Morgunblaðið - 04.01.2012, Side 29

Morgunblaðið - 04.01.2012, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ | 29 AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM UM STYRKI Í MENNTAÁÆTLUN EVRÓPUSAMBANDSINS Menntaáætlun Evrópusambandsins styrkir menntun og þjálfun á öllum stigum, frá leikskóla til háskóla auk fullorðinsfræðslu: COMENIUS leik-, grunn- og framhaldsskólastig LEONARDO starfsmenntun ERASMUS háskólastig GRUNDTVIG fullorðinsfræðsla ÁÆTLUN UMSÓKNARFRESTUR Comenius og Grundtvig - endurmenntun 16. janúar 2012 30. apríl 2012 17. september 2012 Comenius - aðstoðarkennarar 31. janúar 2012 Leonardo – fjölþjóðleg yfirfærsluverkefni 2. febrúar 2012 Comenius, Erasmus, Grundtvig og Leonardo – miðstýrð fjölþjóðleg tilrauna-, net- og stoðverkefni 2. febrúar 2012 Leonardo - mannaskiptaverkefni 3. febrúar 2012 Jean Monnet áætlunin 15. febrúar 2012 Comenius, Grundtvig og Leonardo – samstarfsverkefni 21. febrúar 2012 Comenius – svæðasamstarf 21. febrúar 2012 Grundtvig – vinnustofur 21. febrúar 2012 Þveráætlanir – tungumál,upplýsingatækni, stefnumótun og dreifing verkefnaniðurstaðna 1. mars 2012 Erasmus – stúdenta- og starfsmannaskipti og hraðnámskeið (frestur háskóla) 9. mars 2012 Grundtvig – aðstoðarkennarar og sjálfboðaliðaverkefni 30. mars 2012 Námsheimsóknir - stefnumótun fræðslumála 30. mars 2012 12. okt. 2012 Comenius- nemendaskipti 1.des 2012 Allar nánari upplýsingar um umsóknarferlið og umsóknarfresti fyrir árið 2012 eru á heimasíðu Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB, www.lme.is. Áhugasamir eru eindregið hvattir til að hafa samband við starfsfólk Landskrifstofunnar til að fá ráðgjöf við undirbúning umsókna. UMSÓKNARFRESTIR ÁRIÐ 2012 ERU EFTIRFARANDI: www.lme.is LANDSKRIFSTOFA MENNTAÁÆTLUNAR ESB | www.lme.is Leonardo: Dunhaga 5 | 107 Reykjavík | Sími: 525 4900 Erasmus, Comenius, Grundtvig: Háskólatorgi | 101 Reykjavík | Sími: 525 4311 S yngja.is var stofnað í byrjun árs 2010 og ég hef stundum til gamans kallað þetta far- andsöngskóla,“ segir Sigríður. „Stundum fer ég norður í land til að kenna og í framtíðinni langar mig til að koma reglulega til allra landshluta til að kenna,“ en í dag eru flestir viðskiptavinir Sigríðar á höfuðborgarsvæðinu. Hugmynd sem hafði lengi blundað „Syngja.is er verkefni sem varð til í kreppunni en hugmyndin hafði blundað með mér lengi. Þetta fór hægt af stað en eft- irspurnin eykst jafnt og þétt,“ segir Sigríður. „Markmið Syngja- .is er einfalt: Að bjóða upp á vand- aða og faglega söngkennslu og kenna öllum sem vilja að syngja,“ segir Sigríður og leggur áherslu á orð sín. „Kjörorð Syngja.is er að sama skapi einfalt: Söngur er hluti af okkur öllum og allir geta lært að syngja með sínu lagi.“ Sigríður ætti að vita hvað hún syngur en sjálf lauk hún burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 1995. Aðalkennarar hennar þar voru þær Elísabet F. Eiríksdóttir og Þuríður Pálsdóttir. Um haustið sama ár hóf hún nám við óp- erudeild Tónlistarskólans í Vín- arborg og ári síðar við óperudeild Tónlistarháskólans í Vínarborg. Hún lauk námi frá Tónlistarhá- skólanum árið 2000 með hæstu einkunn. Sigríður hóf söngferil sinn í Þjóðaróperunni í Vínarborg árið 1997 og söng hún ýmis hlut- verk við húsið til ársins 2002. „Sjálf hef ég tíu ára reynslu af kennslu, lauk kennsluréttindum frá KHÍ 2004 og er að ljúka meistaranámi í Stjórnun og stefnumótun í vor. Þá tekur ég- virkan þátt í tónlistarlífinu hér heima sem einsöngvari.“ Sveigjanlegt söngnám Hjá Syngja.is er hægt að kaupa 3, 5 eða 10 tíma söngkort. „Einnig er hægt að fá staka tíma ef fólk óskar,“ bætir Sigríður við. „Söng- kortið virkar svipað og klippikort. Handhafar söngkortanna panta tíma þegar þeim hentar, því kortið gildir í 6 mánuði frá fyrsta söng- tíma, eða eftir nánara sam- komulagi.“ Það er því ekki um eiginlegt námskeið með hefð- bundnu fyrirkomulagi að ræða. „Þó kjósa sumir að koma á föstum tímum vikulega. Fólk ræður þessu sjálft. Söngkortin henta því mjög vel fyrir þá sem ekki vilja vera í föstu söngnámi.“ Ókeypis prufutími „Áður en fjárfest er í söngkorti þá ráðlegg ég öllum að koma í prufutíma sér að kostnaðarlausu. Bæði til að kynnast mér og því sem fram mun fara í söngtím- unum,“ segir Sigríður. „Eftir prufutímann á hver og einn að vita hvort ég henta sem kennari fyrir viðkomandi og hvort það sem ég er að kenna er það sem leitað er eftir. Söngnám er dýrt og það á að vera góð fjárfesting fyrir við- skiptavini.“ Sniðið að hverjum og einum Að sögn Sigríðar er söngnámið sjálft í grunninn hefðbundið. „Námið er sniðið að hverjum og einum og rödd hvers og eins. Lík- amsstaða og öndun er leidd í rétt- an farveg og farið er yfir umhirðu raddarinnar, sem er jú afar mik- ilvæg ætli fólk að ná árangri.“ Kennslan hjá Syngja.is fer fram í húsnæði Söngskóla Sigurðar De- metz í Skógarhlíð 10 og fer hún að mestu leyti fram seinnipartinn og á kvöldin. „Nálægðin við söng- skóla Sigurðar Demetz er dýr- mæt. Stundum vilja nemendur sem byrja hjá mér koma í fast söngnám. Þá er ég nokkur skonar milliliður á milli skólans og nem- andans. Stundum tel ég að aðrir kennarar henti nemandanum betur og þá beini ég þeim til þeirra. Aðalatriðið er alltaf nemandinn sjálfur og hvað honum hentar.“ Að lokum minnir Sigríður á það að „Fólk á að skemmta sér og njóta. Það eiga helst allir að fara brosandi út úr hverjum einasta söngtíma.“ www.syngja.is jonagnar@mbl.is Brosandi út úr hverjum ein- asta söngtíma Sigríður Aðalsteinsdóttur mezzósópran heldur úti söng- skólanum Syngja.is sem er um margt sérstakur. Mark- miðið er einfalt – að kenna öllum sem vilja að syngja. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sveigjanlegt Sigríður Aðalsteinsdóttir söngkona býður upp á söngnám sem ætti að henta flestum, sniðið að þörfum hvers og eins. ’Söngur er hluti afokkur öllum og allirgeta lært að syngjameð sínu lagi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.