Morgunblaðið - 01.06.2012, Síða 16

Morgunblaðið - 01.06.2012, Síða 16
FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Aldrei hafa fleiri flugfélög haldið úti ferðum til og frá Íslandi en í sumar en þau eru alls 17. Sam- kvæmt tölum frá Isavia fjölgar flugferðum frá landinu um 18 í fyrstu viku júnímánaðar á milli ára. Í fyrra voru þær 231 frá 1.-7. júní en nú er áætluð að þær verði 249. Þá sé gert ráð fyrir um 15-18% fjölgun farþega. Það hefur því verið ljóst um nokkurt skeið að samkeppni á flug- markaði ætti eftir að harðna veru- lega í sumar og hefur þess sést merki í miðaverði undanfarnar vik- ur. Verðstríð hefur geisað á milli lágfargjaldaflugfélaganna Iceland Express og Wow-air. Félögin hafa boðið ferðir aðra leiðina til London og Kaupmannahafnar á allt niður í tæpar tíu þúsund krónur. Verðkönnun ferðavefjarins Túr- ista.is leiðir í ljós að ódýrasta farið með Easyjet, sem flýgur í fyrsta skipti hingað til lands í sumar í júní, kosti næstum því tvöfalt meira en tilboðsferð íslensku lágfargjalda- flugfélaganna tveggja. Vekur spurningar Kristján Sigurjónsson, útgefandi Túrista.is, segir það vekja spurn- ingar að Iceland Express og Wow- air auglýsi svo lág fargjöld rétt fyr- ir háannatímann. „Maður hefði haldið að félögin þyrftu að selja sætin dýrar á sumr- in sem eru háannatíminn en á vet- urna. Þess vegna kemur á óvart að verið sé að bjóða flugmiða tveimur dögum fyrir mánaðamót maí/júní á undir tíu þúsund krónur,“ segir hann. Kristján segir erfitt að segja til um hvort það sé eftirspurn frá Ís- lendingum eða útlendingum sem ráði. Easyjet hafi þó gefið það út að helmingur farþega þeirra hefji ferð- ina á Íslandi. Ekki sé ólíklegt að þetta hlutfall sé hærra hjá Iceland Express og Wow-air sem hafi ekki sömu tækifæri til að kynna sig í Bretlandi og Evrópu. „Eftirspurnin er líklega minni en reiknað var með því að félögin hefðu sennilega ekki lagt af stað með það í byrjun árs að selja flug- miða sumarsins á tíu þúsund krón- ur,“ segir Kristján. Tilboðin dreifist á ferðir Að sögn Heimis Más Pétursson- ar, upplýsingafulltrúa Iceland Ex- press, hefur félagið þvert á móti selt betur í ár en í fyrra á Evr- ópuleiðum sínum. „Það hefur harðnað mjög samkeppnin, sérstak- lega yfir sumartímann þegar sautján flugfélög fljúga hingað. Við höfum verið leiðandi í samkeppn- innni um lágt verð á flugi til og frá Íslandi og ætlum okkur að halda þeirri stöðu okkar áfram,“ segir Heimir Már. Hann segir að tilboðin séu á til- teknum sætum í tilteknum flugferð- um og ekki sé verið að selja í heilu vélarnar á því verði. „Þessi tilboðsverð dreifast á margar flugvélar og eru tiltölulega fá í hverri vél. Við erum með mjög vandaða tekjustýringu. Það verð sem við fáum í heildina fyrir okkar flugvélar er mjög gott og dugar til þess að skila fyrirtækinu eðlilegum arði,“ segir hann. Raunhæft viðmið? Björn Guðmundsson, markaðs- stjóri hjá ferðaskrifstofunni Vita, segist ekki hafa séð eins blóðuga samkeppni á þessum markaði áður. Hann segir lægstu tilboðin ekki endurspegla kostnaðinn við flug- ferðirnar. Á einhverjum tímapunkti hljóti það að hætta að vera hag- kvæmt að bjóða upp á svo mikið af tilboðum. „Samkeppnin er hörð og hún smitast inn í ferðaskrifstofubrans- ann. Tilboðin setja viðmið fyrir fólk hvað sé raunhæft að eyða í ferðalög erlendis. Svo er bara spurning hversu raunhæft það viðmið er,“ segir Björn. Blóðug samkeppni flugfélaganna  Lág tilboð skömmu fyrir háannatíma benda til minni eftirspurnar en búist var við  Verðstríð á milli íslensku lágfargjaldaflugfélaganna  Iceland Express segist hafa bókað meira í sumar en í fyrra 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012 Jómfrúarflug flugfélagsins Wow-air var farið frá Keflavíkurflugvelli í gær og var förinni heitið til Par- ísar þar sem lent var á Charles de