Morgunblaðið - 23.05.2012, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.05.2012, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2012 ✝ Guðrún ÁsaMagnúsdóttir fæddist að Þránd- arstöðum í Eiða- þinghá 30. desem- ber1937. Hún lést á Landspítala, Hring- braut, 15. maí 2012. Foreldrar Ásu voru Magnús Frið- riksson bóndi, f. 25.8. 1904, d. 2.8. 1937, og Sigurbjörg Ásgeirsdóttir húsmóðir, f. 23.8. 1909, d. 8.12. 1989. Alsystkini Ásu eru: Sigurður Magnússon, f. 20.1. 1930, d. 18.4. 2003, Sigurborg Magnúsdóttir, f. 30.1. 1932, Hörð- ur Magnússon, f. 14.1. 1934, d. 1.1. 1936; Magnús Hörður Magn- ússon, f. 27.6. 1935, d. 20.1. 2005. Ása ólst upp á Akureyri og bjó þar hjá fósturforeldrum sínum til 1958 en þá hélt hún til Reykjavík- ur til náms og bjó þar lengst af. Fósturforeldrar hennar voru Jakob Christian Lillendahl, f. 27.7. 1894, d. 23.12. 1953, bók- bindari á Akureyri, og k.h. Stíg- rún Helga Stígsdóttir, f. 11.7. 1905, d. 22.5. 1974, húsmóðir. Uppeldisbróðir Ásu er Ingólfur dóttir, f. 5.4. 1961, sonur hennar er Þorgeir Frímann, barnsfaðir: Óðinn Valdimarsson. Þorgeir á tvo syni, Óðin Flóka og Sindra Frey. Stígrún giftist Guðjóni Þór Guðmundssyni. Börn þeirra eru Lilja Rós, Guðmundur Örn og Benjamín. Stígrún og Guðjón eru skilin. Ólafur Ásmundsson, f. 29.11. 1962, maki: Áslaug Sunna Óskarsdóttir, synir þeirra eru Ás- mundur og Ívar. Ívar á soninn Róbert Leó. Jakob Ásmundsson, f. 18.10. 1964, maki: Rebekka Cordova, börn þeirra eru Guðrún Ása, Sigurjón Hólm og Kristinn Logi. Guðrún Ása á soninn Mika- el Mána. Þorgerður Ásmunds- dóttir Hanssen, f. 12.5. 1966, Þor- gerður giftist Davíð Stefáni Hanssen. Börn þeirra eru Kara Rut, Daníela Guðlaug, Jóhannes Micah, Esther María og Ezekíel Jakob. Þorgerður og Davíð eru skilin. Ása lauk stúdentsprófi frá MR 1960, lauk prófum frá Banka- mannaskólanum 1977 og lauk BA-prófi í íslenskum fræðum frá HÍ 1995. Hún starfaði hjá Lands- banka Íslands lengst af. Ása var búsett á Akureyri til 1958. Ása og Ásmundur bjuggu lengst af í Reykjavík, Raufarhöfn 1995-96, Húsavík 1996-2005. Síðustu árin bjó hún í Gullsmára 11 Kópavogi. Útför Guðrúnar Ásu verður gerð frá Digraneskirkju, Kópa- vogi í dag, 23. maí 2012, kl. 11. Lórenz Lillendahl, f. 27.6. 1931. Hálfsystkini Ásu, sammæðra, eru: Knútur Heiðberg Björgvinsson, f. 1940, Kjartan Heið- berg Björgvinsson, f. 1940, Gestur Björgvinsson, f. 1941, Kristbjörg Sesselja Kristjáns- dóttir, f. 1943, Gunna Sigríður Kristjánsdóttir, f. 1944, Sveinn Kristjánsson, f. 1945, Kristín Sigurðardóttir, f. 1947, Hjörtur Kristjánsson, f. 1949, Sigurbjörn Kristjánsson, f. 1951, Bergur Kristjánsson, f. 1953, d. 1958. Hálfsystir Ásu, samfeðra, er Fanney Magn- úsdóttir, f. 10.10. 1931, Ása giftist 27.9. 1958 Ásmundi Ólafssyni, f. 12.3. 1937, húsa- smíðameistara í Hveragerði, og eignuðust þau fimm börn. Þau eru skilin. Börn Ásu og Ásmund- ar eru: Auður Björk Ásmunds- dóttir, f. 24.1. 