Morgunblaðið - 23.05.2012, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2012
Meðal liða á Listahátíð í Reykjavík
er tónleikaröðin Flakk, sem hefst
með tónleikum Önnu Þorvalds-
dóttur. Tónskáldin sem taka þátt í
röðinni, Anna Þorvaldsdóttir, Páll
Ragnar Pálsson og Berglind María
Tómasdóttir, eiga það sameiginlegt
að búa erlendis og koma sjaldan
fram á Íslandi.
Þó Anna Þorvaldsdóttir hafi búið
erlendis við nám og störf undanfarin
ár þekkja margir til hennar hér á
landi enda hlaut hún tvenn verðlaun
á Íslensku tónlistarverðlaununum
2012 í flokknum sígild og samtíma-
tónlist sem tónhöfundur ársins og
fyrir hljómplötu ársins, Rhízoma.
Hún var einnig tilnefnd fyrir tón-
verk ársins, Aeriality, sem var í senn
doktorsverkefni hennar frá Kali-
forníuháskóla og verk sem Sinfón-
íuhljómsveit Íslands pantaði og
frumflutti á tónleikum sl. haust und-
ir stjórn Ilans Volkovs.
Yfirskrift tónleika Önnu í Kalda-
lóni í Hörpu í kvöld er Samruni. Á
tónleikunum mætir skrifuð hljóm-
sveitartónlist raftónlist, tilrauna-
kenndu hiphopi og bardúnstónlist.
Anna tekur þátt í flutningnum, en
rafverkin eru unnin úr hljómsveit-
arverkum hennar.
Tónleikunum er lýst svo að þeir
verði heildarupplifun hins hljóðræna
og sjónræna, enda verða einnig flutt
vídeóverk eftir tónskáldið. Gestur á
tónleikunum verður bandaríski raf-
tónlistarmaðurinn og plötusnúð-
urinn Mike Gao sem flytur eigin
remix uppúr tónlist Önnu.
arnim@mbl.is
Samruni Önnu
á Flakki í Kaldalóni
Samruni Tónskáldið Anna Þor-
valdsdóttir flytur rafverk sem unnin
eru úr hljómsveitarverkum hennar.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Nokkur stór, bandarísk kvikmynda-
fyrirtæki hafa áhuga á að endurgera
íslensku kvikmyndina Frost, að sögn
Ingvars Þórðarsonar, annars fram-
leiðanda myndarinnar. Hún verður
þó ekki tilbúin fyrr en í sumar og
verður frumsýnd hér á landi í sept-
ember, í Sambíóunum. Myndin hef-
ur þegar verið seld í kvikmyndahús í
nokkrum löndum.
Spennutryllirinn Frost gerist að
mestu uppi á jökli og fóru tökur
fram á Langjökli í vetur. Vinnslu
myndarinnar lýkur í júlí en þegar
hefur verið gengið frá sölu til Kan-
ada, þar sem Entertainment One
dreifir myndinni, Big Movie í Rúss-
landi hreppti hrossið og í fyrradag
var myndin seld til Bretlands, þegar
Momentum tryggði sér réttinn.
„Það er mjög óvanalegt að kvik-
myndir séu keyptar út á „trailer“ en
menn voru mjög spenntir fyrir
henni,“ sagði Ingvar við Morg-
unblaðið í gær. Hann er staddur á
kvikmyndahátíðinni í Cannes í
Frakklandi, til þess að kynna Frost.
„Það eru spennandi tímar. Contra-
band, mynd Baltasars, gerði mikið
fyrir okkur og almennt er mikill hiti
fyrir öllu frá Skandinavíu.“
Stutt kynning á myndinni hefur
verið sýnd í íslenskum kvikmynda-
húsum undanfarið, en mögulegir
kaupendur ytra fengu að sjá lengri
útgáfu, og viðbrögðin hafa verið afar
góð, að sögn Ingvars.
