Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 34

Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 34
34 | MORGUNBLAÐIÐ Starfsmöguleikar: Innkaupastjóri Útlitsráðgjafi Stílisti Verslunarstjóri 1. Önn 2. Önn Fatastíll Fatasamsetning Textill UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533-5101 Erna, stílisti Ég hef unnið við förðun á Stöð 2 í 6 ár, þar á meðal við förðun keppenda í Idol og annarra sjónvarpsþátta hjá 365. Einnig vinn ég við auglýsingar, mynbönd og myndatökur. Það er óhætt að segja að námið hefur hjálpað mér mikið í starfi mínu í förðun og stíliseringu. Skjöldur Mio, tískuráðgjafi Ég taldi mig vita flest allt um tísku og útlit áður en ég fór í skólann. En annað kom á daginn. Ég hef lært heilmikið um fatasamsetningu, textil, litafræði, líkamsbyggingu og flest allt um útlit. Námið nýtist mér frábærlega í því sem ég er að gera. Ú T L I S T - O G F Ö R Ð U N A R S K Ó L I w w w . u t l i t . i s VILTU VERÐA STÍLISTI? The Academy of Colour and Style er skóli sem kennir útlitsráðgjöf. Námið byggir á helstu atriðum útlitshönnunar og er meðal annars tekið fyrir litgreining, fatastíll og textill. Eftir nám fá nemendur diplóma í útlitsráðgjöf (fashion consultant). Starfsmöguleikar eftir nám eru margir og spennandi og geta nýst á ýmsum sviðum og atvinnugreinum. Hver önn tekur þrjá mánuði og fylgja öll kennslugögn með náminu. Kennsla fer fram í Tækniskólanum einu sinni í viku frá 18-22. Litgreining Förðun út frá litgreiningu Litasamsetning I ngrid Kuhlman fer fyrir Þekkingarmiðlun og er til svara um það sem er á döfinni hjá þeim. „Við munum meðal annars bjóða upp á lengri námskeið í stjórnun, alls 72 klukkustundir, þar sem farið er í sjálfskoðun stjórnandans, stjórn- unarkenningar og starfsmannamál“ segir Ingrid. „Þar verður lögð áhersla á erfið og viðkvæm við- fangsefni sem snúa að stjórn- endum, svo sem starfsmanna- samtöl, frammistöðumat starfsfólks og svo uppsagnir. Þetta eru allt þættir sem er erfitt að eiga við en stjórnendur sleppa hins vegar ekki við að sinna.“ Þekkingarmiðlun býður ennfremur upp á lengri nám- skeið sem hugsuð eru útfrá þátt- takendum sem eintaklingum, frek- ar en stjórnendur í fyrirtækjum. „Þá erum við að skoða þætti á borð við sjálfstraust, framkomu, per- sónulega hamingju, seiglu og mark- miðasetningu.“ Vinnustofur um lifandi málefni Ingrid bendir einnig á vinnustof- ur sem haldnar eru fyrir fyrirtæki. „Þar erum við að vinna með það sem brennur á fólki hverju sinni. Meðal þess sem við höfum verið að vinna með eru viðbrögð við erfiðum og krefjandi viðskiptavinum. Fyr- irtæki lenda ítrekað í slíkri aðstöðu eftir hrunið, þegar aðstoða þarf viðskiptavini sem eru reiðir, gram- ir, pirraðir og stundum dónalegir. Hvernig á að bregðast við slíku? Yfir það er farið í þessum vinnu- stofum svo allt framlínustarfsfólk viti hvernig höndla beri slíkar að- stæður“. Námskeið í kreppu og skamm- degi Á heimasíðu Þekkingarmiðlunar má sjá að talsvert er um námskeið sem miða við að beina orku fólks í jákvæðan farveg, nokkuð sem hent- ar vel nú þegar skammmdegi ríkir bæði í efnahagslegum og árs- tíðabundinni merkingu. Ingrid sam- sinnir því. „Við höfum einfaldlega fundið fyrir því að fólk horfir meira inn á við eftir þetta margumtalaða hrun. Eftir allt sem breyttist og fór úrskeiðis þá er fólk greinilega í auknum mæli að spyrja sig "hvað er það sem gerir mig hamingju- saman?" Flestir hafa komist að raun um að það er ekki endilega risastórt hús eða veglegur sum- arbústaður. Fólk þarf eitthvað fast í hendi sem fuðrar ekki upp fyr- irvaralaust eins og gerðist hjá svo mörgum þegar hrunið varð. Það sem við erum að horfa á í vissum námskeiðum hjá okkur er hvernig við túlkum aðstæður og hvernig vinnum við úr þeim. Öll munum við lenda í einhvers konar erfiðleikum og áföllum, án þess að fá um það ráðið, en við getum hins vegar stjórnað því að miklu leyti hvernig við bregðumst við. Ætlum við að draga lærdóm af því sem gerðist og halda sterkari áfram, eða ætlum við að verða fórnarlömb, leggjast niður og játa okkur sigruð?