1959, maki: Sig- hvatur Karlsson, börn þeirra eru Ásmundur, Kristín Sara og Jón- atan Karl. Stígrún Ása Ásmunds- Guðrún Ása Magnúsdóttir, systir og mágkona, er látin. Hún lést eftir allmikil veikindi 15. maí 2012. Þegar minnst er Ásu eins og hún var ávallt kölluð, koma upp í huga manns ýmsar minningar frá liðnum áratugum. Það sem einkenndi Ásu var hversu mynd- arleg, ljúf og hvers manns hug- ljúfi hún var. Ása var einnig góðum gáfum gædd sem sýndi sig í því er hún lauk íslensku- námi frá Háskóla Íslands, þó hún væri með allstóra fjöl- skyldu. Ása var alin upp á Ak- ureyri þar sem hún var sett í fóstur nýfædd. Er hún flutti til Reykjavíkur varð samband okk- ar systra mjög mikið, enda var ég eina alsystir hennar. Við fylgdumst hvor með annarri í sambandi við barnauppeldi og þroska barna okkar og í daglegu lífi. En samband okkar slitnaði talsvert er við fluttum til Vest- mannaeyja 1965 og jókst aftur eftir Vestmannaeyjagosið 1973 er við fluttum upp á land. Einu sinni heimsótti Ása okkur til Vestmannaeyja, með yngsta barnið sitt. Þá áttum við ljúfar stundir í faðmi Eyjanna og fal- legrar náttúru þeirra. Okkar minningar um Ásu eru eingöngu mjög ljúfar um frá- bæran einstakling. Með miklum söknuði minnumst við Ásu og viljum trúa því að henni líði vel á góðum stað. Við sendum öllum aðstandendum Ásu innilegar samúðarkveðjur. Og biðjum Guð að blessa hana og eftirlifandi ættingja. Sigurborg Hlíf Magn- úsdóttir og Jón Kr. Óskarsson. Ástkær vinkona er látin. Hún ólst upp hjá fósturfor- eldrum á Syðri-Brekkunni í húsi við Fagrastræti. Það stræti var reyndar ekki til á Akureyri og hefur aldrei verið til. Í næsta ná- grenni var Lystigarðurinn og menntaskólinn og út um stóra austurgluggann blasti Vaðla- heiðin við, Pollurinn, fallegu húsin í fjörunni og síldartunn- urnar á Höphnersbryggju. Er ekki sagt að umhverfið móti manninn? Þetta var kjölfestan í lífi Ásu. Ljúfir leikir í garðinum fagra á sumrin og skíðabrekk- urnar í Sýslumannsgilinu þola samanburð við Hlíðarfjall. Ása var dugleg og sjálfstæð ung kona. Allt lék í höndum hennar. Hannyrðir, fatasaumur og teikningar. Hún hafði fagra rithönd. Á þessum árum átti hún sér þann draum að læra að dansa ballett. Hún gerði hlé á námi eft- ir landspróf í menntaskólanum og fór að vinna á Rafveituskrif- stofunni. Haustið 1955 var hún tilbúin í draumaferðina og hóf þá nám við Listdansskóla Þjóð- leikhússins. Hún saknaði þess að hafa hætt í MA á sínum tíma og haustið eftir var hún komin í annan menntaskóla. Hún lauk stúdentsprófi frá MR vorið 1960. Þá hafði hún þegar stofnað fjöl- skyldu og Auður var fædd. Þar með lauk ballettnáminu. Við tók hið daglega líf með sigrum og ósigrum. Á þessum árum unnu húsmæður fulla vinnu utan heimilis og skipti þá engu hvað börnin voru mörg. Dansinn, sem tók við, var ekki alltaf á rósum. Heilsuleysi gerði vart við sig. Hún vann sigur í baráttu við krabbamein og Ása átti sínar gleðistundir. Skólagöngu var ekki lokið og naut hún sín vel við nám í ís- lensku við Háskóla Íslands. Skáldskapur var hennar yndi og skrifaði hún nokkrar smásögur þar sem hamingja, tregi og sorg komu við