Morgunblaðið - 18.06.2012, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.06.2012, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Forðastu rifrildi eða ágreining við þá sem hafa eitthvað yfir þér að segja, svo sem kennara, foreldra eða aðra máttarstólpa. Tal- aðu jafnan varlega, því aðgát skal höfð í nær- veru sálar. 20. apríl - 20. maí  Naut Viðamikið samstarfsverkefni sem þú ert nú að taka þátt í krefst mikils. Mundu að hvatning virkar mun betur en gagnrýni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vertu ekkert að halda aftur af hug- myndaflugi þínu þótt einhverjir séu með nöldur í þinn garð. Þér tekst að koma um- kvörtunarefnum áleiðis, án þess að fólki finn- ist þú vera að kvarta. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að láta fjölskyldumál til þín taka en þú þarft einnig að sinna þér. Stattu vörð um heilsu þína og hamingju. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Með gamansemi léttir þú bæði þér og öðrum störfin og allir vilja vinna með þér og fá þig í samkvæmi sín. Njóttu þess að hitta fólk í þægilegu umhverfi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Tilfinningar þínar eru svo sterkar og vilji þinn til að fela þær svo lítill að þú ert eig- inlega opin bók. Talaðu við aðra og reyndu að njóta lífsins til fulls. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú ríður á að þú skipuleggir hlutina af mikilli nákvæmni því ekkert má út af bera ef viðunandi árangur á að nást. Láttu ekki smá- munina tefja þig. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Nú er rétti tíminn til að hrinda í framkvæmd þeim áætlunum, sem þú hefur svo lengi unnið að af kostgæfni. Segðu sjálf- um þér satt um hvað þú vilt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú verður á kafi í gömlum málum og úrlausnarefnum sem tengjast fjölskyld- unni og fasteignum á næstunni. Sýndu hug- myndaauðgi þegar þú leitar aðstoðar ann- arra. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er alltaf gaman að leika sér og umfram allt þarftu að gefa þér tíma til þess að sinna barninu í sjálfum þér. Búðu þig undir að til þín verði leitað varðandi önnur störf. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þeir eru margir sem vilja veðja á sköpunarkraft þinn og líða þér eitt og annað þessvegna. Það gengur allt vel hjá þér núna og því hefurðu hlutina í hendi þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú færð það sem þú vilt en ekki á sama hátt og þú hélst. Hálfnað er verk, þá hafið er og kemst þótt hægt fari. Ég hitti karlinn á Laugaveg-inum fyrir utan Vinnufata- búðina. Hann var með blað í hönd- um, sem hann velti milli lófa sér. „Ég fór út í Eyjar til að fylgjast með Pæjumótinu og þegar ég kom til baka beið mín orðsending á netinu síðan á föstudag,“ sagði hann: Í Vísnahorni dagsins í Morg- unblaðinu í dag er eftirfarandi klausa: Karlinn á Laugaveginum var ánægður með sjálfan sig, þar sem hann stikaði niður Frakka- stíginn og hnykkti höfðinu aftur fyrir sig upp í Skólavörðuholtið: Kerling góðan hefur haus og hjartagæsku ríka en hún er að verða hálf-sjónlaus og heyrnin búin líka. Satt að segja er skýring á þessu: Undan því svo verði vikist væl hans þola og raus; blekki ég hann, bara þykist blind og heyrnarlaus. Með kveðju frá kerlingunni. „Þetta er nú ekki elskulegt, en henni líkt,“ sagði hann og stundi. „Ég verð að gera bragarbót: Gestrisni eru veggir víðir svo verður rúmt í kotinu; ekki þröngan stakk sér sníðir á snafs í veggjarbrotinu; útsjónarsemina undrast lýðir alltaf er pláss í skotinu; augum skoðar, eyrum hlýðir, er eins og drottning í slotinu.