærkvöldi.
Þá var hættuástandi lýst yfir í
tveimur íbúðarhúsum vestarlega á
Seljalandsvegi og voru húsin, sem
eru í nágrenni Grænagarðs, rýmd
um tíuleytið í gærkvöldi.
Spáð var norðanhvassviðri, 18 til
23 metrum á sekúndu, og mikilli
snjókomu á norðanverðum Vest-
fjörðum í nótt og átti að draga úr
vindi og ofankomu í morgun.
„Þekkt snjóflóðaveður“
Mesta snjófljóðahættan á norðan-
verðum Vestfjörðum tengist aftaka-
veðrum af norðri þegar lægðir ganga
norður fyrir land úr suðri eða austri.
„Þetta er þekkt snjóflóðaveður fyrir
Vestfirði,“ sagði Auður Kjartans-
dóttir, vaktmaður Snjóflóðavaktar
Veðurstofu Íslands.
Á Vestfjörðum brast víða á stór-
hríð og var mikið annríki hjá vega-
gerðarmönnum. Á Vesturlandi og á
Snæfellsnesi fer veður og færð
versnandi, líkt og víðar um landið.
Spáði Einar Sveinbjörnsson veður-
fræðingur því að ef spár gengju eftir
yrði mikil ófærð á landinu, þ.m.t. í
þéttbýlinu á suðvesturhorninu.
Tvö viðbúnaðarstig eru vegna
snjóflóðahættu, óvissuástand og
hættuástand, og var óvissuástandi
lýst fyrir norðanverða Vestfirði, að
sögn Rúnars Óla Karlssonar, vakt-
stjóra snjóflóðavaktar Veðurstofu
Íslands. Sagði hann óvissuástandi
lýst fyrir allt svæðið, jafnvel þótt það
gæti aðeins átt við eitt bæjarfélag.
Komast ekki landleiðina
Ófærðin á Vestfjörðum setti mark
sitt á atvinnulíf í landshlutanum.
Óðinn Gestsson, framkvæmda-
stjóri fiskvinnslunnar Íslandssögu á
Suðureyri, sagði ófærðina hafa vald-
ið því að ekki tókst að koma unnum
afla landleiðina suður til Reykjavík-
ur, þaðan sem flytja átti hann með
flugi til Bretlands og sjóleiðina á
markaði. Óttaðist Óðinn að frysta
þyrfti aflann, um fimm tonn, en við
það lækkar hann í verði. Var jafn-
framt óvíst hvort 8-9 tonna óunninn
afli kæmist til vinnslunnar í dag. Átti
starfsfólk erfitt með að komast milli
Tálknafjarðar, Bíldudals og Patreks-
fjarðar vegna ófærðar. Sverrir Har-
aldsson, útgerðarstjóri hjá Odda á
Patreksfirði, sagði mokstur á Kleifa-
heiði og ferðir ferjunnar Baldurs
hafa tryggt landflutninga.
Dísilrafstöð sett í
gang á Þórshöfn
Rafmagn fór tvisvar af í Bolung-
arvík og sagði Helgi Bjarnason að
nægt eldsneyti væri til að knýja
varaaflstöð þar til í næstu viku en
hann var þar á bakvakt.
Rafmagn fór af Þórshöfn, Kópa-
skeri, Raufarhöfn og sveitum þar í
kring um áttaleytið í gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum frá Rarik
var bilun á línunni frá Laxá til Kópa-
skers.
Að sögn fréttaritara Morgun-
blaðsins þurfti að kalla til mann frá
Raufarhöfn til að setja í gang dís-
elrafstöð í Þórshöfn.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Við Landsbankann á Ísafirði Menn og dýr fundu mikið fyrir veðurofsanum í gær. Fannfergi og hvassviðri spillti færð víða um landið.
Óvissuástand og hús rýmd
Snjóflóðahætta á Vestfjörðum í nótt Óvissuástandi lýst á norðanverðum Vestfjörðum
Bolungarvík á varaafli Rafmagn fór af Þórshöfn, Kópaskeri, Raufarhöfn og sveitum þar í kring
Ísafjörður
Atvinnusvæðið
við Grænagarð
á Ísafirði rýmt.
Sorpbrennslan
Funi rýmd.
Hesthúsahverfi
í Engidal rýmt.
Loftmyndir ehf.
Súðavík
En
gid
alu
r
Kirkjubólsfjall
Ernir
Eyrarfjall
Sauradalur
Hnífsdalur
Sauratindar
Súðavíkurfjall
Bakkahyrna
Ey
ra
rh
líð
Eyrarhlíð, milli
Ísafjarðar og Hnífsdals,
lokuð vegna snjóflóða.
Viðbúnaður vegna
snjóflóðahættu
Sú
ða
ví
ku
rh
líð
Vegurinn um
Súðavíkurhlíð
lokaður.
Djúpvegur ófær.
Mbl/EEM
Ríkisstjórnar-
flokkarnir stefna
að því að leggja
fram þingsálykt-
unartillögu um
skiptingu ráðu-
neyta í lok febr-
úar eða byrjun
mars.
„Ég get ekki
gefið nánari
tímasetningar.
Það er verið að vinna þetta í ráð-
herranefnd eins og ég upplýsti
varðandi þessar breytingar. Ég
geri ráð fyrir að það taki nokkrar
vikur og ég vona að þær geti verið
komnar hér inn í þing í lok febrúar
eða byrjun mars,“ sagði Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra á
Alþingi í gær. Í kjölfar þingsálykt-
unartillögu er gefinn út forseta-
úrskurður um skiptingu ráðuneyta.
Tillaga um breytta
skipan ráðuneyta í
febrúar eða mars
Jóhanna
Sigurðardóttir
Kýrnar í Hraunkoti í Landbroti voru
með hæstu meðalnyt á síðasta ári,
8.340 kg, samkvæmt ársuppgjöri
skýrsluhalds nautgriparæktarfélag-
anna sem birt var í gær. Er þetta
mesta meðalnyt sem reiknast hefur
og því Íslandsmet.
Hjónin í Hraunkoti í Skaftár-
hreppi, Ólafur Helgason og Sigurlaug
Jónsdóttir, eru með lítið blandað bú,
aðeins 16,5 árskýr, sem er ekki helm-
ingur af því sem algengast er meðal
bestu búa. Kýrnar í Hraunkoti
mjólka að meðaltali tæplega þrjú
þúsund kílóum meira en meðalbúin.
Í öðru sætinu á síðasta ári var búið
á Hóli í Sæmundarhlíð í Skagafirði,
7.986 kg. Í þriðja sætinu var Kirkju-
lækur 2 í Fljótshlíð, með 7.811 kíló.
Nythæsta kýrin er í búi Ólafs og
Sigurlaugar, Týra nr. 120. Hún skil-
aði 12.144 kg mjólkur á síðasta ári.
helgi@mbl.is
Settu nýtt Íslands-
met í afurðum
Meðalnytin í Hraunkoti 8.340 kg
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Nythæst Týra mjólkaði mest 2011.
Björgunarsveitin á Dalvík lið-
sinnti ökumanni og farþegum
hans eftir að bifreið sem þau
voru í festist í snjóflóði við
Sauðanes á veginum milli Dal-
víkur og Ólafsfjarðar um níu-
leytið í gærkvöldi. Engin slys
urðu á fólki í óhappinu. Var veg-
inum í kjölfarið lokað vegna
snjóflóðahættu.
Þá var Siglufjarðarvegi lokað
af sömu ástæðu.
Ók bílnum
inn í snjóflóð
LOKUÐU VEGUM
Siglufjarðarvegi lokað með vörubíl.