sögu. Heilsan gaf sig á ný og tók hún því og öðrum áföllum af æðruleysi og umburðarlyndi. Hún trúði á kærleikann og átti mikið af honum sjálf. Síðustu vikurnar dvaldi Ása á sjúkrahúsum. Þetta var erfiður tími en hún gladdist yfir litlu. Í símtali fyrir nokkrum dögum kom fram að gleðiskammtur þess dags var þegar uppfylltur: Stígrún hafði litið inn með ömmubarnið sitt. Á meðan grær í brekku blóm og blærinn strýkur vanga, við þann hlýja unaðsóm uni ég daga langa. Eftir langan, ljósan dag ljúfra unaðsstunda við það sama vöggulag vil ég þreyttur blunda. (H.J.M.) Vöggulag vorsins hljómaði þegar Ása sofnaði svefninum langa. Eftir að heilsan brást vonaðist Ása til að geta ferðast til heitari landa og gengið þar léttstíg á hvítri strönd. Hún fór í annað ferðalag. Þar eru hvítar strendur og þar er jafnvel hægt að stíga nokkur ballettspor. Fagrastrætið er á himnum. Blessuð sé minning Ásu – Guðrúnar Ásu Magnúsdóttur. Sigríður J. Hannesdóttir. Guðrún Ása Magnúsdóttir HINSTA KVEÐJA Í dag kveðjum við Ásu, æskuvinkonu okkar, með einlægri þökk fyrir liðnar samverustundir. Lífið var fullt af draumum og fyrir- heitum og dauðinn svo óendanlega fjarlægur. Nú er hann kominn og við kveðjum með þessum ljóð- línum: Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Sofðu rótt. Þínar gömlu vinkonur, Bryndís og Helga. ✝ Elsa SteinaÞorsteinsdóttir fæddist í Reykjavík 30. september 1932. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Seljahlíð 10. maí 2012. Foreldrar henn- ar voru Aðalheiður María Jónsdóttir, f. 1901, d. 1983 og Þorsteinn Þorgils Þorsteinsson, f. 1897, d. 1960. Systkini hennar eru 1) Anna, f. 1926, d. 2005, hennar maður var Sigurbjörn Hansson sem er lát- inn. 2) Margrét Jóna, f. 1933, hennar maður var Hafsteinn Daníelsson sem er látinn. 3) Guðmundur Berg- mann, f. 1934, d. 1997. 4) Guðbjartur Bergmann, f. 1934, hans kona er Ásrún Heiðarsdóttir. 5) Guðný Hrönn, f. 1938, hennar mað- ur er Sævar Júníus- son. Elsa bjó á ýms- um stöðum í Reykjavík en þegar hún var 10 ára fluttist fjöl- skyldan í Höfðaborg en árið 1968 fluttust þau í Breiðholtið og bjó Elsa þar til æviloka. Útför Elsu verður gerð frá Seljakirkju í dag, 23. maí 2012 og hefst athöfnin klukkan 13. Það er með þakklæti, hlýhug og virðingu sem ég minnist elsku- legrar móðursystur minnar Elsu sem lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð 10. maí sl. eftir stutt en erfið veikindi. Það er af mörgu að taka og margs að minnast þegar ég lít yf- ir farinn veg. Elsa bjó lengst af með móður sinn, bræðrum og Unni systurdóttur sinni sem ólst upp hjá þeim. Þær þrjár pössuðu mig þegar foreldrar mínir þurftu á því að halda og í uppvexti mín- um sótti ég fast eftir því að vera hjá þeim. Hún lék stórt hlutverk í mínu lífi eins og svo margra systkinabarna sinna. Þegar ég var barn var hún dugleg að bjóða mér í leikhús, bíó, söfn og á ýmsa aðra viðburði og ekki má gleyma ferðunum vestur á Hellissand til Önnu frænku. Eftir að ég varð fullorðin og búin að eignast mitt heimili og mína fjölskyldu var hún ólöt við að heimsækja okkur og aldrei kom hún tómhent. Elsa var flogaveik sem barn og fram á fullorðinsárin og mörkuðu þau veikindi líf hennar. Hún átti ekki langa skólagöngu en hún var vel gefin og fróðleiksþyrst og má segja að hún hafi að mörgu leyti verið sjálfmenntuð. Hún las mik- ið, fylgdist vel með fjölmiðlum og með eindæmum ættfróð og minn- ug og þegar verið var að rifja eitt- hvað upp þá var best að leita til hennar. Hún mundi allt að mér fannst, hún mundi t.d. svo margt sem ég gerði eða sagði sem barn og skildi ekkert í því að ég myndi ekki eftir því og hvað þá að mamma myndi ekki eftir því. Hún hafði mikinn áhuga á mönn- um og málefnum og fylgdist vel með flestum sem hún hafði haft kynni af, spurði gjarnan frétta af gömlum vinkonum mínum þó hún hefði ekki hitt þær í árum saman. Elsa var afar góð og trygg- lynd, hún var nægjusöm og for- dómalaus og var einstaklega þægileg í umgengni. Hún lét eng- an ósnortinn með sinni einlægu framkomu. Elsu minni þakka ég allar góðu stundirnar okkar, allt það góða sem hún kenndi mér og um- hyggjusemina í minn garð og fjölskyldu minnar. Mig langar að þakka Vilhelmínu Ægisdóttur, vinkonu Elsu, tryggðina og vin- áttuna við hana. Aðalheiður Sævarsdóttir. Látin er móðursystir mín Elsa Steina Þorsteinsdóttir. Hún var ekki aðeins frænka mín heldur var hún meira sem stóra systir þar sem við, í æsku minni, bjugg- um saman heima hjá ömmu í Höfðaborginni. Þar bjuggu einn- ig yngri systkini Elsu, Margrét Jóna, tvíburarnir Guðbjartur og Guðmundur og Guðný. Höfðaborgin var ekki stór og því þröng á þingi en það fór vel um okkur. Elsa var mjög dugleg að hafa ofan af fyrir mér. Hún var til dæmis mjög dugleg að spila við mig en það sem henni þótti skemmtilegast var að fræða mig um ætt okkar og uppruna enda var hún vel að sér í þeim efnum. Móður minni reyndist Elsa mjög vel, hún fór vestur á Hell- issand á hverju sumri og tók þátt í heyskap og sá alfarið um mann- margt heimilið á Selhól þegar mamma fór í ferðalög með Kven- félagi Hellissands. Varð þetta til þess að mamma naut þessara ferða enn betur, vitandi að sitt og sínir væru í góðum höndum. Eftir að ég varð fullorðin og flutti að heiman minnkuðu sam- skiptin en Elsa hringdi reglulega til þess að fræða mig um hvað væri að gerast. Í þeim samtölum gætti Elsa þess að gleyma aldrei að fræða mig um fjölgun í ættinni en ég held að hún hafi haft tölu á öllum afkomendum afa og ömmu fram á síðustu stundu. Einnig fékk ég alltaf útlistun á bíltúrum Elsu með Guðnýju systur sinni en þær fóru gjarnan saman og fengu sér ís. Veit ég að Elsa hafði sérstaka ánægju af þeim ferðum. Elsku Elsa mín, ég held að afi og amma taki syngjandi á móti þér, rétt eins og þau gerðu fyrir okkur í æsku, takk kærlega fyrir mig. Erla Gísladóttir og fjölskylda. Ég kveð Elsu frænku mína með sorg og söknuði, en fyrst og fremst með þakklæti í huga. Elsa var einstaklega trygglynd og góð manneskja og þægileg í alla staði. Ég var svo heppin að fá að alast upp á sama heimili og Elsa, hjá ömmu og