Morgunblaðið - 18.06.2012, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2012
Garðar
Tökum garðinn í gegn!
Klippingar, trjáfellingar, beða-
hreinsanir, úðanir og allt annað sem
við kemur garðinum þínum.
Áratuga reynsla, skilvirk vinnubrögð
og umfram allt hamingjusamir
viðskiptavinir.
20% afsláttur eldri borgara.
Garðaþjónustan: 772-0864.
Gisting
Orlofsíbúðir - Hótel Sandafell
Njótið náttúrufegurðar Dýrafjarðar.
Orlofsíbúðir til leigu og hótelgisting.
Sími 456 1600.
gisting@hotelsandafell.com
Sumarhús Til sölu Sumarbústaðaland
Eignaland. Hentar vel fyrir hjóhýsi.
Upplýsingar í síma 824-3040
Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru
moltugerðarkassar
Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir
- réttar lausnir. Vatnsgeymar frá 300
til 50.000 lítra. Lindarbrunnar.
Borgarplast.is
Mosfellsbæ. S. 561 2211.
Gestahús, ósamansett, til sölu
stærð 5 x 4 m. Verð kr. 870.000.
Spónasalan ehf.
Uppl. í netpósti:
Snotra1950@gmail.com
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Saumavélar- saumavélaviðgerðir
Nýjar og notaðar saumavélar í úrvali.
Viðgerðir á flestum gerðum sauma-
véla. Skoðaðu úrvalið á saumavelar.is
eða hringdu í s. 892 3567 eftir
hádegi alla daga.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
N.P. þjónusta. Óska eftir bókhalds-,
eftirlits- og gæslustörfum.
Hafið samband í síma 893 7733.
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897 9809.
Bílamerkingar
Fyrir allar stærðir og gerðir bíla.
Sendið fyrirspurn á
audmerkt@audmerkt.is
Eða skoðið heimasíðu okkar
www.audmerkt.is
Bátar
Til sölu Sómi 800: Mímir SF 11
6757, smíðaður 1986, Volvo Penta
230, árgerð 2000. Nýtt rafmagn, ný
siglingatölva, maxsea time zero, nýr
dýptarmælir 50/200, ný sjálfstýring,
fjórar DNG-tölvurúllur og nýmálaður.
Uppl. síma 893 1563.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi
fannar@fannar.is - s. 551-6488
Fellihýsi
Palomino Colt til sölu
Til sölu er Palomino Colt-fellihýsi.
Skráð ´06 en fór á götuna ´07.
Fortjald frá Seglagerðinni Ægi fylgir
með, aðrir aukahlutir eftir samkomu-
lagi. Alltaf geymt inni á vetrum.
Verð: samkomulag.
Upplýsingar í síma 892 7619.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
atvinna
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is
✝ Laufey Sigurð-ardóttir fædd-
ist á Steinaflötum í
Glerárþorpi 7.
mars 1926. Hún lést
á Sjúkrahúsinu á
Akureyri 8. júní
2012.
Laufey ólst upp á
þurrabúðarbýlinu
Háagerði á Sjáv-
arbakka í Arn-
arneshreppi. For-
eldrar hennar voru hjónin
Jónína Steinunn Magnúsdóttir
og Sigurður Helgi Jóhannsson.
Systkini Laufeyjar eru Sigþór
Björgvin, látinn, Kristín Mar-
grét, látin, Jóhanna, Jóhann
Steinmann, látinn, og Ester
Lára.
Hinn 4. maí 1947 giftist Lauf-
ey Jónasi Sigurðssyni, f. 28.
september 1912, d. 28. nóv-
ember 1999, foreldrar hans voru
Kristjana Marín Magnúsdóttir
nóvember 1972. Þau eiga þrjá
stráka, Ragnar Inga, Guðmund
Kristin og Kjartan Stein. d)
Sævar Jóhann, f. 16. desember
1974, maki Sigurbjörg Þórey
Ólafsdóttir, f. 18. ágúst 1975.
