Monitor - 24.05.2012, Page 18
18 MONITOR FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2012
Hvað hafið þið þekkst lengi?
Við höfum þekkst síðan árið 2005
þannig þetta eru að verða góð 8 ár.
Hvenær kviknaði áhugi ykkar á
tísku?
Lilja fékk fyrst áhuga á tísku í
menntó. Hún fór meira að pæla í
hverju hún var og þótti gaman að
fá hrós fyrir einstakan klæðaburð.
Katrín fór ekki almennilega að
spekúlera í tísku fyrr en árið
2008, í raun um sama skeið og
tískublogg fóru að láta á sér
kræla. Síðan þá spáir hún mikið í
fötum, litasamsetningum og hefur
sérstaklega gaman af street style
bloggum.
Hvers vegna fluttuð þið til London?
Við fluttum báðar því að kærastar
okkar búa þar. Þar að auki var þetta
spennandi og kærkomin breyting
frá hversdagsleikanum á Íslandi.
Svo höfðum við báðar verið lengi
vel spenntar fyrir að mennta okkur
erlendis og höfðum oft látið okkur
dagdreyma um að flytja saman út
fyrir landssteinana.
Hvers vegna ákváðuð þið að byrja
að halda úti tískubloggi?
Við höfðum oft talað um að
byrja að blogga saman. Eftir að
við fluttum út virtist þetta vera
fullkominn vettvangur til að skrifa
um daglegt líf okkar hérna úti
til að vinir okkar og vandamenn
heima gætu fylgst með, í bland
við að skrifa um áhugamál okkar,
uppáhalds hönnuði og annað sem
okkur finnst áhugavert. Auk þess
er þetta viss leið til að koma sér á
framfæri.
Það eru mjög fallegar myndir sem
prýða bloggið, hver tekur þær?
Katrín tekur allar myndir af okkur
á blogginu, nema þegar Lilja þarf að
smella af mynd af henni, en Katrín
vinnur þær allar. Hún er sjálflærð
en var að komast inn í foundation
nám í Camberwell College of Arts
þar sem hún mun stunda nám við
ljósmyndun.
Hvers vegna skrifið þið á ensku en
ekki íslensku?
Okkur fannst bloggið vera
aðgengilegra fyrir stærri hóp ef það
væri á ensku því það býður upp á
fleiri lesendur. Vonandi mun það
skapa tækifæri fyrir okkur hér í
London í framtíðinni.
Mynduð þið segja að það sé
erfitt að halda úti svipuðu bloggi á
Íslandi?
Að vissu leiti er það auðveldara á
Íslandi, það er svo smátt samfélag
og síður eru fljótar að berast á milli
manna t.d. með Facebook. Úti er
þetta viss bransi, fólk vinnur við að
blogga og fær borgaði fyrir að skrifa
pistla á aðrar stærri síður, halda
fyrirlestra og ýmislegt í þeim dúr.
Það hefur verið mjög erfitt að láta
taka eftir blogginu hérna úti því það
er önnur hver manneskja í tísku
og listtengdu námi er með blogg.
Maður þarf að vera duglegur að lesa
önnur blogg, ‘tweeta’ til bloggara og
þeirra sem við erum að skrifa um
og reyna þannig að koma sér inn í
hringiðuna.
Vinkonurnar Katrín Lilja og Lilja Hrönn eru búsettar í
London og halda uppi tískublogginu unicornsforbreakfast.
com. Þar fá þær útrás fyrir áhuga sínum á tísku og ljós-
myndun, en bloggið samanstendur af átfitt póstum, grein-
um um búðir, hönnuði og ýmsu öðru tískutengdu.
Kærkomin tilbreyting
frá hversdagsleikanum
DIMMT EN SAMT
SVO MIKIÐ SUMAR
SÉRHÖNNUÐ GLERAUGU
SEM BLOKKERA SÓLARLJÓS
EIN AÐ SKVÍSA
YFIR SIG Í LONDON
Þórhildur Þorkelsdóttir
thorhildur@monitor.is
stíllinn