Morgunblaðið - 29.03.2012, Síða 19

Morgunblaðið - 29.03.2012, Síða 19
29. mars 2012 finnur.is 19 Óskaiðjan? Hún er um það bil það sem ég geri, að spila tónlist. Væri samt til í að vera á stanslausu flakki að spila, það er skelfi- lega gaman að ferðast. Já og svo væri ekki verra að verða ríkur um leið. Óskamaturinn? Kjöt. Draumabíllinn? Ég er ekki mikill bílakall en ég keyrði hinsvegar jeppa í gegnum Kaldadal fyrir nokkru og hafði mjög gaman af. Væri til í svoleiðis, stóran jeppa til að keyra yfir og í gegnum fjöll. Þarf ekki að heita neitt sérstakt, þarf samt að vera svartur á lit og eyða öllu á hundraði. Draumaverkefnið? Fá fúlgur fjár fyrir að semja tónlistina í söngleik sem er byggður á ævi Stephen Hawking. Beisiklí að velja eina nótu og verða ríkur. Hvað vantar helst á heimilið? Sjálfsvirðingu. Hvað langar þig sjálfan helst í? Ef ég hef skilið spurninguna rétt, sem er ólíklegt, þá segi ég Gibson Dethklok Thun- derhorse Explorer. Og sjálfs- virðingu. Hvað er best heima? Lappir upp á borð, ótengdur rafmagnsgítar, lavalamp- arnir í botni, rjúkandi kaffi- bolli og Home alone 1&2 á skjánum. jonagnar@mbl.is Baldur Ragnarsson, gítarleik- ari í málmsveitinni Skálmöld, skartar býsna myndarlegu yf- irvaraskeggi í tilefni af Mott- umars, nema hvað. Hann leiddi hugann frá skeggsöfn- uninni nógu lengi til að láta uppi óskalistann sinn. Að flakka, spila – og verða helst ríkur Óskalistinn Baldurs Ragnarssonar Smáralind | Hverafold 1-3 | 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is ÞAÐ KOSTAR LÍKA AÐ ÞVO SJÁLFUR! LÁTTU OKKUR SJÁ UM ÞÍNAR SKYRTUR. Efnalaug - Þvottahús 330 KR. SKYRTAN hreinsuð og pressuð -ef komið er með fleiri en 3 í einu Fullt verð 580 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.