Morgunblaðið - 29.03.2012, Page 24
bílar
Subaru BRZ kemur á markað í
sumar og eru alls 200 hestöflum
undir húddinu. Bílinn er ekki nema
7.6 sekúndur upp í 100 km/klst
hraða og er afturhjóladrifinn, eins
og vant er með Subaru.
Þeir finna lítt fyrir kreppu og samdrætti hjá Land Rover því í febrúar sló fyrirtækið öll fyrri sölumet fyr-
ir þann mánuð. Seldi Land Rover 28.029 bíla á heimsvísu í febrúar sem er 52% aukning á fyrra febr-
úarmeti. Jagúar, sem er hluti af Land Rover, seldi á sama tíma 4.288 bíla sem er 32% aukning og sam-
anlagt jókst sala Jagúar-Land Rover því um 49% í febrúar frá fyrra meti. Ástandið í bílaframleiðslu
virðist ögn betra í Bretlandi en annars staðar í Evrópu. Heildarbílasala hefur aðeins dregist saman um
0,8% það sem af er ári og 2,5% í febrúar, borið saman við 20% samdrátt á Ítalíu og í Frakklandi.
Í febrúar jókst framleiðsla í breskum bílsmiðjum um 23,5% frá árinu áð-
ur. Og til dagsins í dag er framleiðslan 19,6% meiri frá áramótum, miðað
við sama tímabil í fyrra. Framleiðsla bílvéla jókst um 3,6% í febrúar og
4,3% það sem af er ári. Hér heima eru stjórnendur BL sem hafa Ís-
landsumboð Land Rover ekki síður kátir en frá áramótum
hafa þeir selt alls 17 eintök af bílum þessarar gerðar en
seldir jeppar og jepplingar í lúxusflokki eru alls 39. Er
markaðshlutdeild Land Rover því rúmlega 43%.
Vandamálið sé helst að kvóti Íslands í framleiðslu verk-
smiðja ytra sé ekki nægilega ríflegur í samræmi við
þörf á markaði hér innalands.
agas@mbl.is
Metsala hjá Land Rover í febrúar
Öll fyrri sölumet eru nú slegin
Land Ro-
ver Disco-
very nýtur
hvarvetna
vinsælda.
Eftir þunga framleiðenda á smíði
vistvænna bíla um nokkurra ára
skeið og vegna áhrifa niðursveiflu
og síðar efnahagslegra aðhalds-
aðgerða í Evrópu einkenndi það
nýafstaðna bílasýningu í Genf, að
bílsmiðir eru komnir inn á þá
braut að minnka bíla sína og
sníða að kostnaðarvitund neyt-
enda. Miklu minna bar á svo-
nefndum grænum bílum en áður.
Jafnvel framleiðendur lúxusbíla
eru teknir að smækka bíla sína.
Þar má nefna nýja A3 bílinn frá
Audi, Mercedes Benz hefur yngt
upp A-gerðina og Volvo V40-
bílinn.
Salan lítil og sjálfhætt
Sýnt þótti á Genfarsýningunni
að rafbílabólan er að tæmast, að
minnsta kosti um stundarsakir.
Þó bílafyrirtækin séu í orði
kveðnu að leggja áherslu á þróun
og smíði rafbíla segja þau starf-
semina verða að skila arði. Enn
sem komið er sé ekki útlit fyrir að
þau hagnist á smíði rafbíla vegna
lítillar eftirspurnar neytenda.
Dæmi um það er General Motors
sem nýlega ákvað að stöðva
framleiðslu á Volt um skeið vegna
svo lítillar sölu bílsins að sjálfhætt
var.
Þvert á þetta naut brunavélin
dæmigerða í öllum sínum stærð-
um vel í Genf; allt frá litlum spar-
neytnum og skilvirkum vélum til
stórra mótora dollaragrína. Bíla-
framleiðendur sýndu nýjungar og
snjallar hugmyndir sem miðað
hafa að því að auka sparneytni
véla og draga úr mengun, í sam-
ræmi við kröfur beggja vegna Atl-
antsála um minnkandi losun
gróðurhúsalofts.
Rafbílar áfram dýrir
Á hverjum bílnum á eftir öðrum
í Genf gat að líta smækkaðar en
einstaklega nýtnar bensín- og dís-
ilvélar sem þróast hafa hratt og
tekið miklum framförum síðustu
árin. Og framleiðendur telja
möguleika brunavélarinnar mikla í
framtíðinni því enn megi þróa
hana verulega til aukinnar skil-
virkni. Vegna þessa telja sérfræð-
ingar að skerfur rafbíla í mark-
aðinum árið 2020 verði ekki
nema á bilinu 10-15%.
Eins og á síðustu stóru al-
þjóðlegu bílasýningunum austan
hafs og vestan sýndu framleið-
endur nýjar drifrásir fyrir raf- og
tvinnbíla. Gerast þær fágaðri og
skilvirkari með hverju árinu sem
líður. Engu að síður vantar enn
mikið á að þær keppi í verði við
brunavélina. Því er fyrirséð, að
um einhver ókomin ár verða raf-
bílar mun dýrari. Þrátt fyrir minni
rekstrarkostnað vegna hás elds-
neytisverðs þykir allt benda til
þess, að rafbílar verði enn um
sinn undir í samkeppni við bens-
ín- og dísilbíla vegna hins mikla
verðmunar. Vegna efnahags-
ástandsins í Evrópu nú og um
ókomin misseri muni þrengja að
kaupmætti neytenda sem láti
fjárhag ráða bílkaupum.
Ford B-max helsta stjarnan
Utan lúxus- og rándýrra sport-
bíla var Ford B-max bíllinn ein
helsta stjarnan í Genf. Þetta er
borgarbíll af minni gerðinni sem
er einstakur að því leyti að í hon-
um eru ekki dyrastafir. Fram-
dyrnar opnast venjulega en aftari
hurðin rennur aftur á bak.
Fiat sýndi 500L, sem kemur á
götuna í árslok. Velja má um tvær
stærðir bensínvéla eða hverf-
ilblásna dísilvél. Eins og fyrr segir
frumsýndi Mercedes nýjan A-bíl
sem er nýr frá grunni og er þetta í
annað sinn frá 1997 sem þessi
vinsæli bíll er stokkaður upp. Opel
frumsýndi nýjan og samanrekinn
fjölnotabíl, Mokka, en með hon-
um sækir fyrirtækið á vaxandi
markað í Evrópu sem Suzuki SX4
og Fiat Sedici hafa ráðið til þessa.
agas@mbl.is
Fjárhagur helsti mælikvarðinn á almenningsbíla á Genfarsýningunni
Rafbílabólan
er að tæmast
Reuters
Rafmagnsútgáfan af Ford Focus vakti athygli í Genf á dögunum. Eigi að síður eru teikn á lofti um að það sé að hægja
á rafbílavæðingunni og þess í stað muni framleiðendur einbeita sér að smíði sparneytinna og nettra bensínbíla