Morgunblaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 28
28 finnur.is 29. mars 2012
Hjólbarðar?
Það verður að vera almennilegt grip.
- örugg bifreiðaskoðun
Sími 570 9000 - Þjónustuver og tímapantanir 570 9090 - www.frumherji.is
Finnur Orri Thorlacius reynsluekur Mercedes Benz B-class
Gerbreyttur eðalvagn
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Með Mercedes B class gjör-
breytist útlit bílanna. Hann
er afar rennilegur með flott
nef og afgerandi línan á
hliðum sem snarhækkar við
afturhurðirnar gefur sterkt
og fallegt svipmót.
Stjórnborð er vel lukkað og vel fer um ökumann og farþega í framsæti.
S
ú breyting sem orðið hef-
ur á B-class bíl Benz er
ein sú mesta og besta
sem orðið hefur á bíl á
undanförnum árum. Bíllinn hefur
breyst úr því að geta vart talist til-
heyra hinu eðla merki Mercedes
Benz í bíl sem í engu gefur eftir
stærri og dýrari bílum fyrirtæk-
isins. Mikil þörf var á því forverinn
dró verulega niður ímyndina en
nú styður B-class við hana.
Mikið var reyndar undir hjá
Benz að vel heppnaðist til við
þennan bíl því grunnhönnun hans
er einnig að finna í nýjum A-class
bíl sem kynntur var í Genf um
daginn og á einnig að vera í nýjum
litlum fjölnotabíl (SUV), nýjum
smáum coupe-bíl og nýjun cross-
over-bíl. Mikið að gerast hjá Benz!
Benz hefur aldrei áður kynnt bíl
með eins marga breytta íhluti
milli kynslóða og í þessum bíl.
Glæsileg innrétting
Mercedes Benz B-class hefur
tekið gott stökk fram á við í útliti.
Framleiðandinn hefur gert eins vel
og hægt er að krefjast í flokki
svona bíla sem kallaðir eru comp-
act people carriers – sem í laus-
legri þýðingu gæti þýtt fjölkyldu-
vænn fjölnotabíll. Bíllinn er æði
rennilegur með flott nef og afger-
andi línan á hliðum hans sem
snarhækkar við afturhurðirnar
gefur honum sterkt svipmót. Það
setur mikinn svip á bílinn að fram-
an hve risastórt Benz-merkið er á
grillinu.
Enn betra tekur við að innan og
engu líkara en að komið sé inn í
rándýran og stóran Benz, hönn-
unin er glæsileg og ríkuleg. At-
hygli vekur strax umgerðin á loft-
túðunum í mælaborðinu, stórir
krómaðir málmhlunkar sem gefa
mikinn eðalkarakter. Mælaborðið
er einstaklega fallegt og frágang-
ur, efnisval og vinnubrögð í inn-
réttingunni allri Benz til fyr-
irmyndar. Framsætin má stilla á
alla vegu og meira að segja aft-
ursætisbekkurinn er á brautum.
Ökumaður situr nú næstum 9
cm neðar en í fyrri kynslóð og því
fær ökumaður ekki lengur þá til-
finningu að hann sé að aka rútu.
Inn- og útstig er einkar þægilegt
þar sem sætishæðin er hvorki
þannig að sest sé niður í bílinn né
upp í hann. Þetta er reyndar ein-
kennandi fyrir alla bíla í þessum
flokki. Aftursætin eru mjög góð
og fótarými og höfuðrými yfrið.
Erfitt er þó að skilgreina það nógu
stórt fyrir þrjá fullorðna, til þess
þarf stærri bíl. Skottrými er
ágætt, eða 486 lítrar og stækkar í
heila 1.545 l ef aftursætin eru lögð
niður.
Nýjar og eyðslugrannar vélar
Vélarnar sem í boði eru í B-
class eru allar nýjar, tvær dísil-
vélar og tvær bensínvélar, allar
fjögurra strokka. Askja býður alla
valkostina. Bíllinn sem prófaður
var var með minni díselvélinni og
sjálfskiptur. B-class má einnig fá
beinskiptan. Stærri dísilvélin er
135 hestafla með túrbínu og togar
heila 300 Nm. Minni dísilvélin er
109 hestöfl en bensínvélarnar 122
og 156 hestöfl. Með þessari minni
dísilvél er bíllinn engu að síður
frískur og skortir sjaldan afl.
Sjálfskiptingin er frábær og full
ástæða til að mæla með henni við
kaupendur. Bílablaðamönnum ber
saman um að allar vélarnar séu
vel heppnaðar, en þeir eru líka
sammála því að mæla með dísil-
vélunum. Þær toga mjög vel en
eru í leiðinni mjög eyðslugrannar
og eru reyndar báðar gefnar upp
fyrir 4,4 l. í blönduðum akstri á
beinskiptum bíl. Reynsla öku-
manns eftir drjúgan akstur í borg-
inni eingöngu var rétt 5,9 lítrar á