Morgunblaðið - 04.01.2012, Síða 18

Morgunblaðið - 04.01.2012, Síða 18
18 | MORGUNBLAÐIÐ G allery Restaurant býður áhugasömum matgæð- ingum að eyða kvöld- stund með Friðgeiri Inga og félögum hans í eldhúsinu þar sem tækifæri gefst til þess að læra af meisturunum. Gallery á Hótel Holti hefur löngum þótt með fremstu veit- ingastöðum og því væntanlega eft- ir nokkru að slægjast fyrir áhuga- menn um mat og matargerð. En er það fyrir hvern sem er að henda reiður á því sem fagmenn- irnir gera í eldhúsinu? „Alger- lega,“ fullyrðir Friðgeir Ingi. „Auk þess geri ég mér ávallt far um að setja mig í spor þátttakenda á námskeiðunum og miða því við að fólk læri matreiðslu með hliðsjón af þeim búnaði og græjum sem það hefur í sínu eigin heimaeld- húsi. Það þýðir lítið að gera ráð fyrir að allir geti gengið að eldhúsi eins og við höfum hér í Gall- eryinu.“ Reynslan við stjórnvölinn Sjálfur útskrifaðist Friðgeir Ingi sem matreiðslumaður frá Hótel- og matvælaskólanum árið 2001. Að námi loknu fluttist Friðgeir til Frakklands þar sem hann starf- aði í um 5 ár. Friðgeri var yf- irmatreiðslumaður á veit- ingastaðnum Domaine de Clairfontaine sem skartar Michel- in-stjörnu,við hlið Philippe Gir- ardon sem var valinn mat- reiðslumaður Frakklands árið 1997. Hann hefur því mikla reynslu á sínu sviði. „Námskeiðin eru almenns eðlis og við förum yfir gerð forréttar, aðalréttar og eftirréttar á um það bil tveimur og hálfri klukkustund. Alla rétti gerum við saman frá grunni og öll matreiðslan og hrá- efnismeðferð fer fram fyrir opnum tjöldum enda trúi ég ekki á að liggja á einhverjum leyndarmálum þegar matargerð er annars vegar,“ segir Friðgeir. „Við styttum okkur því hvergi leið og viðhöfum engar brellur. Það sem við kunnum, það kennum við og notum ferskt hrá- efni alla leið.“ Mikilvægustu lexíurnar En skyldi vera einhver þáttur í námskeiðinu sem Friðgeiri finnst að sé öðrum mikilvægari? „Klár- lega finn ég að fólk þarf heilt yfir að átta sig betur á eldun á kjöti,“ segir Friðgeir án þess að hika. „Margir eru bundnir hinni gömlu visku að loka kjötinu á háum hita og stinga svo í ofninn uns ákveðnum kjarnhita er náð. En þegar miðjan á til dæmis nauta- kjötinu hefur náð ákveðnum hita er oftar en ekki kjötið ofeldað að því marki að í stað þess að kjötið sé bleikt frá skorpu og inn að kjarna er örlítil bleik miðja eftir. Það er hægur vandi að leiðbeina þátttakendum á rétta braut hvað þetta varðar og það gerum við meðal annars á námskeiðinu.“ Annað sem Friðgeir nefnir er sósugerðin. „Íslendingar þurfa svolítið að taka sig á í sósugerð í stað þess að stóla endalaust á pakkasósur.“ Alls konar hópar Í hverjum hópi á námskeiði eru að jafnaði um 10-12 einstaklingar, en lágmarksfjöldi er 6 manns. Að sögn Friðgeirs er hámarksfjöldinn 20 manns en eldhúsið er stórt og vel tækjum búið svo sú stærð er vel innan viðráðanlegra marka. „Við fáum marga hópa, svo sem saumaklúbba og veiðiklúbba, og þá er ekkert mál að sníða námskeiðið í takt við óskir viðkomandi hóps,“ bendir Friðgeir á. „Annars eru réttirnir sem við matreiðum á námskeiðunum alltaf réttir sem eru eða hafa verið á matseðli Gall- erýsins svo við erum ekkert að fela réttina okkar. Við meira að segja afhendum þátttakendum uppskriftabók til eignar með rétt- unum sem teknir fyrir. Úr verður skemmtileg kvöldstund í afslöpp- uðu umhverfi sem hentar ein- staklega vel fyrir vinahópa sem vilja eiga saman góða stund.“ Uppskera lærdómsins Ekki er nóg með að þátttak- endur fái leiðsögn matreiðslu- meistarans og uppskriftir að rétt- unum, því hvert námskeið endar á kvöldverði á Gallery Restaurant þar sem afrakstur námskeiðsins er snæddur. Um leið fá þátttakendur kynningu á því hvaða borðvín henta með matnum hverju sinni. „Við vinnum út frá þeirri hugsun að líkast til gæti hver sem er byggt hús ef húsasmíðameistarinn stæði fast að baki honum, fylgdist með og leiðbeindi viðkomandi. Á sama hátt leiðbeinum við hverjum og einum uns veislumatur af mat- seðli okkar er tilbúinn. Það er sannarlega á allra færi,“ segir Friðgeir Ingi Eiríksson, yfirmat- reiðslumaður á Gallery Restaur- ant, Hótel Holti. jonagnar@mbl.is Matreiðsla fyrir alla Friðgeir Ingi Eiríksson, matreiðslumeistari á Hótel Holti, heldur námskeið fyrir áhugasama í eldhúsi Gallery Res- taurant á Holtinu. Uppskriftabókin fylgir með. Morgunblaðið/Ernir Meistarinn Friðgeir Ingi Eiríksson á gallery Restaurant segir á allra færi elda listavel og kennir fólki kúnstina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.