Morgunblaðið - 09.02.2012, Síða 23
9. febrúar 2012 finnur.is 23
Bandaríkjamenn halda lengi í bíla
sína og nýta þá vel. Það end-
urspegla tölur um meðalaldur
bandaríska bílaflotans sem aldrei
hefur verið hærri. Meðalbíllinn er
11,1 ár í akstri samkvæmt upplýs-
ingum greiningarfyrirtækisins
Polk. Meðalaldur vörubíla er ögn
lægri, eða 10,4 ár. Árið 2010 var
meðalaldur bíla á bandarískum
vegum 10,6 ár en árið 2008 10 ár.
Að sögn Polk eru 240,5 millj-
ónir fólks- og vörubíla á götum
Bandaríkjanna í dag, en þeir voru
242,1 milljón 2008.
Bandaríkjamenn hafa haldið
aftur af kaupum á nýjum bílum
undanfarin ár, bæði vegna at-
vinnuleysis og kreppu. Breyting
varð þar á í fyrra er salan jókst úr
11,6 milljónum bíla 2010 í 12,8
milljónir.
Meðalaldur uppítökubíla hjá
seljendum nýrra bíla var 6,5 ár á
miðju nýliðnu ári, en var árinu
minna 2007. Sérfræðingar segja
að greinin hafi að vissu marki
verið fórnarlamb eigin velgengni.
Bílar bili ekki eins oft og slitni
ekki eins hratt og áður fyrr. Neyt-
endur hafi því uppgötvað að þeir
þurfi ekki á nýjum bíl að halda
þriðja eða fjórða hvert ár.
agas@mbl.is
Meðalaldur bíla í Bandaríkjunum 11,1 ár
Flotinn verður sífellt eldri
Reuters
Bandaríkjamenn hafa haldið aftur af kaupum á nýjum bílum undanfarin
ár, bæði vegna atvinnuleysis og kreppu og því eldist flotinn afar hratt.
Bernharð á Íslandi hefur að
undanförnu, í samstarfi við
verkstæði víða um land, boðið
upp á nýja gerð af þjón-
ustukoðunum fyrir Honda CR-V
jeppa af árgerðum 2002 til
2006. Er þetta gert í tilefni af
því að hinir vinsælu jeppar hafa
verið á Íslandsmarkaði í fimm-
tán ár um þessar mundir.
Í þessu skoðunarátaki lentu
nöfn eigenda Honda CR-V bif-
reiða í potti þar sem dregið var
um tíu 50 þúsund kr. eldsneyt-
isúttektir hjá Olís um land allt.
Bernhard ehf. heldur upp á
50 ára afmæli sitt á árinu og af
því tilefni verður ýmislegt gert
til hátíðabrigða á næstunni.
Þrjár gerðir nýrra bíla verða
frumsýndar og má þar á meðal
nefna nýjan Civic og Peugeot
208.
sbs@mbl.is
Ýmsar nýjungar hjá
Bernharð á Íslandi
Haraldur Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri þjónustusviðs Bern-
harðs, afhendir Gísla Gíslasyni
eldsneytisúttektina.
Þjónustu-
skoðun og þrír
frumsýndir
Nk. laugardag, 11. febrúar, verður
sýning í Lexussalnum við Nýbýla-
veg í Kópavogi þar sem meðal
annars má sjá Lexus CT 200h.
Þetta er fyrsti Hybrid-bíllinn í
flokki smærri lúxusbíla, sportleg-
ur með gott viðbragð en jafnframt
eyðslugrannur og umhverf-
isvænn. Reynsluakstur verður í
boði á sýningunni sem stendur frá
kl. 12 til 16.
„Bíllinn er fljótur að ná spyrnu
og hraða, vinnslan er góð og bíll-
inn líður vel á veginum. Utan
borga er hann aðeins örfáar sek-
úndur að ná spretti, til að mynda á
hraðbrautum. Á bugðóttum
sveitavegum nýtur bíllinn sín ekki
síður ágætlega; rennur vel í beygj-
um og brekkum og missir hvergi
flug í snerpu og krafti,“ sagði í
reynsluakstursgrein um Lexus CT
200h hér í blaðinu á sl. ári. Var þar
sérstaklega tilgreint að öllu væri
haganlega fyrir komið í bílnum.
„Ökumaður fær fljótt örugga til-
finningu fyrir því hvar stjórntækin
eru; það er við stýri eða í stjórn-
borði á hægri hönd þar sem sjálf-
skiptingunni er meðal annars fyrir
komið. Vel fer um ökumann og far-
þega,“ sagði í greininni.
sbs@mbl.is
Kynna nýjan Lexus CT
200h um helgina
Lexus CT 200h. Eyðslugrannur og
og hefur fengið mjög góða dóma.
Bíllinn líður
vel áfram á
veginum
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
9
8
6
1
Ergo þakkar frábærar viðtökur á grænum bílalánum sem miða að því að fjölga
umhverfishæfari bílum á Íslandi. Græn bílalán standa til boða við kaup á bílum í
útblástursflokkum A, B og C og eru þau án lántökugjalda út júnímánuð 2012.
Kannaðu kosti grænna bílalána á ergo.is
Græn lán fá
frábærar viðtökur
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is