Gaulle-flugvelli. Formlegt áætlunarflug félagsins til 13 áfangastaða í Evrópu hefst á sunnudag. Flugfélagið hefur á að skipa tveimur 168 sæta Airbus A320-vélum í flugflota sínum en þær eru leigðar frá Avion Express. „Við erum verulega stolt af því að vera að hefja okkur til flugs. Þetta eru spennandi tímar, en við teljum ferðamannamarkaðinn á Íslandi vera að stækka og ætlum okkur hlut í þeirri köku. Við von- umst til að sjá áframhaldandi fjölgun í heimsóknum erlendra ferðamanna til og frá Íslandi en einnig von- umst við til að sjá aukningu hjá íslenskum ferða- mönnum í kjölfar batnandi efnahagsástands og lækk- andi flugfargjalda,“ er haft eftir Baldri Oddi Baldurssyni, forstjóra Wow-air, í tilkynningu frá fyr- irtækinu. Þar segir ennfremur að nú þegar starfi 80 manns hjá fyrirtækinu en verið sé að ráða fjölda starfs- manna til viðbótar. Alls hafi 450 manns sótt um stöð- ur sem félagið auglýsti á dögunum. Fyrirtækið segist leggja mikla áherslu á einstaka þjónustu sem muni skila sér í mun léttari og skemmtilegri ferðaupplifun en Íslendingum hafi áður staðið til boða. Tekið er fram í tilkynningunni að fé- lagið vilji samsama sig flugfélögum á borð við Virg- in, South West og Kulula. Þá segir að eitt af markmiðum Wow-air sé að gera flugferðir til og frá Íslandi ódýrari en áður hafi sést. Nú þegar megi merkja lækkun fargjalda með til- komu flugfélagsins, að því er segir í tilkynningunni. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar Upphaf Áhöfn vélar Wow-air ásamt forsvarsmönnum fyrirtækisins skömmu fyrir fyrstu flugferðina á Keflavíkurflugvelli í gær. Wow-air hefur sig til flugs í fyrsta sinn Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Formaður velferðarráðs Reykjavíkur- borgar segir að rekstur Fríðuhúss í Reykjavík sé á ábyrgð ríkisins og vel- ferðarráðherra segir að ekki séu til peningar hjá ríkinu til að standa straum af taprekstri hússins, sem var sex milljónir króna á liðnu ári. Hins vegar sé þjónustan nauðsynleg og finna þurfi lausn á fjárhagsvandanum. Félag áhugafólks og aðstandenda alzheimersjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma, FAAS, fékk Fríðu- hús við Austurbrún að gjöf og hefur rekið þar dagvist fyrir fimmtán ein- staklinga í rúm ellefu ár. Húsið er óhagvæm rekstrareining, en ekki hef- ur fengist leyfi til að fjölga fólki í dag- vistuninni. Guðbjartur Hannesson velferðar- ráðherra segir að þjónustan sé nauð- synleg en spurning hvort eðlilegt sé að veita aukið fé í óhagkvæma rekstr- areiningu. Þetta þurfi að ræða og verði tekið fyrir á fundi með fulltrúum FAAS í næstu viku. „Þetta er gríðarlega þörf starfsemi og mikilvæg,“ segir Guðbjartur Hann- esson og bætir við að fullur vilji sé til þess að leysa vandann með FAAS. Hann leggur áherslu á að unnið sé samkvæmt fjárlögum og engar auka- fjárveitingar séu fyrir hendi til þess að bæta við. Hafa beri í huga að FAAS hafi sett í gang viðurkennda starfsemi miðað við ákveðnar forsendur og skoða þurfi hvort það sé réttlætanlegt að greiða meira vegna aðstæðna. Því hafi verið hafnað við síðustu fjár- lagagerð. „Við getum ekki tekið að okkur hluta af rekstrinum,“ segir Björk Vil- helmsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, og leggur áherslu á að daggjöldin frá ríkinu eigi að standa undir rekstri dagþjónustu eins og sé í Fríðuhúsi. Húsnæðiskostnaður sé hluti af rekstrarkostnaði hverrar dagþjónustu og allur þessi kostnaður sé á hendi ríkisins. Björk segir það mjög alvarlegt mál ef Fríðuhúsi yrði lokað. Hún bendir á að í gangi séu viðræður milli ríkis og sveitarfélaga um að málefni aldraðra fari yfir til sveitarfélaganna og þegar það gerist verði væntanlega sett fjár- magn í uppbygginguna. Ríkið á ekki peninga í taprekstur Fríðuhúss Guðbjartur Hannesson Björk Vilhelmsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.