Morgunblaðið - 26.01.2012, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Eggert
Hressir Þeir njóta þess að tefla í Skákskólanum þessir strákar. Frá vinstri: Felix Steinþórsson, Hilmir Hrafnsson,
Heimir Páll Ragnarsson, Hilmir Freyr Heimisson og Gauti Páll Jónsson.
mennri útbreiðslustarfsemi, sem
felst í því að færa skákina til al-
mennings, hvort sem það er gert í
gegnum sundlaugarnar, skákmót
á kaffihúsum eða með öðrum
hætti.“
Gríðarlegur vöxtur í skák
Skákakademían, sem Stefán
er framkvæmdastjóri hjá, stendur
fyrir kennslu í grunnskólum í
Reykjavík og breiðir þannig út
skákina meðal þúsunda barna.
„Það hefur gengið alveg sérstak-
lega vel og skólunum er alltaf að
fjölga sem við kennum í. Núna er
skákin víðast hvar á stundatöflu í
þriðja bekk í þeim þrjátíu skólum
þar sem Skákakademían stendur
fyrir skákkennslu. Markmiðið er
auðvitað að vera í öllum 47 grunn-
skólum Reykjavíkur,“ segir Stefán
og bætir við að það sé gríðarlegur
vöxtur í skákinni, ekki
aðeins hjá krökkunum
heldur líka hjá al-
menningi.
„Hvort sem það
er skáknámskeið hjá
Skákskóla Íslands eða
skákmót, þá er alltaf
metþátttaka eða mesta
þátttaka undanfarin
10-15 ár. Til dæmis er
mjög góð þátttaka á
Skákþingi Reykjavík-
ur sem stendur yfir núna, rúmlega
sjötíu manns tefla þar.“
Friðrik teflir við Nansý
Þegar Stefán er spurður um
kynjaskiptinguna hjá krökkum
sem taka þátt í skákinni segir
hann mikla sókn í stelpuskákinni.
„Íslandsmót barna í skák var hald-
ið í átjánda sinn núna í janúar og
þá vann stúlka mótið í fyrsta sinn.
Hún heitir Nansý Davíðsdóttir og
er tíu ára. Hún er mjög efnileg og
er meðlimur í ungmennalandsliði
Íslands í skák sem mun taka þátt í
Norðurlandamótinu í Finnlandi í
febrúar.
Þau sem eru í þessu liði eru
öll boðin til Bessastaða í dag í
móttöku forsetans Ólafs Ragnars
Grímssonar í tilefni Skákdagsins.
Þar mun Friðrik tefla við Nansý,
nýkrýndan Íslandsmeistara
barna.“
Stefán segir að krakkarnir
sem fara fremst í flokki í skákinni
slái ekki slöku við, heldur æfi sig
grimmt.
„Nansý mætir tvisvar í viku í
tíma hjá Skákskólanum sem sér
um að þjálfa afrekskrakka. Hún
mætir líka á æfingu hjá sínu tafl-
félagi, sem er Fjölnir, og auk þess
teflir hún á mótum einu sinni til
þrisvar í viku. Þetta eru því sjald-
an færri en fimm skipti í viku.“
Ekki er annað hægt að segja en að
írski verslunareigandinn William Mul-
hall hafi ágætis húmor. En hann rekur
það sem á ensku kallast „curiosity
shop“ eða verslun þar sem finna má
ýmsa forvitnilega hluti. Eins konar
krambúð þar sem öllu ægir saman í
einum graut.
Verslunin hans William er í litla
sjávarplássinu Ardglass á Norður-
Írlandi. Við síðustu talningu árið
2001 bjuggu þar aðeins rétt tæplega
1700. Þrátt fyrir smæð bæjarins er
alltaf opið hjá William. Allan sólar-
hringinn allan ársins hring. En versl-
un hans er sérstaklega ætluð sjó-
mönnum og þeir eru jú á ferð á
ýmsum tímum.
Víða um verslunina hefur William
komið fyrir kostulegum skilaboðum
til viðskiptavina sinna sem meðal
annars minna þá á að borga fyrir
matinn sem þeir kaupa. William er
líka listamaður og notar verslunina
sem stúdíó auk þess að hafa skreytt
hana fagurlega að utan. Sannarlega
óvenjuleg og skemmtileg verslun
sem lífgar upp á tilveruna.
Lífið og tilveran
Reuters
Einkamál Verslunareigandinn William Mulhall sér um ástamál þorpsbúa.
Alls konar
furðuhlutir í
einum graut
Skeggjaður Listamaðurinn William
er með skemmtilegan, svartan húmor.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2012
Kjörorð Skákdagsins er:
Upp með taflið! Hægt er að
nálgast dagskrána og fylgjast
með fréttum og viðburðum á:
skakdagurinn.blog.is.
