Morgunblaðið - 09.02.2012, Blaðsíða 4
4 finnur.is 9. febrúar 2012
Allt er á fullu hjá Jóni Ólafssyni þessa dagana og í
mörgu er að snúast. Jón er nýkominn úr fundaferð
til Brussel og stendur fyrir tónleikum með
Ellen Kristjánsdóttur í Salnum á fimmtu-
dag, og kemur svo fram með Björgvini
Gíslasyni og félögum á Rósenberg næsta
miðvikudag. Finnur heyrði hljóðið í Jóni,
sem sagði frá viðburðaríkri vinnuviku.
Mánudagur: Tók daginn nokkuð rólega í
hljóðveri mínu við tiltekt eftir annasama
helgi á undan þar sem Bítlavinafélagið lék í
fyrsta sinn opinberlega á þessari öld við frá-
bærar undirtektir norðanmanna.
Þriðjudagur: Útbjó stiklu fyrir Rás 2 í hverri ég
kynni á yfirvegaðan hátt Af fingrum fram í Saln-
um fimmtudaginn 9. febrúar. Þetta er spjall-
tónleikaröð sem ég er nú með á dagskrá þriðja
veturinn í röð. Fann einnig til passann minn og
kannaði hvort hann væri ekki í gildi.
Miðvikudagur: Borgaði reikninga, Visa o.fl. og
pakkaði í tösku enda á leið til Brussel ásamt
Jakobi Frímanni Magnússyni, formanni FTT, á
þing evrópskra tónskálda. Við félagarnir vorum
heldur seinir fyrir en náðum þó vélinni í tæka
tíð. Satt best að segja mátti nú minnstu muna.
Komum á hótelið um 22.00 og lögðumst til
hvílu (sinn í hvoru lagi).
Fimmtudagur: Morgunmatur í Brusselborg og
síðan tékkað út af hótelinu ágæta og inn á ann-
að skammt frá Theater de Vaudeville en þar fer
ráðstefna evrópsku kompónistanna fram. Við
Jakob byrjum á að hitta kollega okkar frá Norð-
urlöndum og fór vel á með mannskapnum. Það
tekur mig hálftíma að venjast því að heyra alla
tala ensku. Þegar það er komið hjá mér átta ég
mig á því að um 19 orð eru mér framandi. Þarf
að fletta þeim upp.
Föstudagur: Fundarhöld á fundarhöld ofan. Við
félagar náðum þó að smokra okkur út í hálftíma
til að heimsækja ísbúð í göngufæri. Um kvöldið
reyndi ég að fá mér göngutúr í Brusselborg en
kuldinn var svakalegur þannig að ég var fljótur
heim aftur á hótel.
Laugardagur: Enn er fundað og nú æsast leik-
ar. Ég ímynda mér að þetta sé ekki ólíkt því að
sitja þing Sameinuðu þjóðanna eða Evrópusam-
bandsins. Um kvöldið er lokapartí á einhverjum
bar. Þar inni er þröngt, of hávær tónlist til að
hægt sé að tala saman og of margt fólk til að
hægt sé að hreyfa sig eða fá afgreiðslu á barn-
um. Sumsé furðulegt staðarval fyrir kveðju-
stund. Ég ræði við sænskt tónskáld, sænskan
aðalsmann, íslenska konu sem býr í Brussel,
bandarískan lagahöfund en næ bara stuttu
augnsambandi við úkraínsku konuna í jarð-
arfarardressinu. Fer svo heim um hálftólfleytið,
með fyrstu mönnum, og leggst til hvílu á Hotel
La Madeleine.
Sunnudagur: Lestarferð frá Brussel til Parísar
og síðan í fangið á flugfreyjum Flugleiða sem eru
alltaf jafn dásamlegar við mann. Húrra fyrir þeim.
