Morgunblaðið - 04.01.2012, Qupperneq 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ
Fjarnám á vorönn 2012
• Sja nánar a vef skólans.
• Efri áfangar á stúdentsbrautum.
• Áfangar á A-stig skipstjórnar og B-stig velstjórnar.
• Allir áfangar í vefkennsluumhverfi.
• Skráningargjald er 5000 krónur á önn og
fjarnámsgjald er 2500 krónur á einingu.
• Skráning á vef skólans.
• Umsóknarfrestur til 11. januar.
www.fas.is • fas@fas.is • 470 8070
Skólameistari.
Þ
egar kemur að því að
velja framhaldsskóla
snýst valið oft um
bekkja- eða einingakerfi,
bóknám eða iðnnám, nú
eða hreinlega hvert vinirnir úr
grunnskólanum ætla að fara. IB-
gráða er einn valkostur til við-
bótar, og lítið áberandi en mjög
spennandi námsleið fyrir metn-
aðarfulla námsmenn.
IB-gráðan er kennd við Mennta-
skólann við Hamrahlíð. „Um er að
ræða alþjóðlega gráðu, IB-diploma,
sem skipulögð er af alþjóðlegum
samtökum IBO og kennd með
sama hætti um heiminn,“ segir
Soffía Sveinsdóttir, IB-stallari MH.
„Námið spannar tvö ár, er kennt á
ensku, og jafngildir IB-gráðan
stúdentsprófi. Flestir taka und-
irbúningsnám í einn vetur áður en
IB-námið hefst, þar sem lögð er
áhersla á að þjálfa nemendur í
ensku og góðum vinnubrögðum. Í
IB náminu leggja nemendur stund
á sex greinar; móðurmál, erlent
tungumál, samfélagsgrein, raun-
grein, stærðfræði og svo eina við-
bótargrein sem ýmist er myndlist,
eða aukagrein úr fyrrnefndum
greinaflokkum.“
Virkni og vangaveltur
Auk hefðbundins bóknáms segir
Soffía að IB-gráðan geri ráð fyrir
að nemendur geri ítarlega rann-
sóknarritgerð, 4.000 orð að lengd
og samkvæmt ströngum stöðlum
um heimildanotkun. Eins sitja
nemendur námskeið í þekking-
arfræði, og skoða þar m.a. heim-
spekileg viðfangsefni. „Loks er
hluti af náminu sem kallast CAS,
eða „Creativity, Action, Service“,
þar sem nemendur þurfa að sýna
virkni utan skólastofunnar s.s. með
listrænu framlagi eða samfélags-
verkefni. Síðasta vetur stóðu nem-
endur m.a. að styrktartónleikum í
Smáralind til stuðnings fórn-
arlömbum flóðbylgjunnar í Japan,
sem hluta af CAS-þætti námsins.“
IB námið þykir vera krefjandi
og kallar á ágætar námsgáfur en
umfram allt öguð vinnubrögð.
Námið er tveimur árum styttra en
hefðbundið stúdentspróf og álagið
að sama skapi meira. „Þetta er
hraðbraut, og hentar t.d. þeim sem
vilja stytta námstímann og komast
sem allra fyrst í háskólanám,“ út-
skýrir Soffía. „Þetta nám á líka
mjög mikið erindi við þá sem
stefna á nám erlendis strax að
loknu stúdentsprófi, en IB-gráðan
er mjög virt gráða og þekkt, og all-
ir erlendir háskólar vita að góð
einkunn úr IB námi er ekki fengin
nema með svita og tárum. Margir
háskólar reyna jafnvel að opna dyr
sínar sérstaklega fyrir nemendum
með góða IB-gráðu. Þar sem allt
námsefnið hefur verið kennt á
ensku eiga nemendurnir ekki í
neinum vanda með að renna inn í
námið og fræðilega orðaforðann við
háskóla í enskumælandi löndum.“
Stökkpallur út í heim
Námið hentar líka nemendum
sem ekki hafa mjög sterk tök á ís-
lensku, t.d. námsmönnum af er-
lendum uppruna sem nýlega hafa
flutt til landsins, eða íslenskum
ungmennum sem hafa búið um
langt skeið erlendis og lítið stund-
að nám við íslenska skóla. „Svo
getur IB-námið líka hentað þeim
sem sjá fram á að flytja úr landi
innan skamms, en IB-námið er
skipulagt og kennt með sama hætti
alls staðar þar sem það er kennt í
heiminum, og geta nemendur því
tekið þráðinn upp snurðulaust í
öðru landi,“ segir Soffía og bætir
við að IB-námið hafi einmitt fyrst
verið þróað til að mæta þörfum
barna diplómata, sem oft þurfa að
flytja milli landa á nokkurra ára
fresti.
