Morgunblaðið - 09.02.2012, Side 24
24 finnur.is 9. febrúar 2012
Þ
að fer vel á því að BL,
bílafyrirtæki með nýju
nafni, kynni glænýjan bíl
frá einum af mörgum at-
hygliverðum framleiðendum
þess, Subaru. Í sl. viku kom til
landsins fyrsta eintakið af al-
gjörlega nýjum bíl, Subaru XV.
Þessi bíll er byggður á Impreza-bíl
fyrirtækisins og undirvagninn er
sá sami. Samt er hann gjörólíkur í
útliti og miklu hærri, semsagt
Impreza á háum hælum! Hann er
þó ekki nema 50 kg þyngri en
Impreza og vegur aðeins 1.400 kg
sjálfskiptur og 30 kg minna bein-
skiptur.
Subaru XV svipar mjög til
margra jepplinga í stærð og þeg-
ar honum var lagt við hliðina á
Range Rover Evoque eftir
reynsluaksturinn sást að hann er
svo til alveg jafn langur. Subaru
XV er sérlega háfættur og hefur
22 cm undir lægsta punkt, hæð
sem margur jeppinn mætti vera
stoltur af og það ætti að nýtast
honum vel hér á landi. XV er fjór-
hjóladrifinn eins og allar aðrar
gerðir Subaru-bíla, á verði sem er
undir verði flestra annarra jepp-
linga og því nokkuð vænlegur
kostur fyrir létta buddu Íslend-
inga þessa dagana.
Frískleg ytri hönnun
Ytri hönnun bílsins er frískleg
og ég er ekki frá því að hann sé
nokkuð töffaralegur á sínum
svörtu felgum með breiða svarta
hjólskálaboga, snarlækkandi
gluggalínu aftur eftir bílnum,
skyggðar afturrúður og afgerandi
hvasslínur á afturenda. Djörf og
skemmtileg hönnun. Ekki er um
sömu djörfung að ræða að innan,
þar er allt frekar venjulegt og lág-
stemmt. Stjórntækjum er ágæt-
lega fyrir komið og virkni þeirra
og staðsetning ágæt.
Innrétting er íburðarlítil. Mikil
plastnotkun er ríkjandi, í mæla-
borði, hurðum og reyndar um all-
an bílinn. Að þessu leyti stingur
þessi bíll ekki mikið í stúf við aðra
Subaru-bíla, en þeir hafa und-
anfarin ár verið nokkuð íburð-
arlitlir að innan. Þar liggja heldur
alls ekki kostir Subaru-bíla, held-
ur miklu frekar í góðum aksturs-
eiginleikum, drifgetu, endingu og
góðri smíði.
Rými í aftursæti er einstaklega
gott, bæði fyrir fætur og höfuð.
Sætin eru óvenju mjúk og jafnvel
um of þar sem ökumaður og far-
þegi sökkva töluvert í þau. Skott-
rými er lítið og minna en í mörg-
um jepplingnum, ekki síst þar
sem gólfið er óvenju hátt.
Boxer-vél sem
liggur neðarlega
Vélarnar sem í boði eru í XV eru
2,0 l bensínvél af boxer-gerð og
2,0 l díselvél af boxer-gerð. Bens-
ínvélin er 150 hestöfl og díselvélin
147. Reynsluakstursbíllinn var
með bensínvélinni og sjálfskiptur,
en hann verður einnig hægt að fá
beinskiptan en díselbílinn ein-
göngu sjálfskiptan. Þessi bens-
ínvél dugar bílnum en ekkert
meira en það. Betra væri að búa
að meira afli þegar taka þarf fram
úr eða leika sér með þennan ann-
ars afbragðsgóða akstursbíl.
Að aka Subaru XV er ein-
staklega lipurt og ljúft. Hann er
nákvæmur í stýri og fjöðrunin er
hreint afbragð. Bíllinn var reyndur
á malarvegi, talsvert holóttum og
stóð sig frábærlega þar. Fjöðrunin
er þó einna ljúfust í borg-
arumferðinni og hann fer ein-
staklega vel með farþega. Einn af
stærri kostum allra Subaru-bíla er
boxer-vélin. Hún liggur neðarlega
í bílunum vegna þverstæðra
strokka hennar og færist því
þyngdarpunkturinn niður og eyk-
ur á góða aksturseiginleika þeirra.
Finnur Orri Thorlacius reynsluekur Subaru XV
Frísklegur á háum hælum
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Subaru XV mun vafalaust höfða til margra íslenskra kaupenda, enda er bíllinn fallegur að utan, notadrjúgur, góður akstursbíll með mikla torfærugetu og fæst á góðu verði.
Subaru XV Árgerð 2012
• 17“ álfelgur
• Eigin þyngd: 1.400 kg
• Burðargeta: 540 kg
•Verð frá 5.790.000 kr.
• 6,6 l/100 í bl. akstri
• Umboð: BL
• 0-100: 10,7 sek.
•Hámark:187km/klst
• Fjórhjóladrif
•Mengunargildi:
• 160 g CO2/km
•Farangursr. 1.270 l.
• 2,0 l. bensínvél
• 150hestöfl/240Nm
• 6 gíra CVTssk.
Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is