Morgunblaðið - 18.06.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.06.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2012 Styrmir Gunnarsson vék aðþjóðhátíðarræðu Jóhönnu Sig- urðardóttur á Evrópuvaktinni í gær og benti á að mál hefðu þróast á ann- an veg hér ef Ísland hefði verið inn- an ESB eins og hún óskar sér.    Þá hefði ríkissjóðurÍslands orðið að taka á sig skuldbind- ingar einkarekinna ís- lenzkra banka gagn- vart eigendum skuldabréfa bankanna eins og Írar voru þvingaðir til að gera og sjá ekki enn fram úr.    Þá hefði Alþingi ogríkisstjórn orðið að knýja fram, senni- lega með lögum, verulega lækkun launa á Íslandi, bæði hjá opinberum starfsmönnum og í einkageiranum vegna þess, að þá hefði gengislækk- un eigin gjaldmiðils ekki komið að þeim notum, sem gengislækkun krónunnar gerði. Þá hefði Alþingi og ríkisstjórn, sennilega með lögum orðið að lækka verulega öll eftirlaun í landinu, eins og Grikkjum, Írum, Portúgölum og nú Spánverjum hefur verið gert að gera. Þá hefði atvinnuleysi náð svipuð- um hæðum og í þeim evrulöndum, sem verst hefur gengið vegna þess að gengislækkun krónunnar hefði ekki verkað sem innspýting í útflutn- ingsatvinnugreinar, sem hún hefur gert.    Þannig mætti lengi telja. Nýjustufréttir af stöðu Íra eru þær að þeir verði líklega áfram háðir lán- veitingum frá ESB/AGS/Seðlabanka Evrópu, ekki vegna þess að þeir hafi ekki staðið sig heldur vegna þess ástands sem nú ríkir á evrusvæðinu. Ætli Jóhanna Sigurðardóttir og félagar hennar geri sér grein fyrir að hefðu þeirra óskir um aðild Ís- lands að ESB og evrunni náð fram að ganga fyrir bankahrun væri nú ör- birgð á Íslandi?“ Styrmir Gunnarsson Örbirgð með aðild STAKSTEINAR Jóhanna Sigurðardóttir Veður víða um heim 17.6., kl. 18.00 Reykjavík 12 léttskýjað Bolungarvík 10 léttskýjað Akureyri 14 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 10 skýjað Vestmannaeyjar 9 heiðskírt Nuuk 7 léttskýjað Þórshöfn 10 skýjað Ósló 16 skýjað Kaupmannahöfn 17 léttskýjað Stokkhólmur 17 heiðskírt Helsinki 12 skúrir Lúxemborg 20 heiðskírt Brussel 20 léttskýjað Dublin 12 skúrir Glasgow 12 léttskýjað London 18 léttskýjað París 20 heiðskírt Amsterdam 17 léttskýjað Hamborg 18 skýjað Berlín 22 heiðskírt Vín 28 skýjað Moskva 23 heiðskírt Algarve 26 léttskýjað Madríd 32 heiðskírt Barcelona 23 heiðskírt Mallorca 26 heiðskírt Róm 32 heiðskírt Aþena 27 heiðskírt Winnipeg 16 léttskýjað Montreal 25 léttskýjað New York 20 léttskýjað Chicago 26 léttskýjað Orlando 28 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 18. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:55 24:04 ÍSAFJÖRÐUR 1:34 25:34 SIGLUFJÖRÐUR 1:17 25:17 DJÚPIVOGUR 2:10 23:48 Laus laxveiðileyfi í sumar Veiðiklúbbur Íslands Skipholt 35 105 Reykjavík Nánari upplýsingar veitir Orri, orri@icy.is Ingvar P. Guðbjörnsson Baldur Arnarson Forsetaframbjóðendurnir hafa ólík- ar skoðanir á því hvaða áhrif það hafi á kosningabaráttuna að þingið skuli enn vera starfandi. Herdís Þorgeirsdóttir forseta- frambjóðandi telur það ekki hafa mikil áhrif á kosningabaráttuna að þing starfi fram yfir starfsáætlun. „Hvað snertir kosningarnar finnst mér það ekki skipta öllu máli en það er verra ef þingið getur ekki lokið störfum vegna ástandsins þar. Þá er ég að horfa á stöðuna út frá þjóðar- hagsmunum, að störf þingsins gangi vel. Ef þau gera það ekki er það slæmt burtséð frá kosningunum.