Morgunblaðið - 23.05.2012, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2012
VÍS hefur styrkt Heillakeðju
barnanna á vegum Barnaheilla –
Save the Children á Íslandi um eina
milljón króna í tilefni þess að fyrir-
tækið var apríl-hlekkur keðjunnar.
Starfsfólk VÍS lagði söfnuninni
einnig lið með eigin heillakeðju og
safnaði 275 þúsund krónum í sínum
ranni.
Barnaheill eiga í ár samstarf við
tólf íslensk fyrirtæki sem mynda
stuðningskeðju og styrkja hvert og
eitt samtökin með einhverjum áber-
andi hætti í einn mánuð. VÍS lagði
verkefninu lið með því að láta 15%
af iðgjöldum líf- og sjúkdómatrygg-
inga sem seldar voru í mánuðinum
renna til samtakanna. Markmiðið
með Heillakeðju barnanna er að
standa vörð um og vekja athygli á
réttindum barna sem tíunduð eru í
barnasáttmála Sameinuðu þjóð-
anna og safna fé til styrktar verk-
efnum í þágu barna.
Heillakeðja
Barnaheilla
Stofnfundur Breiðholtsráðs verður
haldinn í menningarmiðstöðinni
Gerðubergi föstudaginn 25. maí kl.
14.00-16.00. Jón Gnarr borgarstjóri
mun sækja fundinn og taka þátt í
stofnun ráðsins. Breiðholtsráði er
ætlað að vera opinn vettvangur fyr-
ir íbúa Breiðholts. Ráðið mun fjalla
um helstu mál sem varða hverfið og
hagsmuni íbúa. Á stofnfundinum
verður fjallað um hvernig fundar-
menn sjá Breiðholtsráðið nýtast við
að efla Breiðholtið. Áætlað er að
ráðið hittist á opnum fundi tvisvar á
ári. Allir íbúar í Breiðholti eru vel-
komnir í Breiðholtsráð. Jafnframt
eru fulltrúar stofnana og samtaka í
Breiðholti hvattir til þátttöku í
ráðinu, segir í frétt frá borginni.
Breiðholtsráð stofn-
að í Gerðubergi
Fimmtudaginn 24. maí stendur
Vistbyggðarráð fyrir ráðstefnu um
vistvæn byggingarefni sem ber
yfirskriftina, Efnið skapar andann
– Vistvæn byggingarefni og áhrif
þeirra á innivist og hönnun.
Á ráðstefnunni verður sjónum
sérstaklega beint að notkun vist-
vænna byggingarefna á Íslandi.
Það er Vistbyggðarráð sem
stendur að ráðstefnunni, Efnið
skapar andann, sem stendur frá kl.
9-13 á Hótel Natura, þingsal 2.
Vistvæn bygging
Fyrsta „hakk-maraþon“ Íslands-
sögunnar verður haldið í Háskól-
anum í Reykjavík þriðjudaginn 29.
maí nk. kl. 9. Það er opið öllum og
er síðasti skráningardagur 24. maí.
Þátttakendur reyna að leysa marg-
víslegar forritunarþrautir.
„Sigurvegarar eiga von á pen-
ingaverðlaunum og jafnvel atvinnu-
tilboðum, en erlendis hafa hakk-
maraþon sem þessi tekið við
hlutverki hefðbundinna atvinnu-
viðtala í tölvugeiranum,“ segir í
frétt frá HR. Upplýsingar um
skráningu eru á Facebook-síðu
keppninnar (undir Hackathon
2012).
„Hakkmaraþon“
haldið í fyrsta sinn
STUTT
Fundur var haldinn í kjaradeilu Landssam-
bands smábátaeigenda og viðsemjenda hjá
ríkissáttasemjara á mánudag og var þetta fyrsti
fundurinn í deilunni hjá embættinu. Ekki er í
gildi samningur á milli aðila fyrir sjómenn á
bátum undir 15 metrum að lengd.
Landssamband smábátaeigenda, Farmanna-
og fiskimannasambandið, Félag vélstjóra og
málmtæknimanna og Sjómannasamband Ís-
lands hafa undanfarin ár unnið að gerð kjara-
samnings fyrir sjómenn á smábátum. Ekki hef-
ur gengið saman í deilunni og urðu aðilar
ásáttir um það fyrir tæpum tveimur vikum að
vísa deilunni til sáttasemjara.
Aðilar kynntu sín sjónarmið á fundinum í
fyrradag, en einkum er tekist á um trygginga-
mál og skiptaprósentu. Sævar Gunnarsson, for-
maður Sjómannasambandsins, segir að það sé
skoðun sambandsins að taka eigi mið af samn-
ingi LÍÚ varðandi hlutaskipti og leggur mikla
áherslu á tryggingaþáttinn í þessum viðræðum.
Kjarasamningar forsenda
Sævar segir að hann hafi talið að samningar
væru handan við hornið skömmu fyrir páska.
Þá hafi viðsemjendur virst missa áhugann og
segist Sævar skýra það með því, að um svipað
leyti hafi sjávarútvegsráðherra lagt fram frum-
varp um stjórnun fiskveiða.
Þar hafi ekki verið að finna ákvæði um að
gerð kjarasamnings við áhafnir væri forsenda
nýtingarsamninga. Sjómannasambandið teldi
það ekki nægja þó slíkt ákvæði væri í greinar-
gerð. Á síðasta ári hefði slíkt ákvæði verið að
finna í frumvarpi Jóns Bjarnasonar, fyrrver-
andi sjávarútvegsráðherra, um fiskveiðistjórn-
un og síðan drögum að frumvarpi um sama efni.
aij@mbl.is
Tekist á um tryggingar og hlut
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Patreksfjörður Rætt er um kaup og kjör á bátum.