Morgunblaðið - 29.03.2012, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 29.03.2012, Qupperneq 27
29. mars 2012 finnur.is 27 Eric Clapton er ekki aðeins einn besti gítarleikari sem uppi hefur verið. Hann er einnig annálaður – næstum því forfallinn – safnari Ferrari-bíla. Og nú undir lok mars- mánaðar bættist enn einn skar- latsrauður eðalfákurinn úr smiðju Ferrari í safn hans. Þar er ekki um neinn venjulegan bíl að ræða, heldur skraddarasniðinn og hand- smíðaðan bíl að óskum Claptons. 600 millj. kr. bíll Bíllinn á engan sinn líka að út- búnaði og frágangi og tók smíði hans tæplega tvö ár. Leikfangið nýja var ekki ódýrt, kostaði sem svarar 4,8 milljónum dollara, eða rúmlega 600 milljónir króna. Um er að ræða tveggja sæta bíl sem nefndur er SPC-12 EPC. Skammstöfunin stendur fyrir „Special Project Car, Number 12, Eric Patrick Clapton.“ Hann var hannaður með skírskotun til Ferr- ari 512BB bíls frá áttunda ára- tugnum. Það var uppáhaldsbíll Claptons en einn góðan veðurdag klessti hann bíl þann. Nýi gripurinn er þó knúinn V8- vél í stað V12 sem var í 512BB þar sem sú síðarnefnda var of stór fyrir 458-bílgrunninn sem hinn sérsmíðaði fákur Claptons er byggður á. agas@mbl.is Clapton kaupir ofureintak af Ferrari Morgunblaðið/ Bíllinn sem gítargoðið góðkunna kaupir er tveggja tóna Ferrarirauður að lit og hjólin eru í algjörri yfirstærð. Rándýrt leikfang Eric Clapton hefur verið dáður tón- listarmaður en bíladellan á vitorði fárra. Öllum er nauðsynlegt að eiga áhugamál, þó alveg rándýr séu. Clapton hefur lengi haft brennandi bíladellu. Öllum er mikilvægt að eiga sér áhugamál en fáir geta þó gert jafn vel við sig sem gítargoðið góð- kunna sem hefur næg fjárráð og gefur keypt alveg fokdýra bíla. SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM Bíldshöfða 12 · 110 RVK · 577 1515 · www.skorri.is Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja mælum • skiptum um • traust og fagleg þjónusta • 30 ára reynsla MEÐ ALLIR ÚT AÐ HJÓLA Stjórnendur General Motors í Bandaríkjunum, stærsta bíla- framleiðanda í heimi, ætla að auka framleiðslu sína á næstu árum með opnun verksmiðja í láglaunalöndum. GM hyggst í leiðinni loka verksmiðjum þar sem hærri laun eru greidd, eins og í Bochum í Þýskalandi og Ellesmere Port í Bretlandi. Löndin sem GM horfir til eru Pólland, Rússland, Kína, Ind- land, Brasilía og Mexíkó. Við- bótarframleiðsla GM á næstu árum verður að minnsta kosti 80% í þessum láglaunalöndum. GM býst við því að flytja 300 þúsund bíla til Evrópu frá verk- smiðjum í Mexíkó, Kóreu og Kína árið 2016. GM Motors seldi ríflega níu milljónir bíla á síðasta ári og jók sölu sína um 7,6% milli ára. Samt á GM afar erfitt með að ná fram hagnaði á sölu bíla í Evrópu og hefur verið tap á sölu bíla GM þar í mörg ár. Því hyggst fyrirtækið snúa við með- al annars með áðurnefndum aðgerðum. Vandræðabarnið Opel Vandræði GM eru ekki upp- talin í Evrópu því þar er vand- ræðabarnið Opel. Áætlanir eru uppi um að loka einhverjum verksmiðjum Opel í Þýskalandi. Það mun þó ekki gerast á allra næstu misserum en forsvars- menn GM ætla að leita allra leiða til að bæta afkomu Opel. finnurorri@gmail.com Stjórnendur General Motors leita á ný mið Breytingar standa fyrir dyrum hjá GM og Opel þar sem aukin hagkvæmni í starfsemi þessa stærsta bílaframleiðanda heims er leiðarljós. Framleiðslan fer til láglaunalandanna - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.