Morgunblaðið - 18.06.2012, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2012
Paul McCartney 70 ára
Afmælistónleikar í Eldborg Hörpu
18. júní kl. 20:00
Miðasala á harpa.is
midi.is
í miðasölu Hörpu og
í síma 528 5050
OB-LA-DI OB-LA-DA
Frakkastígur 8
Baldur Arnarson
Ingvar P. Guðbjörnsson
„Á fáum árum hefur á Íslandi verið lagður
grunnur að nýju og betra samfélagi þar sem
ríkir mun meiri fjárhagslegur jöfnuður, meira
félagslegt réttlæti og leikreglurnar eru heil-
brigðari en fyrir hrun. Þegar litið er til aukins
jöfnuðar höfum við satt að segja náð mun
lengra en mig dreymdi um, þegar ég stóð hér
fyrir þremur árum,“ sagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra í hátíðarræðu á Aust-
urvelli í gær.
Meiri hagvöxtur en víða
„Um tveggja ára skeið hefur hagur okkar Ís-
lendinga batnað á ný og batinn er umtalsvert
meiri en í flestum þeim löndum sem við helst
viljum bera okkur saman við. Ég finn vel á
fundum með leiðtogum annarra ríkja að þeir
fylgjast af áhuga með þeim jákvæðu breyting-
um sem átt hafa sér stað hér á landi frá hruni,“
sagði Jóhanna og vék að fyrirhuguðum breyt-
ingum á fiskveiðikerfinu.
„Þá treysti ég því að Alþingi beri gæfu til að
samþykkja á yfirstandandi þingi lög sem
tryggja þjóðinni langþráðan og sanngjarnan
arð af fiskveiðiauðlindinni. Arður þjóðarinnar
getur á næstu árum numið tugum milljarða
króna, ef vel árar eins og undanfarin ár en á
sama tíma yrðu góð rekstrarskilyrði vel rek-
inna fyrirtækja í sjávarútvegi tryggð. Ekkert
má stöðva að þetta mál nái fram að ganga,“
sagði Jóhanna sem kvaðst ekki hafa upplifað
jafn hatrömm átök í stjórnmálunum á 34 ára
ferli sínum sem þingmaður og ráðherra.
Ekki náðist í forsætisráðherra í gær.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, seg-
ir ekki koma til greina að meirihlutinn afsali
sér ákvörðunarvaldi um afgreiðslu og inntak
mála í hendur minnihlutans á Alþingi.
„Það væri þvílíkur ábyrgðarhluti að gera
það og kemur auðvitað ekki til greina. Nú held
ég að þau verði að fara að átta sig á því að þau
hafa sótt þetta það langt að þeim verður ekki
hleypt lengra,“ sagði Steingrímur sem svarar
svo spurður um þinglok:
„Annaðhvort fæst botn í þetta á einum til
þremur næstu dögum eða sumarþing blasir
við. Þannig met ég stöðuna, en ég tala þar bara
fyrir mína hönd.“
Var að benda á hið augljósa
Steingrímur var spurður út í ummæli sín á
Bylgjunni um mögulega endurskoðun á ESB-
umsókninni. „Ég var aðeins að benda á hið
augljósa að ef forsendur breytast þá hljótum
við auðvitað að setjast niður og fara yfir það
hvort það kalli á endurskoðun á þeirri stefnu
sem við höfum unnið eftir,“ sagði Steingrímur
sem telur aðspurður að færa megi rök fyrir því
að slíkar forsendur hafi skapast.
„Já, sumpart hafa hlutir þróast með öðrum
hætti en menn reiknuðu með 2009 en að öðru
leyti ekki. Ég hef talað alveg skýrt í þeim efn-
um að mér finnst mjög mikilvægt að við fáum
sem mest út úr þessu og vitum hvar við stönd-
um. En það þýðir heldur ekki að við getum ekki
ef aðstæður kalla á það sest niður og endur-
metið stöðuna. Það hljóta stjórnvöld hvers
tíma alltaf að áskilja sér rétt til að gera og í
okkar tilviki, Vinstri grænna, var það alveg
ljóst að við áskildum okkur slíkan rétt. Auðvit-
að hefur ýmislegt á dagana drifið síðan vorið
2009. Það er ekki hægt að neita því. Þetta hafa
verið sviptingatímar í Evrópu og eru enn.“
Árangurinn umfram væntingar
Jóhanna Sigurðardóttir segir endurreisn Íslands hafa gengið betur en hana dreymdi um árið 2009
„Ekkert má stöðva“ afgreiðslu sjávarútvegsfrumvarpa Formaður VG segir sumarþing í myndinni
Morgunblaðið/Ómar
Á þjóðhátíðardag Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra flytur hátíðarræðu á Austurvelli.
Guðrún Vala Elíasdóttir
Borgarnesi
,,Ég vaknaði við einhvern hávaða,
eins og brest eða sprengingu. Ég
leit á klukkuna og sá að hún var
bara fjögur, en eitt augnablik
hvarflaði að mér að Dariusz væri
vaknaður og á leið til vinnu,“ segir
Grzegorsz Sienkiewicz, eigandi og
íbúi í Dal, húsinu sem kviknaði í sl.
fimmtudagsmorgun í Borgarnesi.
Dorota Przymont, unnusta Grze-
gorsz, slasaðist alvarlega er hún
stökk út úr brennandi húsinu.
