Morgunblaðið - 18.06.2012, Blaðsíða 6
Vorið er annatími í sveitinni og þegar
stórt æðarvarp bætist við 700 fjár og
40 nautgripi verður ekki mikið um
svefn. Þetta er veruleikinn hjá Eiríki
Snæbjörnssyni og fjölskyldu hans á
Stað í Reykhólasveit, en á Stað búa
þau Eiríkur og Sigfríður Magn-
úsdóttir félagsbúi með dóttur sinni
Rebekku og manni hennar, Kristjáni
Ebeneserssyni. Þess má geta að æð-
arvarpið og önnur hlunnindi eru í
óskiptri sameign bæjanna Staðar og
Árbæjar, en í Árbæ búa þau Ása
Stefánsdóttir og Þórður Jónsson.
„Þetta er lífið og ástæðulaust að
kvarta,“ segir Eiríkur í spjalli, en í
Reykhólasveit eru yfir 80% jarða með
hlunnindi af æðarvarpi og/eða silungi.
„Þetta er gott vor. Almennt bera
hlunnindabændur sig vel og hretið í
maí hafði ekki áhrif hér um slóðir.
Einstaka staðbundin svæði hafa þó
orðið fyrir ágangi af flugvargi, eink-
um hrafni og erni. Af erninum eru
það einkum ungir geldfuglar sem
flækjast um og valda oft miklum usla,
en síður ráðsettir ernir sem komnir
eru í varp.“
Eiríkur segir að þeir hafi að mestu
verið lausir við minkinn síðustu 6-7 ár
vegna þess að honum sé haldið í
skefjum. Hans verður þó vart við og
við, einkum í hinum gamla Múla-
hreppi. Þess má geta að Eiríkur nytj-
ar æðarvarpið á Svínanesi í Múla-
hreppi. Refurinn hefur oft verið
erfiðari í varpinu heldur en í vor, en í
vetur voru nokkur dýr felld í grennd
við Stað. Stöðugt eftirlit þurfi að hafa
með þessum vágestum, enda hefur
ref fjölgað að undanförnu.
Yfir talsvert svæði er að fara á
landi, eyjum og skerjum. Auk hefð-
bundins búskapar og dúntekjunnar
er dúnhreinsistöð á Stað. Þá selur Ei-
ríkur og hans fólk sjálft dúninn og fer
fyrsta sendingin til erlendra kaup-
enda síðsumars.
Eftirlíkingar af arnareggjum
Ekki nægja þessi verkefni Eiríki
því á veturna smíðar hann og rennir
ýmsa gripi. Hann nefnir penna og
skálar og nú síðast renndi hann eft-
irlíkingar af arnareggjum fyrir arn-
arsetrið í Króksfjarðarnesi, sem verið
er að opna, en þar er jafnframt hand-
verksmarkaður. Þá er hann þátttak-
andi í verkefninu „Beint frá býli“ og
verkar og selur meðal annars hangi-
kjöt og reyktan rauðmaga.
Erlendir kaupendur hafa oft verið
gestir á Stað, en í sumar er ekki von á
slíkum heimsóknum. Eiríkur var hins
vegar nýverið beðinn að taka á móti
japönsku kvikmyndagerðarfólki, en
fyrirhugað er að gera kynningarmynd
um æðarvarp á Íslandi. Vegna anna
varð hann að hafna þessu erindi. Fyrir
nokkrum árum dvaldi hins vegar hóp-
ur franskra kvikmyndagerðarmanna
um tíma á Stað til að gera mynd fyrir
þýsk-franska sjónvarpsstöð.
Eiríkur á Stað Sláttur hófst á
Reykjanesi um helgina.
„Þetta er lífið“
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2012
Bíldshöfða 18 | Sími 567 1466 | Opið frá kl. 8–22
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Vel horfir með æðardúnstekju á
þessu sumri og meðan margir
bændur kvarta yfir þurrki hentar
hann æðarbændum vel. Eftir-
spurn eftir dúni hefur verið mikil
síðustu misseri og virðist ekkert
lát á henni. Verð hefur farið
hækkandi frá árinu 2010 og
hækkar enn. Ef áfram heldur sem
horfir munu verðmæti útflutts
æðardúns fara yfir hálfan milljarð
króna á árinu.
Æðarvarp er allt í kringum
landið nema á sendinni suður-
ströndinni og telst til hlunninda á
um 400 býlum. Hreiðrin eru allt
frá nokkrum upp í um fjögur þús-
und og er dúntekja á ári um þrjú
tonn af hreinsuðum æðardúni.
Mestallur æðardúnn er fluttur út
sem hráefni á erlenda markaði.
Aðalmarkaður er Japan, Þýska-
land og Austurríki. Ef æðardúnn
er fluttur til Evrópu er vörur úr
honum fullunnar þar, sem síðan
eru að mestu seldar til Japan.
Stöðugt er unnið að því að full-
vinna úr æðardúni hér á landi og
hefur slík vinnsla aukist.
Markaðir taka við sér
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir,
atvinnu- og hlunnindaráðgjafi hjá
Bændasamtökunum, segir að
markaðir virðist sterkir enda mik-
il eftirspurn um þessar mundir og
eldri birgðir uppurnar hjá flestum
söluaðilum. „Kílóið af æðar-
dúninum er komið um og yfir eitt
þúsund evrur og í einhverjum
tilfella upp í 1.800 evrur,“ segir
Guðbjörg, en í krónum eru þessar
upphæðir 160-300 þúsund.
