Morgunblaðið - 14.02.2012, Síða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2012
✝ Þórður Guðna-son fæddist að
Efri-Rotum í V-
Eyjafjallahreppi í
Rangárvallasýslu
22. maí 1919. Hann
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Sunnu-
hlíð 3. febrúar 2012.
Foreldrar hans
voru Kristbjörg
Sigurðardóttir og
Guðni Hjálmarsson.
Systkini hans voru: Hjálmrún
Guðnadóttir, látin, María Guðna-
dóttir, Magnús Guðnason og
Guðbjörg Elín Guðnadóttir, lát-
in. Fjölskyldan bjó að Efri-
Rotum til ársins 1920 er þau
Hann lærði í farskóla en gekk
síðar í Ystaskóla undir Eyjafjöll-
um. Hann lærði vélsmíði í Vél-
smiðjunni Bjargi hjá Einari Guð-
jónssyni en þar vann hann allt
þar til hann stofnaði vélsmiðjuna
Vélver ásamt Bjarna Einarssyni
vélvirkja. Þórður vann í fyrir-
tæki sínu fram yfir áttrætt.
Þórður stundaði líkamsrækt í
Gáska vel á annan áratug og
ferðaðist mikið með Ingu Ástu.
Þau áttu sumarbústað í Eilífsdal
þar sem þau áttu margar góðar
stundir. Kanaríeyjar voru vin-
sæll áfangastaður í þeirra ferða-
lögum en þangað komu þau oft-
sinnis. Þórður bjó undir það
síðasta á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð.
Útför Þórðar fer fram frá Ás-
kirkju í dag, 14. febrúar 2012, og
hefst athöfnin kl. 15.
fluttu að Lamb-
húshól.
Þórður var þrí-
kvæntur. Fyrsta
eiginkona Þórðar
var Kristín Björns-
dóttir en hún lést
árið 1960. Önnur
eiginkona Þórðar
var Hulda Valdi-
marsdóttir en þau
slitu samvistum.
Þriðja eiginkona
Þórðar var Inga Ásta Eiríks-
dóttir en hún lést árið 2008.
Þórður var barnlaus.
Þórður bjó í foreldrahúsum til
ársins 1946 eða þar til fjöl-
skyldan flutti til Reykjavíkur.
Þórður var giftur ömmu minni
sem ég aldrei kynntist því hún dó
fimm árum áður en ég kom í
heiminn. Ég ber nöfnin þeirra
beggja, Kristínar-nafnið hennar
ömmu og Þóru-nafnið fékk ég frá
Þórði. Hann Þórður var alltaf
hluti af æsku minni, svolítið eins
og fjarlægur frændi sem kom
reglulega í heimsókn. Við þau til-
efni laumaði hann iðulega að mér,
heimasætunni, einhverjum glaðn-
ingi. Ég var snemma meðvituð
um það að ég var í sérstöku dá-
læti hjá honum þó ég vissi
kannski ekkert endilega afhverju
að öðru leyti en því að ég bar
nafnið hans. Þegar Þórður var
orðinn gamall maður fannst mér
stundum eins og ég minnti hann á
ömmu sem hann talaði alltaf um
af miklum hlýhug og væntum-
þykju.
Eftir að ég flutti inn í Skipa-
sund með fjölskyldu minni og við
urðum nágrannar þeirra Þórðar
og Ingu konu hans í Efstasundi
varð samgangurinn meiri og oft
skruppu þau hjónin til okkar í
kvöldkaffi og spurðu frétta og
spjölluðu um daginn og veginn.
Þórður hafði gaman af að spjalla
um gamla tíma og sagði iðulega
sögur af því þegar hann flutti í
Efstasund sem þá var eiginlega
út í sveit.
Í heimsóknum sínum færðu
þau hjónin mér oft eitthvað smá-
legt sem hafði verið í eigu ömmu
minnar og þeim fannst báðum að
ætti betur heima hjá mér en
þeim. Ekki voru þetta endilega
merkilegir hlutir á veraldlegan
mælikvarða, en eru engu að síður
ómetanlegir fyrir mig og margir í
sérstöku uppáhaldi.
Eins og allir vita sem þekktu
þau mætu hjón, Ingu og Þórð, þá
var Inga mikil selskapsskvísa
meðan Þórður kunni betur við sig
í fámenninu og rútínu hversdags-
lífsins. Ég held hann hafi því ver-
ið ánægður með að ég skyldi fara
með Ingu á tónleika, í bíó og út að
borða því ekki hafði hann mikinn
áhuga á slíku. En hann gladdist
fyrir hennar hönd og þakkaði mér
fyrir að fara með henni, því hann
vissi sem var að hún hafði unun af
leikhúsi, tónleikum, góðum mat
og skemmtilegum félagsskap.
Síðustu árin, þegar heilsu
Þórðar fór að hraka var hann svo
lánsamur að eiga að frænku
hennar Ingu, hana Sigrúnu Bene-
diktu, sem að öðrum ólöstuðum
hefur annast um hann af einstakri
nærgætni og væntumþykju.
Ósérhlífni hennar og aðstoð var
honum ómetanleg.
Að leiðarlokum vil ég þakka
Þórði fyrir samfylgdina. Megi
hann hvíla í friði.
Kristín Þóra.
Í dag kveð ég elskulegan bróð-
ur minn, Þórð Guðnason, í kær-
leika og þökk.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þín systir,
María Guðnadóttir.
Þórður Guðnason
Kveðja frá kór
Grindavíkurkirkju
Gengin er mæt kona, Margrét
Sighvatsdóttir, óperusöngkona
og húsmóðir í Grindavík.
Við lát hennar viljum við fé-
lagar í kór Grindavíkurkirkju
minnast hennar með þakklæti og
virðingu en hún söng um árabil
með kórnum og sem einsöngvari.
Margrét var, eins og allir vita
sem hana þekktu, ákaflega litrík
og skemmtileg kona, alltaf kát og
jákvæð. Margs er að minnast frá
liðnum árum bæði í kirkjustarfi
og frá ferðalögum sem kórinn
hélt í jafnt innanlands sem utan.
Fyrir um það bil 20 árum fór kór-
inn mjög eftirminnilega ferð til
Rovaniemi í Finnlandi ásamt
fleiri kórum og Félagi harmon-
ikkuunnenda. Þar fór Magga á
kostum, ekki síst á kvöldvökum,
þegar allir komu saman við söng,
spil og dans.
Margrét var sópran og lék sér
að því að vippa sér í hæstu hæðir
eins og ekkert væri og hafði gam-
an af að syngja yfirraddir. Sinni
háu fallegu rödd hélt hún fram
eftir öllu.
Börnin hennar Margrétar hafa
Margrét
Sighvatsdóttir
✝ Margrét Sig-hvatsdóttir
fæddist í Ártúnum
á Rangárvöllum 23.
maí 1930. Hún lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Víðihlíð í
Grindavík 3. febr-
úar 2012.
Útför Margrétar
var gerð frá
Grindavíkurkirkju
10. febrúar 2012.
erft áhuga hennar
og hæfileika og eru
þrjú þeirra starf-
andi í kirkjukórn-
um.
Við viljum votta
eiginmanni Mar-
grétar, börnum
hennar og öðrum
ástvinum okkar
innilegustu samúð
um leið og við þökk-
um fyrir góðar og
gleðiríkar stundir með henni.
Blessuð sé minning Möggu
Sighvats.
Rut Óskarsdóttir.
Kæra Magga.
Mig langar að minnast þín í
nokkrum orðum. Okkar vinátta
hófst þegar við Guðjón fluttum í
Mánagerði 1 1979, þá ung að ár-
um. Með þrjá drengi sem voru nú
frekar fjörugir. Aldrei heyrðist
styggðaryrði frá Palla eða Möggu
þó alltaf væri farið yfir lóðina til
að stytta sér leið eða þá þegar
bolti lenti í glugga. Þau voru allt-
af vinir þeirra. Oft kallaði Magga
í mig og bað um hjálp við að
breyta til í stofunni, hún hafði svo
gaman af því. Svo er mér minn-
isstætt þegar Magga og Sólný
fóru til Finnlands 1984, þá var ég
komin að því að eiga mitt fjórða
barn, þær voru svo spenntar og
búnar að kaupa kjól, hringdu svo
heim og jú takk, fjórði strák-
urinn. Aldrei hefði maður trúað
því þá að Sólný mín ætti eftir að
toppa mig, jú takk, 5-4 .
Elsku Palli og fjölskylda.
Megi minning um góða konu
lifa.
Elínborg (í Vísi) og
fjölskylda.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG SÆMUNDSDÓTTIR
frá Ólafsfirði,
Hraunvangi 3,
Hafnarfirði,
andaðist á Landspítala Landakoti þriðju-
daginn 7. febrúar.
Hún verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
15. febrúar kl. 13.00.
Áslaug Jónsdóttir,
Aðalheiður Jónsdóttir, Sigþór Jóhannesson,
Ari E. Jónsson, Anna Þórey Sigurðardóttir,
Jóhanna Jónsdóttir, Steinþór Ómar Guðmundsson,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÞÓRDÍS TRYGGVADÓTTIR
myndlistarkona,
Laufrima 10A,
Reykjavík,
lést föstudaginn 10. febrúar.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
17. febrúar kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Sigríður Egilsdóttir, Ólafur Jóhann Ólafsson,
Helga Egilsdóttir,
Björgúlfur Egilsson, Lísa Pálsdóttir,
Tryggvi Egilsson, Elín Magnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, lang-
afi og langalangafi,
HAUKUR PÁLSSON
húsasmiður,
Sléttuvegi 15,
Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti sunnudaginn
12. febrúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 20. febrúar
kl. 15.00.
Guðrún Helga Hauksdóttir, Jóhann Örn Guðmundsson,
Gunnar Haraldur Hauksson, Kristín Jóna Guðjónsdóttir,
Sigurjón Páll Hauksson, Sigríður Valdís Karlsdóttir,
Kristín Hulda Hauksdóttir, Gylfi Jónasson,
Haukur Hauksson, Dögg Jónsdóttir,
Unnur Erna Hauksdóttir, Ólafur Örn Valdimarsson,
Jónas Guðgeir Hauksson, Sigrún Guðmundsdóttir,
Júlíana Hauksdóttir, Loftur Ólafur Leifsson,
Guðfinna Hauksdóttir, Hafliði Halldórsson
og fjölskyldur.✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN ÞÓRARINSSON
tónskáld,
Grænuhlíð 4,
Reykjavík,
lést á Droplaugarstöðum í Reykjavík sunnu-
daginn 12. febrúar.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 23. febrúar
kl. 13.00.
Sigurjóna Jakobsdóttir,
Anna María Jónsdóttir,
Þorsteinn M. Jónsson, Ingibjörg Egilsdóttir,
Hallgerður Jónsdóttir, Rögnvaldur Hreiðarsson,
Benedikt Páll Jónsson,
Þórarinn Jónsson,
Ágúst Jónsson, Edda Erlendsdóttir,
Rafn Jónsson, Sigríður Rafnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÁSA GUÐMUNDSDÓTTIR
hússtjórnarkennari
frá Harðbak,
lést sunnudaginn 29. janúar.
Útförin fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn
16. febrúar kl. 15.00.
Guðmundur Þorgeirsson, Bryndís Sigurjónsdóttir,
Gestur Þorgeirsson, Sólveig Jónsdóttir,
Eiríkur Ingvar Þorgeirsson, Ragnheiður Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN LILLÝ SIGMUNDSDÓTTIR,
Kirkjusandi 3,
sem lést á heimili sínu fimmtudaginn
9. febrúar, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
í Reykjavík föstudaginn 17. febrúar kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á minningarsjóð Karitas, hjúkrunar-
og ráðgjafaþjónustu.
Valdimar K. Jónsson,
Þyrí Valdimarsdóttir, Eggert Eggertsson,
Örn Valdimarsson, Guðbjörg María Jónsdóttir,
Vilborg Erla Valdimarsdóttir, Sigurður Sigurðsson,
Jón Rafn Valdimarsson, Elín Rósa Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir okkar,
amma, systir og mágkona,
SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR,
lést á heimili sínu í Svíþjóð fimmtudaginn
26. janúar.
Hún verður jarðsungin frá Digraneskirkju
miðvikudaginn 15. febrúar kl. 15.00.
Haukur Viggósson,
María Finnbogadóttir,
Finnbogi Már Hauksson,
María M. Finnbogadóttir,
Jóhann Steinar Hauksson,
Una Ragnheiður Hauksdóttir,
Hákon Sigurðsson, Katrín Guðjónsdóttir,
Björg Sigurðardóttir.