Morgunblaðið - 04.01.2012, Qupperneq 28
28 | MORGUNBLAÐIÐ
Fleiri á skólabekk
Eftir að kreppan skall á hefur aðsókn að FB aukist og
þarf skólinn árlega að hafna um 300-400 umsóknum.
Ágústa segir marga nota ládeyðuna á vinnumarkaði
sem tækifæri til að ljúka við hálfnað nám eða bæta við
sig þekkingu á nýju sviði. „Einkum sjáum við aukn-
ingu í fjölda yngra fólks í kvöldskólanum,“ segir
Ágústa. „Á síðustu önn nýttu margir sér átaksverk-
efnið Nám er vinnandi vegur sem stjórnvöld hleyptu af
stað og felur í sér að fólk á aldrinum 20 til 25 ára gat
fengið greiddar atvinnuleysisbætur hluta af námstím-
anum. Við sjáum að þeir sem eru að nýta sér þennan
stuðning er oft fólk sem er fyrir með ófáar einingar í
sarpinum, hafði byrjað framhaldsskólanámið en flosn-
að upp úr náminu af einhverjum sökum, svo ekki þarf
nema herslumuninn til að ljúka prófi.“ Ágústa segir
stúdentspróf vera mjög góða fjárfestingu og hvers
kyns menntun, hvort sem er iðnpróf eða stúdentspróf
opni fólki dyr að nýjum tækifærum í lífinu. „Stundum
gengur heldur ekki svo greiðlega að finna réttu hilluna
í lífinu og eru námsráðgjafar FB allir af vilja gerðir að
hjálpa nemendum að gera upp hug sinn og fina rétta
áhugasviðið eða vísa leiðina að nýrri stefnu fyrir fram-
tíðina.“
Leiðin getur jafnvel legið út í heim, en FB á í sam-
starfssamningum við erlenda skóla, og býður m.a. upp
á skipti-starfsnám í sumum iðngreinunum. Þannig
gefst um leið tækifæri til að auka víðsýnina, og að sjálf-
sögðu taka miklum framförum í erlendu tungumáli.“
Í
hjarta Breiðholtsins í Reykjavík
er æði sérstakur skóli: einn af
stærri framhaldsskólum lands-
ins með um 1.500 nemendur í
dagskóla, og 700 í kvöldskóla, og
skóli sem hreykir sér af mjög fjöl-
breyttum nemendahóp. „Við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti er að
finna nemendur á öllum aldri, með
ólíka getu, og sem stunda mjög fjöl-
breytt nám og með mjög fjölbreyti-
legum hætti,“ segir Ágústa Unnur
Gunnarsdóttir kynningarfulltrúi.
„Við bjóðum bæði upp á löggiltar
iðngreinar eins og rafvirkjun, húsa-
smíði og snyrtifræði, en svo erum
við líka með starfsnám eins og
sjúkraliðabraut, og almennt bóknám
til stúdentsprófs þar sem velja má
um málabraut, félagsfræðabraut eða
náttúrufræðibraut, auk listnáms og
íþróttabrautar. Þá hóf skólinn fyrir
nokkrum árum að bjóða svokallaða
innflytjendabraut og afreks-
íþróttabraut. Allt í allt eru 13 náms-
brautir í boði við skólann, og hægt
að stunda nám bæði í dagskóla,
kvöldskóla og sumarskóla.“
Ágústa segir að reynt sé að veita
öllum nemendum þann stuðning sem
þeir þurfa. Þannig hafi innflytj-
endabrautin verið sniðin sérstaklega
að þörfum aðfluttra sem ekki hafa
enn góð tök á íslensku, en auk al-
mennra námsgreina fá nemendur á
þeirri braut sérstaka kennslu í ís-
lensku og fræðslu um samfélagið.
„Áhersla er lögð á að kynna þessum
nemendum ýmsa innviði og hefðir
samfélagsins með sama hætti og við
hin fengum flest að gera í grunn-
skóla eða lærðum í gegnum uppeld-
ið. Þannig eru farnar ferðir í Alþingi
og leikhús, og nemendur látnir
kynnast stofnunum og menningu
landsins með áþreifanlegum hætti.“
Nemendur á innflytjendabraut
hafa sér til halds og traust stuðn-
ingsnemanda úr nemendahópi skól-
ans, og eins hafa nemendur með
námsörðugleika tök á að nýta náms-
ver skólans og njóta jafningjastuðn-
ings á meðan námið varir, svo nefnd
séu dæmi um hvernig skólinn stend-
ur við bakið á nemendum.
Stefnan tekin í rétta átt
FB er eftirsóttur skóli og segir
Ágústa að skólinn taki oft á móti
nemendum frá öðrum skólum sem
hafa ekki fundið sig þar í náminu eða
vilja spreyta sig á öðrum sviðum.
Þannig laðar t.d. öflug listnámsbraut
skólans að æði marga sem vilja læra
um og fá útrás fyrir hæfileikana á
listræna sviðinu.
Íþróttaafreksbrautin er einnig ný-
leg viðbót við námsframboðið. Þar
segir Ágústa að afreksíþróttafólk
geti fundið nám sérsniðið að sínum
þörfum og hugðarefnum, en boðið er
upp á afreksáfanga í handbolta- og
fótbolta. „Fjöldi efnilegs og fram-
úrskarandi ungs íþróttafólks stund-
ar nám við skólann og býður íþrótta-
brautin m.a. upp á ýmis námskeið
sem nýtast eiga með beinum hætti á
íþróttaferlinum. Þetta eru t.d. nám-
skeið á sviðum eins og íþróttafræði,
sálfræði, félagsfræði, skyndihjálp og
uppeldisfræði. Námið er svo góður
grunnur fyrir frekara starf í íþrótt-
um, s.s. við þjálfun eða kennslu.“
ai@mbl.is
Fjölbreytt nám og margir
möguleikar bjóðast nemendum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skóli Námsframboð við Fjölbraut í Breiðholti er fjölbreytt. Þar eru brautir í iðnnámi og námskeið fyrir nýbúa, segir Ágústa Unnar Gunnarsdóttur.
Fjölbraut í Breiðholti býður
bæði bóknám, iðnnám og
verknám. Býður upp á
sveigjanleika í framvindu
náms og námstímum.
www.flugskoli.is
Einkaflugmannsnámskeið
10 vikna bóklegt einkaflugmannsnámskeið hefst 9. janúar 2012.
Kennsla fer fram í staðarnámi (bekkjarkerfi) frá 17:30 - 22:00 öll virk
kvöld. Námskeiði lýkur með skólaprófum er veita nemendum réttindi
til að þreyta bókleg einkaflugmannspróf hjá Flugmálastjórn Íslands.
Láttudrauminnrætast,skráðuþigíflugnám. Skráningáheimasíðuskólans.
www.facebook.com/flugskoli
Vantar oft bara herslumuninn