Morgunblaðið - 14.02.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2012
Jón Þórarinsson tón-
skáld lést á Droplaug-
arstöðum í fyrradag, 94
ára að aldri. Jón fædd-
ist 13. sept. 1917 í Gils-
árteigi í Eiðaþinghá,
Suður-Múlasýslu, son-
ur Þórarins Benedikts-
sonar hreppstjóra og
alþingismanns og konu
hans Önnu Maríu Jóns-
dóttur. Jón varð stúd-
ent frá Mennta-
skólanum á Akureyri
1937. Hann stundaði
nám í Tónlistarskól-
anum í Reykjavík. Á
árunum 1944-46 stundaði hann tón-
listarnám við Yale-háskólann í
Bandaríkjunum undir handleiðslu
Pauls Hindemith og lauk þar prófum
í tónfræði og tónsmíði. Um sumarið
1945 hafði hann ennfremur stundað
nám í Juilliard-tónlistarskólanum í
New York. Síðar, 1954-55, fór hann
til námsdvalar í Austurríki og
Þýskalandi. Þegar Jón
kom heim frá tónlistar-
náminu í Ameríku á
árinu 1947 tók hann við
fulltrúastarfi í tónlist-
ardeild Ríkisútvarps-
ins, en starfsmaður
stofnunarinnar hafði
hann verið nær óslitið
síðan 1938. Sinfóníu-
hljómsveit tók til
starfa 9. mars 1950 og
var þá Jón stjórnar-
formaður hennar 1950-
51. Þegar hljómsveitin
var endurskipulögð 1.
mars 1956 og nefndist
úr því Sinfóníuhljómsveit Íslands,
var Jón ráðinn framkvæmdastjóri
hennar. Hann var dagskrárstjóri
RÚV-Sjónvarps 1968-79. Þá kenndi
hann við tónlistarskóla um árabil.
Jón var afkastamikið tónskáld.
Meðal tónsmíða hans er sónata fyrir
klarínett og píanó og orgelmúsík.
Völuspá fyrir einsöngvara kór og
hljómsveit 1974 og Minni Ingólfs
fyrir kór og hljómsveit 1986. Þá
samdi hann tónlist fyrir leikrit og
kvikmyndir. Einnig hafa sönglög
eftir hann verið prentuð, þar á meðal
einsöngslagið „Fuglinn í fjörunni“,
sem öðlaðist miklar vinsældir.
Jón ritaði allmikið um músíkmál
og var um tíma tónlistargagnrýn-
andi við Alþýðublaðið (1948-50) og
Morgunblaðið (1962 -68). Eftir hann
liggja þessi rit: Stafróf tónfræð-
innar, kennslubók-handbók, Rvík.
1962 (2. pr. 1963), Páll Ísólfsson,
Rvík. 1963. Þýðing á Beethoven (Er-
ic Valentin), Rvík. 1962 og ævisaga
Sveinbjarnar Sveinbjörnssonar
(frumsamin), Rvík. 1969.
Eftirlifandi eiginkona Jóns er Sig-
urjóna Jakobsdóttir. Börn þeirra
eru Anna María, Þorsteinn Metúsal-
em, Hallgerður og Benedikt Páll.
Fyrri kona Jóns var Þórdís Edda
Kvaran. Þeirra börn eru Þórarinn,
Ágúst og Rafn.
Andlát
Jón Þórarinsson tónskáld
Lögreglu var í gærmorgun tilkynnt um jeppa úti
í miðju Vífilsstaðavatni í Garðabæ. Í fyrstu var
óttast að fólk væri í jeppanum en við athugun
lögreglu reyndist svo ekki vera. Við eftir-
grennslan kom í ljós að jeppanum hafði verið
stolið fyrir utan hús í Kópavogi í fyrrinótt og
eigandinn skilið eftir lyklana í svissinum. Ekki
er vitað hvað þjófnum gekk til með þessu akstur-
slagi en hann hafði ekki fundist í gærkvöldi.
Ekki vitað hvað þjófnum gekk til
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Jeppa stolið í Kópavogi í fyrrinótt og ekið út í Vífilsstaðavatn
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Það er ákvörðun hvers lýtalæknis
fyrir sig hvaða brjóstapúðar verða
notaðir í þær konur sem vilja fá nýja
í stað PIP-brjóstapúða. Þetta segir
Geir Gunnlaugsson landlæknir.
Geir segir það hafa komið sér
verulega á óvart hversu hátt hlutfall
púðanna hafi lekið. Alls hafa um 175
konur með PIP-brjóstapúða komið í
ómskoðun hjá Krabbameinsfélaginu
en hjá 68 prósentum þeirra höfðu
púðarnir lekið.
„Það hefur ávallt verið ákvörðun
hvers lýtalæknis fyrir sig hvaða púð-
ar eru settir í konur. Það byggja þeir
á sinni reynslu og faglega mati,“ seg-
ir Geir þegar hann er spurður hvaða
púða þær konur sem þess óska fái í
staðinn fyrir PIP-brjóstapúðana.
Að sögn Guðmundar Más Stefáns-
sonar, lýtalæknis sem rekur lækna-
stofu í Domus Medica, hefur hann
undanfarin fimm til sex ár notast við
brjóstapúða frá bandaríska fyrir-
tækinu Mentor. Bandaríska mat-
væla- og lyfjaeftirlitsstofnunin
(FDA) mæli með þeim púðum og
þeir hafi verið mikið rannsakaðir.
Leka ekki þrátt fyrir rof
„Þeir eru aðeins öðruvísi að því
leyti að sílikonhlaupið er meira seig-
fljótandi en það var í eldri púðum.
