Morgunblaðið - 18.06.2012, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.06.2012, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2012 Opið 9-18 alla daga nema sunnudaga • Sími 553 1099 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Við munum ekki efast um stöðu Grikklands innan Evrópu. Við mun- um ekki láta óttann buga okkur. Þetta er stór stund fyrir Grikkland og alla Evrópu,“ sagði Antonis Samaras, for- maður íhaldsflokksins Nýs lýðræðis, þegar hann lýsti yfir sigri í grísku þingkosningunum í ræðu í gærkvöldi. Ekki var búið að tilkynna formlega um úrslit kosninganna þegar Morg- unblaðið fór í prentun. Samaras sagði úrslitin sigur fyrir Evrópu og bauð öðrum flokkum sem eru fylgjandi neyðarláni Evrópusam- bandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins að mynda ríkisstjórn með flokkn- um. „Gríska þjóðin kaus í dag að halda kúrsinn í Evrópu og vera um kyrrt á evrusvæðinu. Fórnir grísku þjóðar- innar munu færa landið aftur til hag- sældar,“ sagði Samaras. Geta myndað meirihluta Framtíð Grikkja innan evrusvæð- isins var sögð velta á niðurstöðu kosn- inganna en vinstriflokknum Syriza hafði jafnvel verið spáð sigri. Flokk- urinn er andsnúinn neyðarláni Evr- ópusambandsins og Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins. Hefði hann farið með sigur af hólmi og hafnað láninu hefði það getað þýtt að Grikkir hyrfu frá evrusamstarfinu. Nýtt lýðræði og Pasok, þriðji stærsti flokkurinn, eru hins vegar fylgjandi láninu en vilja semja um betri kjör á því. Þessir tveir flokkar geta myndað meirihluta saman vegna reglu sem tryggir stærsta flokknum í kosningunum fimmtíu aukaþingsæti. Talsmenn Pasok létu hins vegar hafa eftir sér í gær að flokkurinn vildi ekki taka þátt í ríkisstjórn án Syriza. Þetta var í annað skiptið á innan við tveimur mánuðum sem Grikkir gengu að kjörborðinu því ekki tókst að mynda ríkisstjórn eftir fyrri þing- kosningar í maí. Fórna ekki stefnumálunum Fyrstu tölur sem birtar voru í gær- kvöldi bentu til þess að Nýtt lýðræði hefði fengið rúm 30% atkvæða en Sy- riza rúm 26%. Skömmu síðar viður- kenndi Alexis Tsipras, formaður Sy- riza, ósigur og sagði að stjórnar- myndunarumboðið lægi hjá Nýju lýðræði. Hafnaði hann ennfremur boði Samaras um að taka þátt í þjóð- stjórn. Niðurstaðan er engu að síður mikill kosningasigur Syriza en flokkurinn fékk tæp sautján prósent í kosning- unum í maí. Í þingkosningunum árið 2009 fékk flokkurinn aðeins 4,6 pró- sent atkvæða. Alexis Tsipras, formaður Syriza, gagnrýndi „sálfræðilega hryðju- verkastarfsemi“ gömlu flokkanna í ræðu þar sem hann viðurkenndi sigur Nýs lýðræðis. Hann hafnaði jafn- framt boði Samaras um að taka þátt í þjóðstjórn. „Við munum koma að þróun mála í stjórnarandstöðu. Með sterkri stöðu Syriza munum við ekki fórna stefnu- málum okkar. Ríkisstjórnin verður að grípa til aðgerða í þágu þjóðarinnar. Þjóðin samþykkti ekki neyðaraðstoð- ina á bindandi hátt,“ sagði Tsipras. Úrslitin sögð sigur fyrir Evrópu  Nýtt lýðræði vann nauman sigur í grísku þingkosningunum  Ætla að standa við skuldbindingar AFP Sigurreifur Antonis Samaras, formaður Nýs lýðræðis (fyrir miðju), umkringdur stuðningsmönnum sínum eftir að hann hafði lýst yfir sigri í þingkosningunum á blaðamannafundi í miðborg Aþenu í gærkvöldi. Merkel ánægð » Mikil pressa hefur verið á grískum kjósendum að kjósa stjórnmálaflokka sem styðja neyðarlánin. » Angela Merkel, kanslari Þýskalands, óskaði Samaras til hamingju með sigurinn í gærkvöldi og sagðist nú vera viss um að grísk stjórn- völd myndu standa við skuldbindingar sínar við önnur Evrópulönd. » Evran