Henni hefur verið haldið sofandi á
gjörgæsludeild en hún höfuðkúpu-
brotnaði og hlaut auk þess fleiri
beinbrot á efri hluta líkamans. Líð-
an hennar er stöðug. Dorota starf-
aði í Hyrnunni og hefur dvalið á Ís-
landi í fimm mánuði.
Grzegorsz flutti til Íslands frá
Póllandi og hefur búið hér frá árinu
2005. Hann keypti húsið árið 2007
en það er eitt af elstu húsunum í
Borgarnesi, bárujárnsklætt timb-
urhús. Dariusz er frændi Grzegorz
og kom til landsins fyrir rétt tæp-
um þremur vikum til að vinna hjá
Loftorku. Þrátt fyrir þetta áfall
ætlar hann vera áfram hér, hafði
verið á Íslandi áður og líkar vel.
Þeir búa nú tímabundið á Farfugla-
heimilinu í Borgarnesi.
Reyk lagði niður stigann
,,Ég fór fram á gang og sá þá
reykjarmökk leggja niður stigann,
en uppi í risi sváfu bæði Dorota og
Dariusz“. Grzegorz var mjög
brugðið þegar hann áttaði sig á að
hvað var að gerast og hann hrópaði
á þau. Við það vaknaði Dariusz og
hljóp niður en þegar engin við-
brögð komur frá Dorotu renn-
bleytti Grzegorsz svefnpoka og
hafði fyrir sér og reyndi að opna
dyrnar að herbergi hennar. Þá kom
eldhaf á móti honum og ekki annað
að gera en koma sér niður og út.
Stuttu síðar sáu þeir Dorotu liggja
á stéttinni fyrir framan húsið með-
vitundarlausa og blóðuga, en hún
hafði stokkið út um gluggann.
,,Sem betur fer kom aðstoð mjög
fljótt og Dorota var flutt fyrst með
sjúkrabíl og svo þyrlu á sjúkra-
húsið í Fossvoginum en þangað var
hún komin klukkan rétt rúmlega
fimm.“
Upptök eldsins voru í risinu fyrir
framan herbergi Dorotu, en verið
er að rannsaka orsakir brunans.
Þrír reykskynjarar voru í húsinu
en svo virðist sem enginn þeirra
hafi farið í gang.
,,Sem betur fer náði ég að grípa
jakkann sem hékk í forstofunni
með mér út, en í honum var veskið
mitt, sími og skilríki. Dariusz aftur
á móti komst einungis út á stutt-
buxum og bol og allir hans papp-
írar brunnu, vegabréf og öku-
skírteini.“
Með rennblautan svefn-
poka gegn eldinum
Kona sem stökk út úr brennandi húsi í Borgarnesi enn á
gjörgæsludeild Enginn þriggja reykskynjara fór í gang
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Frændur Grzegorsz og Dariusz framan við húsið sem hugsanlega er ónýtt.
Húsið er mjög illa farið og
sennilega ónýtt, risið brann til
kaldra kola og annað er mikið
skemmt af reyk, sóti og vatni.
Innbúið var ótryggt og fjöl-
skyldan er allslaus.
Þeir sem vilja og geta styrkt
þau geta lagt fjárupphæðir inn
á reikning Grzegorsz (0354-26-
4558 kt. 040780-2629) en
einnig má snúa sér til Rauða
krossins, Borgarfjarðardeildar, í
síma 857-7100.
Húsið senni-
lega ónýtt
INNBÚIÐ VAR ÓTRYGGT
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ég á í grundvallarágreiningi við Jó-
hönnu þegar hún segir að það sé
hægt að skattleggja greinina svo
mikið og halda um leið að greinin
muni samt skila góðri afkomu. Þegar
rætt er um að greinin eigi að skila
arði til þjóðarinnar erum við líka að
tala um að hér séu rekin heilbrigð
fyrirtæki með rekstrarafgangi fyrir
fjárfestingu og annað. Þetta er því
byggt á miklum misskilningi eins og
þessi málatilbúnaður allur,“ segir
Ólöf Nordal, varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins, spurð um ummæli
forsætisráðherra um sjávarútveg í
háttíðarræðunni í gær.
Ólöf segir sérstaka veiðigjaldið
sem nú er rætt um, 12,7-13,5 millj-
arða króna, vera alltof of hátt.
„Veiðigjöldin,
eins og þau eru
núna, eru feiki-
lega há. Þau eru
langt, langt fyrir
ofan það sem
eðlilegt getur tal-
ist. Svo er alveg
óljóst hvaða áhrif
þau munu hafa
fyrir greinina og
þar með á afkomu okkar allra. Skort
hefur á að litið sé á heildarsamhengi
hlutanna. Ef það á að skattleggja at-
vinnugrein sérstaklega sem borgar
nú 5 milljarða í tekjuskatt og bæta á
hana 13 milljörðum til viðbótar með
veiðigjaldi er ekki hægt að halda því
fram að það muni ekki hafa áhrif á
svigrúm hennar til fjárfestingar.“
Haldið áfram endalaust
Ólöf segir eina vitið að hlé verði
gert á þingstörfum. „Spurningin er
hverju þetta skilar. Það gengur ekki
að ef ríkisstjórnin kemur ekki sínum
málum fram eigi þingið að halda
áfram út í hið óendanlega.“
Þrátefli sem
skilar ekki neinu
Ólöf Nordal
Varaformaður
Sjálfstæðisflokks
vill hlé á þingi