Morgunblaðið - 01.06.2012, Page 39

Morgunblaðið - 01.06.2012, Page 39
Það er lífsins gangur að unga fólkið eignast maka og þar með nýja tengda- fjölskyldu, í viðbót við sína eigin. Kjartan Páll okkar fékk að kynn- ast því fyrir fáeinum árum, þegar hann fór að vera með henni Hörpu frá Húsavík. Honum var strax tekið opnum örmum af Ás- geiri heitnum og Hafdísi. Það fór ekki framhjá neinum að hjá Ás- geiri var velferð fjölskyldunnar í fyrirrúmi. Hann dekraði svo sannarlega við sína nánustu, af mikilli alúð. Þau hjón munaði ekki um að bæta foreldrum og systkinum Kjartans við í hópinn sinn. Við erum afar þakklát fyrir að hafa fengið að njóta einstakrar gestrisni og velvildar þeirra hjóna. Í návist Ásgeirs leið öllum vel, jafnt ungum sem öldnum. Sama hvort fótbolta eða fiskveiðistjórn- un, álver eða atvinnusköpun bar á góma, ræddi Ásgeir það for- dómalaust, af áhuga og innlifun. Í heimsókn í Sólbrekkunni var gjarnan byrjað á kaffisopa og meðlæti. Fljótlega fór Ásgeir að kíkja út um gluggann og niður að sjó. Svo heyrðist: „Jæja, strákar, eig- um við ekki að kíkja í smá túr?“ Og það var ekki að sökum að spyrja, litlu frændurnir fengu að fara í veiðiferð á trillunni hans Geira. Á trillunni voru réttu handtökin æfð, nokkrir þorskar dregnir um borð og ungir sjó- menn upplifðu ævintýri sem aldr- ei gleymist. Á kveðjustundu erum við þakklát fyrir að hafa kynnst þeim öðlingsmanni sem Ásgeir var. Við minnumst með söknuði og virðingu hans hlýja og þægilega viðmóts. Hugur okkar og samúð ✝ Ásgeir Þórðar-son fæddist á Húsavík 14. ágúst 1957, hann lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 10. maí 2012. Útför Ásgeirs fór fram frá Húsa- víkurkirkju 19. maí 2012. er hjá eftirlifandi fjölskyldu; eigin- konu, dætrum, afa- stelpum og móður. Þórarinn, Inga, Atli Sveinn, Halla og synir. Nú kveðjum við einhvern hjartahlýj- asta mann sem ég hef kynnst. Frændi minn og pabbi bestu vinkonu minnar. Þó svo að þetta geti á engan hátt sýnst réttlátt þá trúir maður því að á himnum hafi vant- að reyndan sjómann til veiða. Þar verðurðu líka í góðum félgasskap með afa Dodda þar sem þið getið getið róið á sjóinn í blíðskapar- veðri alla daga og haft það náð- uðgt, feðgarnir, eins og þið voruð vanir að hafa það. Ég man alltaf eftir því þegar við Harpa og fleiri vorum að spila kana, þú komst alltaf og leist á okkur til að athuga hvort að við værum ekki að gera þetta eins og á að gera þetta, enda voru fáir sem stóðust þig í kana. Ég er þakklátur fyrir tímann sem ég fékk að eiga með þér, þú varst alltaf til í að spila eða leika við okkur krakkana eða hafa ofan af fyrir okkur á einn eða annan hátt, þannig varst þú bara, ein- hvernveginn gast þú alltaf séð af tíma fyrir okkur. Ég veit að þú munt núna vaka yfir fallegu fjöl- skyldunni þinni, yndislegu kon- unni þinni og fallegu dætrum þín- um og barnabörnum. Minn hugur er hjá þeim og ég mun halda minningu þinni á lofti með þeim. Jón Friðrik Þorgrímsson. Þá er kallið þitt komið, og það kom því miður allt of snemma. Sorgin er sár og söknuðurinn mikill því að í kringum þig geisl- aði af þér kærleikurinn og um- hyggjan. Frá því að ég hitti ykkur Haf- dísi fyrst hefur mér alltaf verið tekið opnum örmum og þú vildir allt fyrir mann gera svo að manni mundi líða vel. Á meðan við Harpa bjuggum