Morgunblaðið - 26.01.2012, Síða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2012
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Búhamar 4, 218-3020, þingl. eig. Ágúst Hreggviðsson, gerðarbeiðandi
Arion banki hf., miðvikudaginn 1. febrúar 2012 kl. 14:30.
Kirkjuvegur 39a, 218-4404, þingl. eig. Eðvald Eyjólfsson, gerðar-
beiðendur Breiðan ehf. og Vörður tryggingar hf., miðvikudaginn
1. febrúar 2012 kl. 14:00.
Kirkjuvegur 39a, 218-4405, þingl. eig. Eðvald Eyjólfsson, gerðar-
beiðendur Breiðan ehf. og Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 1. febrúar
2012 kl. 14:10.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
25. janúar 2012.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Arnartangi 55, 208-2719, Mosfellsbæ, þingl. eig. Einar Bjarni
Sigurðsson og Sigurður Einarsson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf.,
Kaupthing mortgages Fund og Sýslumaðurinn á Blönduósi,
mánudaginn 30. janúar 2012 kl. 13:30.
Ferjubakki 2, 204-7623, Reykjavík, þingl. eig. Knútur Knútsson,
gerðarbeiðandi Ferjubakki 2-16, húsfélag, mánudaginn 30. janúar
2012 kl. 10:30.
Helluvað 1-5, 228-0585, Reykjavík, þingl. eig. Viken Samúel
Samúelsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Sparisjóður Reykja-
víkur/nágr. hf., Vörður tryggingar hf. og Þorvaldur H. Gissurarson,
mánudaginn 30. janúar 2012 kl. 14:30.
Rauðavað 23, 227-3060, Reykjavík, þingl. eig. Sigmar Pálmason,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 30. janúar 2012
kl. 14:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
25. janúar 2012.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Vesturbraut 8, 211-7360, Búðardal, þingl. eig. Megin ehf.,
gerðarbeiðandi Arion banki, miðvikudaginn 1. febrúar 2012 kl. 13:00.
Vesturbraut 8, 223-4028, Búðardal, þingl. eig. Megin ehf.,
gerðarbeiðandi Arion banki, miðvikudaginn 1. febrúar 2012 kl. 13:00.
Sælingsdalur, 137739, Dalabyggð, þingl. eig. Ríkissjóður Íslands og
Guðmundur Elísson, gerðarbeiðendur Dalabyggð og Vátrygginga-
félag Íslands, miðvikudaginn 1. febrúar 2012 kl. 13:45.
Skriðuland, 211-8336, Dalabyggð, þingl. eig. Skriðuland ehf., gerðar-
beiðandi Dalabyggð og Vátryggingafélag Íslands, miðvikudaginn
1. febrúar 2012 kl. 14:30.
Skriðuland, 211-8337, Dalabyggð, þingl. eig. Skriðuland ehf.,
gerðarbeiðandi Dalabyggð, miðvikudaginn 1. febrúar 2012 kl. 14:30.
Skarðsá II, 176807, Dalabyggð, þingl. eig. Edda Unnsteinsdóttir,
gerðarbeiðandi Dalabyggð, miðvikudaginn 1. febrúar 2012 kl. 15:00.
Sýslumaðurinn í Búðardal,
24. janúar 2012.
Áslaug Þórarinsdóttir sýslumaður.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Heiðarvegi
15, Vestmannaeyjum fimmtudaginn 2. febrúar 2012 kl. 09:30
á eftirfarandi eignum:
Birkihlíð 24, 218-3869, þingl. eig. Una Sigríður Ásmundsdóttir,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Birta VE-008, skr.nr. 1430, þingl. eig.TT Luna ehf. og Svörfull ehf.,
gerðarbeiðandi Sandgerðishöfn.
Flatir 25, 218-3356, þingl. eig. Rammar, hurða- og gluggasm. ehf.,
gerðarbeiðandi Gjaldheimtan ehf.
Hátún 8, 218-3702, þingl. eig. Gunnar Magnússon, gerðarbeiðandi
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
Heiðarvegur 5, 218-3721, þingl. eig. Hvassafell ehf., gerðarbeiðandi
Vestmannaeyjabær.