„Það er líka búið að eyða miklum
tíma hér í Cannes í viðræður við
bandarísk fyrirtæki sem hafa áhuga
á endurgera myndina,“ sagði Ingv-
ar. Þar eru á ferð m.a. Sony, Warner
Brothers og Paramount, og segir
Ingvar að þegar hafi tilboði frá einu
bandarísku fyrirtæki verið hafnað.
„Ég tel mjög mikla möguleika á því
að myndin verði endurgerð í Banda-
ríkjunum,“ sagði hann. Leikstjóri
yrði þá bandarískur en Ingvar segir
að unnið sé að því að myndin yrði
engu að síður tekin hér á landi.
Leikstjóri Frosts er Reynir Lyng-
dal og aðalleikarar Björn Thors,
Anna Gunndís Guðmundsdóttir,
Helgi Björnsson og Hilmar Jónsson.
Tökumaður var Ágúst Jakobsson.
Framleiðendur eru Ingvar og Júl-
íus Kemp í nafni Kisi Production.
Meðframleiðendur eru Markus Selin
og Jukka Helle (Solar Films) og
Karla Stojáková (Axman Produc-
tion).
Handritið skrifaði leikskáldið
kunna, Jón Atli Jónsson, sem gerði
m.a. handritið að kvikmyndunum
Mýrinni og Djúpinu. skapti@mbl.is
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Spennutryllir Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson kynna Frost í Cannes.
Frost ekki
bara á Fróni?
Bandarísk fyrirtæki hafa áhuga á að
endurgera Frost Búið að selja mynd-
ina víða um lönd þó að hún sé ekki búin
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
BRÁÐSKEMMTILEG MYND FRÁ
FRAMLEIÐENDA BRIDESMAIDS
OG LEIKSTJÓRA
FORGETTING SARAH MARSHALL
SPREN
G-
HLÆG
ILEG
MYND
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐI OKKUR
BORAT KEMUR EIN FYNDNASTA
MYND ÁRSINS ÞAR SEM SASHA
BARON COHEN FER Á KOSTUM Í
HLUTVERKI KLIKKAÐASTA
EINRÆÐISHERRA ALLRA TÍMA
MEN IN BLACK 3 3D Sýnd kl. 5:30 - 8 - 10:20
THE DICTATOR Sýnd kl. 6 - 8 - 10
THE FIVE YEAR ENGAGEMENT Sýnd kl. 8 - 10:25
LORAX 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 6
VINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG
AFTUR TIL FORTÍÐAR...
TIL AÐ BJARGA FRAMTÍÐINNI
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
PINNAMATUR
Skútan
FYRIR ÚTSKRIFTINA
Við val á veitingum þarf að hafa í huga á
hvaða tíma dags móttakan er og hversu
lengi hún á að standa. Í “standandi” veislum
er vinsælt að bjóða upp á t.d fimm til sjö
rétta pinnaborð.
Hlaðborð
Tapas Pinnamatur
www.veislulist.is Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Pinna og Tapas borð eru afgreidd í öskjum þar sem
kaupandi sér sjálfur um
að raða þeim á föt eða tilbúnir á á borð á einnota v
eislufötum. Sé veislan 150
manna eða meira eru allar veitingar afhentar á ein
nota veislufötum.
Þú getur lesið allt um
pinnamat og aðra rétti
á heimasíðu okkar
Verð frá 2.258 pr. mann
SMÁRABÍÓ
HÁSKÓLABÍÓ
Í 3-D
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
LOKAÐ Í DAG!
MIB 3 3D KL. 3.30 - 5.30 - 8 - 10.30 10
MIB 3 3D LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 10
MIB 3 2D KL. 5.30 - 8 - 10.30 10
THE DICTATOR KL. 3.30 - 6 - 8 - 10 12
THE FIVE YEAR ENGAGEMENT KL. 5.20 - 8 12
21 JUMP STREET KL. 10.30 14
LORAX – ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 L
MIB 3 3D KL. 6 - 8 - 10.10 10
THE DICTATOR KL. 8 - 10 12
THE FIVE YEAR ENGAGEMENT KL. 5.45 12