Morgunblaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012
Sérstök skattheimta á sjávarútveger svo að segja óþekkt. Nánast
engin ríki bjóða sjávarútvegi sínum
upp á slíkt fyrirkomulag, eins og
fjallað var um í fréttaskýringu við-
skiptablaðs Morgunblaðsins í gær.
Og þetta á jafnt við um þau ríkisem stýra veiðum sínum með
kvótakerfum og með annars konar
kerfum.
Ekki nóg með það, erlendis ersjávarútvegur víða niður-
greiddur af ríkinu. Staðan er með
öðrum orðum sú að íslenskur sjávar-
útvegur er að keppa við ríkisstyrkt-
an sjávarútveg eða sjávarútveg sem
ekki býr við sérstaka skattheimtu.
En þetta skiptir ríkisstjórninaekki máli. Ekki frekar en allar
þær neikvæðu umsagnir um sjávar-
útvegsfrumvörpin sem stjórnar-
flokkarnir hafa nú hunsað á þingi.
Þeir hafa, þrátt fyrir að öll rökstyðji að frumvörpin verði
dregin til baka og endurskoðuð frá
grunni, ákveðið að knýja málin í
gegnum þingið.
Frumvarp um veiðigjöld var ígær sett á dagskrá þingfundar
í dag þrátt fyrir að öllum megi ljóst
vera hvers konar aðför frumvarpið
er að sjávarútveginum, byggðum
landsins og efnahag þess.
Lítilsháttar orðalagsbreytingarog smávægileg frestun á
ósvífnustu ákvæðunum breyta engu
um hættuna sem frumvarpið skapar.
Mjög sérstök
skattheimta
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 31.5., kl. 18.00
Reykjavík 14 heiðskírt
Bolungarvík 13 heiðskírt
Akureyri 11 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 10 alskýjað
Vestmannaeyjar 9 heiðskírt
Nuuk 8 heiðskírt
Þórshöfn 7 skýjað
Ósló 12 heiðskírt
Kaupmannahöfn 13 skýjað
Stokkhólmur 10 léttskýjað
Helsinki 12 heiðskírt
Lúxemborg 18 skýjað
Brussel 18 léttskýjað
Dublin 17 skýjað
Glasgow 17 skýjað
London 17 skýjað
París 21 skýjað
Amsterdam 15 skúrir
Hamborg 13 skúrir
Berlín 17 skúrir
Vín 22 skýjað
Moskva 11 léttskýjað
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 33 léttskýjað
Barcelona 25 heiðskírt
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Aþena 22 léttskýjað
Winnipeg 16 heiðskírt
Montreal 17 skýjað
New York 25 heiðskírt
Chicago 11 alskýjað
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
1. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:21 23:31
ÍSAFJÖRÐUR 2:38 24:24
SIGLUFJÖRÐUR 2:19 24:09
DJÚPIVOGUR 2:40 23:11
Grímseyjardagar
verða haldnir
öðru sinni
helgina 1.-3. júní
í einstakri veður-
blíðu ef spár
ganga eftir. Boð-
ið verður upp á
fjölbreytta dag-
skrá sem byggist
á grímseyskum
hefðum. Farið
verður í kríueggjaleit, ratleiki, sigl-
ingar og fleira. Vanir menn síga í
björg og sækja egg. Formlegri dag-
skrá lýkur síðan með sjávar-
réttahlaðborði í félagsheimilinu
Múla að kvöldi laugardagsins.
Í tengslum við viðburðinn hefur
verið bætt við áætlun flugs til og
frá Grímsey. Brottfarir frá Akur-
eyri verða alla dagana kl. 13.00.
Nánari upplýsingar um dagskrá
Grímseyjardaga er að finna hér:
http://www.visitakureyri.is/is/
moya/news/grimseyjardagurinn
Grímseyjardagar
um helgina
Fjör verður
í Grímsey.
Rúnar Bjarnason, fyrr-
verandi slökkviliðs-
stjóri í Reykjavík, and-
aðist í gær á Land-
spítalanum á 81.
aldursári.
Rúnar fæddist í
Reykjavík 5. nóvember
1931, sonur Önnu Guð-
steinsdóttur húsfreyju
og Bjarna Eggerts-
sonar lögregluþjóns.
Hann lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
1951 og civ. ing.-prófi í
efnaverkfræði frá
Kungliga Tekniska högskolan
(KTH) í Stokkhólmi 1955. Rúnar
stundaði framhaldsnám við KTH og
Karolinska í öryggismálum og um-
hverfisvernd 1962-63 og framhalds-
nám við háskólann í Karlstad í Sví-
þjóð 1991.
Rúnar var aðstoðarkennari við
KTH 1954-55 og stundaði rann-
sóknir við Svenska Atomkommitéen
1955. Hann var verk-
fræðingur hjá Áburð-
arverksmiðjunni 1955-
66 og slökkviliðsstjóri
og framkvæmdastjóri
almannavarna í
Reykjavík 1966-91.
Rúnar var formaður
Félags íslenskra stúd-
enta í Stokkhólmi
1954-55 og EVFÍ 1964-
65. Hann var varafor-
maður HSÍ 1957-72, í
stjórn Stúdentafélags
Reykjavíkur 1965-66
og settist í stjórn Fé-
lags slökkviliðsstjóra
1990. Þá var hann í byggingar- og al-
mannavarnanefndum Reykjavíkur
og nágrannabyggða 1966-91 og í
stjórn Brunamálastofnunar 1969-82.
Kona Rúnars var Guðlaug Guð-
mundsdóttir, f. 1936, d. 2011. Þau
eignuðust Önnu Gullu fatahönnuð og
Gylfa véltæknifræðing. Barnabörnin
eru fimm talsins og barnabarna-
börnin eru orðin fjögur.
Andlát
Rúnar Bjarnason
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012
mánudaginn 4. júní, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Á
sgrím
urJónsson
Á
sgrím
urJónsson
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17,
sunnudag 12–17, mánudag 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Húmanistaflokk-
urinn hefur
ákveðið að bjóða
fram í öllum
kjördæmum í
næstu alþingis-
kosningum.
„Eins og berlega
hefur komið í
ljós hefur mark-
aðs- og
hagvaxtar-
stefnan sem ríkt hefur undanfarna
áratugi ekki staðið undir vænt-
ingum. Hefðbundnir stjórn-
málaflokkar hafa engar úrlausnir,“
segir í tilkynningu sem Metúsalem
Þórisson sendi fyrir hönd fram-
boðsins.
Húmanistaflokkurinn byggir
stefnu sína á frelsi og mannrétt-
indum en Mannréttindasáttmáli SÞ
er eitt af grundvallarstefnuskjölum
hans. Helstu stefnumál eru: Lýð-
ræði; efnahagsmál/fjármálakerfið;
sjálfbærni og alþjóða- og friðar-
mál. Húmanistaflokkurinn var
stofnaður árið 1984 og hefur
nokkrum sinnum boðið fram til
þing- og sveitarstjórnarkosninga.
Húmanistaflokk-
urinn býður fram
Methúsalem
Þórisson
Eyjamenn taka forskot á hátíðar-
höld sjómannadagsins á sunnudag-
inn með fjöldasöng í Akoges-
salnum í Vestmannaeyjum í kvöld.
Sjómannadagssöngurinn þar er ár-
legur viðburður og markar upphaf
fjölbreyttrar dagskrár alla helgina.
Árni Johnsen þingmaður mun
leiða fjöldasönginn í kvöld ásamt
fleiri tónlistarmönnum. Má segja að
þar verði samankomið „landslið“
Eyjamanna í tónlistinni og tekin
100 laga lota, eins og Árni orðaði
það við Morgunblaðið. Söngurinn
hefst kl. 22 og stendur til kl. tvö í
nótt, með sögustund inn á milli.
Morgunblaðið/Sverrir
Söngur Árni Johnsen leiðir fjöldasöng í
Eyjum í kvöld í tilefni sjómannadags.
Sjómannasöngur í
Eyjum í kvöld