Þetta þýðir að þó að það komi rof á
himnuna á þeim þá rennur sílikonið
ekki út úr þeim,“ segir hann.
Hann bendir á að aldrei sé hægt
að ábyrgjast að allir púðar séu heilir
á sama hátt og ekki sé hægt að
ábyrgjast að nýir bílar geti ekki bil-
að. Almennt sé talað um að um eitt
til tvö prósent brjóstapúða sem sett-
ir séu í rofni á ári. Rannsóknir á púð-
unum frá Mentor bendi hins vegar
til þess að þeir rofni sjaldnar. „Það
er eins gott og þetta getur verið. Við
teljum okkur vera með hágæðavörur
sem við setjum í konur,“ segir Guð-
mundur Már.
Geta dugað í tugi ára
Að sögn Júlíusar Arnarsonar,
sölustjóra Inter Medica, sem flytur
inn Mentor-sílikonpúðana, kaupa
allir lýtalæknar landsins þá púða en
fyrirtækið sem framleiðir þá er nú í
eigu Johnson & Johnson. Um þús-
und slíkir púðar hafi verið seldir til
einkastofa á ári.
Hann segir lekatíðni þeirra vera
þá lægstu og aðeins 1,1 prósent
þeirra leki eftir sex ár. Ef aðgerðin
sé gerð rétt geti púðarnir dugað í
áratugi og þá sé lífstíðarábyrgð á
þeim.
Varanlegri brjóstapúðar í boði
Hlutfall PIP-brjóstapúða sem leka er hærra en landlæknir hafði búist við
Flestir lýtalæknar nota bandaríska púða sem leka síður þó að þeir rofni
Morgunblaðið/Golli
Aðgerð Ómskoðun sýnir að 68%
PIP-brjóstapúða hafa lekið.
Flugvirkjar sem starfa hjá flug-
félaginu Bláfugli hafa ákveðið að
vísa kjaradeilu sinni við félagið til
sáttameðferðar hjá ríkissáttasemj-
ara.
Viðræður um nýjan kjarasamning
hafa ekki skilað tilætluðum árangri.
Samkvæmt tilkynningu til ríkis-
sáttasemjara segja flugvirkjarnir að
þar sem mistekist hafi að ná samn-
ingum verði að vísa málinu til sátta-
meðferðar. Átta flugvirkjar starfa
hjá flugfélaginu. Þetta er fyrsta
kjaradeilan á þessu ári sem vísað er
til ríkissáttasemjara.
Vísa deilu
til sátta-
semjara
Kjaradeila flugvirkja
og Bláfugls óleyst
Meðalverð á
minkaskinnun
sem seld voru á
febrúaruppboði
danska uppboðs-
hússins Kopen-
hagen Fur fór í
493 danskar
krónur sem svar-
ar til 10.750 ís-
lenskra kr. Er
það 13% verð-
hækkun frá síðasta uppboði og
hærra verð en áður hefur fengist á
þessum markaði. Íslensku skinnin
voru yfir meðaltali á uppboðinu.
Á uppboðinu voru seld 23.482
skinn frá íslenskum minkabændum.
Meðalverð þeirra var yfir meðaltali á
uppboðinu eða 499 danskar kr. sem
svarar til tæplega 10.900 íslenskra.
Einar E. Einarsson loðdýrarækt-
arráðunautur segir að gæði íslensku
skinnanna hafi aukist stöðugt og
fyrstu tvö uppboð sölutímabilsins
bendi til að íslenskir bændur séu enn
í sókn. „Þetta er mjög jákvætt og
gefur fyrirheit um að við munum
koma vel út úr þessu sölutímabili,“
segir Einar. helgi@mbl.is
Skinnin fóru
á 10.900 kr.
Skinn Loðdýra-
bændur kætast.
Skólayfirvöld á
Akureyri hafa
ákveðið að leysa
Snorra Óskars-
son, grunnskóla-
kennara við
Brekkuskóla á
Akureyri, frá
störfum út þetta
skólaár. Hann á
kost á að hefja
kennslu aftur í
haust ef hann hættir að tjá sig á net-
inu um samkynhneigð. Snorri segist
ekki ætla að hætta að blogga.
Snorri átti fund með skóla-
yfirvöldum á Akureyri í gær. Á
fundinum var honum veitt lausn frá
störfum, en hann verður á fullum
launum út skólaárið. Snorri segir að
þetta sé gert til að lægja öldur, en
Snorri hefur verið gagnrýndur fyrir
skoðanir sínar á samkynhneigð, sem
hann hefur tjáð í bloggfærslum. „Ef
ég blogga ekki mun ég ganga inn í
næsta skólaár í friði og ró. Skilyrði
er sem sé að ég bloggi ekki um svona
efni. Ég tók það fram á fundinum í
dag að ég ætla mér að halda áfram
að blogga. Ég vil fá að njóta tjáning-
arfrelsis. Mér finnst ekki rétt af mér
að selja tjáningarfrelsið fyrir kenn-
aralaun.“
Er ekki sáttur
Snorri sagðist ekki vera sáttur við
þessa niðurstöðu. Hann sagði það
sitt mat að aldrei hefði verið ástæða
fyrir skólann til að grípa til áminn-
ingar.
Snorri sagðist ætla að leita ráða
hjá Kennarasambandinu og leita
upplýsinga hjá lögfróðum mönnum
um möguleg næstu skref.
Snorri hefur kennt við Brekku-
skóla í 10 ár. egol@mbl.is
Kennari leystur
frá starfi til vors
Ástæðan skrif um samkynhneigða
Snorri
Óskarsson