Flugið gengur líka svona hreint prýðilega á heim-
leiðinni og við lendum með heila húfu á auglýstum
tíma. Töskurnar okkar urðu eftir í París og ég bíð
spenntur eftir að endurheimta mína svo ég geti nú
burstað tennurnar. Það hefur mér alltaf þótt hinn
besti siður.
ai@mbl.is
VIKA Í LÍFI JÓNS ÓLAFSSONAR
’T́öskurnar okkar
urðu eftir í París og
ég bíð spenntur
eftir að end-
urheimta mína
svo ég geti nú
burstað tenn-
urnar.
Með tónlistarmönnum
í ískaldri Brusselborg
’Ńæ bara
stuttu augn-
sambandi við
úkraínsku
konuna í
jarðarfar-
ardressinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Franski rafdúettinn AIR sendi á dög-
unum frá sér sína sjöttu hljóðvers-
skífu og nefnist gripurinn Le Voyage
Dans La Lune, eða Ferðin til tungls-
ins. Leita þeir innblásturs í hinni
víðfrægu samnefndu kvikmynd
eftir landa þeirra, Georges Mé-
liès, sem gerð var árið 1902 og
fjallaði um leiðangur nokkurra
jarðarbúa til tunglsins. Myndin á
plötualbúminu er til að mynda tekin úr atriði í
myndinni þegar tunglfarið lendir í auga karlsins í
tunglinu.
Þá heita lögin öll nöfnum sem sótt eru í geimferðir
og þessleg þemu, svo sem Cosmic Trip, Moon Fever,
Seven Stars og Astronomic Club.
Platan er þegar tekin að safna stjörnum og stigum
víða um heim enda Frakkarnir í AIR með mærðari tón-
listarmönnum samtímans.
Franska bandið lætur að sér kveða
Loftleiðina til tunglsins
AIR: Nicolas Godin (t.v.) og Jean-Benoît Dünckel
Ævintýramyndin Journey 2:
Mysterious Island var forsýnd í
Los Angeles um síðustu helgi en
frumsýningin er á morgun,
föstudag. Myndin segir frá Sean
(Josh Hutcherson) sem ákveður
að leggja í svaðilför ásamt kær-
asta mömmu sinnar, sem leikinn
er af Dwayne „The Rock“ John-
son. Myndin er byggð á sögu Ju-
les Verne og er óbeint framhald
af Journey to the Center of
the Earth sem gerð var árið
2008 og var meðal annars
tekin upp hér á landi.
Aðalleikarar mynd-
arinnar mættu að sjálf-
sögðu á forsýninguna
ásamt öðrum silkihúf-
um úr heimi Hollywood.
Í takt við regnskóga-
loftslag myndarinnar
mættu dömurnar í
sínu litríkasta pússi
og geisluðu hver í
takt við aðra. Þá vakti
athygli að gamli rokk-
hundurinn James Hetfield,
söngvari Metallica, mætti
hress á forsýninguna, en
flestir hefðu líklega talið
hann sækja frekar í þyngra
efni þegar hann bregður
sér í bíó. Kannski hefur
hann bara dálæti á Jules
Verne?
Journey 2: Mysterious Island forsýnd vestra
Reuters
Kjólar í öllum
regnbogans litum
Dwayne John-
son gnæfir yf-
ir samleikara
sína á rauða
dreglinum.
James Hetfield var í góðum gír á
frumsýningunni.
Bella
Thorne
Ashley
Tisdale
Rachel
McAdams
veitingahús
Eftir 37 ára pásu ætlum við að dusta rykið
af veitinaghúsinu Silfurtunglinu í Austurbæ.
Af því tilefni leitum við að hressu og skemmti-
legu fólki í okkar lið til að lyfta Silfurtunglinu
aftur upp á stjörnuhiminninn.
Við leitum að:
Matreiðslumanni
Aðstoð í eldhús
Vaktstjóra í sal
Þjónum í sal
Barþjónum
Uppvöskurum
Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára, hafa
reynslu af sambærilegum störfum, hafa mikinn
metnað, vera sjalfstæðir og glaðlyndir.
Umsókn með ferilskrá og mynd
sendist á Stein Óskar Sigurðsson,
steinn@silfurtunglid.is.