“ Hindri ekki aðgang „Fjölmiðlar verða að vera duglegir að ræða við forsetaframbjóðendur þótt þingið sé að störfum. Breytingar á starfsáætlun þingsins hafa ekki truflandi áhrif á forsetaframboðin nema með því að hindra aðgang okk- ar að fjölmiðlum. Ég vona að sú verði ekki raunin,“ segir Herdís. Andrea Jóhanna Ólafsdóttir telur þessa stöðu ekki af hinu góða. „Það er mjög óheppilegt að þetta sé að gerast á sama tíma. Umfjöllun um þingið og forsetakosningarnar kann að trufla hvað annað.“ Hannes Bjarnason telur töfina á þinglokum ekki hafa mikla þýðingu. „Það hefur verið rætt um að for- setakosningarnar fái ekki nógu mik- ið rými í fjölmiðlum vegna þess að þingið er starfandi. Hingað til finnst mér fjölmiðlar hafa staðið sig þokka- lega í að fjalla um kosningabarátt- una. Hins vegar finnst mér hafa skort á að fjölmiðlar leiði saman frambjóðendurna. Ég hefði viljað sjá meira af því. Ég fæ ekki séð að það ráði úrslitum að þingið starfi umfram boðaða áætlun.“ Kemur niður á frambjóðendum Ari Trausti Guðmundsson segir töfina ekki góða fyrir kosningarnar. „Þetta harðnar og kemur á vissan hátt niður á okkur. Það er að hluta til út af því að fjölmiðlar þurfa náttúr- lega að vera að sinna þessu og gera þá minna fyrir okkur á meðan. Ég get svo sem ekki sagt neitt um hvernig hægt er að leysa þetta annað en það að menn ættu að reyna að ná samkomulagi um að gefa þinginu frí og ákveða sumarþing. En við óskum þess sjálfsagt öll að geta fengið eina eða tvær vikur þar sem kastljósinu er beint að okkur einum.“ Þóra Arnórsdóttir telur aðspurð að rétt sé að gera hlé á þingstörfum. „Þingið verður náttúrlega að gera upp sín mál. Ef það ræður ekki við það þá er lítið við því að gera. En ég held að það væri eðlilegt að gera hlé,“ sagði Þóra sem svaraði svo spurð hvort hún finni fyrir neikvæð- um áhrifum af stöðunni á þinginu á hennar eigin kosningabráttu: „Það er auðvitað erfitt að meta það, en nei ég hef ekki fundið fyrir því.“ Ekki náðist í Ólaf Ragnar Gríms- son, forseta Íslands. Tveir forsetaframbjóðendur telja þingið trufla baráttuna  Sá þriðji óttast skort á athygli fjölmiðla  Sá fjórði telur þinghlé tímabært Andrea Jóhanna Ólafsdóttir Herdís Þorgeirsdóttir Ólafur Ragnar Grímsson Hannes Bjarnason Þóra Arnórsdóttir Ari Trausti Guðmundsson Nú er hægt að greiða atkvæði í forsetakosningunum utan kjör- fundar hjá öllum sýslumannsemb- ættum landsins og hjá sendiráðum og ræðismönnum víða erlendis. Í Reykjavík fer atkvæðagreiðsla fram í Laugardalshöll og þar er op- ið alla daga frá klukkan 10 til 22 til 29. júní og á kjördag, laugardaginn 30. júní, verður opið í Laugardals- höll frá klukkan 10 til 17 fyrir þá kjósendur sem ekki greiða atkvæði á höfuðborgarsvæðinu. Kjósandinn sjálfur ber ábyrgð á að koma atkvæði sínu í rétta kjör- deild en almenna reglan er þó sú að nóg sé að koma því í einhverja kjördeild í viðkomandi kjördæmi. Þannig á að vera nóg fyrir íbúa á Höfn sem þarf að kjósa í Reykjavík að skila atkvæði sínu í kjördeild í Hveragerði og fyrir Ísfirðing á að vera nóg að skila sínu atkvæði í kjördeild á Akranesi, sem dæmi. Þessi ábyrgð hvílir einnig á kjós- endum sem kjósa erlendis. Atkvæðið á ábyrgð kjósanda UTANKJÖRFUNDARATKVÆÐAGREIÐSLA ER HAFIN ALLS STAÐAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.