Heimagata 35, 218-3844, þingl. eig. Hlynur Már Jónsson, gerðar-
beiðandi Vestmannaeyjabær.
Helgafellsbraut 31, 218-3874, þingl. eig. Hvassafell ehf., gerðar-
beiðandi Vestmannaeyjabær.
Hólagata 28, 218-3968, þingl. eig. Sveinn Garðarsson, gerðar-
beiðandi Vestmannaeyjabær.
Kirkjuvegur 21, 218-4385, þingl. eig. Þrídrangar ehf., gerðarbeiðandi
Vestmannaeyjabær.
Kirkjuvegur 84, 218-4442, þingl. eig. Kolbrún Harpa Kolbeinsdóttir,
gerðarbeiðendurTryggingamiðstöðin hf.
Vestmannabraut 37, 218-4990, þingl. eig. Hvassafell ehf., gerðar-
beiðandi Vestmannaeyjabær.
Vestmannabraut 47, 218-5004, þingl. eig. Hörður Guðmundsson,
gerðarbeiðandi Vestmannaeyjabær.
Vesturvegur 28, 218-5098, þingl. eig. Gunnar Magnússon, gerðar-
beiðendur Íbúðalánasjóður og Vátryggingafélag Íslands hf.
Vesturvegur 30, 218-5101, þingl. eig. Gunnar Magnússon, gerðar-
beiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
25. janúar 2012.
Raðauglýsingar
Elskulegi pabbi minn, það er
ótrúlegt að þú sért farinn frá okk-
ur, þú fórst fljótt eins og mamma
gerði árið 2006. Það er sárt að
hugsa til þess að ég geti ekki
fylgst með þér lengur, gefið þér
að borða, haft við þig blaðaskipti,
þú fékkst Fréttablaðið og ég
Moggann, og passað að allt sé í
lagi hjá þér, nú er þessu hlutverki
lokið hjá mér.
Alltaf varstu svo góður við mig
og mína fjölskyldu, alltaf tilbúinn
að rétta fram hjálparhönd ef ég
þurfti á aðstoð að halda, alveg
sama hvað það var. Það verður
gott að geta hugsað til allra góðu
minninganna sem við áttum sam-
Sigurður Gunnar
Kristjánsson
✝ SigurðurGunnar Krist-
jánsson, sjómaður,
verkamaður og síð-
ar múrari, fæddist
á Akrahóli í
Grindavík 8. októ-
ber 1929. Hann lést
10. janúar 2012.
Útför Sigurðar
var gerð frá
Grindavíkurkirkju
20. janúar 2012.
an, við fórum saman
í margar útilegur,
sumarbústaðarferð-
ir og í einu ferðina
sem þið mamma fór-
uð til útlanda, verst
að þær voru ekki
fleiri. Þú varst mikið
fyrir afa- og lang-
afabörnin, vildir
gera allt fyrir þau,
verst að þú verður
ekki hjá okkur þeg-
ar nýjasta barnið kemur í heim-
inn.
Ég vil þakka þér fyrir allt sem
þú hefur gert fyrir mig og mína
fjölskyldu, ég veit að núna ertu
sæll og glaður að vera kominn til
hennar mömmu. Ég bið guð að
gefa okkur styrk á þessum erfiðu
tímum.
Nú kveð ég þig, elsku pabbi,
með söknuði.
Þegar sorgar titra tárin,
tregamistur byrgir sýn.
Huggar, græðir hjartasárin,
hlý og fögur minning þín.
(F.S.)
Þín dóttir,
María Þóra.
„Seinna meir sé ég þig,
seinna meir trúirðu mér,“ kem-
ur úr hátölurunum í gulu To-
yotunni hans Magga. Vorið er
1981 ég er 10 ára og ég sit í
bílnum á leiðinni í Hólmatungu
í Jökulsárhlíðinni í fyrsta skipti.