fyrir sunnan var samt sem áður mikill samgangur á milli okkar og þið voruð dugleg að renna suður og líta inn hjá okkur. Ef við vorum á sitthvorum landshlutanum gátum við stólað á símtal frá þér þar sem þú spurðir hvort við hefðum ekki örugglega horft á Útsvarið. Einnig áttum við tveir margar góðar stundir fyrir framan sjón- varpið að ræða málin með kaffi- bolla í hönd og ÍNN malandi í bakgrunninum. Allt sem ég tók mér fyrir hendur, sama hversu ómerkilegt mér fannst það vera, þá spurðir þú hvernig gengi og hlustaðir af áhuga. Ég mun aldrei gleyma því þegar heilsan þín var orðin mjög slæm og þú eyddir öllum þínum kröftum í það að spyrja mig hvernig gengi á veiðinámskeiði. Í ljósi aðstæðna var þetta það síð- asta sem ég var að hugsa um, en fyrir þér skipti það öllu máli að maður væri ánægður og gengi vel. Elsku Ásgeir, þín er sárt sakn- að og öllu sem við áttum eftir að gera saman í þessu lífi er ég viss um að við náum í því næsta. Kveðja, Kjartan. Nýlega var jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju elskulegur vin- ur minn, nafni og frændi Ásgeir Þórðarson. Illvígur sjúkdómur lagði þennan sterklega hrausta mann sem hafði sjómennskuna sem sitt ævistarf. Við nafnarnir brölluðum margt á okkar yngri árum enda stutt á milli æsku- heimila okkar og mikill samgang- ur. Í gegnum lífið höfum við fylgst hvor með öðrum í leik og starfi og notið fjölmargra sam- verustunda sem nú verða geymd- ar í huga mér sem dýrgripir væru. Að þú kæri vinur skulir vera kallaður frá okkur svona allt of ungur er mikill harmur fyrir fjöl- skyldu þína, vini og samfélagið allt. Dugmikill, áræðinn og ósér- hlífinn drengur og vildir alltaf öðrum vel og varst tilbúinn til að takast á við það sem lífið færði þér. Þessir eiginleikar þínir fylgja þér inn yfir landamærin og eflaust bíða þín önnur og krefj- andi verkefni. Megi algóður Guð styrkja og styðja ástvini þína í þeirra miklu sorg, minning um góðan dreng lifir áfram í hugum okkar allra. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Ásgeir Kristjánsson. Elsku Ásgeir minn, mikið er þetta skrítið líf, nú varst þú kvaddur til annarra starfa annars staðar eða allvega verður maður að trúa því til að halda sönsum yf- ir þessu öllu saman. Ég var mjög lánsöm að eiga þig sem ferða- félaga og spilafélaga en fyrst og fremst sem vin. Þær voru ófáar sumarbústaða- ferðirnar sem við fórum fjögur saman í og spiluðum eins og eng- inn væri morgundagurinn, lágum í pottinum með Camusi vini okk- ar, þetta voru dásamlegar ferðir og margs að minnast. Svo varstu svo duglegur að kalla vini þína heim í veislur, svartfuglsveislu, grásleppuveislu sem ég hlakkaði alltaf svo til að koma í. Hvíldinni varstu örugglega feginn þó kallið hafi komið alltof snemma. Hvíldu í friði, elsku vinur, og minning lif- ir um góðan og fallegan mann. Hafdís, Arna, Harpa og fjöl- skyldur. Guð styrki ykkur á þess- um erfiðu tímum. Rósa Borg. Ásgeir Þórðarson MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012 Mannlegu valdi eru takmörk sett, hið óhugsandi stundum óumflýjanlegt. Það er erfiðara en orð fá lýst að kveðja Garðar, tengdason minn, 33 ára að aldri. Hversdagsleg orð duga vart því Garðar var allt annað en hversdagslegur. Hann var ein- stakur karakter og tókst iðulega að hrinda því sem viðbúið var, í lífi