Morgunblaðið - 14.02.2012, Blaðsíða 18
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Nokkrir staðir skera sig úrhvað varðar nýtingu línu-ívilnunar og er Bolungar-vík þar í sérflokki. Línu-
ívilnun er þýðingarmikill þáttur í
atvinnulífi þessara staða og er áætlað
að ársverk við landbeitta línu hafi á
síðasta fiskveiðiári verið um 305 til
310.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í minnisblaði vinnuhóps um
strandveiðar, línuívilnun, byggða-
kvóta, rækju- og skelbætur. Í vinnu-
hópnum voru Adolf H. Berndsen,
Skagaströnd, Aðalsteinn Á. Baldurs-
son, Húsavík, Albertína F. Elíasdótt-
ir, Ísafirði, og Atli Gíslason alþingis-
maður. Ráðherra skipaði
AAAA-hópinn í lok ágúst í fyrra 2011
til þess að vera til ráðgjafar um ofan-
greinda málaflokka. Ekki eru hug-
myndir innan hópsins um viðamiklar
breytingar á byggðatengdum aðgerð-
um á næstu árum.
Um skel- og rækjubætur segir í
minnisblaðinu að hópurinn telur að
bætur séu ætíð í eðli sínu tímabundn-
ar og séu fyrst og fremst til þess að
aðilar nái að aðlaga sig breyttum að-
stæðum. Leggur hópurinn til að bæt-
ur verði óbreyttar næstu þrjú fisk-
veiðiár og falli niður að loknu
fiskveiðiárinu 2015/16.
Ef bætur verða lagðar niður tel-
ur hópurinn eðlilegt að eigendur
þeirra skipa sem þurftu á sínum tíma
að láta frá sér aflaheimildir í öðrum
tegundum, gegn sérveiðileyfinu,
verði skilað þeim til baka.
Einfaldari byggðakvóta
Hópurinn telur að byggðakvóti
sem slíkur eigi fullan rétt á sér, en
einfalda þurfi úthlutunarkerfið til
muna bæði til byggðarlaga og skipa.
Hvað framtíðarfyrirkomulag varðar
telur hópurinn að einkum þrjár leiðir
komi til greina, en mælir þó með að
endurbótum á núverandi fyrir-
komulagi sem fyrsta kosti.
Varðandi strandveiðar er það
mat hópsins að það sé ekki rétt að
gera neinar tillögur til breytinga á
núverandi fyrirkomulagi né því
magni sem veitt er. Hópurinn vill þó
sérstaklega hvetja til strangrar túlk-
unar stjórnvalda á nýlega settu
ákvæði um að eigandi báts skuli róa
þannig að komið verði í veg fyrir að
einn aðili geri út fleiri en einn bát í
strandveiði. Slíkt háttsemi samræm-
ist í engu þeim markmiðum er sett
hafa verið um strandveiðar, segir í
minnisblaðinu.
Lítil heimild til vélabáta
Almennt er AAAA-starfshópur-
inn sammála um að línuívilnun hafi
þýðingu, sé í samræmi við þau mark-
mið sem sett hafa verið og fram-
kvæmd hennar sé einföld og árang-
ursrík. Hópurinn telur afar mikil-
vægt að úttekt á ýmsum hagrænum
atriðum línuívilnunar verði gerð.
Hver eru t.d. bein áhrif hennar á at-
vinnuþátttöku, eftirfylgni reglna
þ.m.t. aðbúnað og kjör verkafólks eða
hvort hvati til svartrar atvinnu-
starfsemi sé fyrir hendi, er spurt í
minnisblaðinu. Ekki er heldur þekkt
hvort línuveiði sem slík myndi
minnka ef línuívilnun yrði aflögð.
Hópurinn telur það ekki æski-
lega þróun að hvetja til vannýtingar
á fjárfestingum. Það er því skoðun
hópsins að sé mögulegt að lítil
heimild til vélabáta, sem beita
um borð, rúmist innan
heildaraflaheimildar
til línuívilnunar,
eingöngu að því
marki sem af-
gangur leyfir, sé
rétt að mæla
með að vélabát-
ar komi þarna
inn, segir í
minnisblaðinu.
Lagfæringar frekar
en uppstokkun kerfis
Byggðatengdar aðgerðir
Hámarskafli fiskveiðiárið 2011/2012 (í þorskígildstonnum):
Línuívilnum 5.077
Skel- og rækjubætur 2.010
Byggðakvóti 6.204
Strandveiðar 6.665
1.200
1.000
800
600
400
200
0
Bolungar-
vík
Rif Suðureyri Ólafsvík Siglu-
fjörður
Sand-
gerði
Línuívilnun (tonn): Heimahöfn 2009/10 Löndunarhöfn 2009/10
Heimahöfn 2010/11 Löndunarhöfn 2010/11
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2012
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Það var dap-urlegt aðhorfa til
„vöggu lýðræð-
isins“, Aþenu,
höfuðborgar
Grikklands, þeg-
ar nýjustu skil-
málar Evrópu-
sambandsins voru reknir í
gegnum gríska þingið. Það
átti engan kost. Þingmönn-
um var sagt að þjóðarinnar
biði efnahagslegt svarthol án
útgönguleiða ef þeir kyngdu
ekki kröfunum frá Brussel.
