Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 24
24 | MORGUNBLAÐIÐ
Salsa
Break
Street
Hip Hop
Freestyle
Brúðarvals
Lady’s style
Barnadansar
Samkvæmisdansar
Sérnámskeið fyrir hópa
Börn – Unglingar – Fullorðnir
Innritun
og upplýsingar
á dansskoli.is eða
í síma 553 6645
Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar
NÝ
TT Vorönn 2012
Fræðslunámskeið Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins
eru ætluð aðstandendum og þeim sem vinna með börnum með
þroskafrávik og fatlanir.
Námskeiðin eru bæði fræðileg og hagnýt.
Yfirlit yfir námskeið má finna á www.greining.is
N
emendurnir sem koma í
myndlistarnámið hafa af-
skaplega ólíkan bak-
grunn. Þó eiga þeir allir
sameiginlegt að hafa ríka
þörf fyrir að tjá sig með myndmálinu
og hafa lengi fengist við teikna án
þess að hafa fengið mikla tilsögn,“
segir Bryndís Guðrún Björgvins-
dóttir, myndlistarkennari við Tækni-
skólann – skóla atvinnulífsins.
Fimm myndlistanámskeið
Endurmenntunarskólinn sem er
einn undirskóla Tækniskólans –
skóla atvinnulífsins heldur fjölmörg
áhugaverð námskeið nú á vormisseri.
Þar má til dæmis nefna námskeið í
bókbandi, ferilmöppugerð, tölvu-
leikjagerð í þrívídd, grjóthleðslu,
málmsuðu, silfursmíði , stafrænni
ljósmyndun og námskeiðið í fram-
talsgerð og virðisaukamálum fyrir
atvinnurekstur svo fátt eitt sé nefnt.
Myndlistarnámskeiðin eru fimm.
Teikning fyrir byrjendur og lengra
komna er námskeið sem hefst 19.
janúar. Í sex tímum er farið yfir
grunnþætti teikningar, form, hlutföll
og skyggingu. Uppleggið er að fólk
nái að teikna einfalda hluti, grípi
skuggamyndun, lesi liti og línur og
að vinna með forgrunn og bakgrunn.
Teikning góður undirbúningur
Á vatnslitanámskeiði í mars verð-
ur farið í tækni, litablöndun og fræði
samhliða því sem nemendur prófa
sig áfram. Þá eru á dagskrá tvö nám-
skeið í olíumálun. Á grunnnámskeiði
verður unnið með einfalda uppstill-
ingu í raunsæisstíl þar sem nemand-
inn málar það sem hann sér, blandar
liti, nær fram birtu og svo framvegis.
Þráður þessi er svo áfram spunninn á
framhaldsnámskeiði.
Hvert námskeið er sex vikur;
tveir tímar í hverri þeirra. Bryndís
kennir á áðurnefndum námskeiðum
en á því fimmta Myndlist – ný túlk-
un, kennir Dóra Á. Rögnvaldsdóttir
kennari.
„Teikninámskeið er góður undir-
búningur þessa alls,“ segir Bryndís
sem á sínum tíma stundaði myndlist-
arnám á Ítalíu. „Þar var raunar allt
lagt upp úr því að við næðum fyrst
tökum á almennri teikningu, hún var
allsráðandi í náminu fyrstu misserin.
Hér heima höfum við þetta frjálsara;
fólk ræður í hvaða fagi það ber fyrst
niður. Það verður þó að segjast að
vatnslitamálun í öllum einfaldleika
sínum er oft glettilega erfið, enda er
ekkert hægt að endurtaka þegar
pensildrag hefur verið sett á blað.“
Lífsgleði í litunum
Bryndís hefur kennt myndlistar-
greinar við Tækniskólann og fyrir-
rennara hans allt frá árinu 2001, svo
sem bæði formteikningu í iðngrein-
um. Áherslan í seinni tíð er þó æ
meira á teiknikennslu þar sem fólk
sækir sér lífsgleði í litina. Margir af
nemendum skólans afla sér frekari
menntunar á þessu sviði svo sem á
vettvangi Listaháskóla Íslands og
einhverjir hafi farið utan til náms.
„Á námskeiði í olíumálun fyrir
byrjendur vinna nemendur eina lit-
mynd í hverjum tíma en á framhalds-
námskeiðinu er unnið stærra mynd-
verk. Og ég sé einmitt fyrir mér að
halda mætti sýningu með verkum
nemenda á framhaldsnámskeiðinu.
Útkoman þá gæti verið ljómandi
skemmtileg,“ segir Bryndís.
tskoli.is/namskeid
sbs@mbl.is
Tjá sig með myndmáli af ríkri þörf
Fjölbreytt myndlistarnám-
skeið í endurmenntun
Tækniskólans. Tækni, litir,
form og línur lesnar. Teikn-
ing, vatnslitir og olía. Ein
mynd í hverjum tíma.
List Margir hafa lengi dundað sér við að mála myndir en komast fyrst á
skrið þegar þeir fara á námskeið og læra þar um liti, form og fleira.
’Vatnslitamálun í öll-um einfaldleika sínumer oft glettilega erfið, endaer ekkert hægt að end-urtaka þegar pensildrag
hefur verið sett á blað
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kennari Bryndís Guðrún Guðmundsdóttir er myndlistarkennari Tækniskólans - og kennir bæði listteikningu og formteikningu iðngreina.