Morgunblaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Mario Draghi, bankastjóri
Seðlabanka Evrópu, sagði í gær
að leiðtogar evrulanda þyrftu
þegar í stað að gera ráðstafanir
til að koma í veg fyrir að evru-
svæðið sundraðist. Mynt-
bandalagið væri „ósjálfbært“
eins og það væri núna.
Mikið umrót hefur verið á
fjármálamörkuðum síðustu
daga þar sem óttast er að
Spánn verði næsta ríkið á eftir
Grikklandi til að þurfa að óska
eftir aðstoð Evrópusambands-
ins. Spánn er fjórða stærsta
hagkerfi evrusvæðisins, á eftir
Þýskalandi, Frakklandi og Ítal-
íu, og kostnaðurinn af slíkri að-
stoð yrði miklu meiri en af að-
stoðinni við Grikkland. Fái
Spánn aðstoð frá björgunar-
sjóðnum ESM, sem settur
verður á laggirnar í júlí, verður
lítið svigrúm til að aðstoða önn-
ur evruríki. Sjóðurinn á að
nema um 700 milljörðum evra
og hagfræðingar áætla að að-
stoð við Spán gæti kostað sjóð-
inn 500 milljarða evra á nokkr-
um árum.
Varað við
„hræðilegri kreppu“
Seðlabankastjórinn sagði í
ræðu á Evrópuþinginu í gær að
leiðtogar evrulandanna þyrftu
að setja fram skýra áætlun um
hvernig myntbandalagið ætti að
vera næsta áratuginn til að
tryggja að það héldi velli.
Seðlabanki Evrópu gæti ekki
„fyllt upp í tómarúmið“ sem
myndaðist vegna skorts á fjár-
magni og hækkandi lántöku-
kostnaðar skuldugra evruríkja.
Draghi líkti evrusvæðinu við
sundmann sem reyndi að synda
yfir fljót í biksvartri þoku.
„Hann eða hún heldur áfram að
synda á móti straumnum en sér
ekki hinn bakkann,“ sagði
hann. „Við þurfum að bægja
þessari þoku frá.“
Olli Rehn, sem fer með efna-
hagsmál í framkvæmdastjórn
ESB, sagði á ráðstefnu hag-
fræðinga í Brussel í gær að til
að leysa skuldavandann þyrfti
meðal annars að nást sam-
komulag um frekara aðhald í
ríkisfjármálum á leiðtogafundi
ESB 28. og 29. júní. Einnig
þyrfti að breyta vinnumála-
löggjöfinni og koma á fleiri um-
bótum í mörgum evruríkjum.
Leiðtogar sem hefðu áhyggjur
af því að kjósendur myndu
refsa þeim gætu ekki valið
neina auðveldari leið. „Í hrein-
skilni sagt er þetta staðreyndin
ef við viljum koma í veg fyrir
að evrusvæðið sundrist og ef
við viljum að það haldi velli.“
Rehn sagði að greiðsluþrot
evruríkja eða upplausn evru-
svæðisins myndi líklega hafa al-
varlegri afleiðingar fyrir íbúa
evrulandanna en frekari sparn-
aðaraðgerðir og óvinsælar
breytingar vegna þess að „það
myndi leiða til hræðilegrar
kreppu í Evrópu og úti um all-
an heim“.
Ávöxtunar-
krafan nálgast 7%
Ávöxtunarkrafa tíu ára
spænskra ríkisskuldabréfa
nálgast nú 7% og dagblaðið
The New York Times hefur eft-
ir Santiago Valverde, hagfræði-
prófessor við Granada-háskóla,
að mjög erfitt verði fyrir
spænska ríkið að fjármagna
fjárlagahallann við þessar að-
stæður. „Þetta snýst ekki að-
eins um ríkið, heldur einnig
stóra banka og fyrirtæki,“
sagði hann. „Markaðirnir munu
lokast.“
Fjárlagahallinn á Spáni hefur
aukist um 26% á einu ári vegna
aukinnar aðstoðar við skuldug
sjálfstjórnarhéruð, m.a. Kata-
lóníu, minni skatttekna og auk-
ins kostnaðar vegna vaxandi at-
vinnuleysis. Fjárlagahallinn er
nú 8,5% af landsframleiðslu og
að sögn Valverde er mjög ólík-
legt að spænsku ríkisstjórninni
takist að minnka hann í 5,3% í
ár eins og hún hefur stefnt að.
Myntbandalag evruríkja ósjálf-
bært að mati Seðlabanka Evrópu
Seðlabankastjórinn segir að þörf sé á skýrri áætlun til að hindra að evrusvæðið sundrist
AFP
Umrót Breytingar á hlutabréfavísitölunni IBEX 35 sýndar á skjá í kauphöllinni í
Madríd. Vísitalan lækkaði í fyrradag, hafði ekki verið lægri í níu ár.
IIV
IIIIII
20122007200019951987
Skuldir ríkisins hafa stóraukist síðustu ár
Efnahagsvandi Spánar
Hagvöxtur
Í milljónum dollara
Opinberar skuldir
Breytingar á þjóðarframleiðslu eftir
Heimildir: INE, ríkisstjórn Spánar.
ársfjórðungum í %
2011 2012
0,2
0
-0,3
-0,4
307.168
619.868
0,4
87.009
Áhugakafarar telja sig hafa fundið
sænska herskipið Resande Man sem
sökk sunnan við Stokkhólm með
gull- og demantafarm árið 1660.
Kafararnir segjast ekki hafa fundið
farminn en vona enn að hann komi í
leitirnar.
Resande Man sökk í Eystrasalti í
nóvember 1660 þegar skipið átti að
flytja gjöf sænsku ríkisstjórnar-
innar til Póllands. „Skipið er í frek-
ar slæmu ástandi,“ hefur fréttaveit-
an AFP eftir einum kafaranna,
ljósmyndaranum Peter Jademyr.
Hann sagði kafarana vera 99%
vissa um að þeir hefðu fundið Res-
ande Man. „Það eina sem gæti stað-
fest þetta 100% er skipsbjallan, sem
var með nafn
skipsins áletrað,“
sagði Peter Jade-
myr.
Fornleifafræð-
ingurinn Johan
Rönnby sagði að
skipið væri á
tuttugu metra
dýpi við strönd-
ina sunnan við
Stokkhólm. Skip-
ið væri 25 metra langt, sjö metra
breitt og um það bil helmingi minna
en herskipið Vasa sem sökk árið
1628, en því var lyft af sjávarbotni
árið 1961 og er nú á safni í Stokk-
hólmi.
Resande Man.
SVÍÞJÓÐ
Telja sig hafa fundið skipið Resande Man
Foreldrar sex
barna sem létu
lífið í eldsvoða í
Derby í Bret-
landi 11. maí
hafa verið
ákærðir fyrir
manndráp. For-
eldrarnir voru
handteknir á
þriðjudaginn
vegna gruns um að hafa kveikt í
heimili sínu og með því valdið
dauða barna sinna, sem voru á aldr-
inum 5-13 ára.
Ákærð fyrir að bana
sex börnum sínum
BRETLAND
Húsið sem brann.
Í Linz í Austurríki hafa borgaryfir-
völd brugðið á óvenjulegt ráð til að
sporna gegn fjölgun dúfna í borg-
inni en farið er að gefa fuglunum
getnaðarvarnapillu.
„Dúfna-pillunni“ svokölluðu hef-
ur verið dreift um miðbæ Linz allt
frá árinu 2001 og svo virðist sem
ráðið virki því talið er að dúfum í
borginni hafi fækkað um helming
síðan eða úr 20 þúsund fuglum í um
níu þúsund.
Ekki er talið að öðrum dýrum í
miðbænum, til dæmis hundum, stafi
hætta af getnaðarvarnapillunni, að
sögn heilbrigðisyfirvalda í Austur-
ríki.
AUSTURRÍKI
Dúfur á pillunni