afa. Elsa var mér allt í senn frænka, móðir og góður vin- ur. Elsa var natin við að hugsa um mig, við vorum alltaf mjög nánar. Þegar ég átti erfitt þá var hún alltaf til staðar fyrir mig. Ég á margar góðar og skemmtilegar minningar frá æskuárunum með Elsu og það er af mörgu að taka. Eitt skiptið þegar ég var 5 eða 6 ára langaði mig svo að skúra ganginn sem Elsa var vön að gera, ég fékk fötu fulla af vatni, skrúbb og tusku og ég varð afar glöð. En það endaði með ósköpum, allt var komið á flot og ég farin að sulla. Elsa bara brosti og hjálpaði mér að þurrka upp og kláraði verkið. Við Elsa gerðum margt sam- an, við fórum í hringferð um landið með strandferðaskipinu Esju, mig minnir að það hafi tek- ið viku. Þetta var mjög skemmti- leg ferð, ég man eftir því að við keyrðum til Hallormsstaðar og man einnig eftir því að við fórum til Vestmannaeyja. Við fórum á hverju sumri á Hellisand til Önnu systur hennar á Selhól, en það var alltaf gaman að koma til þeirra. Þegar Keli minn var lítill þá kom hún oft í heimsókn til okkar í Hamraborgina og kom alltaf með gjöf til Kela í hvert skipti við mik- inn fögnuð. Eitt sinn sagði ég henni að hún þyrfti ekki að koma með pakka í hvert skipti og í næsta skipti kom hún án þess að vera með gjöf, Keli fór þá að há- gráta og Elsa varð afar leið. Næsta dag kom Elsa snemma dags með tvær gjafir til Kela og hún fékk stórt bros og koss að launum frá Kela. Þegar ég bjó í Danmörku kom hún til okkar í heimsókn nokkr- um sinnum og þess á milli hringdi hún reglulega til okkar og spjöll- uðum við lengi saman. Hún var svo alltaf áhugasöm um að fylgj- ast með börnunum mínum. Þegar þau fæddust varð hún afar glöð, hún var orðin amma og var hún þeim alltaf jafn góð og hún var mér. Að lokum vil ég þakka Elsu fyrir þær yndislegu stundir sem við áttum saman og fyrir þann stuðning sem hún veitti mér. Blessuð sé minning hennar. Unnur Inga Karlsdóttir Elsa Steina Þorsteinsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku Elsa, við þökkum þér allt það góða sem þú gafst okkur. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson) Við þökkum þér sam- fylgdina. Gangi þér vel á nýjum slóðum. Kveðja, Unnur, Jón Þröstur og Elsa.  Fleiri minningargreinar um Elsu Steinu Þorsteins- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Sendum frítt hvert á land sem er Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.is ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ARNDÍS LÁRA TÓMASDÓTTIR, Höskuldarkoti, Ytri-Njarðvík, andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 20. maí. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn 29. maí kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarsjóð Ytri-Njarðvíkurkirkju. Garðar Magnússon, Sigurður T. Garðarsson, Guðfinna S. Skúladóttir, Þorbjörg Garðarsdóttir, Stefán E. Bjarkason, Gylfi Garðarsson, Ólöf M. Ingólfsdóttir, Garðar Garðarsson, Signý Hafsteinsdóttir, Ólafur Garðarsson, Kolbrún Garðarsdóttir, Eyþór E. Thoroddsen, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.