Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ | 19
Skráning og nánari upplýsingar
www.opnihaskolinn.is
ÞÚ!
ÞETTA SNÝST
UM ÞIG OG FRAMTÍÐINA
Námsbrautir Opna háskólans í HR miða að því að dýpka
skilning nemenda og efla faglega þekkingu á ákveðnum
sérsviðum. Námið hentar þeim sem hafa áhuga á námi á
háskólastigi en vilja þó ekki láta af starfi né skrá sig í fullt nám.
Markþjálfun
(Executive Coaching)
Hagnýtt nám í Markþjálfun á háskólastigi, þar sem
grunnurinn er lagður að alþjóðlegri ACC vottun
nemenda (Associate Certified Coach). Námið er
unnið í samstarfi við viðskiptadeild HR og veitir
nemendum traustan grunn til að starfa sjálfstætt
sem markþjálfar. Nám í markþjálfun gefur þátttak-
endum tækifæri til að þróa leiðtogahæfni sína,
laða fram það besta í starfsfólki, teymum og
skipulagsheildum og bæta árangur í lífi og starfi.
Hefst 10. febrúar
Flutninga- og vörustjórnun
(Logistics)
Kynntar eru hagnýtar og fræðilegar aðferðir sem
notaðar eru í flutningagreininni. Námið er fjölbreytt
og samanstendur af sex námskeiðum sem miða öll
að því að dýpka skilning nemenda og efla faglega
þekkingu á sviði flutninga, innkaupa og dreifingar
með áherslu á umbætur í rekstri.
Hefst 23. janúar
Rekstrarstjórnun
(Operations Management)
Ætlað þeim sem vilja bæta árangur við stjórnun
rekstrar, svo sem í verslun, heildsölu, smáiðnaði
og framleiðslu. Farið verður meðal annars yfir
stjórnun aðfangakeðjunnar og afkastagetu,
ferlahönnun, umbætur og árangursmælingar.
Kynnt verður hlutverk mannauðsstjórnunar og
markaðsstarfs fyrirtækja auk þess sem farið verður
yfir helstu undirstöður í fjármálum fyrirtækja.
Hefst 30. janúar
S
öfn eru kjörinn vett-
vangur til náms og af-
þreyingar – þar má leita
vars í dagsins önn og
njóta lista en þar má
líka örva hugann og skerpa augað,
að sögn Ólafar K. Sigurðardóttur,
forstöðumanns Hafnarborgar. Í
tengslum við sýninguna Kyrralíf
sem opnuð verður í Hafnarborg,
menningar- og listamiðstöð Hafn-
arfjarðar, laugardaginn 7. janúar
verða haldin tvö námskeið þar
sem kennslan hverfist um kyrra-
lífsmyndir (e. still life).
Mið tekið af meisturunum
„Á námskeiðinu fá þátttakendur
tækifæri til að vinna út frá mörg-
um af perlum íslenskrar listasögu,
sem til sýnis eru á sýningunni,“
segir Ólöf.
„Við hugsum námskeiðið sem
svo að til að byrja með fá þátttak-
endur leiðsögn um sýninguna og
þar verður fjallað um bygginguna
í verkunum og rýnt í verk meist-
aranna, en þess má geta að á sýn-
ingunni eru verk eftir marga af
helstu listamönnum þjóðarinnar,
þar á meðal eftir Kristínu Jóns-
dóttur, Jón Stefánsson, Júlíönu
Sveinsdóttur og Kjarval. Þannig á
sýningin að vera þátttakendum
innblástur áður en þeir taka sér
pensil í hönd.“ Námskeiðin eru
tvö, annars vegar ætlað þeim sem
áhuga hafa á að þjálfa sig í olíu-
málun en hins vegar námskeið fyr-
ir börn á aldrinum 7-12 ára.
„Leiðbeinandi á námskeiðinu fyrir
fullorðna er Pétur Gautur og er
það alls fjögur skipti frá 26. jan-
úar til 4. febrúar. Námskeiðið fyr-
ir börn er ætlað börnum á aldr-
inum 7-12 ára og leiðbeinandi þar
er Klara Þórhallsdóttir. Þar er
sömuleiðis um fjögur skipti að
ræða frá 22. janúar til 12. febr-
úar.“
Grunnþættir myndbyggingar
Kyrralíf á sér langa sögu sem
viðfangsefni myndlistarmanna,
ýmist hlaðið táknum eða sem
hrein glíma við form og liti, bendir
Ólöf á. „Einfaldasti samnefnari
verka af þessu tagi er hversdags-
legir hlutir sem komið er fyrir á
borði og listamaðurinn end-
urskapar síðan í málverki eða
teikningu,“ segir hún. „Í tímans
rás hefur inntak verkanna tekið
breytingum þar sem þau end-
urspegla tíðaranda og hugmyndir
um listræna túlkun. Þau eru þó
ætíð glíma listamanns við grunn-
þætti myndbyggingar en innri
bygging myndflatarins, samspil
lita og forma, áferð, ljós og skugg-
ar mynda einingu sem uppfyllir
myndrænar kröfur um samræmi.“
Vonandi fyrsta af mörgum
Aðspurð segir Ólöf slíkt nám-
skeið ekki hafa verið haldið áður í
Hafnarborg. „Við höfum talsvert
skipulagt af fræðslu og leiðsögn,
og nú þegar höfum við skipulagt
liðstasmiðjur fyrir börn og heilar
fjölskyldur. En þetta er í fyrsta
skipti sem við tökum þetta skref-
inu lengra og yfir í námskeið af
þessu tagi. Námskeið sem þetta er
í senn kjörin leið til að fara dýpra
í efnið út frá leiðsögn og um leið
kjörið tækifæri fyrir áhugamálara
til að auka skilning sinn og færni,“
segir Ólöf. Þessi námskeið eru
ákveðin tilraun, sem við höfum trú
á að gefi góða raun. Okkur hjá
Hafnarborg langar að halda áfram
á þessari braut.“
Engar forkröfur
Að sögn Ólafar eru ekki gerðar
neinar sérstakar forkröfur til þátt-
takenda á námskeiðunum. „Þó er í
því sambandi rétt að minna á að á
fullorðinsnámskeiðinu er gert ráð
fyrir að fólk eigi, og komi með, liti
og pensla,“ eins og venja er þegar
um slík námskeið er að ræða.
Skráning fer fram í síma Hafn-
arborgar, 585 5790.
jonagnar@mbl.is
Kyrralíf í Hafnarborg
Í Hafnarborg býðst áhuga-
fólki um olíumálun kjörið
tækifæri til að auka þekk-
ingu og færni á nýju nám-
skeiði. Verk margra þekkt-
ustu málara þjóðarinnar
eru skoðuð um leið.
Morgunblaðið/Kristinn
Kjörið tækifæri Ólöf K. Sigurðardóttir hjá Hafnarborg hvetur áhugamálara að kynna sér námskeiðin.
’Þátttakendur fátækifæri til að vinnaút frá mörgum af perlumíslenskrar listasögu semtil sýnis eru á sýningunni.