Morgunblaðið - 04.01.2012, Side 8

Morgunblaðið - 04.01.2012, Side 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ H amingjan er fjarri stressinu og dásamleg lífsgæði eru í núinu. Það fer svo margt framhjá okkur þegar við erum með hugann við það liðna eða það sem á eftir að gerast. Á meðan líður lífið hjá án þess að við tökum eftir því. Galdurinn liggur í því að losna undan valdi hugans og velja auðmýkt og sátt við sjálfan sig og lífið,“ segir Ásdís Olsen, einn leiðbeinenda á námskeiðinu Lífsviðhorf – lífsstíll – lífsgæði sem hefst 17. janúar nk. í Opna háskól- anum við Háskólann í Reykjavík. Bæta undirstöðuþætti Á námskeiðinu, sem Opni há- skólinn býður nú upp á í þriðja sinn, er byggt á rannsókn Gallup í yfir 150 löndum. Biðurstöður henn- ar gáfu til kynna að með því að bæta helstu undirstöðuþætti í lífi okkar samtímis – í stað þess að einblína á einn stakan þátt – gæt- um við sem einstaklingar aukið lífsgæði okkar og persónulega færni umtalsvert. Þessir þættir snúa að lifn- aðarháttum okkar, samskiptum, andlegri og líkamlegri vellíðan, at- vinnu og tómstundum, fjárhags- legu öryggi og samfélagslegri ábyrgð. Hamingjan sjálf er aðal- viðfangsefnið en inntak námskeiðs- ins er að efla persónulegan árang- ur og þá þætti sem gefa lífinu raunverulegt gildi. Það gefur lífinu gildi Markmið námsins er að hvetja þátttakendur til að víkka sjóndeild- arhringinn og setja sér markmið. Á sama tíma að læra að njóta augnabliksins og efla persónulegan árangur með því að veita því at- hygli hvaða þættir það eru sem gefa lífinu gildi. Námskeiðið skiptist í sjö hluta og byggist á þeim fimm und- irstöðuþáttum í lífi okkar sem sam- kvæmt áðurnefndri rannsókn Gall- up skipta einstaklinga mestu máli; það er samskiptum, andlegri og líkamlegri vellíðan, atvinnu og tómstundum, fjárhagslegu öryggi og samfélagslegri ábyrgð. Kennt er síðdegis á þriðjudögum í ellefu vikur. Í upphafi fá nem- endur dagbók þar sem þeir skrá hugrenningar sínar þannig að námið byggist talsvert á virkni þátttakenda. Að sögn Ásdísar er ekki nóg að vita hvað þurfi að gera til að auka hamingju sína, það verði að fram- kvæma til að breytingar eigi sér stað og þess vegna sé verk- efnavinnan á námskeiðinu afar mikilvæg. Út fyrir þægindasvæðið „Jákvæð sálfræði liggur til grundvallar því sem ég kenni á námskeiðinu. Þá er unnið með hugarfar, lífsstíl og venjur. Þátt- takendur halda dagbók, vinna með þakklæti, fara út fyrir þæg- indasvæðið og skoða hvort réttu hlutirnir hafi forgang í lífinu. Við leggjum líka áherslu á Mindfulness eða núvitund eins og við köllum það – en núvitundin er hagnýt leið að hugarró og sátt. Mindfulness er í raun upprunnin úr austrænni heimspeki en er orðin að vel met- inni fræðigrein á Vesturlöndum og ein öflugasta leiðin sem við þekkj- um í dag til að auka vellíðan og hamingju,“ segir Ásdís sem bætir við að sér hafi reynst þessi tækni vel þegar hún fékk kvíðaröskun fyrir nokkrum árum. Hún segir lífsgæði sín margfalt betri eftir kynni sín af núinu og lífið miklu ánægjulegra með góðri meðvitund. „Við þekkjum öll hvað það getur reynst krefjandi að ætla að reyna að vera 100% á öllum sviðum. Við beinum kannski athygli okkar svo stíft að starfsframa að við gleym- um að rækta tengsl við vini og fjöl- skyldu eða rækta líkama og sál og öfugt,“ segir Salóme Guðmunds- dóttir, forstöðumaður Fagmenntar Opna háskólans í HR. Hugmynd- ina að hamingjunámskeiðinu segir hún hafa komið fram skömmu eftir Hrunið haustið 2008 – þegar ekki sá til sólar og neikvæð sjónarmið réðu umræðunni. Námið sé upp- haflega byggt á rannsókn Gallup en niðurstöður hennar leiddu í ljós að með því að horfa heildstætt á tilverunna, fremur en einblína á ákveðna þætti, mætti auka lífsgæði okkar og persónulega færni. Kunnir leiðbeinendur Meðal leiðbeinenda á námskeið- inu eru María Ellingsen, fjölmiðla- kona og leikstjóri, sr. Bjarni Karls- son, sóknarprestur í Laugarneskirkju, og Ásdís Olsen, aðjúnkt og mindfulness-kennari. Hvað nýtist þátttakendum á námskeiðinu best segir Salóme misjafnt enda sé fólk sterkt hvað á sínu sviði. „Einhverjir standa á tímamót- um, aðrir vilja styrkja sig á ákveðnu sviði og sumir vilja ein- faldlega fræðast,“ segir Salóme. „Við megum svo sannarlega láta meira til okkar taka. Er ekki til- valið að enda námskeiðið á því að velta fyrir okkur hvernig við get- um gefið til baka og haft áhrif á samfélagið til góðs, eftir að hafa einblínt á okkur sjálf vikurnar á undan?“ www.opnihaskolinn.is sbs@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Hlaup Líkama og sál má efla og styrkja með ýmsu móti. Í þeim efnum kiptir ekki litlu máli að stunda líkamsrækt af einhverjum toga og þúsundir Íslendinga hlaupa reglulega. Jákvæð sálfræði liggur til grundvallar Samskipti, vellíðan, vinna, öryggi og sam- félagsleg ábyrgð eru meðal þátta á námskeið- inu Lífsviðhorf – lífsstíll – lífsgæði í Opna háskól- anum við HR. Dásamleg lífsgæði felast í núinu. Morgunblaðið/Ómar Einbeitni Getur reynst krefjandi að ætla að reyna að vera 100% á öllum sviðum., segir Salóme Guðmundsdóttir forstöðumaður Fagmenntar. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Lukka Ekki nóg að vita hvað þurfi að gera til að auka hamingju sína, það verði að framkvæma til að breytingar eigi sér stað, segir Ásdís Olsen. ’Galdurinn liggur íþví að losna undanvaldi hugans og veljaauðmýkt og sátt viðsjálfan sig og lífið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.