Morgunblaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 32
32 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2012 Sudoku Frumstig 1 6 4 2 8 9 5 8 3 4 6 6 1 2 9 8 9 2 5 1 4 3 5 8 7 5 5 6 4 8 4 1 3 5 7 6 2 7 1 8 3 6 2 5 7 8 4 6 9 2 5 8 4 5 1 8 7 4 9 4 1 6 6 5 7 2 4 3 8 7 3 6 9 5 8 6 3 2 1 4 9 7 4 2 7 6 9 8 1 5 3 1 3 9 5 7 4 2 8 6 6 7 1 9 3 5 8 4 2 8 5 3 1 4 2 6 7 9 9 4 2 7 8 6 5 3 1 7 1 8 4 6 3 9 2 5 2 9 5 8 1 7 3 6 4 3 6 4 2 5 9 7 1 8 9 8 4 6 7 2 5 1 3 3 5 2 1 4 8 9 7 6 7 1 6 5 3 9 4 2 8 6 3 9 8 1 5 7 4 2 1 7 8 4 2 6 3 5 9 2 4 5 3 9 7 6 8 1 8 6 1 9 5 4 2 3 7 4 9 7 2 8 3 1 6 5 5 2 3 7 6 1 8 9 4 9 4 7 3 5 1 2 8 6 8 2 1 4 7 6 9 5 3 3 5 6 9 2 8 4 1 7 7 6 2 5 1 4 8 3 9 4 8 5 2 9 3 7 6 1 1 3 9 6 8 7 5 4 2 5 1 8 7 6 9 3 2 4 2 9 4 1 3 5 6 7 8 6 7 3 8 4 2 1 9 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 1. mars, 61. dagur ársins 2012 Orð dagsins: Drottinn mun frelsa mig frá öllu illu og mig hólpinn leiða inn í sitt himneska ríki. Honum sé dýrð um aldir alda! Amen. (Tím. 4, 18.) Lífið á það til að apa eftir listinni.Fyrir margt löngu brá góði dát- inn Svejk sér á kaffihúsið Bikarinn í skáldsögu Jaroslavs Haseks. Þar varð eiganda Bikarsins á að segja að hann hefði tekið niður mynd af keis- aranum í Vín því „að flugurnar skitu á hana“. Svejk hins vegar lýsti yfir því að betra hefði verið að holdafar Ferdinands, erkihertoga og frænda keisarans, sem þá var nýbúið að myrða í Sarajevo, hefði verið annað. „Tjón er það, ekki verður því neitað. Hræðilegt tjón. Það getur ekki hvaða fífl sem er komið í staðinn fyr- ir Ferdinand. Hann hefði bara átt að vera enn þá feitari,“ sagði Svejk. Þetta heyrði Bretschneider, leyni- lögregluþjónn í ríkislögreglunni, og handtók mennina tvo fyrir ýmis refsiverð athæfi, þar á meðal móðg- un við keisarann. Svejk var varpað í fangaklefa þar sem fyrir voru sex menn og höfðu fimm þeirra verið teknir fastir fyrir að opna munninn. x x x Á laugardag var Richmore Chazihandtekinn þar sem hann sat á knæpu og drakk með vinum sínum á meðan þeir fylgdust með skrúð- göngu, sem haldin var í tilefni af 88 ára afmæli Roberts Mugabes, for- seta Simbabve.Chazi leyfði sér að spyrja í háðstóni hvort Mugabe væri nógu sterkur til að blása upp blöðr- urnar fyrir afmælið sitt. Á mánudag var hann látinn laus gegn 2.500 króna tryggingu, en hann hefur ver- ið kærður fyrir að móðga og grafa undan valdi forsetans og verður mál- ið tekið fyrir síðar. Frétt af málinu fylgir að lögreglan í Simbave hand- taki reglulega fólk fyrir að segja brandara um Mugabe, sem setið hef- ur við völd í landinu frá því að það fékk sjálfstæði frá Bretum 1980. x x x Víkverji veit ekki hvort Mugabeþekkir góða dátann Svejk, en leyfir sér að efast um að Hasek hafi litið svo á að hann væri að skrifa for- skrift fyrir einræðisherra, sem eru viðkvæmir fyrir sjálfum sér, þegar hann rakti atburðarásina á Bik- arnum. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 efsti hluti hús- stafns, 4 náðhús, 7 sleifar, 8 bur, 9 selshreifi, 11 autt,13 tímabilin, 14 klakinn, 15 fjöl, 17 glyrna, 20 hávaða, 22 kjánar, 23 stoppa í,24 auð- velda, 25 stokkur. Lóðrétt | 1 brotnaði, 2 blóm- um, 3 tyrfið mál, 4 úrræði, 5 tungl, 6 magran, 10 ástundunarsamur, 12 tímabil, 13 aula, 15 makk, 16 vitlaust, 18 klaufdýrið,19 for- feðurna, 20 vaxa, 21 fiskar. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 svakalegt, 8 eltir, 9 tyfta, 10 nýr, 11 kárna, 13 arðan, 15 fengs, 18 hafur, 21 óra, 22 panil, 23 gerði, 24 hannyrðir. Lóðrétt: 2 votar, 3 kirna, 4 letra, 5 gáfað, 6 verk, 7 hann, 12 nóg, 14 róa,15 fipa, 16 nenna, 17 sólin, 18 hagur, 19 ferli, 20 reið. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Traust. N-AV. Norður ♠K1084 ♥ÁKD ♦ÁK432 ♣D Vestur Austur ♠97 ♠Á632 ♥102 ♥9865 ♦DG1065 ♦97 ♣ÁK73 ♣652 Suður ♠DG5 ♥G743 ♦8 ♣G10984 Suður spilar 1♦ redoblaðan. Sigurður Vilhjálmsson treystir makker sínum vel. Mjög vel. Hann var með héppana í suður og Þröstur Árna- son í norður opnaði á sterku Precision- laufi. Sigurður afmeldaði samvisku- samlega með einum tígli og vestur átti leikinn. Eftir að hafa spurt út í kerfið, doblaði vestur afmeldinguna til að sýna tígullit, sem er þekkt aðferðafræði gegn sterka laufinu. „Redobl,“ sagði Þröstur og allir pass. Vestur trompaði út, en allt kom fyrir ekki; vörnin fékk aðeins þrjá slagi á tromp og tvo á svörtu ásana. „Látum okkur sjá, yfirslagur í einum tígli redobluðum gerir svo mikið sem … 430.“ Atvikið átti sér stað á Íslandsmótinu í tvímenningi um síðustu helgi og talan 430 sást á fleiri borðum, en þá fyrir 3G unnin með yfirslag. 1. mars 1940 Vélbáturinn Kristján kom að landi eftir tólf daga hrakninga í hafi. Fimm manna skipshöfn hafði verið talin af. „Aðdáun- arvert hreystiverk,“ sagði Morgunblaðið. 1. mars 1964 Davíð Stef- ánsson skáld frá Fagraskógi lést, 69 ára. Hann var „vinsæl- astur og mikilvirk- astur allra sinna sam- tíma- skálda,“ að mati Stefáns Ein- arssonar prófessors. Fyrsta ljóðabók Davíðs, Svartar fjaðrir, kom út í desember 1919. 1. mars 1970 Ísland gerðist aðili að Frí- verslunarsamtökum Evrópu, EFTA. Aðildin hafði verið samþykkt á Alþingi 19. desem- ber 1969. 1. mars 1988 Skylt varð að aka með ljósum allan sólarhringinn, sam- kvæmt nýjum umferðarlögum. Einnig var heimilað að sekta fyrir vanrækslu á notkun bíl- belta. 1. mars 1989 Bjórdagurinn. Framleiðsla og sala á áfengu öli var leyfð eftir 74 ára hlé. „Bjórinn streymdi út úr áfengisbúðum,“ sagði DV. Bjórfrumvarpið hafði ver- ið samþykkt á Alþingi í maí 1988. 1. mars 2007 Virðisaukaskattur á mat- vörum og fleiri vörum lækkaði úr 14% eða 24,5% í 7%. Vöru- gjald á flestum matvörum var fellt niður. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… „Við verðum með tvöfalda veislu í heimahúsi, á föstudagskvöld fyrir samstarfsmenn og aðra sem tengjast vinnunni en á laugardag kemur fjöl- skyldan og aðrir vinir,“ segir Theodór Kr. Þórð- arson, yfirlögregluþjónn í Borgarnesi, en hann er sextugur í dag. „Það verður hleypt inn meðan hús- rúm leyfir! Maturinn verður sjávarréttasúpa að hætti húsmóðurinnar og það getur vel verið að í henni verði það sem ég kalla Borgfisk. Ég á hlut í trillu og renni oft fyrir fisk úti við Þormóð, svo skjótum við svartfugl þegar það er leyft.“ Theodór er fæddur og uppalinn í Borgarnesi. „Eiginkonan er María Erla Geirsdóttir, við eigum fjóra uppkomna syni og fjögur barnabörn. Húsið okkar hér í Borgarnesi köllum við Á ystu nöf, af því að við keyptum það rétt fyrir hrun og svo stendur það á klettabrún við sjóinn.