Morgunblaðið - 29.03.2012, Side 31

Morgunblaðið - 29.03.2012, Side 31
29. mars 2012 finnur.is 31 Nú eru liðin tíu ár frá því að Volkswagen kynnti fyrst eins lítra hugmyndabílinn. Meginhug- myndin á bak við þennan tveggja sæta bíl er að hann komist 100 km á einum bensínlítra. Þegar hann var kynntur fyrst var hann mjög mjór með kúlulaga þak og sætin tvö voru í röð, sem sagt furðu- legur eins og margir hug- myndabílarnir. En síðan þá hef- ur hann breyst og tekið á sig ögn raunhæfari mynd. Árið 2009 var hann kynntur á ný og hét þá L1 en ennþá var hann jafn óhagkvæmur með tvö sæti í röð og kúluþak sem var þó minna áberandi en fyrri kúla. Straumlínulagaður með kúluþak Á bílasýningu í olíuríkinu Katar á sl. ári var eins lítra hugmyndabíll- inn svo kynntur í þriðja sinn. Þar hét hann XL1 og var ekki lengur kúluþak á honum heldur höfðu bæst við svokallaðar „gullwing“ hurðir, sem draga nafn sitt af því hvernig dyrnar opnast, þ.e. hurð- irnar eru eins og vængir máva. Sætunum tveimur var einnig búið að stilla upp hlið við hlið. Ástæðan fyrir þessum breytingum er líklega sú sama og með flesta hug- myndabíla að þegar þeir nálgast framleiðslu verða þeir venjulegri ef svo má segja. Sést hefur til XL1 við prófanir enda styttist í það að hann fari í framleiðslu en VW segir að það verði árið 2014, þeim frétt- um skal þó tekið með fyrirvara þar sem líklegt er að það frestist. Ennþá er stefnt að því að bíllinn, sem byrjað var að þróa í þá gömlu góðu daga er bensínlítrinn kostaði um 100 krónur, muni aðeins þurfa eitt lítra af bensíni til að komast 100 km. Volkswagen hefur náð ótrúlegum árangri í því að minnka eyðslu bíla sinna og þá sérstaklega þeirra sem ganga fyrir dísil. Sem dæmi um það má nefna að bílar frá Volkswagen Group sem allir fást hjá Heklu á Íslandi röðuðu sér í fyrstu þrjú sætin í Sparakst- urskeppni FÍB og Atlantsolíu árið 2010. VW Polo vann keppnina, Skoda Octavia og Audi A3 Sport- back. Allir gengu bílarnir fyrir dísil. Mjög hægur XL1 er knúinn áfram af 0,8 lítra 2 strokka dísilvél með rafal sem skil- ar 47 hestöflum og 120 Nm af togi. Krafturinn er svo sendur í gegnum sjö gíra skiptingu til afturhjólanna. Til að hjálpa dísilvélinni er svo 27 hestafla rafmagnsmótor. Engar upplýsingar hafa verið veittar varðandi það hversu langt verði hægt að keyra á rafmagninu einu og sér. Sterkasta hlið þessa bíls verður sú hve lítið bensín hann mun þurfa. En að komast á milli staða gæti tekið smátíma þó að ekki þurfi að stoppa oft á bens- ínstöðvum. VW segir að áætlaður hámarkshraði verði takmarkaður við 120 km/klst, hægt er að lifa við það en annað og verra er að það mun taka bílinn 32 sekúndur að ná 80 km/klst hraða. Í lægsta tollflokk Marinó Björnsson hjá Heklu hf., sölustjóri Volkswagen á Íslandi, kynnti sér nýja XL1 í Þýskalandi í sl. viku. Ekki var gefið leyfi til þess að prófa bílinn þar sem hann er ennþá í þróun en forstjóri Volkswa- gen ók bílnum nýlega og í þeirri ferð eyddi bíllinn að 0,89 lítrum á hundraðið. Að sögn Marinós myndi VW XL1 falla í lægsta tolla- flokk við komu til Íslands þar sem hann eyðir svo litlu og myndi hafa það fram yfir marga tvinnbíla að hann notar dísil, en flestir tvinn- bílar á markaðinum í dag nota bensín. Volkswagen XL1 sem er að breidd og lengd álíka stór og VW Polo myndi best henta sem annar eða jafnvel þriðji bíll á heimili þar sem hann tekur einungis tvo í sæti og ekki er mikið pláss fyrir far- angur. jonas@giraffi.net VW stefnir með XL1 í fjöldaframleiðslu árið 2014 Volkswagen XL1 er einn eyðslugrennsti bíll sem sögur fara af. Munar um slíkt þegar eldsneytisverð rýkur upp. Eyðir einum lítra á hundraðið Marinó Björnsson. Um þessar mundir heldur bandaríski bílrisinn General Motors (GM) upp á það, að fyrirtækið hefur framleitt 100 milljónir V8-véla frá því þær sáu fyrst dagsins ljós í kádiljákum fyrirtækisins. Fyrsta vélin rann úr smiðjum GM í Detroit árið 1955 og var svar fyr- irtækisins í harðri keppni bandarískra bílaframleiðenda um að smíða sem kraftmesta fólksbíla. Frá þeim tíma hefur vél þessarar gerðar prýtt margan eðalbílinn en sá fyrsti til að fá hana var íkonið Chevrolet Bel Air. V8-vélar hafa verið brúkaðar með góðum árangri í akstursíþróttum ýmiss konar. Hafa þær knúið ógrynni keppnisbíla til sigurs í kappakstri hvers konar. Svo sem sólarhringskappakstrinum fræga í Le Mans í Frakklandi. Þann fyrsta vann Corvetta árið 1960 í sínum flokki og sá sjöundi og síðasti vannst í fyrra. agas@mbl.is 100 milljónir V8-véla FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA 80 ára 1932-2012 Félag íslenskra bifreiðaeigenda, Borgartún 33, 105 Reykjavík, s.414 9999, fib@fib.is, fib.is Afslættir LögfræðiráðgjöfTækniráðgjöf FÍB Aðstoð Félagsmenn geta leitað til tækniráð- gjafa varðandi bifreiðatæknileg atriði, svo sem um viðgerðarkostnað, gæði viðgerða og varahluta, galla í nýjum bifreiðum o.fl. Lögfræðiráðgjafi FÍB er sérfróður um algengustu vandamál varðandi galla eða svik í bifreiðaviðskiptum, ófull- nægjandi viðgerðir og sakarskiptingu við tjónauppgjör. Opin allan sólarhringinn. - Start aðstoð - Dekkjaskipti - Eldsneyti - Dráttarbíll Þétt afsláttarnet innanlands sem og erlendis. 150.000 staðir í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar. Viltu gerast FÍB félagi? Allt þetta innfalið og meira til! 414 9999 - fib.is Sími: 577 1313 | Tangarhöfða 13 | kistufell.com VARAHLUTAVERSLUN VÉLAVERKSTÆÐIÐ Grip – seigla – liðleiki – öryggi Verðdæmi: VW Golf ‘02 Spindilkúla 2,870 kr. STÝRISHLUTIR Öryggi og velferð er það sem hvetur okkur áfram. Þess vegna eru varahlutirnir okkar aðeins framleiddir undir ströngu eftirliti til samræmis við OE gæði. FAI stýrishlutir hafa verið leiðandi í yfir 10 ár og í nýja vörulistanum okkar eru meira en 4.000 hlutir fyrir flesta nýlega bíla. Gæði sem standast erfiðustu aðstæður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.