Morgunblaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2012
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-ráðherra lýsti skoðunum sínum
með þessum orðum eftir að Alþingi
hafði naumlega samþykkt að ákæra
Geir H. Haarde í september 2010:
Mér þykir þaðauðvitað miður
að Geir H. Haarde
hafi verið ákærður og
fari fyrir landsdóm.
Mér þykir það mjög
miður vegna þess að
ég tel að ekkert til-
efni hafi verið til
þess.“
Þessa skoðun sínaítrekaði hún á
þingi um daginn þeg-
ar málið kom aftur til
kasta þess.
Nokkrir þeirra sem áður vilduákæra hafa nú skipt um skoð-
un og vilja falla frá ákærunni.
Af þeirri ástæðu er augljóst aðþingmeirihluti er ekki lengur
fyrir því að ákæra Geir H. Haarde
og því ber þinginu að draga ákær-
una til baka.
Þrátt fyrir þetta er uppi einhverefi um niðurstöðuna. Svo kann
að fara að þrátt fyrir að færri þing-
menn vilji ákæra en vilji það ekki
þá verði ákærunni haldið til streitu.
Ástæða þess er vitaskuld ekkilagalegs eðlis heldur af póli-
tískum toga.
Efinn sem nú er uppi í málinu erum það hvort að á þingi sé
fólk sem sé tilbúið að ákæra mann
vegna pólitískra hagsmuna þó að
það telji hann saklausan.
Því verður ekki trúað aðóreyndu.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Ekkert tilefni en
samt ríkir efi
STAKSTEINAR
Geir H. Haarde
Veður víða um heim 29.2., kl. 18.00
Reykjavík -1 snjókoma
Bolungarvík 0 alskýjað
Akureyri 1 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 1 léttskýjað
Vestmannaeyjar 1 snjókoma
Nuuk -17 léttskýjað
Þórshöfn 10 þoka
Ósló 7 heiðskírt
Kaupmannahöfn 11 léttskýjað
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 2 heiðskírt
Lúxemborg 12 skýjað
Brussel 8 skýjað
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 11 léttskýjað
London 12 heiðskírt
París 13 heiðskírt
Amsterdam 7 alskýjað
Hamborg 10 súld
Berlín 10 skýjað
Vín 10 skýjað
Moskva -2 skýjað
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 21 léttskýjað
Barcelona 13 heiðskírt
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 16 heiðskírt
Aþena 10 skýjað
Winnipeg -12 skýjað
Montreal -7 skýjað
New York 5 alskýjað
Chicago 15 léttskýjað
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
1. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:34 18:47
ÍSAFJÖRÐUR 8:44 18:47
SIGLUFJÖRÐUR 8:27 18:30
DJÚPIVOGUR 8:05 18:15
Sótt hefur verið um leyfi til bygging-
arfulltrúans í Reykjavík til að breyta
fyrrverandi höfuðstöðvum Baugs að
Túngötu 6 í íbúðahótel.
Húsið er í eigu Fasteignafélagsins
Reita, sem hefur auglýst húsnæðið
til leigu. Hefur mögulegur leigjandi
lýst áhuga á því að standsetja 10
herbergja íbúðahótel í húsnæðinu.
Málið er þó á frumstigi að sögn Guð-
jóns Auðunssonar, forstjóra Reita.
„Þessi aðili hefur gert kostnaðarmat
á sínum vegum og lagt inn beiðni til
byggingaryfirvalda til að athuga hvort
grundvöllur sé fyrir slíkum breyt-
ingum,“ sagði Guðjón.
Töluverður áhugi á húsinu
Hann segir töluverðan áhuga á hús-
næðinu. „Nokkrir hafa sýnt áhuga á að
leigja húsið í núverandi mynd og svo
vill einn aðili breyta húsnæðinu í íbúða-
hótel.“
Túngata 6 er nú innréttað sem skrif-
stofuhúsnæði. Um er að ræða tvær
samtengdar byggingar, sem eru sam-
tals 518 fermetrar. Elsti hluti hússins
er frá árinu 1875 en yngri húsin eru frá
miðjum níunda áratug síðustu aldar.