Meðal annars verður skák-
hátíð í Grímsey sem mun standa
allan daginn, Unnsteinn Sig-
urjónsson mun tefla fjöltefli við
nemendur í grunnskóla Bolung-
arvíkur, kaffihúsaskákmenn mið-
borgarinnar mæta á Cafe Haíti
sem er sívaxandi skákmiðstöð,
Skákgleði verður á
leikskólanum Mar-
bakka í Kópavogi þar
sem stórmeistari
kvenna, Lenka
Ptácníková stjórnar,
og svo mætti lengi
telja. Íslendingar
víða um heim hafa
einnig boðað þátt-
töku í Skákdeginum
2012.
Skák er
skemmtileg
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ
Á SKÁKDAGINN
Fjarðarkaup
Gildir 26. - 28. janúar verð nú áður mælie. verð
Svínakótilettur úr kjötborði.......... 1198 1598 1198 kr. kg
Nautabuff úr kjötborði ................ 1898 2298 1898 kr. kg
Hamborgarar m/brauði, 4x80 g .. 576 680 576 kr. pk.
Ísfugl kjúklingabringur ferskar ..... 1998 2349 1998 kr. kg
Ísfugl kjúklingur frosinn .............. 669 785 669 kr. kg
Fjallalambs kindahakk frosið ...... 998 1139 998 kr. kg
Fjallalambs lambalæri kryddað ... 1498 1698 1498 kr. kg
Floridana appelsínusafi, 1 ltr ...... 195 248 195 kr. ltr
Appelsínur ................................ 98 248 98 kr. kg
Epli rauð stór amerísk ................ 198 398 198 kr. kg
Hagkaup
Gildir 26. - 29. janúar verð nú áður mælie. verð
Ísl.nauta-ribeye ......................... 2924 3898 2924 kr. kg
Holta ferskur kjúklingur 1/1........ 799 998 799 kr. kg
Ísl. lamb kryddlegið læri ............. 1398 1798 1398 kr. kg
Holta úrb. kjúklingalæri í magnp. 1919 2398 1919 kr. kg
Jói Fel pitsadeig ferskt................ 299 369 299 kr. pk.
Myllu karamellukaka.................. 499 699 499 kr. stk.
Myllu sérbökuð vínarbrauð.......... 119 249 119 kr. stk.
Krónan
Gildir 26. - 29. janúar verð nú áður mælie. verð
Lambalærissneiðar .................... 1598 1998 1598 kr. kg
Lambasirloinsneiðar .................. 1278 1598 1278 kr. kg
Lambaleggir .............................. 1198 1368 1198 kr. kg
Grísakótilettur............................ 1049 1498 1049 kr. kg
Nautabökur 2 stk í pk................. 476 529 476 kr. pk.
Mexikóbökur, 2 stk. í pk.............. 476 529 476 kr. pk.
ÍM Kjúklingabitar ....................... 599 698 599 kr. kg
Kjúklingabringur fro. erl. ............. 1698 1998 1698 kr. kg
Djús appelsínur, 3 kg í pk. .......... 399 529 399 kr. pk.
Nóatún
Gildir 26. - 29. janúar verð nú áður mælie. verð
Folaldasnitsel úr kjötborði .......... 1698 1998 1698 kr. kg
Folaldagúllas úr kjötborði ........... 1698 1998 1698 kr. kg
Folaldapiparsteik úr kjötborði ..... 2458 2898 2458 kr. kg
Folaldafille úr kjötborði............... 3313 3898 3313 kr. kg
Folaldalundir úr kjötborði ........... 3398 3998 3398 kr. kg
Folaldahakk úr kjötborði............. 359 598 359 kr. kg
Bleikjuflök úr fiskborði................ 1798 1998 1798 kr. kg
ÍM kjúklingalæri úrbeinuð ........... 1998 2699 1998 kr. kg
Þín Verslun
Gildir 26. - 29. janúar verð nú áður mælie. verð
Lambaprime úr kjötborði ............ 3490 4490 3490 kr. kg
Ísfugl kjúklingaleggir .................. 878 1098 878 kr. kg
Toppur blár, 2 ltr ........................ 198 289 99 kr. kg
MS heimilisjógúrt karamellu ....... 225 247 225 kr. ltr
Maggi kartöflumús, 90 g ............ 159 215 177 kr. kg
Sætre kaptein kex ,200 g ........... 159 199 795 kr. kg
Burtons Toffypops, 120 g ........... 149 195 1242 kr. kg
Ota Solgryn haframjöl, 950 g...... 435 498 458 kr. kg
Daloon vorrúllur, 720 g .............. 789 998 1096 kr. kg
Nestlé Kit Kat, 5x45 g ................ 398 549 1769 kr. kg
Helgartilboð
ljósmynd/Norden.org
Sími 694 7911 • Eikjuvogur 29 • Opið mán. - fim. 12-18, fös. 12-16
Enn meiri
verðlækkun
50%
afsláttur
af útsöluvörum