ai@mbl.is
Greið leið
í erlenda
háskóla
IB-gráðan í Menntaskólanum í Hamrahlíð er kennd á
ensku og tekur aðeins tvö ár að ljúka náminu. spennandi
námsleið fyrir metnaðarfulla námsmenn. Löng lokarit-
gerð, þekkingarfræði og heimsspekileg viðfangsefni
koma til viðbótar við hefðbundið bóknám.
Morgunblaðið/Kristinn
Tækifæri „Þetta nám á líka mjög mikið erindi við þá sem stefna á nám erlendis,“ segir Soffía Sveinsdóttir
Þéttur hópur
Félagslega hliðin er eitthvað sem
margir leggja mikla áherslu á við
val á framhaldsskóla og náms-
braut. Táningsárin eru mik-
ilvægur tími til að taka út fé-
lagslegan þroska og koma sér
upp góðu neti vina og kunningja.
Skipulagi IB námsins svipar á
vissan hátt til bekkjarkerfis og
Soffía segir líka að þar sem nem-
endahópurinn sé nokkuð smár
séu árgangarnir ansi sam-
heldnir. „IB námið er eins konar
skóli innan skólans í MH, en að
undanskildum erlendu tungu-
málunum og íslensku á und-
irbúningsárinu eru IB-nemarnir
ekki í tímum með nemendum af
öðrum brautum skólans. Hins
vegar geta IB nemar vitaskuld
tekið fullan þátt í öllu félagslífi
MH, hvort sem farnar eru ferðir
eða haldnar skólaskemmtanir.“
Námið þarf heldur ekki að
vera svo strembið að IB-nemar
geti ekki stundað ýmis fé-
lagsstörf eða frístundir. „Þeir
sem skipuleggja tíma sinn og
vinnu vel eiga að geta stundað
námið t.d. samhliða íþróttaiðkun
eða listnámi.“
Nú í byrjun janúar er haldið vestur á Ísafirði námskeið í Gísla
sögu Súrssonar. Svið sögunnar er að stærstum hluta fyrir vestan
en þar segir frá fornkappanum Gísla Súrssyni sem kemur til Íslands
ásamt fjölskyldu sinni eftir deilur í Noregi.
Sagan verður lesin og krufin á nokkrum kvöldum. Horft verður á
mynd Ágústs Guðmundssonar Útlagann sem er byggð á Gíslasögu.
Á lokadegi námskeiðsins verður loks farið á söguslóðir í Haukadal í
Dýrafirði og gengið í fótspor Gísla. Námskeiðinu lýkur síðan með
verðlaunasýningunni Gísla Súrssyni sem verður sýnd á Gíslastöð-
um í Haukadal.
Námskeiðið fer fram þriðjudagana 10., 17. og 24. janúar en ferðin
í Haukadal verður laugardaginn 28. janúar. Kennarar námskeiðsins
eru miklir spekingar í sögunni og hafa fjallað um hana í áraraðir.
Þetta eru þeir Þórir Örn Guðmundsson og leikarinn Elfar Logi Hann-
esson sem hefur síðustu árin verið upptekinn við að sýna einleik
sinn um Gísla Súrsson sem hefur verið sýndur um land allt og víða
erlendis við fádæma góðar undirtektir. Auk þess hefur sýningin
hlotið verðlaun á nokkrum leiklistarhátíðum.
Skráning á Gísla sögu Súrssonar-námskeiðið er þegar hafin í
síma 891 7025. Einnig er hægt að skrá sig með því að senda tölvu-
póst á netfangið komedia@komedia.is .
Gísli lesinn og krufinn vestra
Kappi Leikari í hlutverki hetjunnar í Arnarfirði.
Gísli Súrsson í brennidepli á Ísafirði. Sagan lesin
og farið um slóðir hennar. Sérfræðingar í forn-
kappanum fræða þátttakendur á námskeiðinu.