Þau eiga tvær stelpur, Anítu
Eiri og Árnýju Dögg. e) Jóhann-
es Karl, f. 8. janúar 1979, maki
Harpa Þorsteinsdóttir, f. 27.
júní 1986. Barn þeirra er Stein-
ar Karl. Dóttir Jóhannesar
Karls af fyrra hjónabandi er
Ágústa Ýr. 2) Gylfi, f. 22. júní
1952, giftur Guðnýju Kristínu
Kristjánsdóttur, f. 22. apríl
1953. Þau eiga þrjú börn; a)
Katrín, f. 2. febrúar 1971, maki
Hjörtur Geirmundsson, f. 10.
september 1967. Þau eiga þrjú
börn, Arnar Geir, Elvar Inga og
Önnu Karen. b) Kristján Rúnar,
f. 10. nóvember 1975, maki
Helga Svava Arnarsdóttir, f. 3.
nóvember 1975. Þau eiga þrjú
börn, Aron Hólm, Ingimar Arn-
ar og Kristínu Marý. c) Ómar
Ingi, f. 3. júní 1986, maki Aníta
Einarsdóttir, f. 28. febrúar 1988.
Útför Laufeyjar fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 18. júní
2012, og hefst athöfnin klukkan
13.30.
og Sigurður Guðni
Jóhannesson, bæði
látin. Laufey og
Jónas eignuðust tvö
börn: 1) Elsa, f. 28.
september 1948,
gift Sigursteini
Kristinssyni, f. 7.
september 1949.
Þau eiga fimm
börn; a) Heiðdís, f.
18. febrúar 1966,
maki Jón Víkingur
Árnason, f. 1. nóvember 1969.
Börn þeirra eru Kristófer Logi
og Tinna Dögg. Börn Heiðdísar
af fyrra sambandi eru Heimir
Örn og Arna Dögg. b) Hjördís, f.
20. febrúar 1967, maki Brynjar
Finnsson, f. 15. febrúar 1964.
Þau eiga fjörgur börn, Bryn-
hildi Laufeyju, Elsu Rún,
Bjarndísi Rögnu og Geirfinn
Brynjar. c) Jónas Leifur, f. 5.
ágúst 1971, maki Ragnheiður
Ingibjörg Ragnarsdóttir, f. 24.
Frá unga aldri annaðist Laufey
systkini sín og heimili en fékk þó
að fara einn vetur í barnaskólann í
samkomuhúsinu á Grundinni. Síð-
an lá leið hennar í kaupavinnu á
bæi í sveitinni, aðallega í Stóru-
Brekku, Arnarneshreppi. Þegar
Laufey var 18 ára réð hún sig í
vinnu á Hótel Gullfossi og var ein
af þeim sem björguðust þegar
hótelið brann 14. mars 1945. Sú
lífsreynsla markaði djúp spor í
sálu hennar. Laufey var í fyrsta
árgangnum sem stundaði nám í
Húsmæðraskólanum á Akureyri
en þaðan lá leið hennar í vinnu á
Fosshóli við Goðafoss. Þar kynnt-
ist hún Jónasi sumarið 1946 og
felldu þau strax hugi saman.
Laufey og Jónas giftu sig vorið
eftir og hófu búskap á Akureyri,
fyrst í Munkaþverárstræti en
byggðu svo hús í Byggðaveginum
þar sem þau bjuggu alla sína bú-
skapartíð. Eftir andlát Jónasar
árið 1999 keypti Laufey sér íbúð í
Mýrarvegi 111 og undi hún hag
sínum vel þar.
Laufey var húsmóðir, móðir,
amma, langamma og systir fram í
fingurgóma og fengu ástvinir
hennar og heimili að njóta kær-
leika hennar og umhyggjusemi.
Síðari hluta starfsævinnar eyddi
Laufey á Saumastofunni Heklu
eða allt þar til Jónas veiktist af al-
varlegum nýrnasjúkdómi en þá
annaðist hún hann í veikindum
hans. Laufey tók virkan þátt í fé-
lagsstarfi aldraðra, var m.a. í
danshópnum og var hún mjög
stolt af því. Hún fór einnig í mörg
ferðalög með öldruðum og hafði
gaman af.
Fyrir nærri tveimur árum
greindist Laufey með krabba-
mein í andliti og við tóku endur-
teknar aðgerðir og geislameðferð,
óréttlát barátta þar sem Laufey
stóð sína plikt án þess að kvarta.
Þar sýndi sig best æðruleysið sem
einkenndi hana allt hennar líf.
Ástvinir Laufeyjar vilja koma
sérstöku þakklæti til HO deildar
Sjúkrahússins á Akureyri og
heimahlynningar fyrir góða um-
mönnun á erfiðum tímum.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Farðu í Guðs friði.
Fyrir hönd ástvina,
Elsa og Gylfi.
Elsku amma.
