Morgunblaðið - 09.02.2012, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.02.2012, Blaðsíða 16
16 finnur.is 9. febrúar 2012 Óskaiðjan? Skrifin eru skemmtilegust. Það er svo gaman og gefandi að skrifa fyrir börn. Svo ekki sé talað um skóla- heimsóknirnar sem fylgja í kjölfar út- gefinnar bókar. Mér finnst líka skemmtilegt að ferðast innan- sem utanlands með eiginmanninum og börnum okkar. Þegar það er rólegt nýt ég yndislest- urs – iðja sem okkur hjónunum hefur tekist ágætlega að smita börnin okkar af. Óskamaturinn? Íslenska lambið er í miklu uppáhaldi og fullkomlega eldað læri klikkar ekki. Sér í lagi ef það hefur trítlað og gætt sér á villtum fjallagrösum eða íðil- grænni hvönn. Ég veit ekki með þig en ég fæ vatn í munninn við tilhugs- unina. Draumabíllinn? Um tíma lét ég mig dreyma um neongræna bjöllu sem Brynja mág- kona mín átti. Naut þess virkilega að setjast inn í þessa eð- alkerru. Nú er græni draumurinn seld- ur og ég sátt við Mözduna mína góðu. Draumverkefnið? Er búin að vera í því síðasta árið að skrifa og fá útgefna fyrstu bókina mína, Keli minn sem hvarf. Nú er ég byrjuð á sjálfstæðu framhaldi – al- gjört draumaverkefni. Jú, ég á mér reyndar draumamarkmið en það er að fá Kela þýddan yfir á ensku og Norð- urlandamálin – þetta er lang- tímamarkmiðið. Hvað vantar á heimilið? Synir mínir myndu sjálfsagt nefna spjaldtölvu. Ég finn ekki fyrir neinni vöntunartilfinningu heima hjá mér. Hvað langar þig sjálfa helst í? Eins og ég sagði þá finn ég ekki fyr- ir neinni vöntunartilfinningu. Ef ég hins vegar læt hugann reika og fabú- lera svolítið, þá hefði ég ekkert á móti því að eiga lítið krúttlegt hús í kósý litlum bæ á Ítalíu. Á þessum stað fengi ég hugmyndir að fleiri sögum og ljóðum. Hvað er best heima? Að eiga gæðustundir við lestur. Það er gaman að lesa fyrir börnin sín og- með því mest gefandi sem ég þekki. Yngsta barnið mitthefur enn áhuga á því að láta lesa fyrir sig og við njótum þess. Þetta eru gæðastund- irnar. Við foreldrar eigum nefnilega að vera góðar lestrarfyrirmyndir og sýni- legri með bók í hönd. Svo mæli ég með að fólk hafi einn ákveðinn lestrardag,t.d. einu sinni í viku eða mánuði, þegar við foreldrar slökkvum á sjónvarpinu og tölvunni og fjöl- skyldan les saman - svipuð stemning og var í torfbæjunum í denn. jonagnar@mbl.is Óskalistinn Ingibjörg Ferdinandsdóttir Gefandi að skrifa fyrir börn Ingibjörg Kristín Ferdinandsdóttir sendi frá sér barnabókina „Keli minn sem hvarf“ fyrir síðustu jól. Hún hefur haft nóg að gera við upplestur síðan bókin kom út meðfram kennarastörfum og þessa dagana situr hún við skriftir því nú þegar er vinna hafin við næstu bók, sem er sjálfstætt framhald um Kela.  Ég ákvað að lýsa styttuna upp, þá verður hún líka skýrari og bjartari.  Málaði einnig trérammann og límdi svo styttuna þar á með límbyssu.  Úr þessu varð til fallegur og tignarlegur skúlptúr sem nýtur sín vel á heimilinu. maja@mbl.is Morgunblaðið/Golli Stytta á stalli Dökkar og þungar styttur eru lítið í tísku hjá minni kynslóð en fal- legt skraut samt sem áður. Að þessu sinni tók ég gamla styttu og setti hana í nútímalegri búning. Það sem mig langaði ennfremur að gera var að setja smá stall undir hana til að gera hana ennþá flottari og tignarlegri. Í það notaði ég einfaldlega gamlan þykkan myndaramma, en einnig má nota spýtukubb. Breytt og bætt með Maju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.