Morgunblaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 10
Önduðu að sér Ottó- mana-menningunni Tónlistarmenn Haukur Gröndal (t.v.) klarinett- og saxófónleikari og Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari á siglingu. María Ólafsdóttir maria@mbl.is HljómsveitarmeðlimirSkuggamynda frá Býs-ans fóru nýverið í æv-intýralega ferð til Ist- anbúl. Þar drukku þeir í sig menninguna og fengu einn virtasta hljóðmeistara Tyrkja, Alp Turac, til að hljóðblanda fyrstu geislaplötu sveitarinnar, New Road, í Babajim- hljóðverinu. Ánægðir með útkomuna „Ferðin var ótrúlega spennandi enda er hljómsveitin að spila tónlist sem á rætur sínar að rekja til þessara slóða. Við fengum þessa hugmynd okkar á milli ég og Ásgeir Ásgeirsson að láta hljóðblanda plötuna ytra en hún var tekin upp hér á Íslandi í fyrra. Eftir dálitla rannsóknarvinnu varð Babajim-hljóðverið fyrir valinu. En það kom í ljós þegar við byrjuðum að vinna með hljóðmeistaranum Alp Turac að hann er einn helsti hljóð- maður og samstarfsaðili Sertab Ere- ner, Eurovision-stjörnu Tyrkja sem vann 2003. Með því að vinna með mönnum sem þekkja vel þau hljóð- færi sem við leikum á eins og saz, bouzouki og hin ýmsu slagverks- hljóðfæri sem við notumst við náðum við þeim hljóm á plötuna sem við vor- um að leita að og við erum mjög ánægðir með útkomuna,“ segir Haukur Gröndal klarinett- og saxó- fónleikari hljómsveitarinnar. Á ferðum sínum um Istanbúl hittu meðlimir Skuggamynda frá Býsans þekktan klarinettleikara og sóttu tónleika tyrkneskrar etno-punksveitar. Megintilgangur ferðarinnar var þó að hljóðblanda fyrstu plötu þeirra, New Road, og ljá tónlist- inni þannig hinn „eina sanna hljóm“ Ottómana-menningarinnar. Sundin blá Séð yfir Istanbúl þar sem hljómsveitarmeðlimir dvöldu um hríð. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2012 Það er ætíð jafn skemmtilegt að hoppa út í hinn stóra heim og kanna hve margt hann hefur í boði. Fyrir þá sem vilja hoppa af stað án þess að eyða öllu sínu fé (eða eiga meira í að njóta lífsins á staðnum) er hopnow tilvalin vefsíða. Þar má leita sér að íbúðum til leigu um allan heim og líka auglýsa sína eigin. Þetta er sér- staklega sniðug lausn þegar fleiri en einn eða tveir ferðast saman. Ódýr- ara er að gista í íbúð og yfirleitt meira pláss fyrir börnin en á hefð- bundnu hótelherbergi. Í húsi eða íbúð má líka skipta kostnaði á milli vina, para eða fjölskyldna. Það kemur sér líka vel enda er hótelkostnaður oft dágóður hluti af því sem fólk eyðir á ferðalögum. Kíktu á hopnow.com og auðveldaðu þér að láta drauminn um að hoppa út í lönd rætast með hækk- andi sól. Vefsíðan www.hopnow.com Reuters Ferðamenn Fjöldi fólks við Wat Phra Kaeo hofið í Bangkok. Hoppað af stað út í heim Barnsmissir verður umfjöllunarefni á fræðslukvöldi Nýrrar dögunar, sam- taka um sorg og sorgarviðbrögð, í kvöld klukkan 20.30. Fræðslukvöldið verður haldið í safnaðarheimili Há- teigskirkju en fyrirlesari er sr. Vigfús Barni Albertsson, sjúkrahúsprestur á barnadeild Landspítalans. Í kjölfar fyrirlestrar sr. Vigfúsar fer af stað stuðningshópur fyrir foreldra sem hafa misst barn. Hópurinn byrjar þriðjudaginn 6. mars kl. 20 og verður í safnaðarheimili Háteigskirkju. Reynslan sýnir að stuðningur og samfélag við aðra sem hafa orðið fyr- ir sama missi er eitthvert áhrifarík- asta tækið til að takast á við þunga sorg. Þá verður opið hús í safn- aðarheimili kirkjunnar fyrir fundinn frá kl. 19:00. Endilega … … sækið fræðslukvöld Ljósmynd/norden.org Söknuður Barnsmissir er afar sár og mikilvægt að leita sér stuðnings. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. ÍS L E N S K A /S IA .I S V IT 58 70 6 02 /1 2 VITA er lífið Tenerife Flugsæti 6. mars Verð frá 78.900kr.* og 15.000 Vildarpunktar fyrir flug fram og til baka með flugvallarsköttum. * Verð án Vildarpunkta: 88.900 kr. Vikulegt flug. VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is Kynntu þér ferðamöguleikana og skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is Hjá VITA getur þú lækkað verðið á ferðinni þinni um allt að 10.000 kr. með 15.000 Vildarpunktum. Auk þess eru veittir 2.500 Vildarpunktar fyrir allar keyptar ferðir í leiguflugi með VITA. Þannig öðlast þú stöðugt fleiri tækifæri til þess að njóta lífsins. Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur Hljómsveitin Skuggamyndir frá Býsans var stofnuð um mitt ár 2010 og er efnisskrá hennar sett saman úr grískum, makedónsk- um, búlgörskum og tyrkneskum lögum. Ólgar tónlistin af tilfinn- ingahita í bland við austurlenska dulúð. Í sveitinni eru þeir Haukur Gröndal, Ásgeir Ásgeirsson, Bor- islav Zugorovski, Guð- mundur Pétursson, Þorgrímur Jónsson og Erik Qvick. Hefur hinn búlg- arski harmóníkuvirtúósi Borislav verið sérstakur listrænn ráðu- nautur sveitarinnar allt frá árinu- árinu 2006. Útgáfutónleikar Skuggamynda frá Býsans verða á morgun, föstudag 2. mars, á Café Haítí og hefjast þeir klukk- an 21:30. Þá mun sveitin leika í Hörpunni á laugardaginn kl. 13- 16 fyrir gesti. Tilfinninga- hiti og dulúð SKUGGAMYNDIR FRÁ BÝSANS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.