Við kveðjum þig með söknuði
og sorg í hjarta en loksins fékkst
þú hvíldina sem þú þráðir svo
heitt og áttir svo sannarlega skil-
ið. Eftir stendur þó tómarúm sem
erfitt verður að fylla. Síðastliðin
tvö ár hafa verið erfið, endalaus
barátta og endalaus vonbrigði,
ekki bara einu sinni heldur aftur
og aftur og allt var tekið frá þér,
öll lífsgæði. Í gegnum þennan
tíma sýndir þú af þér mikið æðru-
leysi og ósérhlífni en þannig hefur
ávallt verið hægt að lýsa þér, ósér-
hlífin, æðrulaus, kærleiksrík og
umhyggjusöm. Við systurnar nut-
um þeirra forréttinda að alast upp
í Byggðaveginum hjá þér og afa,
umvafðar kærleika og umhyggju.
Stelpurnar hennar ömmu eins og
bræður okkar og frændsystkini
kölluðu okkur. Já, við vorum alltaf
og verðum alltaf stelpurnar þínar.
Kærleikurinn sem þú gafst okkur
að gjöf fylgir okkur og börnum
okkar áfram og við erum svo
þakklátar fyrir allt sem þú gafst
okkur. Góðmennska þín var mikil,
elsku amma, þú hafðir svo stórt
hjarta og varst falleg bæði að inn-
an sem utan. Þú varst alltaf svo
góð og aldrei sáum við þig skipta
skapi, alltaf með sama langlund-
argeðið sama hvað á bjátaði. Þú
kenndir okkur svo margt og alltaf
gátum við leitað til þín með alla
hluti. Þú sagðir aldrei nei en það
orð notaðir þú ekki oft enda vildir
þú allt fyrir alla gera. Þú varst
einstaklega lagin í höndunum og
þegar við vorum litlar og langt
fram á unglingsárin vorum við
alltaf svo fínar í fötum sem þú
saumaðir á okkur. Sumar þær
flíkur eigum við enn og eru okkur
dýrmætar.
Það er svo erfitt að kveðja þig,
elsku amma, og orðin láta á sér
standa. Við höfum vitað að hverju
stefndi í nokkurn tíma og jafnvel
óskað þess að þú yrðir leyst frá
þrautum þínum en þegar kallið
kom varð sorgin sár og söknuður-
inn mikill. Eftir standa þó margar
yndislegar minningar, fallegar
minningar um yndislega konu,
ömmu og móður, minningar um
skemmtilegar samverustundir og
góðan tíma sem við fengum með
þér.
Undir háu hamrabelti
höfði drúpir lítil rós.
Þráir lífsins vængja víddir
vorsins yl og sólarljós.
Ég held ég skynji hug þinn allan
hjartasláttinn rósin mín.
Er kristalstærir daggardropar
drúpa milt á blöðin þín.
Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað,
krjúpa niður kyssa blómið
hversu dýrðlegt fannst mér það.
Finna hjá þér ást og unað
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei, það er minning þín.
(Guðmundur G. Halldórsson.)
Hvíl í friði, elsku amma, þú
varst og ert ljósið í lífi okkar.
Heiðdís og Hjördís.
Elsku amma.
Ég sakna þín svo mikið en ég
vona að þér líði betur þar sem þú
ert núna. Það verður skrítið að
fara ekki í göngu- eða hjólatúr
með mömmu í heimsókn til þín á
sunnudagsmorgnum og fá mjólk
og kökur hjá þér, leika með bíl-
ana, púsla eða spjalla við þig.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Þú verður alltaf með mér í
bænum mínum.
Þinn
Geirfinnur Brynjar.
Elsku Laufey amma, þú hafðir
svo góð áhrif á líf mitt, líklega
meiri áhrif en þú hefur gert þér
grein fyrir. Ég á þér margt að
þakka og er ótrúlega stolt af því
að hafa verið skírð í höfuðið á þér.
Takk fyrir að eiga alltaf tíma
fyrir okkur í kringum þig. Mér
fannst alltaf svo gaman þegar þú
dróst fram leikfangagrindina,
sem innihélt eitthvað fyrir alla, og
lékst við okkur krakkana. Gömlu
dúkkurnar sem mamma og Heið-
dís áttu og þú saumaðir á falleg
föt, gömlu dótabílarnir og prjón-
uðu bangsarnir sem þú bjóst til
sjálf og varst svo ánægð með. Þótt
þetta hafi ekki verið glænýtt dót
var alltaf jafngaman að leika með
það, enda var þetta dótið hjá
Laufeyju ömmu. Þegar við vorum
í pössun hjá þér gafstu þér alltaf
tíma til þess að sjá til þess að okk-
ur leiddist ekki með því að leika
við okkur og spjalla. Þú talaðir
mikið við mig þegar ég var yngri
og sagðir mér svo oft hversu skýrt
og fallega ég talaði sem barn og á
ég það að sumu leyti þér að þakka
fyrir að gefa þér tíma til þess að
tala við mig.