Hólmatunga var á þeim tíma
eins langt frá Reykjavík og
hugsast gat – tvær stuttar og
ein löng (u.þ.b.) – og möl alveg í
Hvalfjörðinn. Þetta var þriðja
sveitin mín á 5 árum svo greini-
legt að fjörmikill var drengur-
inn.
Í hlaðinu taka þau á móti
mér sómahjónin Gunnþórunn
Jónsdóttir og Eiríkur Magnús-
son. Í tvö sumur og eina páska
dvaldi ég í Hlíðinni. Þetta var
heimili mitt og vin. Minningin
er falleg, ánægjuleg og jákvæð.
Að ríða á Sleipni þeim mikla
fáki (líklega 15 vetra þegar
þetta var), veiða sel á sand-
inum, sækja rekavið, elta mink
og gæsir í nóttinni, endalausar
bækur að lesa, ganga yfir
Hellisheiði með kindur, kyssa
stelpu undir hlöðugólfi, reyna
að reykja bakvið skúr og hlusta
á rödd manns sem þekkti landið
og náttúruna betur en flestir á
þessu svæði.
Þessar minningar koma til
mín núna þegar Eiríkur Magn-
ússon kveður Hlíðina. Hann tók
mér vel þrátt fyrir æðibunu-
ganginn og endalausar spurn-
ingar. Hann hafði lúmskt gam-
an af þessum síspyrjandi strák
sem var allt of stór fyrir sinn
aldur. Hann kenndi mér á sveit-
ina. Einu sinni hrósaði hann
mér alveg sérstaklega þar sem
við vorum í girðingarvinnu:
„Grímur þú ert ekki dæmigert
borgarbarn – þú gætir barasta
hafa fæðst í sveit.“ Það þykir
Helgi Eiríkur
Magnússon
✝ Helgi EiríkurMagnússon
fæddist í Másseli í
Jökulsárhlíð 15.
ágúst 1928. Hann
lést í faðmi fjöl-
skyldu sinnar í Ár-
skógum 1, Egils-
stöðum, 10. janúar
2012.
Eiríkur var jarð-
sunginn frá Egils-
staðakirkju 21. jan-
úar 2012.
mér ekki vond ein-
kunn.
Ég hef heimsótt
Hólmatungu
nokkrum sinnum
frá því að dvöl
minni þar lauk og
Gunnþórunn hefur
verið dugleg að
rækta sambandið.
Það var alveg sér-
staklega gaman að
líta við með fjöl-
skylduna sumarið 2005 og upp-
lifa þegar teknar voru upp
nokkrar vel valdar kökur úr
frysti eins og gert var fyrir 30
árum þegar sérstaka gesti bar
að garði.
Gunnþórunni, Magnúsi,
Viggó, Jóni Brynjari, Jóhönnu
og öðrum aðstandendum votta
ég samúð mína. Ég á bara góð-
ar minningar um Eirík Magn-
ússon og Tunguna sem hann
byggði fyrir um 60 árum.
Grímur Atlason.
Nú hefur Eiríkur Magnússon
bóndi í Hólmatungu í Jökuls-
árhlið lokið sínum langa bú-
skap.
Ég man fyrst eftir Eiríki
móðurbróður okkar sem barn
fyrir 60 árum, þegar hann kom
til Eyja á vertíð, glæsilegum
ungum manni, en hann bjó hjá
okkur marga vetur eftir það.
Ég heyri enn fyrir mér skrjáfið
í niðurbrettum klofstígvélunum,
er hann kom heim í Lambhaga
úr vinnunni. Það voru miklir
fagnaðarfundir og ánægju-
stundir hjá móður okkar, þegar
systkini hennar og þeirra kunn-
ingjar komu á vertíð og heim-
sóttu okkur. Mikið var spjallað,
sagðar sögur og hlegið langt
fram á nótt.
Ungur fór Eiríkur til náms í
Laugaskóla og eignaðist þar
marga vini og ljúfar minningar.
Hann vann við síldveiðar um
tíma, einnig var hann flánings-
maður í sláturhúsinu á Foss-
völlum í nær hálfa öld. Eiríkur
var mikill bóndi og sérlega lag-
inn við að koma fé vel fram þó
að erfitt væri með fóðuröflun.
