Morgunblaðið - 04.01.2012, Qupperneq 2
2 | MORGUNBLAÐIÐ
04.01.2012
„Menntun er hinn andlegi uppvöxtur manns-
ins,“ sagði Stephan G. Stephansson, og má
sannarlega taka undir það. Nú á dögum er
framboð af hvers konar námi ólíkt meira en á
dögum Vesturheimsskáldsins. Hvort heldur fólk
vill bæta við sig í bóklegri þekkingu og fróðleik
ellegar verkkunnáttu og annarri færni er næsta
víst að nám er í boði sem hentar hverjum og
einum. Af nógu er að taka, svo mikið er víst.
Það er von okkar sem að þessu blaði stönd-
um að efni þess endurspegli að nokkru marki
það framboð sem til staðar er fyrir þá sem vilja
bæta við sig, hvort sem hugurinn stendur til
fastrar tímasóknar eða námskeiða. Um leið og
haft er í huga að nám er fjárfesting skal minnt á
að mennt er máttur, og hana fær enginn tekið
af þeim sem á annað borð hefur öðlast hana.
Öllu skiptir að finna sér lærdóm sem hæfir
áhugasviðinu og þá má líklegt telja að ánægju-
legar námsstundir fylgi í kjölfarið og jafnvel
draumastarfið. Þá er framboð tómstunda-
tengdra námskeiða ekki síðra
og hús er tekið á mörgum sem
slíkt bjóða á síðum blaðsins.
Njótum okkar í námi, leik og
starfi!
Leikur
að læra
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Blaðamenn
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Karl Eskil Pálsson
karlesp@simnet.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Auglýsingar
Katrín Theodórsdóttir
kata@mbl.is
Forsíðumyndina tók
Árni Sæberg
Prentun
Landsprent ehf.
22
Gamalt handverk,
prjón og vefnaður
í Heimilisiðnaðar-
skólanum.
10
Takturinn kraumar
í Kramhúsinu,
í vor sem aldrei fyrr.
23
Fluguhnýtingar
og kastnám-
skeið í Flugu-
veiðiskólanum.
14
Nám
í umhverfis-
skipulagi
að Hvanneyri.
18
Friðgeir Ingi
á Gallery Restaurant,
Hótel Holti, heldur
matreiðslu-
námskeið.
32
Anna og útlitið - námskeið
fyrir fatastílista sem og
innanhússtílista.