Morgunblaðið - 04.01.2012, Síða 21

Morgunblaðið - 04.01.2012, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ | 21 SKIPHOLTI 17 - 105 REYKJAVÍK SÍMI 588 4699 WWW.OBA.IS Allar vörur til plöstunar: ∗ Plöstunarvélar í mörgum útfærslum. ∗ Mikið úrval plöstunarefnis, allt frá skírteinastærð í A2. ∗ Margir þykkleikar í boði. Vandaðar vörur og traust þjónusta í yfir 90 ár. Vörur til innbindingar námsefnis: ∗ Kjallímingarvélar. ∗ Vírgorma– og plastgormavélar...og gormar! ∗ Forsíðuplast af mörgum gerðum og þykkleikum. ∗ Baksíður, margir litir og áferðir. Öflugir pappírstætarar í miklu úrvali: ∗ Strimlaskurður. ∗ Bitaskurður. ∗ Hljóðlátir - umhverfisvænir - orkusparandi. Skólastjórnendur! Við útvegum skólum og námsstofnunum vörur til gerðar námsefnis. Áratuga reynsla tryggir gæðin! VIÐ ERUM AÐILI AÐ RAMMASAMNINGI RÍKISKAUPA UM PAPPÍRSTÆTARA Gerið verðsamanburð áður en verslað er annars staðar! I ðkendum karate hefur fjölgað jafnt og þétt hér á landi á und- anförnum árum. Í Karatefélag- inu Þórshamri í Reykjavík eru tæplega þrjúhundruð iðkendur og segir Sólveig Krista Einarsdóttir formaður félagsins að börn og ung- lingar séu áberandi í hópi iðkenda. Iðkendur um sjötugt „Aðsókn að námskeiðum félagsins hefur verið mikil. Því höfum við fjölgað tímum til að koma til móts við óskir sem flestra um að kynnast þessari skemmtilegu íþrótt. Þórs- hamar er öflugt karatefélag og eru iðkendur á öllum aldri. Sá elsti er um sjötugt og þeir yngstu eru rétt byrjaðir í grunnskóla.“ Karatefélagið Þórshamar var stofnað árið 1979 og er með aðsetur í Brautarholti 22 í Reykjavík. Svoköll- uð gráðunarpróf eru haldin með reglulegu millibili, en hver og einn ræður sínum hraða í þessum efnum, það er því iðkandinn sem setur sér markmið. „Við erum svo heppin að hafa á að skipa góðum og reyndum þjálfurum, sem er örugglega helsta ástæða fyr- ir auknum vinsældum karate hér á landi,“ segir Sólveig. Karate er bardagaíþrótt. Sömu- leiðis er hægt að iðka karate sem keppnisíþrótt eða sem líkamsrækt. „Það er mikið lagt upp úr liðleika, þreki og styrk, en auðvitað kemur það allt með æfingunni. Bardaga- listir hafa verið stundaðar í aldanna rás, meðal annars karate. Við sem stundum þessa íþrótt segjum að ka- rate sé ekki aðeins góð alhliða íþrótt, einnig ákveðinn lífsstíll. Ég hvet alla til að kynna sér karate, þessi göfuga íþrótt hentar báðum kynjum á öllum aldri.“ karlesp@simnet.is Liðleiki, þrek og styrkur Karate er ákveðinn lífsstíll. Iðkendum karate hefur fjölgað jafnt og þétt, segir Sólveig Krista Einardóttir formaður Þórshamars. Ka- rate er ákveðinn lífsstíl en jafnframt líkamsrækt. Ljósmyndir/Sigþór Markússon Karate Í Þórshamri eru tæplega þrjúhundruð iðkendur og eru börn og unglingar séu áberandi í hópi iðkenda, en fjölmargir fleiri taka þátt. Sveifla Allt kemur með æfingunni og íþróttin er lífsstíll, segir Sólveig Krista. ’Við erum svo heppinað hafa á að skipagóðum og reyndum þjálf-urum, sem er örugglegahelsta ástæða fyrir aukn- um vinsældum karate hér á landi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.