“ spyr Ingrid. Að lifa í núinu „Það er svo mikilvægt í þessu sambandi að lifa í núinu“ bendir hún á og leggur áherslu á orð sín. „Við eigum ekki að hafa of miklar áhyggjur af fortíð sem við fáum ekki breytt, né heldur af framtíð- inni sem við getum ekki stýrt. Auð- vitað finnur hver einasti ein- staklingur fyrir einhverju stressi en öllu máli skiptir hvernig við vinnum úr því. Þess vegna er mik- ilvægt að vita hvernig við eigum að styrkja okkur til að takast á við þá erfiðleika sem á fjörur okkar rekur, ekki síst óvissuna sem fylgir efna- hagsástandinu“ segir Ingrid. Vaskur hópur leiðbeinenda Sem fyrr segir stýrir Ingrid Þekkingarmiðlun ásamt eiginmanni hennar Eyþóri Eðvarðssyni en þeim til trausts og halds er stór hópur reyndra leiðbeinenda með margvíslega kunnáttu. „Meðal fyr- irlesara og leiðbeinenda eru Edda Björgvinsdóttir, sem hefur verið með okkur frá upphafi og fagnar því tíu ára starfsafmæli hjá okkur um þessar mundir; Ásgeir Jónsson er með vinsælt námskeið þar sem þáttttakendum er kennt að takast á við hvers konar hindranir, hamlanir og takmarkanir. Þá er Bergþór Pálsson með sívinsælan fyrirlestur um borðsiði og einnig má nefna námskeið Ásdísar Olsen sem geng- ur út á jákvæða sálfræði og núvit- und.“ Ingrid bætir við að hún merki að fólk sé búið að fá meira en nóg af neikvæðni og eft- irspurnin eftir námskeiðum með já- kvæðum útgangspunkti sýni það. Tímastjórnun á nýju ári Áramót eru tími markmiðasetn- ingar af ýmsu tagi, en sé að gáð snúast flest áramótaheit um betri nýtingu tíma. Við ætlum jú að mæta oftar í ræktina, hitta vinina oftar, læra meira og þar fram eftir götunum.Ingrid bendir í þessu sambandi á námskeið sem lengi hefur verið í boði hjá Þekking- armiðlun, sem einmitt snýst um tímastjórnun. „Þetta viðfangsefni er ekki nýtt af nálinni hjá okkur, og meira að segja gáf ég út bók um þetta árið 2006 sem nefnist "Tíma- stjórnun í starfi og einkalífi" og við notum á námskeiðunum“ segir Ing- rid. „Þegar allt kemur til alls geng- ur tímastjórnun út á forgangs- röðun. Það er til lítils að segja að við höfum engan tíma því við höf- um allan tímann í heiminum. Öll fáum við jú 24 klukkustundir á sól- arhring, en hvernig við notum þær er svo undir okkur komið. Það er óhjákvæmilegt að velja og hafna.“ Ingrid minnir á að gagnlegt sé að fólk setji tímastjórnun upp sem svo að það spyrji sig lykilspurning- arinnar, hvað fer fyrst í dagbókina? „Og þá er ekki síður gagnlegt að skrifa það sem við köllum “not-to- to" lista, yfir allt það sem við ætl- um að gera minna af eða hætta al- farið að gera. Það greiðir jú fyrir tímastjórnun að sleppa því sem er minna mikilvægt.“ Að endingu minnir Ingrid á kjarna málsins þegar tímastjórnun er annars vegar: „Þetta snýst ekki um að gera hlutina hraðar eða gera hlutina réttar - heldur aðeins um að gera réttu hlutina“. jonagnar@mbl.is Jákvæð nálgun hjá Þekkingarmiðlun Þekkingarmiðlun fagnar 10 ára starfsafmæli um þessar mundir. Margt áhugaverðra námskeiða er í boði í vor. Morgunblaðið/RAX Þekking Hjá Þekkingarmiðlun hafa í gegnum tíðina verið haldin ýmiskonar námskeið fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Nú er brugðist við erfiðum aðstæðum í þjóðfélaginu og haldin námskeið ætluð stjórnendum og starfsmönnum að sögn Ingrit Kuhlman framkvæmdastjóra. ’Auðvitað finnur hvereinasti einstaklingurfyrir einhverju stressi enöllu máli skiptir hvernigvið vinnum úr því.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.