“ Theodór hefur verið í lögreglunni frá 1978, fyrsta ballvaktin í héraðslögreglunni var reyndar 17. júní 1977, það segir hann lifa enn í endurminningunni. Theodór er með mörg áhugamál, hann er með einkaflugmannspróf og á þriðjung í flugvél. Nú er verið að ljúka við 800 metra flugbraut skammt frá húsakynnum Loftorku, nálægt þjóðveginum. kjon@mbl.is Theodór Kr. Þórðarson er 60 ára í dag Veisla haldin á Ystu nöf Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Flóðogfjara 1. mars Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 5.38 1,5 11.52 2,7 18.02 1,5 8.34 18.47 Ísafjörður 1.21 1,5 7.39 0,7 13.46 1,4 20.08 0,7 8.44 18.47 Siglufjörður 3.57 1,0 10.26 0,5 16.50 0,9 22.32 0,6 8.27 18.30 Djúpivogur 2.41 0,7 8.29 1,3 14.57 0,6 21.34 1,4 8.05 18.15 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Forðastu að taka mikilvægar ákvarð- anir í dag og kayptu ekkert nema matvöru. Mundu að fjölskyldan fer ekki neitt. (20. apríl - 20. maí)  Naut Leitaðu réttar þíns og farðu fram á það sem þú átt skilið. Dragðu úr dramatíkinni og haltu þig við staðreyndir. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Forðastu öll peningaútlát í dag og vertu því harðari sem löngunin í einhverja hluti kemur yfir þig. Annað mun einungis koma í bakið á þér síðar. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Haltu þig við jörðina og þá verða eng- in ljón á veginum. Losaðu hugann við hugs- anir sem ekki koma þér að gagni. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þótt þú viljir grípa öll þau tækifæri sem bjóðast skaltu gæta þín. Mundu að sannleik- urinn er sagna bestur. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það er hyggilegt að hafa augun opin fyrir nýjum tækifærum. Gættu þess bara að ofmetnast ekki í sigurvímunni. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Vinnusemi er dyggð, en of mikið má af öllu gera. Það er þér léttir að komast að því að nú eru peningar til staðar og því unnt að gera úrbætur á heimilinu. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þegar þú fékkst fyrst ábyrgð- arhlutverk, hélstu þig hafa nægan tíma til að sinna því. En það er nú einu sinni svo að sum- ir hlutir ganga ekki alltaf upp. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Vertu skarpskyggn og mundu lexíu síðasta mánaðar. Gættu þess að láta reiðina ekki ná tökum á þér því þá ertu dæmdur til þess að verða undir. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Sagt er að heppni sé þegar elju- semi og tækifæri mætast. Vertu sjálfum þér samkvæmur og þá muntu uppskera laun erf- iðis þíns. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Kannski áttar þú þig á því hversu mikill kærleikur umvefur þig dags daglega. Það getur reynt á þolinmæðina að þurfa að endurtaka sjálfan sig oft svo allir skilji. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það er alltaf nauðsynlegt að sjá heild- armyndina og varast að gera of mikið úr ein- hverjum einstökum atriðum hennar. Að breyta rétt veldur manni örugglega einhvern tímann óþægindum. Stjörnuspá 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 O-O 9. h3 Ra5 10. Bc2 c5 11. d4 Dc7 12. Rbd2 Be6 13. d5 Bd7 14. b3 c4 15. b4 Rb7 16. Rf1 a5 17. a3 Ha6 18. R3h2 Hfa8 19. g4 Re8 20. Rg3 g6 21. Kh1 Rg7 22. Hg1 Kh8 23. Df3 f6 24. Bh6 Hg8 25. h4 Rd8 26. g5 fxg5 27. hxg5 Hf8 Staðan kom upp í B-flokki Corus- skákhátíðarinnar sem lauk fyrir skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi. Kateryna Lahno (2557) frá Úkraínu hafði hvítt gegn hollenska kollega sín- um í stórmeistarastétt, Sipke Ernst (2606). 28. Rf5! gxf5 29. exf5 Bxf5 30. Bxf5 Rf7 31. Bxg7+ Kxg7 32. Dh5 Hh8 33. Be6 Bd8 34. g6 Rg5 35. gxh7 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.