sínu, veikindum og leiðarlokum. Styrkur hans og baráttuþrek eiga sér fáa líka. Garðar og Andrea dóttir mín hittust fyrir sex árum og urðu strax óaðskiljanleg. Í ljósi veik- inda hans tóku þau sér tíma til að ákveða sig um sambandið en nið- urstaðan var fyrirfram gefin. Þau nutu lífsins saman en ekki síður hvort annars þegar á reyndi. Lín- ur úr Spámanninum eftir Kahlil Gibran hafa síðustu vikur og mán- uði öðlast dýpri merkingu: Garðar Skagfjörð Björgvinsson ✝ Garðar Skag-fjörð Björg- vinsson fæddist í Reykjavík 3. jan- úar 1979. Hann lést á heimili sínu 22. apríl 2012. Jarðarför Garðars fór fram í kyrrþey. Og sá einn er stór, sem með ást sinni breytir þyt vindsins í ljóð og söng. Að vinna er að sýna ást sína í verki. Það er vandaverk að vera manneskja: Að vinna með og úr þeim aðstæðum sem uppi eru. Að skapa heimili, gleði og líf en vinna líka úr mótlæti og áföllum. Að rækta ást sem breytir þyt vindsins í ljóð og söng. Að tak- ast á við líf og dauða. Andrea og Garðar náðu þrátt fyrir ungan ald- ur að vera hvort öðru styrkur þeg- ar lífið sjálft lá undir. Það var fal- legt að horfa á samspil þeirra, þau voru stór. Garðar var lífsglaður dugnaðar- forkur, undi illa iðjuleysi en naut sín sem gestgjafi og þegar hann gerði fólkinu sínu gott. Við kynnt- umst þeim eiginleikum snemma, ef veikindi steðjuðu að sýndi Garðar hug sinn, hann þekkti þau spor manna best. Umhyggjan var ein- læg, hjartalagið einstakt, hann var glettinn, skemmtilegur og afar hreinskiptinn. Fyrir þremur árum veiktist Garðar alvarlega og ágerðust veik- indin síðasta árið. Oft stóð líf hans tæpt en þá kom þrautseigja hans best í ljós. Hann spyrnti fast á meðan viðspyrnu var að fá en að lokum fann hann að fótfestan var haldlítil. Hann sýndi þá fádæma reisn og hugrekki, valdi að gefa sjálfum sér og fólkinu sínu kveðju- stund, vera heima og njóta fylgdar ástvina til enda. Ég er óendanlega þakklát fyrir umhyggju hans þá því hann notaði tækifærið til að hvetja Andreu áfram til lífsins eft- ir að hann hyrfi á braut. Gleði og sorg eru samtvinnuð, dýpsta sorg oft nátengd mestu gleði. Á apríldegi var Andrea ásamt fjölskyldu Garðars við hlið hans og hið óumflýjanlega blasti við. Hún var svo glöð því Garðar átti góðan dag, miklu betri en búist var við, og yfir hvað hann væri ein- stakur og hver mínúta með honum dýrmæt. Gleði og sorg voru sam- ferða þann dag. Garðar skildi þannig við Andreu sína, og hún við hann, að í sorginni búa þakklæti og gleði sem milda hana. Í Spámann- inum stendur: Þegar ástin kallar þig, þá fylgdu henni, þótt vegir hennar séu brattir og hálir. Og láttu eftir henni, þegar vængir henn- ar umvefja þig, þótt sverðið, sem falið er í fjöðrum þeirra, geti sært þig. Og þegar hún talar til þín, þá trúðu á hana. Ég kveð Garðar með þakklæti fyrir samfylgdina og kærleika hans til dóttur minnar og fjöl- skyldu. Við pössum upp á Andreu eins og við lofuðum. Soffía Guðný Guðmundsdóttir. Elsku Garðar minn. Nú þegar lífi þínu er lokið og þú hefur kvatt þennan heim tekur við gífurlegur missir og sorg. Það er sárt að hugsa til þess að þú sért farinn og óskandi að tíminn með þér væri lengri. En þrátt fyrir sorgina býr gleði og gífurlegt þakklæti innra með mér. Óskap- lega vorum við heppin að þú varðst partur af fjölskyldunni. Að þú tókst saman við