Morgunblaðið - 29.03.2012, Side 4
4 finnur.is 29. mars 2012
Reuters
Kate Winslet skartaði sínu feg-
ursta við frumsýninguna.
Í ár eru eitt hundrað ár liðin frá því
að glæsifleytan sem átti ekki að
geta sokkið, Titanic, sökk undan
ströndum Nýfundnalands. Kvik-
myndagerðarmaðurinn James
Cameron gerði víðfræga verð-
launamynd byggða á slysinu árið
1998, sællar minningar, og rakaði
saman bíógestum og vegtyllum
svo fordæmi voru vart fyrir. Í ljósi
gríðarlegra vinsælda þrívíddar-
myndar hans, Avatar, ákvað hann
að taka Titanic í gegn og setja
hana í þrívídd. Ljóst má telja að út-
koman verður tilkomumikið sjón-
arspil enda þótti upprunalega út-
gáfan áhrifarík þó í flatri vídd væri.
Skipið mikla verður eftir sem áður
alveg jafn dauðadæmt en mun
sjálfsagt sökkva með enn meiri til-
þrifum í þetta sinnið.
Þrívíddarútgfáfan var heims-
frumsýnd í London í fyrradag og
mætti Cameron með spúsu sína,
leikkonuna Suzy Amis, upp á arm-
inn. Virkaði leikstjórinn býsna
brattur að sjá miðað við að fyrr í
vikunni lét hann gamlan draum
rætast og kafaði í sérhönnuðu hylki
niður á dýpsta punkt heimshaf-
anna sem er í Kyrrahafinu og er á 11
kílómetra dýpi. Amis leit heldur lak-
ar út og hefur getum verið leitt að
því að einhver veikindi plagi hana.
Kate Winslet var hins vegar hin
glæsilegasta og ljómaði á rauða
dreglinum. Mótleikara hennar,
Leonardo DiCaprio var hvergi að
sjá að þessu sinni.
Cameron endurvinnur Titanic
Skipið sekkur
í þrívídd
Reuters
James Cameron ásamt konu sinni,
Suzy Amis, á rauða dreglinum.
Líf dansarans kallar á mikla vinnu og streð
en Inga Maren Rúnarsdóttir gætir þess líka
að taka rólega kúrudaga inn á milli, eins og
kom í ljós þegar blaðamaður hafði sam-
band. Inga kemur fram í barna-danssýning-
unni Skýjaborg í Þjóðleikhúsinu en síðustu
sýningar verða á laugardag og svo aftur á
Barnamenningarhátíð í apríllok.
Laugardagur: Sef örlítið lengur eftir frá-
bært kvöld þar sem ég var að sýna síðustu
sýninguna á -16 með Íslenska dans-
flokknum í gær. Fer svo í „brunch“ með vina-
fólki á Laundromat og á ljósmyndasýningu í
Borgarbókasafninu. Um kvöldið tók við
hrikalega leiðinlegt leikrit sem ég álpaðist á
en ég jafnaði mig í góðra vina hópi þegar við
í dansflokknum kvöddum erlendu dans-
arana sem voru með okkur í sýningunni.
Sunnudagur Rólegur kúrudagur með
manninum mínum tilvonandi. Horfðum á
gott bíó heima í sófanum. Fékk svo búllu-
borgara á B5 í kvöldmatinn með frönskum
og súkkulaðisjeik. Tók í spil með systur og
frænku.
Mánudagur Síðasta vinnuvikan í Kúlunni í
Þjóðleikhúsinu hefst þar sem ég er að dansa
mitt fyrsta hlutverk sem barnaskemmtari í
sýningunni Skýjaborg. Hef aldrei dansað
fyrir svo ungan aldurshóp áður, en þau
yngstu eru aðeins 6 mánaða.
Þriðjudagur Bara nokkuð „basic“ vinnu-
dagur í dag. Um kvöldið skellti ég mér á
nemendasýningu JSB í Borgarleikhúsinu
þar sem systur mínar dönsuðu af mikilli
snilld. Já, það er svolítill dans í þessari fjöl-
skyldu.
Miðvikudagur Fór út að borða með góðum
vinum í humarveislu eftir langan vinnudag.