Bent hefur verið á að öðru-
vísi hafi verið komið fram við
Þjóðverja í efnahagslegum
erfiðleikum þeirra eftir
stríð, þegar sigurvegarar
síðari heimsstyrjaldar skáru
skuldir Þýskalands niður um
helming og veittu gjaldfresti
og vaxtafrystingu á því sem
eftir stóð. Var þó Evrópa ein
rjúkandi rúst eftir tilraun
hinna nasísku ráðamanna í
Berlín til að sameina alla álf-
una undir eina stjórn þar.
Tugir milljóna lágu í valnum.
Einn aðalsigurvegari síðustu
heimsstyrjaldar, Bretar, tók
sinn fulla þátt í þessari umb-
un, þrátt fyrir að vera ekki
aflögufær, enda búinn að
rýja sig inn að bjórnum í
baráttu sinni við að losa Evr-
ópu undan hrammi nasista.
Leiðtogar vestrænna ríkja
sýndu mikla mildi og fyr-
irgefningu örfáum árum eftir
ógnaröldina miklu. En hags-
munamat þeirra sjálfra réði
einnig för. Þýska-
land var uppvax-
andi stórríki og
nauðsynlegt var
að efla efnahags-
lega og hern-
aðarlega burði
þess gagnvart
ógnvekjandi
blokk kommúnismans í
austri.
Grikkland er smáríki í
Evrópusambandinu og ekki
varnarvirki eða stuðari
gagnvart neinum. Það fær
því engin grið. Það skal
keyrt niður á efnahagslega
steinöld, hvað sem tautar og
raular. Það er ófrávíkjanleg
forsenda þess að Grikkland
fái lán til að fleyta því yfir að
næsta skeri í brimgarðinum.
Tvær ástæður standa til
þess að þannig er gengið að
Grikkjum. Leiðtogar ESB,
þar sem Þjóðverjar gefa tón-
inn, trúa því að í slíkri með-
ferð felist lækningin við
þeim ógnunum sem aðrir
rekja til ójafnvægis í evru-
löndum. En því til viðbótar
er að almenningur heima
fyrir vill ekki að Grikkjum sé
rétt hjálparhönd nema þeir
fái jafnframt að finna ræki-
lega til tevatnsins fyrir óá-
byrga stjórn efnahagsmála
sinna.
Ekki er þó endilega víst að
þessi framkoma verði til
góðs, hvorki fyrir Grikki né
þá sem nota styrk sinn og
neyð Grikkja til að knýja
fram nístandi niðurstöðu.
Það er ekki hægt
annað en að hafa
ríka samúð með
grísku þjóðinni í
hremmingum
hennar }
Engin miskunn sýnd
Steingrímur J.Sigfússon,
ráðherra, svaraði
með athyglis-
verðum hætti á
Alþingi í gær.
Hér er ekki átt við það þegar
hann sagði formanni Fram-
sóknarflokksins að „þegja“,
sem hefur án efa verið liður í
viðleitni Steingríms til að efla
virðingu Alþingis.
Annað svar var athyglis-
verðara, en það var veitt við
fyrirspurn Vigdísar Hauks-
dóttur um manntal og hús-
næðistal. Vigdís spurði að
ýmsu sem þessu tengist, með-
al annars því hvort taka
manntals og húsnæðistals
væri liður í umsókn Íslands
að Evrópusambandinu.
Í svari sínu hafnaði Stein-
grímur því að þetta væri liður
í umsókninni, en sagði svo,
spurður um kostnaðinn, að
honum væri meðal annars
mætt „með óafturkræfum
styrk frá Evrópusambandinu,
svokölluðum IPA-
styrk (veittir til
ríkja sem eru í
umsóknarferli að
Evrópusamband-
inu)“. Styrkurinn
frá Evrópusambandinu vegna
manntalsins og húsnæðistals-
ins í fyrra muni nema 102
milljónum króna.
Steingrímur J. Sigfússon
hefur átt erfitt með að halda
sig við staðreyndir þegar
kemur að Evrópusambandinu
og umsókn Íslands um aðild
að því. Og ekki batnaði þetta
eftir að hann beygði sig fyrir
stækkunarstjóranum í Bruss-
el. Þó verður að segjast að
það kemur á óvart þegar hann
svarar fyrirspurn á Alþingi
með þessum hætti, neitar
tengslum í öðru orðinu en við-
urkennir þau í hinu. Er ekki
kominn tími til að segja satt
um aðlögunina sem á sér stað
í stjórnkerfinu undir forystu
ríkisstjórnar Samfylkingar
og Vinstri grænna?