systur mína og ég fékk tækifæri til að kynnast þér var guðsgjöf sem ég verð ávallt þakklát fyrir enda varstu einstakur í alla staði. Þú varst sannarlega engum lík- um. Gerðir allt á þinn veg og með þínum hætti, og þar skipti álit annarra engu máli. Þú komst allt- af hreint fram, sagðir hlutina án allra málalenginga, varst einstak- lega hreinskilinn og óhræddur við það. Þú varst bara Garðar, fólk tók þér eins og þú varst eða ekki. Einstök umhyggjusemi einkenndi þig og fjölskylda þín og vinir voru þér alltaf ofarlega í huga. Ég gleymi aldrei símtalinu fyr- ir um 4 árum þegar þú baðst mig um að passa þig. Þú spurðir mig hvort ég gæti ekki komið til ykkar Andreu, gist nokkrar nætur, passað þig og veitt þér fé- lagsskap. Þú varst nýkominn úr aðgerð og Andrea í vinnu á dag- inn. Ég tók glöð pössunarstarfinu en gantaðist með að þú fengir litlu systur unnustu þinnar til að passa þig, fullorðinn mann. Svarið var að sjálfsögðu glettið og ósköp hreinskilið. Fyrst Andrea gat ekki séð um þig var eins gott að önnur hvor systir hennar gerði það. Á þessum dögum eyddum við góðum stundum saman, horfðum á myndir, spiluðum tölvuleiki og spjölluðum um allt og ekkert. Það var ávallt gott að koma til ykkar og þú varst frábær gestgjafi. Þú skipaðir stóran sess á 20 ára afmælinu mínu. Þú sem lást þá uppi á spítala, bauðst mér íbúðina fyrir ógleymanlega afmælis- veislu. Ég fór svo í heimsókn til þín á spítalann á afmælisdaginn þar sem ég féll í yfirlið. Hvaða sjúklingur annar en Garðar stekkur upp og lætur gestinn fá sjúkrarúmið sitt? Þarna rankaði ég við mér í rúminu þínu með alla athygli hjúkrunarfólksins en sjúklingurinn stóð og beið rólegur á meðan ég jafnaði mig. Þú stríddir mér oft yfir þessu síðar, passaðir samt upp á mig og varst stoltur af mér í heimsóknum þar sem ég hrifsaði ekki af þér spít- alarúmið. Er ég kveð þig, elsku Garðar, langar mig að þakka fyrir allt sem þú hefur gefið mér og fjölskyld- unni, fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Takk fyrir að stimpla þig jafn rækilega inn í líf okkar og þér einum var lagið. Takk fyrir dýr- mætu stundirnar sem við fengum að njóta saman, á bæði ljúfum og erfiðum tímum. Takk fyrir að taka alltaf vel á móti okkur, hvort sem það var á spítalanum eða heima. Takk fyrir alla þá um- hyggju og ást sem þú sýndir okk- ur. Síðast en ekki síst – takk fyrir að hafa gert hana Andreu þína hamingjusama og deila með henni óbilandi ást. Það er dýrmætasta gjöfin sem þú gafst mér. Garðar, þú auðgaðir líf okkar, gafst okkur gleði og hamingju og sýndir okkur styrk og hugrekki sem við vissum ekki að væri til. Fyrir það munt þú aldrei gleym- ast heldur ávallt lifa í hjörtum okkar. Takk fyrir að vera þú. Helga Lára. Garðar var besti frændi minn, hann var skemmtilegur, fyndinn og góður. Hann kenndi mér ým- islegt eins og að skjóta af boga. Garðar og Andrea fóru einu sinni með mig út á sjó að veiða og við veiddum í kringum 35 fiska en við fengum einn gefins. Við fórum líka á veitingastað þar sem Garðar kenndi mér trix með penna og bréfi. Ég fékk stundum að leika við Garp sem var brúnn hvolpur með löng eyru. Hann var algjör kjáni og mjög sætur. Þegar ég lenti á spítala þá komu Andrea og Garðar í heim- sókn með tvær „Ótrúlegt en satt“ bækur og allar seríurnar af „Fut- urama“. Ég var