Yndislegt að slaka á og njóta góðs fé-
lagsskapar.
Fimmtudagur Mæti snemma í vinnuna þar
sem við fáum leikskólahóp í áhorfendaprufu
fyrir sýninguna. Þau eru stillt og prúð þótt
þau séu mörg og fíla sýninguna vel. Hjóla
svo í rigningarroki til að snattast fyrir sýn-
inguna áður en ég kenni síðasta tímann
minn hjá Spiral-dansflokknum.
Föstudagur Generalprufa á Skýjaborg.
Áhorfendur á öllum aldri mættu og full-
orðna fólkið skemmti sér ekki síður vel en
þau yngri sem kom skemmtilega á óvart.
Æfingar gengu vel og hópurinn er mjög
spenntur fyrir frumsýningunni.
Laugardagur Um kvöldið fór ég
svo út að borða með vinkonum
mínum en við höfum þá reglu
að gera alltaf eitthvað
skemmtilegt saman þegar Si-
gyn Blöndal kemur að norðan.
ai@mbl.is
VIKA Í LÍFI INGU MARENAR RÚNARSDÓTTUR
Ballett
og búllu-
borgarar ’F́ékk svo búlluborgara á
B5 í kvöldmatinn með
frönskum og súkku-
laðisjeik.
Morgunblaðið/Ómar
’Á́horfendur á öll-
um aldri mættu
og fullorðna fólk-
ið skemmti sér
ekki síður vel en
þau yngri
Söngdívan Dionne Warwick fagn-
aði á dögunum merkum áfanga en
þá átti hún 50 ára söngafmæli. Af
því tilefni var efnt til móttöku í
Grammy tónlistarsafninu í Los
Angeles, undir yfirskriftinni „An
Evening With Dionne Warwick“
þar sem söngkonan steig á svið
og góðvinir fögnuðu með henni.
Warwick er tónlistaráhugafólki
að góðu kunn fyrir tæra og silki-
mjúka rödd sína og er söngur
hennar við lög Burt Bacharach
löngu orðinn sígildur í heimi dæg-
urtónlistar. Klassísk lög á borð við
What The World Needs Now, Do
You Know The Way To San José?, I
Say A Little Prayer og ótalmörg
fleiri hafa lifað góðu spilalífi allt
frá því þau komu út á sjöunda ára-
tugnum og til dagsins í dag. Þá
voru lögin mörg hver í forgrunni í
kvikmyndinni „My Best Friend’s
Wedding“ með Juliu Roberts frá
árinu 1997.
Eins og sjá má á myndunum var
glatt á hjalla í fyrradag þegar
veislan fór fram.
Dionne Warwick fagnaði hálfrar aldar söngafmæli
Reuters
Sungið í 50 ár
Warwick ásamt Burt
Bacharach (tv), og
pródúsernum Clive Davis.
Dionne Warwick skoðar
ýmsa muni frá löngum
og farsælum ferli.
Gyðjan tekur lag-
ið í tilefni af 50
sungnum árum.
Þegar maður gengur í skyrtum
með frönskum manséttuermum,
þá notar maður ermahnappa.
Vilji maður hafa fráganginn skot-
heldan er hér komin hugmynd.
Vestur í Bandaríkjunum er fyr-
irtæki sem nefnist Bernardo &
Co. Þar á bæ fengu menn þá
hugmynd að búa til ermahnappa
sem eru nákvæm afsteypa af
Colt .45 skothylkjum og eru þeir
fáanlegir í netverslun framleið-
andans.
Mótið var sumsé gert eftir 45
kalibera skammbyssukúlu og
kúnninn velur hvort hann kýs að
fá hnappana úr gulli, silfri eða
platínu. Ennfremur er hægt að fá
upphafsstafi grafna í og jafnvel
demanta greypta í hnappana,
vilji maður taka málin alla leið.
Fyrir stórbeinóttu töffarana
má benda á að fljótlega má fá
hjá Bernardo og félögum sams-
konar ermahnappa úr 9mm kúl-
um og meira að segja .357
Magnum.
Samskot á ermunum
Skotheldir
ermahnappar