styrktist verulega gagnvart dollar og jeni þeg- ar úrslit kosninganna voru ljós. Talskona norska Miðflokksins um stefnumótun í dómsmálum hefur vakið reiði gyðinga og múslíma með því að lýsa því yfir að umskurður drengja sé úreltur, hættulegur og að hann ætti að banna. „Að mínu mati er þetta hefð sem við getum ekki samþykkt í nútíma- legu, siðuðu samfélagi. Markmið okkar er að leggja áherslu á réttindi ungra barna. Sem betur fer er nú bannað að umskera stúlkur, nú er tímabært að drengir fái sambæri- lega lagavernd,“ sagði talskonan Jenny Klinge í viðtali við Dagbladet. Hún gagnrýndi jafnframt ríkis- stjórnina, sem Miðflokkurinn á raunar aðild að, fyrir að kalla til sér- fræðinga til að skoða möguleikann á að koma umskurði drengja inn í heil- brigðiskerfi landsins. Segir Klinge að það myndi ljá þessari hefð lög- mæti. Sjálf telur hún að umskurður á trúarlegum forsendum ætti að vera refsivert athæfi. „Ég tek ekki mark á rökum um að bann við umskurði stríði gegn trúfrelsi því að slíkt frelsi hlýtur að fela í sér sjálfsákvörðunar- rétt,“ segir Klinge. Forsvarsmenn gyðinga eru hins vegar ósáttir og segja að bann við umskurði myndi senda sterk skila- boð um að gyðingar séu óvelkominn minnihluti í Noregi. „Þetta er aðgerð sem ekki er hægt að taka til baka á drengjum sem ekki geta varið sig og er þannig brot á grundvallarmannréttindum,“ segir Jan Helge Solbakk, prófessor í læknasiðfræði við Óslóarháskóla. Vill banna umskurð  Gyðingar og múslímar ósáttir við talskonu norska Miðflokksins Allt benti til þess í gærkvöldi að Sósíalista- flokkur François Hollande forseta næði hreinum meirihluta í neðri deild franska þingsins eftir seinni umferð þingkosninga þar í landi í gær. Útlit var fyrir að flokk- urinn fengi 308 til 320 þingsæti af 577. Fyrri umferð kosninganna fór fram á sunnudag fyrir viku og fengu sósíalistar þá 46% atkvæða gegn 34% hægriflokksins UMP, flokks Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseta. Kosið var um 577 þingsæti en í 36 kjördæmum var sigurvegarinn með yfir 50% atkvæða. Sósíalistar og stuðningsmenn þeirra unnu 25 þeirra þingsæta. Í gær var svo kosið á milli tveggja efstu flokkanna í því 541 kjördæmi þar sem eng- inn fékk hreinan meirihluta í fyrri umferð- inni. Sósíalistar höfðu þegar meirihluta í efri deild þingsins ásamt stuðningsflokkum sín- um. Niðurstaðan í gær þýðir að Hollande forseti þarf ekki að reiða sig á stuðning Græningja eða vinstriflokka til að ná fram stefnumálum sínum í þinginu. Sósíalistar styrkja stöðu sína  Flokkur Hollande sigurvegari frönsku þingkosninganna François Hollande AFP Sorg Dætur Rodney King, Lora og Candice, fella tár fyrir utan heimili föð- ur síns í Kaliforníu þar sem hann fanst látinn í sundlaug í gærmorgun. Rodney King, maðurinn sem var miðpunktur óeirðanna í Los Angel- es árið 1991, fannst látinn í sund- laug á heimili sínu í gærmorgun. Unnusta hans kom að honum látn- um en hann var aðeins 47 ára gam- all. Ekki leikur grunur á að andlát hans hafi borið að með saknæmum hætti. Vitað er að hann þjáðist af áfengissýki á síðustu árum. King komst í heimsfréttirnar fyr- ir rúmum tuttugu árum þegar mikl- ar kynþáttaóeirðir hófust eftir að fjórir hvítir lögregluþjónar voru sýknaðir eða sættu ekki refsingu fyrir að hafa gengið í skrokk á hon- um við vegarkant þrátt fyrir að myndbandsupptaka væri til af of- beldisverkinu. Eftir að dómurinn féll kom til átaka á milli ungra blökkumanna og lögreglu með þeim afleiðingum að fimmtíu manns létust og þús- undir særðust. kjartan@mbl.is Rodney King látinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.