Morgunblaðið - 04.01.2012, Síða 12
V
ið ökum út á flugbrautina
og horfum til himins.
Færeyjavélin rennir sér
inn til lendingar og rétt á
meðan þurfum við að
doka. Höldum svo áfram og ökum
út á brautarendann og bíðum eftir
skipan úr turninum. „Heimilt flug-
tak,“ kallar konan í turninum og
flugkennarinn lítur á blaðamanninn.
Gefur honum skipan um að nú eigi
hann næsta leik.
Ég dreg út bensíngjöfina, gef vél-
inni inn fullt afl og við rennum
áfram eftir flugbrautinni. Hraðinn
eykst jafnt og þétt eins og sést á
mælinum. Sláttur hreyfilsins verður
æ hraðari og þegar hann er 2.400
snúningar á mínútu og hraðinn
kominn í 55 hnúta dreg ég stýrið að
mér. Vélin grípur flugið og við eru
komnir á loft. Aukum hraðann í
klifrinu í 75 hnúta og stefnum í
1.500 fetin. Öskjuhlíðin liggur fyrir
fótum okkar og Perluna sjáum við
sem jarðarber í stórri tertu.
Hvers er flugvélin megnug?
Fyrir flugferðina var að ýmsu að
hyggja. Fyrst tókum við heilmikla
stærðfræðipælingu. Summan af
þyngd vélar, eldsneytis og okkar
sjálfra gaf okkur niðurstöðu um
hvers flugvélin væri megnug í
glímu við reginöfl hálofta. Eðl-
isfræði flugsins er margþætt breyta
sem flugmaður þarf að kunna út í
ystu æstar. Og svo tökum við tékk
á vélinni sjálfri. Athugum flapsa,
vængbörð, hæðarstýri, eldsneyti, ol-
íu og hreyfil uns við setjumst upp í
vélina og stefnum upp í himinblá-
mann.
Við erum í 2.000 fetum. „Þetta er
allt að koma,“ segir flugkennarinn.
Sjálfur held ég fast um stýrið.
Hækkum flugið jafnt og þétt uns
við erum komnir í nærri 2.000 fet.
Ahugum mælana. Erum á hárfínni
jafnvægislínu og stefnan er NA skv.
kompásmælinum.
Við Hólmsheiði
og Hengil
Viðurkennt æfingasvæði flug-
nema er á Hólmsheiði ofan við
Reykjavík og þar freistumst við til
að bregða á leik. Vöggum vængjum
og stéli, lækkum flugið og sláum að-
eins af aflinu. Aukum það svo aftur
og klifrum upp í 3.000 fetin. Tökum
svo sveig þegar nálgast er Heng-
ilinn og stefnum aftur í bæinn.
Skyggnið er ævintýralega fallegt,
loftið tært, enda brunagaddur. Við
þræðum Nesjavallaveginn, förum
yfir Selvatn, Heiðmörk, Elliðavatn
og höfum Vífilsstaði sem viðmið.
„Í fyrstu flugtímunum eru nem-
endur í raun að ná að fylgja vélinni
eftir. Hún fer hraðar en þeir hafa ef
til vill tileinkað sér. Svo fer alltaf
svolítill tími í að læra lendingarnar;
að koma mjúklega inn á brautina
svo ekkert fari úrskeiðis,“ segir
flugkennarinn Einar Júlíusson.
Eftir fjórtán flognar klukku-
stundir að lágmarki taka nemendur
sólóprófið. Einkaflugmannsprófið,
sem gefur réttindi til að fljúga með
farþega, tekur fólk eftir 45 stundir
og stíft bóklegt námskeið að auki.
Þá láta sumir staðar numið þó æ
fleiri stefni í atvinnuflugið.
Lending á lofastefnu
Frá Vífilsstöðum er flogið yfir
Garðabæ og út á Skerjafjörð, hvar
beygjan er tekin við Suðurnes; ystu
tá Seltjarnarness. Tökum þar langa
lokastefnu, eins og sagt er á mál-
lýsku flugmanna. „Friðrik-Teitur-
Magnús; heimil lending,“ segir kon-
an í turninum. Við lækkum flugið
og drögum úr afli hreyflanna. Við
brautarendann loga græn ljós og ég
veit ekki fyrr en kennarinn hefur
lent undratæki sínu lipurlega og
með lagi listamannsins. Í heilli höfn.
Mikið óskaplega var þetta
skemmtilegt. Ætti ég kannski að
skella mér í flugnám?
sbs@mbl.is
Að vagga vængjum og stélinu
Flugtak heimilt, kallar flugturninn. Blaðamaður fór í
flugtíma og heillaðist af himinblámanum. Klifrað upp
í 3.000 fet og flogið austur á bóginn. Á hárfínni línu.
Stefnt inn Skerjafjörðinn og lent lipurlega.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugtak Marga dreymir um að fljúga um loftin blá. Möguleikar til náms og starfa í flugi eru fjölbreyttir og atvinnumöguleikar góðir. Því er um að gera fyrir áhugasama að taka á loft.
Flugtími Blaðamaður upplifði ævintýri í háloftum.
’Við brautarendannloga græn ljós og égveit ekki fyrr en kenn-arinn hefur lent undra-tæki sínu lipurlega og
með lagi listamannsins. Í
heilli höfn.
12 | MORGUNBLAÐIÐ
Kynningarnámskeið
Spennandi og þroskandi nám
Skráning í síma 861 6152
Höfuðlausn – cranioskóli
Sími 861 6152
kennsla@hofudlausn.is
www.hofudlausn.is
13.–15. janúar 2011
Viltu læra
höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun?
Námsframboð Flugskóla Íslands
er fjölbreytt og fyrir vikið hefur
nemendum fjölgað jafnt og þétt
síðustu misseri. Fjölmargir eru í
einkaflugmannsnámi, sem byrjar
á því að fólk tekur nokkra flug-
tíma sem vekur oft brennandi
áhuga. Margir fara í framhaldinu
í bóklegt námskeið einkaflug-
manns sem er tíu vikur og kennt
öll virk kvöld vikunnar. Næsta
bóklega námskeið hefst 9. janúar
nk. Með réttindi einkaflugmanns
getur fólk skellt sér í atvinnu-
flugið, en til þess að öðlast full-
gild réttindi þarf 200 flognar
stundir og vetrarlangt bóklegt
nám. Miklar kröfur eru gerðar til
flugmanna um atgervi og verða
nemendur því að gangast undir
stífa læknisskoðun áður en nám
hefst. Í haust hófst bóklegt grun-
nám fyrir flugfreyjur og –þjóna.
Mikil aðsókn hefur verið að því
námi, þar sem öryggismál og
þjónusta almennt eru helstu
kennslugreinar. Það nýjasta hjá
Flugskóla Íslands eru grunn-
námskeið í flugumferðarstjórn og
flugvirkjun en hingað til hafa Ís-
lendingar orðið að afla sér slíkrar
menntunar erlendis. Þá ber að
geta þess að nám í flugumferð-
arstjórn, flugvirkjun og atvinnu-
flugi hjá Flugskóla Íslands var
nýverið metið lánshæft hjá Lána-
sjóði íslenskra námsmanna – sem
aftur gerir fleirum gerlegt að láta
drauminn verða að veruleika.
Tækni Flest í mælaborði flugvélar er leikmönnum framandi við fyrstu sín. Fólk er hins vegar glettilega
fljótt ná tækum á hlutunum og flugið þarf ekki að vera jafn framandi og í fyrstu gæti fyrst.
Vekur brennandi áhuga
Margt í boði á vettvangi Flugskóla Íslands: