Morgunblaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012 Fjallalamb á framandi máta Grillað fillet á spjóti, marinerað í hvítlauk, ólífuolíu, tímian & dijon sinnepi, borið fram á salatbeði með hægelduðum rauðlauk, ristuðum sveppum, bakaðri kartöflu & hvítlauks dressingu 2.690 kr. Hálendis spjótNÝTT Grillhúsið Tryggvagötu og Sprengisandi, sími: 5275000, grillhusid@grillhusid.is, www.grillhusid.is Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Íslendingar verða í sérstaklega góðri aðstöðu til að berja augum þvergöngu reikistjörnunnar Venus- ar fyrir sólina á þriðjudagskvöld og aðfaranótt miðvikudags í næstu viku. Að sögn Sævars Helga Braga- sonar, formanns Stjörnuskoðunar- félags Seltjarnarness, er um er að ræða afar fátíðan stjarnfræðilegan viðburð sem á sér stað á 105 til 120 ára fresti. Það er þó eins gott fyrir þá Íslendinga sem eru áhugasamir um að sjá þvergönguna núna því ekki verður hægt að sjá hana aftur hér á landi fyrr en árið 2247 því að næst á hún sér stað að nóttu til hér. „Þetta er afskaplega sjaldgæft því að Venus er yfirleitt annaðhvort fyrir ofan eða neðan sólina. Það sem fólk sér ef það notar viðeigandi búnað er lítill hnöttur sem ferðast hægt og rólega yfir sólina á um það bil sex klukkustundum,“ segir Sæv- ar. Þvergangan sést best frá Kyrra- hafinu en Ísland er hins vegar í þeirri sérstöðu að vera eini stað- urinn þar sem sólin bæði sest og rís meðan á henni stendur. Þannig verður hægt að sjá bæði upphaf og endi þvergöngunnar hér. Sævar segist vita til þess að hópar af er- lendum ferðamönnum leggi leið sína hingað af þessum sökum. Selja sérstök gleraugu Á sunnudaginn verður Stjörnu- fræðifélagið með opið hús í Val- húsaskóla á Seltjarnarnesi þar sem fólki gefst kostur á að kaupa sér- stök gleraugu til að geta horft á sól- ina meðan að á þvergöngunni stendur. Þá sýna félagar hvernig hægt er að fylgjast með á öruggan hátt án þess að skaða sjónina. Auk þess verða félagar tilbúnir með sjónauka á lofti þegar stóra stundin rennur upp. „Ef veður leyfir í höfuðborginni ætlum við að koma okkur fyrir við Perluna þar sem við höfum gott út- sýni til norðvesturs og norðausturs. Þvergangan hefst um klukkan tíu en við verðum mættir um níu. Við byrjum á því að skoða sólina, sól- bletti og gos ef eitthvað svoleiðis verður í gangi. Þangað eru líka allir velkomnir,“ segir Sævar. Þvergangan hefst þegar Venus snertir vinstri rönd sólar, ofarlega á skífunni, klukkan 22:04 á þriðjudag en þá er sólin lágt á norðvest- urhimni. Henni lýkur svo klukkan 04:54 á miðvikudag þegar sólin er lágt í norðaustri, samkvæmt upp- lýsingum úr Almanaki Háskóla Ís- lands. Búa sig undir að sjá Venus bera við sólu  Ísland í sérstöðu til að sjá þvergöngu Venusar fyrir sólina  Erlendir ferðamenn til landsins til að sjá viðburðinn Venus er önnur reikistjarnan frá sólinni og sú sjötta stærsta, að- eins minni en jörðin. Hún er nefnd eftir rómversku ástar- gyðjunni og er bjartasta fyrir- bærið á næturhimninum á eftir sólinni og tunglinu. Reikistjarnan er hulin þykk- um lofthjúp sem gerir það að verkum að hitastigið á Venusi er það hæsta á reikistjörnunum, um 480 gráður, sem er nógu heitt til að bræða blý. Funheitur heimur REIKISTJARNAN VENUS Það er dásamleg tilfinning að verða loks Ís- landsmeistari í skák. Ég hef tekið þátt í mótinu 25 sinnum áður,“ segir Þröstur sem komst í landslið Íslands í skák 13 ára gamall. „Þetta er búið að renna mér oft úr greipum þar sem ég hef tvisvar áður lent í öðru sæti,“ segir Þröstur. Hann segir titilinn afrakstur áralangs erf- iðis. „Á meðan aðrir sleiktu sólskinið yfir hvítasunnuhelgina eyddi ég 40-50 klukkutím- um í skák,“ segir Þröstur Þórhallsson, sem varð Íslandsmeistari eftir einvígi við Braga Þorfinnsson. Armageddon Íslandsmótið byrjaði í apríl. Eftir það stóðu þeir Þröstur og Bragi efstir og jafnir. Því háðu þeir fjögurra skáka einvígi með hefð- bundnum umhugsunartíma. Því lauk 2-2. Teflt var til þrautar á miðvikudag í atskák og hraðskák. Eftir það stóðu leikar enn jafnt, 2-2, og var þá gripið til bráðabana sem nefn- ist armageddon. Þar hafði Þröstur betur. Í armageddon er varpað hlutkesti. Sá sem vinnur það má velja um að leika svörtum eða hvítum skákmönnum. Sá sem fær hvítt hefur fimm mínútur á klukkunni en sá sem er með svart er með fjórar mínútur. Hvítur verður að sigra en svartur sigrar á jafntefli. Bragi fékk að velja og valdi hvítt en það dugði ekki til sigurs og Þröstur sigraði eftir snarpa skák. „Það er mikilvægt að koma andstæð- ingnum á óvart. Á þessari tækniöld geta allir séð hvernig maður hefur byrjað skákir áður. Ég ákvað því að koma honum (Braga) á óvart með nýjum byrjunum í samvinnu við Einar Hjalta Jensson og Björgvin Jónsson sem hjálpuðu mér mikið í undirbúningi fyrir skák- irnar.“ Þröstur hefur verið stórmeistari í skák frá árinu 1996 en starfar nú sem fasteignasali. Frá árinu 2000 hefur hann bæði sinnt fast- eignasölu og skák. ,,Það er mjög mikilvægt að geta hvílt sig á skák inn á milli. Golfíþróttin hefur hjálpað mér og ég spilaði golf fyrir ein- vígið til að tæma hugann. Anand sigraði sama dag Allra síðustu ár hefur skákin verið í mikilli sókn og við erum að sjá upprennandi stjörn- ur. Sem dæmi þá vann hin 10 ára Nancy Dav- íðsdóttir Íslandsmót barna í sameiginlegum flokki stráka og stelpna undir 12 ára aldri. Á heimsvísu sjáum við einnig þessa sömu þróun. Yngri skákmenn eru fljótari að komast á meðal þeirra bestu. Til að mynda er stiga- hæsti skákmaður heims, Magnus Carlsen, 21 árs gamall Norðmaður.“ Miðvikudagur var merkilegur fyrir skák- áhugamenn. Þá fór einnig fram heimsmeist- araeinvígi Indverjans Anands og Ísraelans Gelfands. Þeirra einvígi fór einnig í bráða- bana og endaði með sigri Anands, sem er jafnaldri og vinur Þrastar síðan þeir kepptu á heimsmeistaramóti unglinga. ,,Ég byrjaði daginn á því að fylgjast með því í beinni út- sendingu á netinu. Ég var mjög ánægður að sjá þar vin minn Anand vinna sig úr sömu stöðu og ég.“ Þröstur segir það hafa komið sér nokkuð á óvart hvað hann stóð sig vel á nýliðnu Íslandsmóti en þakkar það góðum undirbúningi. Aðspurður hvers vegna hann sé svo góður skákmaður og hvort það sé á allra færi að ná árangri í skák segir hann þetta sambland af vinnu og hæfileikum. „Ég hef þá trú að ef menn fá tækifæri til að þroska hæfileika sína og vinna að sínu séu þeim allir vegir færir.“ Á nóg eftir Þröstur hefur áður verið í þeirri stöðu að heyja úrslitaeinvígi. Hann þakkar því það að hann skyldi ná að halda ró sinni þegar taug- arnar voru þandar til hins ýtrasta í lokin „Ég bý kannski að því að vera reyndari en Bragi. Ég hafði áður háð einvígi við Jón Viktor Gunnarsson fyrir 12 árum og tapaði þá.“ Með sigrinum ávann hann sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum í skák fyrir Íslands hönd. „Oft er talað um það að eftir fertugt hafi skákmenn lifað sitt blómaskeið. Það er ekki algilt. Ég á nóg eftir og er ekki dauður úr öll- um æðum.“ Þröstur er giftur og á þrjú börn. Elsta dótt- ir hans heitir Anna Margrét. Hún er 21 árs og er stödd í Amasonskóginum á ferðalagi. Hann fékk skilaboð frá henni fyrir einvígið um að hún væri viss um sigur hans en hann hefur ekki heyrt í henni síðan þar sem hún er ekki í símasambandi. ,,Hugur minn er hjá henni núna og ég bíð í ofvæni eftir að heyra í henni,“ segir Þröstur. Dásamlegur sigur í 25. tilraun Þröstur Sigurvegari á Íslandsmótinu í skák 2012. Afrakstur áralangs erfiðis.  Þröstur Þórhallsson er Íslandsmeistari í skák  Háði einvígi við Braga Þorfinnsson sem réðst í bráðabana  Hefur tvívegis tapað í lokaeinvígi á Íslandsmóti  Á nóg eftir í skákíþróttinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.