„Það var erfitt hjá mörgum árið
2009, en nú hefur markaðurinn
tekið mikinn kipp og það lætur
nærri að bændur fái allt að helm-
ingi hærri greiðslur heldur en
2009. Þá voru flutt út um 1.650
kíló, en útflutningurinn var 3.662
kg árið 2010 og 3.050 kg í fyrra.“
Guðbjörg segir að langmest af
æðardúninum fari í hágæðasæng-
ur og sé verð á þeim gjarnan 2-5
milljónir króna í verslunum í Jap-
an. Hún segist hafa heyrt um
margfalt hærra verð, en ekki
fengið þær tölur staðfestar. Ótt-
ast var að skjálftar og flóð í Jap-
an fyrir rúmu ári hefðu áhrif á
eftirspurn, en að undanskildum
afturkipp fyrstu vikur á eftir var
markaðurinn fljótur að jafna sig.
Hópar kaupenda
hingað til lands
Erlendir kaupendur fylgjast vel
með framleiðslu hér á landi og
Japanar gera mjög miklar kröfur
og framkvæma gæðapróf á dún-
inum. Auk þess hefur allur út-
fluttur æðardúnn verið metinn af
dúnmatsmönnum hér á landi og
fylgir vottorð hverri sölueiningu
þess efnis.
Þá koma hópar kaupenda
hingað til lands á hverju vori til
að fylgjast með varpi, dúntekju og
hreinsun. Bændur hreinsa dúninn
margir sjálfir og í um tíu stærri
stöðvum fer hreinsun einnig fram.
Á einstaka stað er farið að þvo
dúninn fyrir útflutning, ýmist með
handþvotti eða vélþvotti.
Erfitt að sanna orðróm
Árið 2009 kom upp kvittur um
að hvítur dúnn af alifuglum hefði
verið notaður í dúnsængur, sem
ranglega voru sagðar frá Íslandi.
Kannað var með réttmæti þessa
og eins hvort ástæða væri til
málaferla, en horfið var frá því
þar sem erfitt var talið að sanna
þennan orðróm og kostnaðarsamt
að reka slíkt mál í Japan, að sögn
Guðbjargar.
„Hretið um miðjan maí í vor
kemur vonandi ekki að sök að
þessu sinni, en það kemur betur í
ljós þegar farið verður að hreinsa
dúninn,“ segir Guðbjörg. „Al-
mennt er gott hljóð í bændum og
þægilegt hefur verið að eiga við
varpið í þurrki og hægviðri, sem
víða hefur verið undanfarnar vik-
ur. Hretið í fyrra var miklu erf-
iðara og það var langvinnt á
norðanverðum Vestfjörðum og
Norðausturlandi þar sem æð-
arfugl hrökklaðist af hreiðrum. Í
fyrra var erfitt að komast í varp-
ið og mikið af dúni varð veðri og
vindum að bráð.“
40 teistur á
þremur tímum
Hún segir ref og mink vera
mikið vandamál í æðarvarpi og
því miður sé engin stýring á
stærð refastofnsins. Þá hafi hegð-
un hans breyst á síðustu árum,
hann hagi sér á margan hátt eins
og hundar, sé spakari en áður,
stökkvi yfir girðingar og láti
grunnsævi ekki hindra sig í ætis-
leit. „Tófan er mjög stórt og al-
varlegt vandamál, ekki bara
gagnvart æðarvarpi, heldur líka
mófuglum og sauðfé,“ segir Guð-
björg.
Minkurinn sé sömuleiðis mikið
vandamál og lítið sé gert til að
fækka honum. Í fyrra hafi mink-
ur komist út í Vigur í fyrsta sinn
og á aðeins þremur klukkustund-
um hafi hann drepið um 40 teist-
ur.
Æðarræktarfélag Íslands hefur
ítrekað fjallað um þessa skað-
valda og í ályktunum frá síðasta
ársfundi er hvatt til þess að
fyrirkomulag refaveiða verði
endurskoðað og fjárveitingar til
veiðanna tryggðar til frambúðar.
Einnig að öll lífdýr í loð-
dýrabúum verði örmerkt. Þá var
ítrekuð áskorun félagsins til um-
hverfisráðherra að halda áfram
því verkefni að útrýma mink á
Íslandi. „Það eru miklir hags-
munir æðarbænda og íslenskrar
náttúru að þetta innflutta
aðskotadýr hverfi af landinu,“
segir í skýringu með ályktuninni.
Ljósmynd/Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Tilhugalíf Kollur og blikar við flugvöllinn á Ísafirði síðastliðið vor. Varp virðist víðast hafa tekist vel og hretið í maí ekki hafa haft mikil áhrif.
Æðardúnn tekur flugið á ný
Mikil verðhækkun og útlit fyrir að verðmæti útflutts æðardúns fari yfir hálfan milljarð á árinu
Þægilegt að eiga við varpið í þurrki og hægviðri Áhyggjur af ref og mink í æðarvarpinu
Magn (kg)
Fob verð í m. kr.
(vinstri kvarði)
Meðalverð í þús. kr.
(hægri kvarði)
Æðardúnssala
400
350
300
250
200
150
100
50
0
160
140
120
100
80
60
40
20
0
M
eð
al
ve
rð
(þ
ús
.k
r)
2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012*
*Fyrstu 4 mánuðir ársins 2012
2.
21
9
kg
2.
16
0
kg
3.
22
5
kg
1.
82
0
kg
1.
38
4
kg
2.
60
0
kg
1.
60
2
kg
3.
66
2
kg
3.
0
50
kg
86
1k
g
139,2
m. kr.
132,4
m. kr.
374,8
m. kr.
62,7
þ. kr.
153,8
þ. kr.
122,9
þ. kr.
Fo
b
ve
rð
(m
.k
r.)