Lárus E. Sveinbjörnsson, bæjarfógeti,
var skráður fyrsti eigandi hússins en
ekki hefur verið búið í húsinu frá árinu
1953. Vegna aldurs er húsnæðið háð
þjóðminjalögum um allar breytingar.
Áhugi á að breyta Túngötu 6 í íbúðahótel
Húsið er 518 fermetrar og var áður
höfuðstöðvar Baugs Group
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framboðs-
frestur til bisk-
upskjörs rann
út í gær en eng-
inn bættist á
síðustu metr-
unum í hóp
þeirra átta sem
þegar höfðu til-
kynnt framboð
sitt. Enn er þó
ekki útséð um
fjölda þeirra
sem verða í kjöri þar sem einhverjir
gætu hafa tilkynnt framboð sitt
bréflega.
Að sögn Steinunnar Arnþrúðar
Björnsdóttur, verkefnisstjóra á
þjónustusviði hjá Biskupsstofu,
verður sett upp kynningarsíða um
frambjóðendurna á föstudag á vef-
svæðinu kirkjan.is.
Í framboði eru: sr. Agnes M. Sig-
urðardóttir, sr. Gunnar Sig-
urjónsson, sr. Kristján Valur Ing-
ólfsson, dr. Sigríður Guðmarsdóttir,
dr. Sigurður Árni Þórðarson, sr.
Þórir Jökull Þorsteinsson, sr. Þór-
hallur Heimisson og sr. Örn Bárður
Jónsson.
Framboðs-
frestur út-
runninn
Kynningarsíða sett
upp á föstudag
Dómkirkjan í
Reykjavík.
Gra
farh
olt
Grafa
rvog
ur
Matís hefur um langt skeið
átt í góðu samstarfi við
háskóla, m.a. með hagnýtum
verkefnum í framhaldsnámi.
Matís býður þér í
heimsókn
á morgun, föstudaginn
2. mars kl. 16-18
Vínlandsleið 12
Framundan eru spennandi tækifæri fyrir
nemendur t.d. í lífefnafræði, viðskiptafræði,
tölvunarfræði, líffræði, heilbrigðisvísindum,
matvælafræði, næringarfræði, lögfræði,
umhverfisfræði og verkfræði.
Matís er í góðum tengslum við matvæla- og líftækniiðnaðinn en margir telja
að vaxtarbroddar framtíðarinnar liggi þar. Mörg verkefna Matís eru unnin í
samstarfi við fyrirtæki í þessum greinum.
Föstudaginn 2. mars milli kl. 16 og 18 langar okkur að bjóða þér í heimsókn að
Vínlandsleið 12 í Reykjavík til þess að hitta starfsfólk Matís, nemendur sem vinna að
verkefnum sínum í samstarfi við Matís og starfsmenn fyrirtækja sem hafa átt í farsælu
samstarfi við okkur. Einnig langar okkur til að kynna nýtt og spennandi framhaldsnám
(www.framtidarnam.is) og sýna okkar glæsilega húsnæði.
Þetta er góður vettvangur til að kynna sér matvæla- og líftækniiðnaðinn, hvort sem
ætlunin er að fara í framhaldsnám eða kynnast möguleikum á starfi eftir að námi lýkur.
www.framtidarnam.is
Vinsamlegast láttu okkur vita með tölvupósti á haskolar@matis.is hvort þú komir og endilega láttu fylgja með hvaða námi þú ert
í svo við getum kynnt sérstaklega verkefni sem snúa að þínu áhuga- og fagsviði.
Léttar veitingar í boði!
Hluti samstarfsaðila í nýju meistaranámi í matvælavísindum