Hann var laginn hestamaður og
með afbrigðum fjárglöggur,
eins og reyndar bræður hans
líka. Það virtist alltaf vera jafn-
mikið ævintýri fyrir þá bræður
að fara í göngur á æskuslóðir
sínar í Ásdal og Tungur, en
þangað ráku þeir fé sitt lengi
framan af, eftir að flutt var út á
eyjar.
Eiríkur var skemmtilega
fróður og vel lesinn, góður
söngmaður og kunni vel að
gleðjast með glöðum. Ég var
snúningadrengur í Hólmatungu
er hann flutti ástina sína, hana
Gunnu, í garð. Gunna kom með
ferskan blæ norðan úr Möðru-
dal, en hafði verið í vist hjá
heldra fólki suður í Reykjavík.
Ung, kát og skemmtileg stúlka,
sem alla tíð hefur verið mér
sérlega góð. Það var mikil gæfa
og ævintýri að fá að kynnast því
afbragðs fólki, sem í Möðrudal
bjó. Eiríkur og Gunna hafa rek-
ið myndarbú í Hólmatungu í
meira en hálfa öld af miklum
dugnaði og alið upp fimm
myndar- og dugnaðarbörn, sem
hafa komið sér vel áfram í líf-
inu.
Með Eiríki Magnússyni er
genginn merkur bóndi, sem
sinnti störfum sínum af natni og
útsjónarsemi. Við systkinin úr
Eyjum nutum þess öll að fá að
dvelja í Hólmatungu um skeið,
þegar við vorum börn og eigum
við góðar minningar þaðan.
Að lokum viljum við votta
fjölskyldu Eiríks okkar dýpstu
samúð. Blessuð sé minning góðs
frænda,
Magnús Helgi Sigurðsson.
„Ert þetta þú, elskan?“
Undrunin leynir sér ekki, en
svo færist bros yfir allt andlitið
og faðmlagið er jafn hlýtt og
innilegt og alltaf. Kærleikurinn
skín úr augum afa og gleði okk-
ar beggja yfir endurfundunum
er ósvikin. Í þetta skiptið hafði
ég ferðast yfir hálfan hnöttinn,
en það gilti reyndar einu hve
langt ferðalagið var, hvort
heimsálfur lágu að baki eða bíl-
túr frá Egilsstöðum, móttök-
urnar í Hólmatungu voru alltaf
jafn hlýjar og innilegar. Hvergi
á jörðinni upplifi ég mig jafn
velkomna og hjá afa og ömmu í
sveitinni.
Frá því ég man eftir mér hef-
ur sveitin alltaf verið fasti
punkturinn í tilverunni og þar
hef ég átt margar mínar bestu
stundir. Sveitin er ekki bara
friðsæll og fallegur staður, þar
hef ég líka numið lífsins mik-
ilvægustu lexíur. Að loknu verki
tylltum við afi okkur á garða-
bandið, neftóbaksdósin var tek-
in upp og svo var hafist handa
við að leysa heimsmálin. Þau
gátu varðað búskapinn, náttúr-
una, veðurfar, pólitík, vonda
menn úti í heimi eða kvöldmat-
inn. Umræðuefni skorti okkur
aldrei. Allt undir sólinni gat
borið á góma á garðabandinu.
Reglulega hnerraði ég af nef-
tóbakinu og alltaf hló afi og
spurði hvort það mætti ekki
bjóða mér meira.
Það var svo gaman að hlusta
á afa segja frá. Hann lifði tím-
ana tvenna og gaf sér alltaf
tíma til að segja sögur og svara
ótal spurningum okkar barna-
barnanna. En áhugi hans á okk-
ar sögum var engu minni. Af
áhuga og einbeitingu hlustaði
hann á ferðasögur frá framandi
löndum, pólitískar spekúlering-
ar, mögulegar lausnir á vanda-
málum heimsins, bókagagnrýni
og annað sem lá á hjartanu
hverju sinni.