“ Og eins og til að rífa sig frá þessum rómantísku hugsunum fór hann út í pólitíkina: „Það er svo sem ekkert að gerast í þinginu. Sama stautið og tautið. En þið hafið verið að tala um vísnagátur í Horninu. Getur þú ráðið þessa? Þeir sögðust vilja semja um frið, sátta höfðu tóninn; snúa réttu og röngu við ráðherrann og dóninn. Hverjir voru þetta?“ spurði hann og bætti við: „Merkingin er jafn ljós eða óljós eins og í þessari vísu Káins í Minni til mjólkur- manna, en framan af árum höfðu margir Íslendingar í Winnipeg mjólkursölu að atvinnu: Vorri kæru fósturfoldu þeir fagran minnisvarða reisi. Bresti þá aldrei neitt af neinu nema skort á mjólkurleysi. Og nú er spurningin: Óskaði Ká- inn þeim þess, að þeir hefðu alltaf yfrið nóga mjólk eða hins að það yrði mjólkurskortur á markaðnum svo að verðið hækkaði?“ sagði hann sakleysislega og skundaði niður á Hverfisgötu þar sem fjós barónsins á Hvítárvöllum stendur enn á horninu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ráðherrann og dóninn G æ sa m am m a o g G rí m ur G re tt ir S m áf ól k H ró lf ur hr æ ði le gi F er di n an d ÞAÐ ER GAMAN AÐ LEIKA SÉR AÐ MATNUM BORÐAÐIR ÞÚ LÍKA SÍÐUSTU SMÁKÖKUNA? ÞÚ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ VERA Í JAFN GÓÐU SKAPI OG ÉG HVORT ÉG ER JÓN MINN HRÓLFUR ER EKKI HRIFINN AF ÞVÍ AÐ DREKKA Á FASTANDI MAGA HVAÐ MÁ BJÓÐA YKKUR? ÉG ÆTLA AÐ FÁ EINN BJÓR HJÁ ÞÉR, EN FYRST... ...ÆTLA ÉG AÐ FÁ HJÁ ÞÉR HEILAN KJÚKLING, RIFJASTEIK, KARTÖFLUR OG EITT OSTSTYKKI HVERNIG GENGUR GRÍMI AÐ GEGNUMLÝSA FÓLK OG FARANGUR Á FLUGVELLINUM? BARA VEL, HANN ER BÚINN AÐ FINNA ALLSKONAR MISMUNANDI HLUTI SEM FÓLK HEFUR REYNT AÐ FELA INNAN Á SÉR ÉG ÞARF ALLA TILTÆKA LÖGREGLUÞJÓNA Á STAÐINN, STRAX Víkverji ákvað nú á dögunum aðbregða sér í klippingu. Það er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema fyrir það að hann hafði gert ráðstafanir. Hann vissi sem var að ekki væri tekið við tímapöntunum á stofunni sem hann hafði hugsað sér að fara á en hringdi til að athuga hvenær opið væri. Svo vel vildi til að sá sem svaraði er málkunnugur Vík- verja og þekkti sá síðarnefndi róm- inn. Spurði hvort slyppi til að vera kominn korteri fyrir lokun í ör- snögga klippingu og var tjá að það hlyti að nást. x x x Að loknum vinnudegi var haldið íátt að miðbænum en þar ætlaði Víkverji að sinna nokkrum erindum og hefja ferðina á klippingunni góðu. Um leið og komið var inn á rakara- stofuna leit rakarinn óljúfu auga á Víkverja sem spurði hvort hann næði fyrir lokun en var samstundis tjáð að allir væru á leiðinni heim. Hann leit í átt að þeim málkunnuga sem var upptekinn við vinnu sína og spurði eigandann aftur, og gaf um leið til kynna að hann hefði talað við þann málkunnuga í síma. Þrátt fyrir að loforð hefði verið gefið um tíma- setningu og hún hefði staðist ítrek- aði eigandinn með ögn hærri rómi, líkt og Víkverji hefði ekki skilið, að allir væru á leiðinni heim. x x x Nokkuð sneyptur gekk Víkverji útá götu og ráfaði stefnulaus um þar til hárgreiðslustofa fannst sem vildi bjarga honum, enda stór- viðburður næsta dag og algjörlega óhæft að vera óklipptur. Það hafðist á endanum og voru það snillingarnir á Mojo sem voru alveg til í að stimpla sig inn aftur, pakka upp úr töskunni og sleppa því að horfa á fótboltann til að þjónusta viðskiptavin sem mun nokkuð örugglega snúa aftur. x x x Það er hins vegar alveg öruggt aðviðtökurnar hjá fyrri rakaranum sem hundsaði það sem talað hafði verið um og lét það vel í ljós að hann hefði engan áhuga á viðskiptum til þess að Víkverji mun hvorki líta inn né mæla með Hárhorninu við Hlemm. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrni- runni. (Lúkas 6, 44.) Árin segja sitt1979-2012 BISTRO Laugarásvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 553 1620 | laugaas.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.