Morgunblaðið - 09.02.2012, Qupperneq 2
2 finnur.is 9. febrúar 2012
Bók Gerðar Kristnýjar, Garðurinn, hefur fengið
afbragðsgóðar viðtökur í Þýskalandi. Bókin var
nýlega valin þar í stóra upplestrarkeppni og
þykir töluverður heiður. Til viðbótar við vel-
gengnina í Þýskalandi er svo ljóðabók hennar
Blóðhófnir tilnefnd til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs. Finnur sló á þráðinn til
Gerðar og komst að því að þessi flinki rithöf-
undur á sínar skrítnu hliðar.
1. Þegar ég var barn ætlaði ég að verða tannlæknir og
myndlistarkona. Veturinn sem ég gekk til prestsins hjá sr.
Halldóri Gröndal ætlaði ég hins vegar að verða prestur.
2. Ég fer alltaf í Faraos cigarer, eða Vindla faraós, þegar ég
er í Kaupmannahöfn. Þar fást teiknimyndasögur, fígúrur
og fleira skemmtilegt skrípódót.
3. Einu sinni var því spáð fyrir mér að ég flyttist til ann-
arrar heimsálfu. Þess vegna er ég einmitt á útkikkinu
eftir heppilegri álfu. Annars er ég á leiðinni til Indóne-
síu í apríl en er staðráðin í að koma þaðan aftur.
4. Ég tala stundum við sjálfa mig.
Það má.
5. Sumarið 1980 tók ég þátt í
hópdansatriði á mikilli ÍSÍ-hátíð í
Laugardalnum. Fjöldi fimleika-
stúlkna fór í glitrandi bleika leik-
fimiboli og dansaði íþróttahreyf-
ingunni til heiðurs.
6. Mér hættir til að tíma ekki að
nota fíniríið mitt og geyma það bara inni í skápum og ofan í skúffum.
Það er nauðsynlegt að fara að taka á þessari dellu.
7. Ef frænka mín Andrea Jónsdóttir er amma rokksins, eins og haldið
hefur verið fram, eru synir mínir og rokkið fjórmenningar.
8. Ég var beðin um að kenna börnum í ritsmiðju í Gerðubergssafni
síðasta sumar. Það var sko skemmtilegt.
9. Fyrir tveimur vikum sá ég sýningu kínverska listamannsins Ai
Waiwai í Louisiana-safninu í Danmörku og stend mig að því að leiða
hugann sífellt að henni.
10. Ég er afkomandi Halldórs hertekna frá Járngerðarstöðum. Hol-
lenskur kaupsýslumaður keypti honum frelsi svo hann komst heim.
Það var nú aldeilis heppilegt fyrir mig!
11. Reiðhjólið mitt er ljósblátt með myndum af fiðrildum og
heitir Sumarfuglinn á sumrin en Svefnhjólið á veturna.
12. Eitt sinn átti ég skjóttan kött sem hét Ingunn
Saltkráka í höfuðið á mömmu minni og uppáhalds-
bókinni, Á Saltkráku eftir Astrid Lindgren. Kött-
urinn varð eitt sinn svo veikur að ég varð að
gefa honum stera.
13. Þegar ég var unglingur
las ég eftirfarandi ljóð í
bók Jóns Friðriks Ara-
sonar, Tveir fuglar og
langspil: ,,ef ég væri
skáld / væri him-
inninn lamb-
húshetta /
og eng-
um yrði kalt.“ Ég var heill-
uð.
14. Þegar ég var 19 ára
vann ég við að ryksuga
köngulær í suðurfrönsku
klaustri. Eftir það fannst mér
þær eilítið geðslegri en áður.
15. Ég hef farið í handahlaup á
kínverskum hótelgangi.
ai@mbl.is
RITHÖFUNDURINN
GERÐUR KRISTNÝ
GUÐJÓNSDÓTTIR
15 HLUTIR SEM ÞÚ VISSIR EKKI UM MIG
2
5
14
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Við Guðrún systir mín, sem er fjórum árum yngri
en ég, eigum sama afmælisdag. Í tímans rás hefur
því gilt að við skiptumst á um að halda afmælisboð
og ég reikna með að fara í kökur til hennar. Um
kvöldið er svo aðalfundur hjá blakdeild íþrótta-
félagsins Hamars hér í bæ og hver veit nema ég
komi með kökur á fundinn til þess að trekkja fólk
að,“ segir Valdimar Hafsteinsson, framkvæmda-
stjóri Kjöríss í Hveragerði, sem er 46 ára í dag, 9.
febrúar.
Valdimar segir að heilt yfir hafi lífið farið vel með
sig. Hann sé í skemmtilegu starfi hjá fjölskyldufyr-
irtækinu, eigi góða að og börnum þeirra Sigrúnar
Kristjánsdóttur vegni vel í lífi og leik.
„Eftir því sem krakkarnir hafa komist betur á
legg og maður er ekki eins bundinn af því að fylgja
þeim eftir á íþróttamótum hef ég gefið mér meiri
tíma sjálfur í sportið. Er bæði í blaki og hlaupum og
tók t.d. þátt í Mývatnsmaraþoni sl. vor sem var al-
veg ljómandi skemmtilegt.“
Valdimar Hafsteinsson er 46 ára í dag
Kökurnar hjá Guð-
rúnu systur í kvöld
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110
Reykjavík. Sími 5691100 Ritstjórar
Davíð Oddsson, Haraldur Johannes-
sen Umsjón Jón Agnar Ólason
jonagnar @mbl.is Blaðamenn Sig-
urður Bogi Sævarsson sigurdurbogi@
mbl.is Ásgeir Ingvarsson, Elín
Albertsdóttir, Finnur Thorlacius.
Auglýsingar finnur@mbl.is, sími
5691107 Prentun Landsprent ehf.
Bókin Nú er glatt á hjalla hjá
bókaunnendum því það eru
útsölur á bókum
víðast hvar og
þar af leiðandi
lag að ná í þær
jólabækur sem
ekki skiluðu
sér í pakkana.
Ýmsir ilmandi
titlar eru á
hálfvirði, til dæmis
Listaverkið eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson og Valeyrarvalsinn
eftir Guðmund Andra Thors-
son. Það er því ekki eftir
neinu að bíða fyrir bókaþjóð-
ina – allir að bóka sig upp!
Bíómyndin Lítið lát er á vel-
gengni Contraband, spennu-
myndar Baltasars Kormáks,
og þegar
þetta er rit-
að standa
tekjurnar í
8,7 millj-
örðum
króna. Allir
sem eiga eftir að sjá afrekið
ættu því að haska sér í bíó til
að berja augum drög Baltas-
ars að heimsyfirráðum.
Flíkin Hin rysjótta tíð sem
mörlandinn hefur mátt búa
við undanfarið kallar á
klæðnað sem ræður við
veðráttuna. Til alls fyrst er
að búa fæturna sæmilega
enda eru illa
skóaðir ein-
staklingar
kaldir úti þeg-
ar illa viðrar.
Hunter-stígvél
eru ekki bara
dugandi í öllum veðrum
heldur líka stælleg í meira
lagi. Það er líka eitthvað við
fallega klæddar dömur í eld-
rauðum gúmmístígvélum …
Menningin Íslenski dans-
flokkurinn setur iðulega upp
dansverk sem fá gesti til að
gleyma stað og stund, og
fátt er skemmtilegra en að
sjá tilfinningar túlkaðar í
dansi. Sýningin Mínus 16
eftir Ohad Naharin er hörku-
flott sýning með frábærri
tónlist.
MEÐMÆLI
VIKUNNAR
Hver man ekki hinn tilfinningaríka flutning leik-
arans Johns Hannah á ljóði W.H. Audens, Funeral
Blues, í kvikmyndinni Fjögur brúðkaup og jarð-
arför? Skáldið öðlaðist þar frægð á einni nóttu,
að kalla, 20 árum eftir andlát sitt, en hann féll frá
árið 1973.
Skáldið Auden kom til Íslands árið 1937 og aft-
ur 1964. Í seinna skiptið er meðfylgjandi mynd
tekin og settist þá Auden niður með menning-
arjöfrum úr röðum heimamanna og fékk sér tár á
Hótel Borg. Á myndinni má sjá frá vinstri Auden
sjálfan, Gunnar Gunnarsson rithöfund, Sigurð
Nordal prófessor og Tómas Guðmundsson skáld.
Um sama leyti fór Morgunblaðið þess á leit við
Auden að fá að þýða ljóð eftir hann til birtingar,
að því er fram kemur í dagbókum Matthíasar Jo-
hannesen. Matthías greinir svo frá framvindu
mála gegnum breska sendiherrann:
„Basil Boothby, sendiherra Breta á Íslandi,
hefur skrifað mér bréf og segir að við megum
þýða eftir Auden ljóð, ef við viljum.
„He says: Since Iceland is for me, a „holy gro-
und“ I shall ask no fee.“
Tímavélin
Stöðvið allar
klukkur …
Leikararnir fimm sem tilnefndir
eru fyrir bestan leik í aðalhlutverki
karla mættu allir í heiðurskvöld-
verð sem efnt var til fyrir alla þá
listamenn sem tilnefndir eru í ár.
Fimmmenningarnir stilltu sér upp
fyrir framan stækkaða útgáfu af
Óskarsstyttunni og fór vel á með
þeim þrátt fyrir að enginn verði
annars bróðir þegar kemur að því
að velja einn þeirra til að hampa
sjálfri styttunni. Afhendingin fer
fram í Kodak Theatre í Los Angel-
es hinn 26. febrúar nk.
Leikararnir eru frá vinstri: Gary
Oldman (Tinker Tailor Soldier
Spy), Jean Dujardin (The Artist),
Demian Bichir (A Better Life), Brad
Pitt (The Tree of Life) og George
Clooney (The Descendants).
Vinir Óskars
Þar sem stórleikarar koma saman, þar er gaman.