Morgunblaðið - 04.01.2012, Side 14

Morgunblaðið - 04.01.2012, Side 14
Daninn lærði að skipuleggja Ísland M ig langaði til að upp- lifa íslenska náttúru og sjá hvernig hlut- irnir væru gerðir hér á landi miðað við í Danmörku þar sem hver blettur er ræktaður. Stór hluti Íslands er hins vegar óbyggilegur. Ég er að læra landslagsarkitektúr og ég gaf mér að fjögurra mánaða námsdvöl á umhverfisskipulagsbraut Land- búnaðarháskóla Íslands yrði mér mikill innblástur,“ sagði danski skiptineminn Christian Waper sem er á þriðja ári í Kaup- mannahafnarháskóla. Kennarar voru ánægðir Christian fór af landi brott rétt fyrir jól og situr nú í Höfn og vinnur í BS-ritgerð sinni. „Námið á Íslandi var mikil og góð lífs- reynsla,“ segir Christian sem kom til landsins síðla sumars og var fram á haust. Christian sagði að námið í um- hverfisskipulagi hérlendis væri svipað og ytra. Nemendur væru og jafnan hvattir til að fara í há- skóla – utan Danmerkur – á þriðja ári. „Kennararnir voru mjög ánægð- ir með að ég veldi Ísland. Vildu að Dani færi þangað og næði meira sambandi við Landbúnaðarháskóla Íslands. Skólarnir vinna saman en ég er fyrsti Daninn sem er hér á umhverfisskipulagsbraut.“ Í nýtt umhverfi Tungumálið var vissulega ákveðinn þröskuldur en Christian var harðákveðinn í að upplifa eins mikið og hann mögulega gæti. „Fjórir mánuðir eru ekki nógu langur tími til að læra íslensku en krakkarnir tala ensku og margir kennaranna hafa lært í Danmörku svo það var ekkert vandamál. Námið sem slíkt gaf mér mikið og ekki síður það að fara að heiman í nýtt umhverfi. Það hvernig maður þroskast við nýjar aðstæður er mikilvægast og verður mér dýr- mætast þegar heim kemur.“ Christian er vanur stórborginni Kaupmannahöfn en í Hvanneyr- arþorpi eru allir íbúarnir tengdir Landbúnaðarháskólanum á einn eða annan hátt og nemendurnir búa flestir í næsta nágrenni skól- ans. Þetta hefur, að sögn Christi- ans, í för með sér mun nánari samskipti nemenda öfugt við það sem hann er vanur að heiman. „Ég mun leggja mitt af mörkum svo fleiri skiptinemar sæki til Ís- lands. Það er alveg innistæða fyrir því. Hins vegar væri ekki verra ef fleiri nemar kæmi saman í hvert sinn.“ sbs@mbl.is Kom frá Danmörku og nam umhverfisskipulag á Hvanneyri. Fróðlegt í fjóra mánuði. Heillandi háskólaþorp. Tungumálið ekki fyrirstaða. Nýjar aðstæður. Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson. Háskólanemar Á vinnulofti umhverfisnema. F.v. Christian Waper, Sjöfn Ýr Hjartardóttir og Aron Ólafsson. ’Sjá hvernig hlutirnirværu gerðir hér álandi miðað við í Dan-mörku þar sem hverblettur er ræktaður 14 | MORGUNBLAÐIÐ gegn þvagfærasýkingu www.sagamedica.is · Aðeins eitt hylki á dag · 1990 kr. pakkinn · Enginn sendingarkostnaður · Kemst inn um bréfalúgu Fæst aðeins í vefverslun SagaMedica á www.sagamedica.is Engin önnur trönuberjavara fáanleg í Evrópu hefur verið rannsökuð jafnmikið og Urell. Klínískar rannsóknir hafa ítrekað sýnt fram á gagnsemi Urell þegar fólk finnur fyrir óþægindum í þvagfærum, hvort sem það er tilfallandi eða ítrekað vandamál. Einnig tekið við pöntunum í síma 414 3076 frá kl.10 -13 virka daga. 10% afsláttur ef þessi kóði er notaður: 123urell Gildir til 1. janúar 2013. Námskeið í íslensku og stærðfræði fyrir 4 til 12 ára börn snillingarnir@snillingarnir.is sími 693 0113 Við Landbúnaðarháskóla Íslands er rekin öflug endurmennt- unardeild með fjölbreyttri starf- semi. Námsframboð, sem að veru- legu leyti fer fram utan hefðbundinna starfsstöðva skól- ans, er í samræmi við starf skól- ans almennt. Sem dæmi um nám- skeið má nefna að í janúar eru námskeið í járningu og hófhirðu, og þá verða námskeið um betri fjós, jarðrækt, húsgagnagerð úr skógarefni og flutt fræðsluerindi verður haldið um litaerfðir hrossa. Í febrúar má nefna nám- skeið í lífrænni jarðyrkju, lífræna aðlögun nautgriparæktar og fóðr- un og fóðurþarfir sauðfjár. Landbúnaðarháskólinn er einn- ig með námskeiðaröðina Reið- manninn fyrir áhugafólk um reið- mennsku, Sáðmaðurinn er fyrir áhugafólk um jarðrækt og fóður- öflun, Námskeiðaraðirnar Grænni skógar I og Grænni skógar II eru skógræktarnám ætlað skógarfólki sem vilja auka þekkingu sína og ná betri árangri í skógrækt. Í byrjun árs mun bætast við námskeiðaröð er tengist hrossa- dómum fyrir starfandi íþrótta- og gæðingadómara, keppnisknapa, ræktendur og áhugafólk um hrossadóma, sem vill bæta enn frekar skilning sinn og þjálfun í að meta gangtegundir hrossa. Einnig er haldið námskeið í hrossadómum, sem er sett á lagg- irnar í samvinnu við íþróttafélög og gæðingadómara. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Stóð Hrossaræktin er í brennidepli hjá Landbúnaðarháskóla Ís- lands enda kallar greinin sem fer sístækkandi á góða fagmenntun. Jarðrækt, járningar og skógarfólk Fjölbreytt námsframboð hjá endurmenntunardeild LBHÍ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.