Morgunblaðið - 01.06.2012, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.06.2012, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is mán. - fös. 11-18:30 lau. 10-18, sun. 12-18 SUMMER Garðstóll m/stillanlegu baki. Pólýtrefjar. Ø107 cm. 12.900,- NÚ 6.450,- Einnig til grænn. SUMMER Garðstóll m/stillanlegu baki. nú 6.450,- 50% ................................... af SUMMER garðstól einfaldlega betri kostur Nokkur ungmenni fóru á sjóinn frá Nauthólsvík í blíðviðrinu í gær og að sjálfsögðu allir í björg- unarvesti sem í bátana fóru. Stutt er í að sigl- inganámskeiðin hefjist í Nauthólsvík en þau hafa jafnan verið vel sótt af ungu kynslóðinni. Mann- lífið var iðandi á öllu höfuðborgarsvæðinu í gær, sem og víða um land. Veðurstofan gerir ráð fyrir áframhaldandi hlýindum og sólskini um helgina og allt að 20 stiga hita víða inn til landsins. Styttist í að siglinganámskeið sumarsins hefjist í Nauthólsvík Morgunblaðið/Eggert Forskot tekið á sæluna í sumarblíðunni BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Umræða um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar hefst væntanlega á Alþingi í dag. Þingflokkur sjálfstæð- ismanna hefur óskað eftir tvöföldum ræðutíma og er búist við löngum um- ræðum um málið. Þingfundur mun standa fram á kvöld en hlé gert um sjómannadagshelgina. Nefndarálit þingmanna stjórnar- meirihlutans í atvinnuveganefnd um veiðigjaldafrumvarpið og breytingar- tillögur voru lögð fram á Alþingi í gær. Reiknað er með að álitum minni- hlutans verði dreift í dag. Frumvarp um breytingar á lögum um fiskveiðistjórn er enn til umfjöll- unar í nefndinni, m.a. tillaga fulltrúa stjórnarflokkanna um óverulegar breytingar á efni frumvarpsins. Fundur hefur verið boðaður í at- vinnuveganefnd árdegis. Þar kynnir sérfræðingahópur sem atvinnuvega- nefnd fékk til að gera úttekt á áhrif- um frumvarpanna viðbrögð sín við málunum eins og þau standa nú og svarar spurningum nefndarmanna ásamt fulltrúum sjávarútvegsráðu- neytisins. Kristján L. Möller, formaður at- vinnuveganefndar, sagði í gær óljóst hvort hægt yrði að ljúka umræðu um málið á fundinum í dag. Einar K. Guð- finnsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir ekki hægt að afgreiða veiði- gjaldafrumvarpið sem sjálfstætt mál. „Áformaðar breytingar á lögum um fiskveiðistjórnun skapa rammann sem veiðigjaldið þarf að passa í,“ seg- ir Einar og bætir því við að heildar- myndin sé enn ekki skýr. Ekki samkomulag um þinglok Formenn þingflokka funduðu með forseta Alþingis í gær til að ræða framhald þingstarfa en þeim átti að ljúka í gær, samkvæmt starfsáætlun. Fundurinn varð árangurslaus, að mati Gunnars Braga Sveinssonar, formanns þingflokks framsóknar- manna. „Hann skilaði okkur frekar aftur á bak en fram á við,“ segir Gunnar. Hann minnti á að fulltrúar stjórnarandstöðunnar hefðu liðkað til svo hægt væri að hefja afgreiðslu ým- issa mála í gær en stjórnarflokkarnir gæfu ekki annað til kynna en þeir hygðust keyra öll mál stjórnarinnar í gegn, jafnvel mál sem mikið ósætti væri um. Nefndi hann sjávarútvegs- frumvörp og IPA-styrki sem dæmi. Enn eitt umdeilda málið er fjár- mögnun Vaðlaheiðarganga. Það er ekki útrætt. Í gær lögðu sex þing- menn umhverfis- og samgöngunefnd- ar, úr öllum flokkum, fram bókun við afgreiðslu samgönguáætlunar þar sem fram kemur það álit að gerð Vaðlaheiðarganga riðli eðlilegri for- gangsröðun framkvæmda. Dýra- fjarðar- og Norðfjarðargöng væru framar í röðinni. Veiðigjöld til umræðu  Tvöfaldur ræðutími við umræður um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar  Fiskveiðistjórnarfrumvarpið tekið fyrir á fundi atvinnuveganefndar í dag Ingvar P. Guðbjörnsson ingvar@mbl.is Örtröð varð í útibúi Landsbankans á Fáskrúðsfirði í gær þegar fólk mætti í röðum á síðasta klukkutímanum fyrir endanlega lokun útibúsins til að taka út þá peninga sem það átti í bankanum. Ekki vildi betur til en svo að pening- arnir dugðu ekki til og á endanum var ekki hægt að af- greiða viðskiptavini með fjármuni sína og þeim í staðinn boðnar ávísanir eða þá að fara í dag á Reyðarfjörð til að sækja peningana. Höfðu íbúar í mótmælaskyni flaggað íslenska fánanum í hálfa stöng fyrir utan útibúið, sem var eitt þeirra sjö úti- búa á landsbyggðinni sem Landsbankinn lokar um þessi mánaðamót. Segja má að það hafi verið táknrænt fyrir mótmælaaðgerðina að formaður sóknarnefndar staðar- ins, Eiríkur Ólafsson, fór fyrir hópi íbúa sem fjölmenntu í bankann. Grétar Geirsson var einn af þeim sem gerðu tilraun til að taka út fé á Fáskrúðsfirði. Hann sagði þetta hafa verið mótsvar íbúa staðarins, sem fengu með litlum fyrirvara að vita af lokuninni og þeir hefðu því mætt með litlum fyrirvara til að slíta viðskiptum við bankann. Óánægjan er einnig mikil á Eskifirði, Króksfjarðar- nesi, Bíldudal, Grundarfirði og í Súðavík. Fram kom í fréttum RÚV í gær að einn viðskiptavinur Landsbank- ans á Króksfjarðarnesi hefði neitað að yfirgefa útibúið fyrr en hann fengi allt sitt sparifé. »21 Landsbankinn tæmdur  Margir Fáskrúðsfirðingar slitu viðskiptum við bankann  Íbúar ósáttir og flögguðu í hálfa stöng við útibú bankans Morgunblaðið/Albert Kemp Tómur Löng biðröð var í útibúinu á Fáskrúðsfirði. Rúmlega tvítug- ur piltur lést í bílslysi við Hörg- árbrú í Eyjafirði síðastliðið miðviku- dagskvöld. Hann hét Stefán Páll Stefánsson og var 21 árs að aldri. Stefán Páll var til heimilis í Lyngholti 1 á Hauganesi í Dalvík- urbyggð. Hann var fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann var úrskurðaður látinn. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en lögreglan á Akureyri og rann- sóknarnefnd umferðarslysa vinna að rannsókn þess. Lést í bílslysi við Hörgárbrú í Eyjafirði Stefán Páll Stefánsson Það var árvekni nágranna sem leiddi til þess að upplýst var um tugi innbrota þriggja karla sem handteknir voru í Grafarvogi í síð- ustu viku. Gildi nágrannavörslu hefur margsannað sig síðustu ár, ekki síst á þessum tíma árs þegar fólk er oft lengi að heiman í sum- arfríi. Hluti af þýfinu var endur- heimtur en mennirnir stálu m.a. fartölvum, sjónvörpum, skart- gripum og peningum. una@mbl.is Nágrannar komu lögreglunni á sporið „Ljóst er að mjög langt er seilst miðað við heildarpakk- ann,“ segir Daði Már Kristó- fersson, dósent við HÍ, um áhrif sjávarútvegsfrumvarp- anna eins og þau standa nú. Daði og Stefán B. Gunn- laugsson, lektor við Háskólann á Akureyri, töldu að nokkur hluti stærstu útgerðarfyr- irtækja landsins myndi ekki geta staðið undir veiðigjöldum og upphafleg frumvörp myndu hafa slæm áhrif á sjávar- byggðir. Daði Már segir að þrátt fyrir breytingar sé veiðigjaldið enn mjög hátt og engar efnislegar breytingar gerðar á frumvarpi um fiskveiðistjórnun. Því standi gagnrýni þeirra óhögguð. Mjög langt er seilst ÁLIT SÉRFRÆÐINGS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.