Takk fyrir að minna mig á
hversu mikilvæg fjölskyldan í
kringum mann er. Þegar ég kom í
heimsókn til þín rifjaðirðu oft upp
sögur frá því þegar þú varst yngri,
eignaðist þín börn og hvernig lífið
var þegar mamma var lítil stelpa.
Þú sagðir mér líka frá hinum
ömmubörnunum þínum og barna-
börnunum sem voru orðin tuttugu
og eitt talsins, já mikið varstu rík.
Mér fannst svo þægilegt að sitja
hjá þér, spjalla við þig og finna
fyrir því hversu gaman þér fannst
að segja frá þeim sem þér þótti
vænt um. Sérstaklega þótti mér
vænt um það þegar ég var í heim-
sókn hjá þér um daginn og þú
kynntir mig fyrir konu sem leit
inn hjá þér. Þegar þú sagðir henni
hver ég væri, að ég væri að læra í
háskólanum og að ég væri nafna
þín fann ég fyrir svo miklu stolti.
Það var eitthvað við það hvernig
þú talaðir, eins og ég væri eitthvað
merkileg.
Takk fyrir að kenna mér að það
þarf ekki stór orð til þess að lýsa
yfir væntumþykju. Þegar ég var
sex ára sastu með mig við eldhús-
borðið í Byggðaveginum, hossaðir
mér á hnjánum og taldir niður
dagana þar til ég myndi missa
gifsið sem ég var með á hand-
leggnum. Ekki á morgun, ekki
hinn, ekki hinn, heldur hinn. Ég
sat þarna í fanginu á þér og leið
miklu betur, þrátt fyrir pirring á
þessu gifsi sem ég var komin með
nóg af. Þessi minning situr svo
föst í mér, enda fann ég fyrir svo
mikilli hlýju og ást. Þér tókst ein-
hvern veginn alltaf að láta manni
líða betur og kæta mann, þó svo
að oft hafi ekki meira þurft til en
smáhoss.
Ég sakna þín amma, þótt ég viti
að þú ert núna á betri stað þar
sem þú getur fylgst vel með okkur
öllum. Takk fyrir það einnig.
Þín
Brynhildur Laufey.
Elsku fallega amma.
Það var alltaf svo gaman að
koma í heimsókn til þín því þú
tókst alltaf svo vel á móti mér og
passaðir að ég færi ekki svöng
heim. Þú gafst þér alltaf tíma fyrir
mig þegar ég kom til þín og við
höfðum alltaf nóg að gera. Það var
svo gaman þegar þú kenndir mér
að sauma út og svo vorum við allt-
af að horfa á gamlar vídeóspólur
með íslenskum gamanþáttum sem
þú hafðir tekið upp í sjónvarpinu.
Þá hlógum við mikið saman. Ég
geymi enn brandarabókina sem
þú bjóst til handa mér og úrklipp-
urnar með Ást er … þessu safn-
aðir þú saman í langan tíma og
límdir í fallega bók og gafst mér.
Ég man þegar ég kom stolt til þín
með fiðluna í fyrsta skiptið og þú
sagðir mér að þú vildir frekar að
ég syngi fyrir þig heldur en að
spila. Síðan baðstu mig alltaf að
syngja fyrir þig, þú hafðir svo
gaman af því og þér fannst röddin
mín svo falleg. Það var svo margt
sem þú gerðir fyrir mig og gerðir
með mér og ég á svo margar fleiri
góðar minningar um samveru-
stundirnar okkar saman. Þær
mun ég alltaf geyma og búa að alla
ævi. Það er gott að vita af þér
þarna hinum megin því ég veit að
þú vakir yfir mér.
Við kveðjum þig með tregans þunga tár
sem tryggð og kærleik veittir liðin ár.
Þín fórnarlund var fagurt ævistarf
og frá þér eigum við hinn dýra arf.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Hvíldu í friði, elsku amma, ég
mun aldrei gleyma þér.
Þín
Elsa Rún.
Laufey
Sigurðardóttir
Fleiri minningargreinar
um Laufeyju Sigurðardóttur
bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga.