Morgunblaðið - 09.02.2012, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.02.2012, Blaðsíða 22
bílar Stefnt er að frumsýningu Fiat 500L MPV í Genf í mars. Bíllinn fer svo í sölu undir lok árs. Bíllinn er með 1,4 lítra bensínvél og rúmgóður. Fyrirsjáanlegir keppinautar eru Nissan og Citroën C3 Picasso. Tvær stærstu bílaleigur landsins ráðgera að kaupa allt að 1.300 nýja bíla fyrir sumarvertíðina. Er þetta í samræmi við almenna stefnu fyrirtækjanna um reglulega endurnýjun flotans og að leigja hvern bíl ekki út lengur en í tvö til þrjú sumur. „Við tökum inn 700 til 800 nýja bíla á næstunni og erum raunar þegar búnir að taka inn nokkra Mitsubishi Pajero sem þurfti að panta með löngum fyrirvara. Flesta bílana tökum við hins vegar inn alveg undir vorið og endurnýjum þriðjung flota okkar sem alls er um 2.200 bílar,“ segir Steingrímur Birgisson, fram- kvæmdastjóri Hölds - Bílaleigu Akureyrar. Hann segist kaupa bíla af flestum stærstu bílaumboðunum til að tryggja nauðsynlega fjölbreytni. Einnig ráði talsvert miklu við kaupin að bílarnir séu góðir í endursölu. Sigfús Sigfússon er framkvæmdastjóri Hertz sem kaupir 500 nýja bíla þetta árið og verslar við flest umboð. Fyrstu bílana tók hann inn í janúar sl. og svo koma sendingarnar alveg fram á vorið. Er við kaupin að leiðarljósi haft að fá í flotann sem telur um 1.100 ökutæki, trausta bíla og bilanalitla. Auk þess er kost- að sé kapps að koma til móts við kröfur viðskiptavina, sem að miklu leyti eru erlendir ferðamenn, um að bílarnir séu sparneytnir. sbs@mbl.is Kaupa allt að 1.300 bíla fyrir sumarið Endurnýja nærri helming flotans Í sl. viku sýndi Volkswagen und- irvagninn í nýja Golf-bílnum sem kynntur verður bráðlega af sjöundu kynslóð. Það að sýna undirvagn bílsins, en ekki eingöngu ytra útlit hans, er óvana- legt en það er skýring á því. Í leið- inni var þess getið að þessi und- irvagn myndi verða í 60 mismunandi nýjum gerðum bíla frá Volkswagen-fjölskyldunni sem kynntir verða á næstu árum. Á þetta við um stærðir bíla allt frá hinum smávaxna Polo til mun stærri Passat. Þetta er að sjálf- sögðu ekki hægt nema grindin sé strekkjanleg og þannig er einmitt hinn nýi undirvagn VW sem fengið hefur heitið MQB. Hægt er bæði að lengja og breikka þennan sama undirvagn án þess að breyta fram- leiðslulínunni. Alger nýlunda í framleiðslu Þessi aðferð er alger nýlunda í smíði bíla, en hefur ýmsa kosti. Með henni er ekki verið að hanna undirvagn fyrir hverja gerð og með því næst mikill sparnaður. Með sömu gerð undirvagns verða allar þessar 60 gerðir VW-bíla smíðaðar á eins framleiðslulínu í verksmiðjum VW um allan heim og með því sparast einnig mikið í framleiðslunni. Þessi undirbygging bílanna er talsvert mikið léttari en verið hefur í fyrri gerðum og er til dæmis hin nýja gerð Golf mikið léttari en for- verinn þrátt fyrir meiri búnað og meira öryggi fyrir farþega. Í nýja MQB-undirvagninum er ísetning og festing véla alveg eins, sama hvort um er að ræða bensín- eða Sami undirvagn í 60 bílgerðum hjá Volkswagen Reuters Volkswagen sýndi undirvagninn í nýja Golf-bílnumá dögunum. Vagninn hæfir einnig tugum annara nýrra gerða bíla frá Volkswagen-fjölskyldunni sem eru í þróun í dag og verða kynntir verða á næstu árum. Því geta bílar frá Audi, Seat, Skoda og Volkswa- gen streymt frá einni og sömu verksmiðjunni. Breikka undirvagninn og strekkja grindina dísilvélar og er það enn ein ný- lundan sem sparar umtalsvert í framleiðslu. Tvær nýjar og litlar gerðir véla hafa verið sérstaklega hannaðar samhliða nýja und- irvagninum, en það eru 0,8 lítra dísilvél og 1,2 lítra bensínvél með túrbínu. Mörg merki frá sömu verksmiðju Annar mjög athygliverður kost- ur opnast að auki fyrir Volkswa- gen-fjölskylduna í heild með öll sín dótturmerki. Í verksmiðjunum má með þessu framleiða hvaða gerð bíla sem er með þessum merkjum og því geta bílar frá Audi, Seat, Skoda og Volkswagen streymt frá einni og sömu verksmiðjunni. Þessi breyting ætti að koma í veg fyrir flutning á hinum ýmsu gerðum milli landa, því framleiða má það sem eftirspurn er eftir í hverju landi eða sem næst hverri verksmiðju. Með þessari breyt- ingu er einnig áætlað að núverandi verksmiðjur muni geta framleitt talsvert fleiri bíla en þær gera nú. Þessi aðferðafræði hljómar alls ekki illa í eyrum svo fremi sem hún verði til að lækka verð til almenn- ings og að gæði haldist eða aukist, en það er augnamið forsvars- manna Volkswagen í Wolfsburg. finnurorri@gmail.com Bílaleigur kaupa Toyota Land Cruiser nokkrum mæli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.