Svo gengum við heim og ef
heppnin var með okkur var
stjörnubjart og stillt. Þá gáfum
við okkur tíma til að stúdera
svolítið það sem fyrir augu bar.
Fyrr í vikunni stóð ég og
mændi upp í stjörnubjartan
himininn, mitt í Sahara-eyði-
mörkinni. Fyrir augu bar ná-
kvæmlega það sem við afi átt-
um til að staldra við og stara á
á leið okkar heim í kvöldmat. Á
þessari stundu rann það upp
fyrir mér að afi minn mun
fylgja mér um ókomna tíð, því
sjálfur stjörnuhimininn er nú
fyrir mér sem minnismerki um
hann.
Vorin í sveitinni eru einstök
og upp í hugann koma bernsku-
minningar þar sem ég skoppaði
um túnin við hlið afa í miðnæt-
ursólinni. Tilgangurinn var auð-
vitað að hjálpa til, þrátt fyrir að
ég næði honum nú varla í hné
og komið væri fram yfir hátta-
tíma. Við afi kunnum nefnilega
bæði best við að vaka fram eft-
ir. Það má deila um hversu mik-
il hjálp var í að hafa þetta for-
vitna stelpuskott dinglandi á
eftir sér, en alltaf voru skila-
boðin þau sömu; hjálpin var
kærkomin og fyrir hana var
þakkað.
Nú er það ég sem þakka hon-
um afa mínum fyrir að hafa
fengið að trítla við hlið hans í
gegnum lífið. Fyrir allt sem
hann kenndi mér, fyrir mann-
gæskuna, þolinmæðina og
hlýjuna sem honum var svo
töm. Fyrir að vera stoltur af
mér og elska mig skilyrðislaust.
Þórunn Ólafsdóttir.
Súgfirðingaskálin
Fjórða lota í keppni um
Súgfirðingaskálina var spiluð
á þorra. Fjórtán pör mættu
til leiks en djúp lægð var að
ganga yfir landið með miklum
snjóstormi og hafði hún góð
áhrif á Hlyn Antonsson og
Auðun Guðmundsson og
feykti til þeirra 70% skori.
Úrslit kvöldsins urðu eft-
irfarandi en þegar risaskor
kemur þá enda margir ná-
lægt miðlungi sem er 130
stig.
Hlynur Antonsson –
Auðunn Guðmss. 184
Kristján Pálss. –
Ólafur Karvel Pálss. 140
Gróa Guðnad. –
Guðrún K. Jóhannesd. 136
Guðbj. Björnss. –
Steinþór Benediktss. 135
Heildarstaðan á þorra er
svohljóðandi.
Hlynur Antonsson – A
uðunn Guðmss. 616
Gróa Guðnad. –
Guðrún K. Jóhannesd. 552
Kristján Pálss. –
Ólafur Karvel Pálss. 548
Jón Óskar Carlss. –
Karl Jónsson 543
Þorsteinn Þorsteinss. –
Rafn Haraldss. 524
Hlynur og Auðunn voru
með rásnúmer eitt fyrir spila-
kvöldið og halda því næstu
lotur.
Þrjár lotur eru eftir af
mótinu og gilda sex bestu
skorin til verðlauna.
Næst verður spilað á bollu-
daginn, 20. febrúar, í byrjun
góu og hefst spilamennska
um miðaftan.
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í
Ásgarði, Stangarhyl 4, mánu-
daginn 23. janúar. Spilað var
á 12 borðum. Meðalskor: 216
stig.
Árangur N-S:
Júlíus Guðmss. –
Rafn Kristjánsson 258
Magnús Oddsson –
Oliver Kristóferss. 248
Hrafnhildur Skúlad. –
Guðm. Jóhannss. 244
Ingibj. Stefánssd. –
Margrét Margeirsd. 239
Árangur A-V:
Sigurður Tómass. –
Guðjón Eyjólfsson 265
Bergur Ingimundars. –
Axel Láruss. 245
Örn Ingólfsson –
Örn Ísebarn 243
Oddur Halldórss. –
Ásgr. Aðalsteinss. 228
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is