Morgunblaðið - 04.01.2012, Blaðsíða 16
16 | MORGUNBLAÐIÐ
A
llir sem starfa við
menntamál, jafnt innan
formlegra menntastofn-
ana sem utan þeirra,
eiga möguleika á að
sækja um í Nordplus, segir Sigrún
Ólafsdóttir, verkefnisstjóri Lands-
skrifstofu Nordplus, sem skiptist í
fimm undiráætlanir sem hver um
sig þjónar ákveðnum markhópi
eða málefni.
Flestir íslenskir skólar á há-
skólastigi hafa tekið þátt í sam-
starfsneti styrktu af Nordplus,
sem gerir nemendum kleift að
fara sem skiptinemar um lengri
eða skemmri tíma. Grunn- og
framhaldsskólanemar hafa farið í
bekkjarheimsóknir til jafnaldra á
Norðurlöndum og Eystrasalts-
löndum á vegum Nordplus Junior-
undiráætlunarinnar. Fullorð-
insfræðsla og símenntunarstöðvar
geta sótt um styrk til verkefna og
námsferða í Nordplus Voksen.
Frumkvæðið skiptir máli
Bekkjaheimsóknum í grunn- og
framhaldsskólum er stýrt af kenn-
urum sjálfum. Skipti þá máli
frumkvæði og dugnaður kennara
og vilji skóla að taka þátt í sam-
starfi
Nordplus-áætlunin tók stakka-
skiptum árið 2008 þegar hún var
endurskipulögð að miklu leyti og
jafnframt opnuð fyrir þátttöku
Eystrasaltslandanna. „Höf-
uðáhersla í nýrri áætlun sem nú
er í þróun verður samband náms
og atvinnulífs í nágrannalöndum
okkar,“ segir Sigrún
Danmörk er vinsæl
En það eru ekki einungis náms-
heimsóknir sem eru styrktar held-
ur einnig samstarfsverkefni sem
snerta menntamál og norræn
tungumál og kennir þar ýmissa
grasa. Styrkir hafa verið veittir til
námsefnisgerðar, ráðstefna, orða-
bóka, tölvuleikja, námskeiða og
svo mætti áfram telja. Á und-
anförnum árum hefur verið al-
gengt að um 60-80% verkefna sem
sækja um hljóti styrki og hafa Ís-
lendingar verið mjög öflugir í
styrkumsóknum.
Á háskólastiginu er vinsælast að
fara í skiptinám til Danmerkur, en
Svíþjóð og Noregur fylgja þar fast
eftir, segir Sigrún. Á árinu 2009-
2010 fóru 157 skiptinemar á há-
skólastiginu frá Íslandi og er það
töluverð aukning frá fyrri árum. Á
leik-, grunn- og framhalds-
skólastigi er vinsælt að koma á
bekkjarsamstarfi við danska jafn-
aldra.
Góð hugmynd
og undirbúningur
„Dönskukennarar nýta sér
stundum bekkjasamstarf til að
gera dönskunámið áhugaverðara.
Þá eiga nemendur í bréfaskiptum
eða nota sér nútímasamskipti yfir
netið. Er hvatinn sá að fá að
ferðast til Danmerkur og notfæra
sér þá dönsku sem maður hefur
lært. Ísland er jafnframt vinsælt
samstarfsland og væri ekki erfitt
fyrir hvaða kennara sem hefur
áhuga á alþjóðastarfi að finna sér
samstarfsskóla á Norðurlöndum
eða Eystrasaltslöndum,“ segir
Sigrún sem bætir við að lyk-
ilatriðið í umsóknarferli sé fyrst
og fremst að vera með góða hug-
mynd en einnig skiptir góður und-
irbúningur máli. Hægt er að
kynna sér Nordplus á opnunarráð-
stefnu áætlunarinnar 11. janúar
næstkomandi.
www.nordplus.is
sbs@mbl.is
Gera dönskunámið áhugaverðara
Um þessar mundir er
fagnað upphafi nýs
starfstímabils Nordplus,
menntaáætlunar nor-
rænu ráðherranefnd-
arinnar, en í krafti hennar
bjóðast styrkir til
menntasamstarfs á
Norðurlöndum og í
Eystrasaltslöndum.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Nordplus Áherslan í nýrri menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar verður samband náms og atvinnu-
lífs í nágrannalöndunu, segir Sigrún Ólafsdóttir sem er verkefnisstjóri Landsskrifstofu Nordplus.
’Höfuðáhersla ínýrri áætlun semnú er í þróun verðursamband náms og at-vinnulífs í nágranna-
löndum okkar
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
...þú leitar og finnur
www.betranam.is
566 6664
Kjarna, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Lesblinda - Námsörðugleikar - Námstækni
OFURMINNI
Margfaldaðu minnisgetuna
og hámarkaðu árangur þinn
á prófum.
Líttu við á
www.ofurminni.betranam.is
HRAÐLESTUR
Lestur er lykillinn að framtíð
þinni. Hvenær bættir þú
síðast lestrartækni þína?
Líttu við á
www.hradlestur.betranam.is
Ertu að sóa
tíma þínum?
Lærðu öfluga
námstækni...heima
Fjarnám Menntastoða
Enn eru laus pláss á vorönn 2012
Helstu námsgreinar eru: Stærðfræði, íslenska, enska, bókfærsla,
danska, námstækni, sjálfstyrking og upplýsingatækni.
Nám í Menntastoðum kostar 110.000 kr.
Hægt er að sækja um styrki hjá stéttarfélögum fyrir skólagjöldum eða
gera námssamning við Vinnumálastofnun.
Nánari upplýsingar á
www.mss.is og skráning á www.keilir.net
Námið er 10 mánaða langt, það er metið til 55 eininga á framhaldsskólastigi