mjög glöð af því að Garðar vissi hvernig það væri að vera á spítala. Ég kom líka til hans á spítal- ann, hann var svo sterkur og hug- rakkur. Mér þótti svo vænt um hann og hann var hetjan mín að geta þolað þetta allt. Hann var al- veg æðislegur og duglegur. Snædís. Jóhanna Kristín Guðjónsdótt- ir Hjaltalín og móðir mín voru systur. Þau hjón fluttu til Reykjavíkur eftir að við mæðg- ur fluttumst úr sveitinni í kreppunni. Móðir mín hafði íbúð á leigu og gat boðið stofu ásamt sameiginlegu eldhúsi, þar sem systurnar elduðu í sátt og samlyndi. Mikið var gott að koma heim úr skólanum þar sem Fríða frænka stóð við elda- vélina með heitan matinn, en hún var myndarkona til munns og handa og kattþrifin. Við Hanna frænka urðum vinkonur, lásum lexíurnar okkar og lékum okkur að dúkkunum. Hanna fór í Ingimarsskólann. Hún var námsmanneskja, vel gefin, samviskusöm og prúð- mennskan uppmáluð. Ég var í barnaskóla Miðbæjar, fjórum árum yngri og ærslafengin, en samt urðum við vinkonur og héldum sambandi meðan hún lifði. Mamma skrapp út í Bro- key eftir að Hanna var orðin húsfreyja, og eftir að hún eign- aðist eigið húsnæði átti Bro- keyjarfólkið vísan verustað þar. Ég réð mig hjá Rauða kross- inum á stríðsárunum að gæta barna sem voru send úr bænum vegna loftárásahættu. Ég lenti í Stykkishólmi og þekkti engan. En Brokey var ekki langt und- an og þar var Hanna frænka húsmóðir. Þær frænkur Ingi- björg og Jóhanna höfðu ráðið sig í kaupavinnu. Þar voru fyrir tveir bræður, Jón og Vilhjálm- Jóhanna Kristín Guðjónsdóttir Hjaltalín ✝ Jóhanna Krist-ín Guðjóns- dóttir Hjaltalín fæddist í Reykja- dalskoti í Hruna- mannahreppi 22. sept. 1918. Hún lést á Sjúkrahúsinu í Stykkishólmi 30. apríl 2012. Jóhanna var jarðsungin frá Stykkishólms- kirkju 15. maí 2012. ur, og þeir létu ekki þessar frænkur sér úr greipum ganga. Þær voru mikil hús- móðurefni. Þeir byggðu stórt íbúð- arhús sem rúmaði báðar fjölskyldurn- ar. Gaman var að koma í Brokey þá og seinna með börnum mínum. Allt umhverfið nýstárlegt, bú- skaparhættir, æðarvarpið, sjór- inn, bátarnir, turninn sem við klifum upp í til að sjá útsýnið yfir eyjarnar óteljandi á Breiða- firði. Þarna risu þær fagur- grænar í kollinn, svartir klett- arnir upp úr fagurbláum sænum. Fuglalífið fjölbreytt, allt frá smáfuglum upp í stóra sjófugla. Eitt sinn þóttist ég sjá örn á hreiðri. Eitt sinn fórum við með krakkana að Hólmlátri. Óskap- lega var vegurinn illur yfirferð- ar. Annað en núna. Fegin urð- um við þegar Vilhjálmur sótti okkur. Seinna var ég stödd á Gröf í Miklaholtshreppi. Þá hringdi ég í Jóhönnu og hún bauð okkur öllum. Svona var gestrisnin. Einu sinni fór móðir mín með Guðrúnu nöfnu sína út í Bro- key. Þær voru þar í viku. Það var farið á bát að smala fé og Gúa bað um að fá að verða áfram. Fundum okkar fækkaði með árunum. Þau Brokeyjarhjón keyptu hús í Stykkishólmi. Vil- hjálmur lést á undan Jóhönnu á Sjúkrahúsi Stykkishólms, en hún fór á Dvalarheimili aldr- aðra. Ég vil þakka börnum hennar skemmtilegar samveru- stundir, ekki síst Steina sem flutti okkur mæðgur á sínu fagra fleyi út í Brokey í fyrra. Þá hittum við Hönnu í síðasta sinn. Henni lýsa best orðin: Væn kona, hver hlýtur hana? Hún er meira virði en perlur. Unnur Kolbeinsdóttir. Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.