Liður í aðlöguninni er
að ESB greiðir fyrir
manntalið hér á landi}
ESB greiðir talningu Íslendinga
E
ru að koma páskar? Hvenær er
bolludagur? Þetta eru spurn-
ingar sem ég þurfti að spyrja
mig úti í búð um daginn enda
varð ég kolrugluð í dagatalinu af
því að sjá það sem var þar á boðstólum. Fullur
rekki af páskaeggjum blasti við mér þegar ég
gekk inn og rétt hjá var annar rekki sem
minnti viðskiptavininn á bolludaginn. Bollu-
dagurinn er vissulega ekki langt undan, það er
vika í hann, en það er ekki svo langt síðan
bolludagurinn var bara á bolludeginum sjálf-
um, sem núna verður 20. febrúar. Það var
kannski hægt að fá bollur deginum áður og
daginn eftir en núna er hægt að troða sig út af
bollum í marga daga og vikur. Svo þegar loks-
ins kemur að bolludeginum eru bollur ekki
lengur spennandi. Orðnar jafn hversdagslegar
og jólalög í desember.
Páskadagur er 8. apríl í ár. Tveir mánuðir eru um það
bil þangað til en samt er farið að bjóða upp á páskaegg í
verslunum strax eftir jól. Það ruglar ekki mig bara í rím-
inu heldur líka börnin smá. Lítill gutti í búðinni spurði
mömmu sína hvort hann mætti fá páskaegg, hún sagði nei,
páskaegg ætti bara að borða á páskunum sem kæmu eftir
marga daga. Þá spurði guttinn af hverju það væru þá
páskaegg í búðinni ef þau væru ekki til að kaupa og borða
núna – mamman nennti ekki að þrasa og dró barnið áfram
á eftir innkaupakerrunni.
Verslunarmenn eru duglegir við að þjófstarta
rækilega þegar kemur að einstökum dögum.
Það er löngu klassískt að jólin byrja í október en
núna finnst mér aðrir hátíðisdagar líka vera
farnir að ná yfir lengra tímabil. Um leið og jóla-
ösin er afstaðin með útsölum og tilheyrandi taka
verslanirnar að hrúga inn vörum sem tengjast
þorranum, bolludeginum, sprengideginum og
öskudeginum; Valentínusardagurinn er svo að
koma sterkur inn í byrjun febrúar og að honum
loknum taka við páskarnir og sumardagurinn
fyrsti. Þá koma allar sumar- og hausthátíðirnar
þar til jólin koma aftur, hjúkkett – ekki gætum
við lifað einn hversdagslegan dag þar sem ekki
er eitthvað í boði sem tengist ákveðnu tilefni.
Með þessu þjófstarti, sem er alltaf að færast
framar og verða grófara, held ég að fólk verði
ónæmara fyrir þeim vörum og auglýsingum
sem dynja á í kjölfar dagsins eða hátíðarinnar. Meira að
segja 17. júní er hafinn í maí. Ef páskaegg eru aðgengileg í
tvo mánuði áður en páskarnir koma loksins er allt loft úr
þeim spenningi sem þau eiga að færa okkur, þau verða
orðin jafn óspennandi og hversdagsleg og mjólkurferna
þegar tilefnið til að borða þau kemur loksins.
Það gleymist nefnilega oft að það er ekkert gaman að
þeirri tilbreytingu sem hátíðisdagar færa okkur ef það er
hátíð allt árið. Vildir þú hafa jól alla daga? Ég held að svar
flestra við því sé nei – aldrei nokkurntímann.
ingveldur@mbl.is
Ingveldur
Geirsdóttir
Pistill
Ég vildi að alla daga væru jól
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
Að sjálfsögðu verður línuíviln-
un ávallt umdeild aðferð því
hér er verið að ívilna vinnulagi
sem hægt er að leysa á annan
hátt með vélum, segir í minnis-
blaðinu. Hópurinn ítrekar þó að
eins og ástatt er í atvinnu-
málum í þjóðfélaginu séu engin
efni til að leggja línuívilnun af
og gerir hópurinn því ekki til-
lögur um breytingar á línuíviln-
un. Eftir sem áður stendur að
aðgerðin verður að standa und-
ir væntingum því ívilnunin
(magnið sem í þetta er sett)
metin í fjármuni t.d. á sölu-
verði aflamarks er veruleg
upphæð.
Fram hefur komið að
línuívilnun síðastliðin átta
ár hefur fært Bolungar-
vík verulegar aflaheim-
ildir í þorski, steinbít
og ýsu. Á meðalverði
á fiskmarkaði í
fyrra gæti verð-
mætið numið um
1.650 milljónum króna.
Verulegir
fjármunir
UMDEILD AÐFERÐ